Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
Sjá innfellt
kort
SKÝRINGAR EVRÓPA
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) segir að nýtt afbrigði svínaflensuveiru, sem talið er að hafi orðið yfir 100
manns að aldurtila í Mexíkó, geti leitt til heimsfaraldurs. Veiran hefur þegar borist til Bandaríkjanna og Kanada.
VARÚÐARRÁÐSTAFANIR VEGNA SVÍNAFLENSU
Lýst yfir hættuástandi
Hert eftirlit á flugvöllum, leit að
fólki með flensueinkenni
Birgja sig upp af flensulyfjum
Annað
Takmarkanir/bann við svínakjöts-
innflutningi
Spánn
Farþegar í flugvélum til
Mexíkó með
andlitshlífar og hanska
Danmörk
Áætlun um viðbúnað
vegna hættu á fugla-
flensusmiti. Nægar
birgðir af tamiflu
Grikkland
Hefur safnað nægum
birgðum af tamiflu og
öðrum flensulyfjum
Frakkland
Heilbrigðisráðuneytið
myndar aðgerðahóp
Bretland
Nægar birgðir af
flensulyfjum til að lækna
allt að helming íbúanna
Tékkland
Austurríki
Rússland
Sameinuðu
arabísku
furstadæmin
Venesúela
El Salvador
Suður-Kórea
Filippseyjar
Malasía
Nýja-
Sjáland
Japan
Hong Kong
Bandaríkin
Mexíkó
Argentína
Brasilía
Chile
Panama
Kólumbía
Ekvador
Perú
Kanada
ASÍURÍKIN sum eru betur búin undir hugsanlegan flensufaraldur en
mörg önnur vegna þeirrar reynslu, sem þau búa að eftir glímuna við
SARS-sjúkdóminn svokallaða og fuglaflensuna. Varð sá fyrrnefndi um 800
manns að bana og öll tilfelli þess síðarnefnda hafa verið í Asíu auk Egypta-
lands. Er viðbúnaðurinn mestur og bestur í Hong Kong og er nú hafður til
hliðsjónar annars staðar um heim.
Í Hong Kong eru nú þrjár manneskjur á sjúkrahúsi vegna gruns um
svínaflensu en hver einasti farþegi, sem kemur til borgarinnar með flugvél
eða ferju, verður að ganga um hlið og framhjá tækjum sem sýna með inn-
rauðum geislum hvort viðkomandi er með sótthita. Þá á borgin 20 milljónir
skammta af flensulyfinu Tamiflu en íbúar hennar eru um sjö milljónir. Þá
er fylgst vel með því að ólöglegt og eftirlitslaust húsdýrahald sé ekki
stundað og bannað er að vera með hænsn eða annan fugl í bakgörðum. Í
Hong Kong þarf ekki að kenna fólki að vera með grisju fyrir vitum og
mörg fyrirtæki eru búin undir að fólk geti unnið heima.
Reuters
Eftirlit Mælitæki í alþjóðlegu flugstöðinni í Hong Kong sýna vel hvort far-
þegar eru með hita og ef svo er, þá er strax tekið í taumana.
Fólk með sótthita er stöðvað
við komu þess til Hong Kong
Svínainflúensan er næm fyrir veiru-
lyfjunum Tamiflu og Relenza og
hafa þau reynst vel. Bóluefni verður
komið á markað eftir 3 til 6 mánuði
eftir fyrstu bylgjuna en veirulyf eru-
notuð til að vinna tíma á meðan
beðið er. Á Íslandi eru til lyfjabirgðir
af Tamiflu og Relenza fyrir þriðjung
þjóðarinnar.
Lyf fyrir þriðjung
Komið getur til þess að hafin verði
skimun ferðamanna í Leifsstöð. Þá
kemst enginn inn í landið án þess
að gengið hafi verið úr skugga um
að hann sé ósýktur. Áður verður
þeim tilmælum beint til ferða-
manna að þeir gefi sig fram séu
þeir veikir eða hafi verið á áhættu-
svæðum.
Skimað í Leifsstöð
Heilbrigðisráðherra er heimilt, að
fenginni tillögu sóttvarnarlæknis, að
takmarka ferðafrelsi með því að
grípa til afkvíunar byggðarlaga. Þeg-
ar spænska veikin geisaði var t.a.m.
lokað fyrir umferð um Holtavörðu-
heiði og yfir Mýrdalssand til að
hindra útbreiðslu til Norðurlands og
Austurlands.
Ferðatakmarkanir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Á ÍSLANDI er nú unnið eftir
landsáætlun vegna heimsfaraldurs
inflúensu frá síðasta ári. Meg-
inmarkmið hennar er að hindra að
faraldur berist til landsins, draga
úr útbreiðslu, lágmarka smithættu
og styrkja nauðsynlega starfsemi
og treysta innviði samfélagsins.
Samkvæmt háskastigum við-
bragðsáætlana ríkir óvissustig og
eru aðgerðir í samræmi við það.
Í áætluninni er m.a. áhættumat
og í því gert ráð fyrir að um helm-
ingur þjóðarinnar muni sýkjast á
tólf vikna tímabili berist heimsfar-
aldur skæðrar inflúensu hingað til
lands. Gert er ráð fyrir að allt að
þrjú prósent þeirra sem sýkjast
muni láta lífið. Viðbragðsáætlanir
miða að því að tefja útbreiðslu far-
aldursins en ólíklegt er að full-
komlega verði hægt að koma í veg
fyrir útbreiðslu veirunnar hér á
landi.
Með háskastigum viðbragðsáætl-
ana er alvara og umfang hættunnar
skilgreint. Samkvæmt þeim er
ástandið á óvissustigi. Það er þann-
ig skilgreint að nýr undirflokkur
inflúensuveiru hafi greinst í mönn-
um en sýking milli manna sé ekki
þekkt nema í undantekning-
artilfellum og þá við náið samband.
Meðal þeirra aðgerða sem fara í
gang er athugun á birgðastöðu
matar, lyfja og annarrar nauð-
synjavöru. Jafnframt athugun á
boðleiðum og fjarskiptum.
Náið samráð við WHO
Upplýsingum frá Mexíkó um
svínaflensuna ber ekki saman við
þær frá öðrum löndum þar sem til-
vik hafa komið upp. Flensan sem
greinst hefur utan Mexíkó hefur
reynst mjög væg og allir sýktir náð
sér að fullu.
Hins vegar er vel fylgst með
framgangi mála og náið samráð
heilbrigðisyfirvalda hér á landi við
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina
(WHO), sóttvarnarstofnanir Evr-
ópu (ECDC) og Bandaríkjanna
(CDC) og framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins.
Komi til þess að ástandið versni
verður það fært á hættustig. Þá
verður m.a. reynt að koma í veg
fyrir að sýktir einstaklingar komi
til landsins og komi þeir frá sýkt-
um svæðum fari fyrsta lækn-
isskoðun fram á flugvöllum eða í
höfnum.
Næsta skref fyrir ofan hættustig
er jafnframt það efsta, neyðarstig.
Því er lýst yfir ef stofn veirunnar
hefur fundist í einum eða fleiri ein-
staklingum hér á landi eða heims-
faraldri lýst yfir.
Á því stigi mun viðbragðskerfið
verða að fullu virkjað. Þá er skoðað
hvort setja eigi samkomubann,
hvort skólum verði lokað auk þess
að farið er yfir hvort þörf sé á
afkvíun byggðarlaga eða landsins
alls.
Heilbrigðisráðherra kveður á um
samkomubann og takmörkun ferða-
frelsis, að fenginni tillögu sóttvarn-
arlæknis. Í samkomubanni felst að
fjöldasamkomur eru óheimilar s.s.
fundarhöld, skólastarf, skemmtanir
á borð við dansleiki, leiksýningar
og kirkjuathafnir.
Enn á óvissustigi
Tilfelli flensunnar utan Mexíkó hafa aðeins reynst væg
Hérlendis unnið eftir landsáætlun vegna heimsfaraldurs
Samráðsferli í gangi hér á landi.
Ekki hefur verið gripið til beinna aðgerða.
Farið er yfir birgðastöðu matar og lyfja.
Meginmarkmið að hindra að faraldur verði.
Meðal sóttvarnarúrræða er samkomubann.