Morgunblaðið - 28.04.2009, Síða 27
Umræðan 27BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
VIÐ ERUM 55 manna hópur víðs
vegar að úr atvinnulífinu, sem lýk-
ur í vor MBA-námi frá HR. Við
viljum við freista þess að útskýra
með skýrum hætti valkosti Íslend-
inga í peningamálum. Megininntak
skilaboða okkar er að allir valkostir
hafa kosti og galla. Fórnarkostn-
aðurinn verður bara mismunandi
eftir því hvaða leið er valin.
Grundvallarstaðreyndir
Það er ófrávíkjanleg staðreynd að
ekkert ríki getur á sama tíma haft
frjálsa fjármagnsflutninga, fast-
gengisstefnu og rekið eigin pen-
ingamálastefnu. Það gengur ein-
faldlega ekki upp og því verður
eitthvað eitt af þessu þrennu ávallt
að víkja. Ísland verður því að velja
á milli eftirfarandi leiða:
1) Frjálsa fjármagnsflutninga og
fastgengi með upptöku annars
gjaldmiðils einhliða. A) Evra B)
US$.
2) Frjálsa fjármagnsflutninga og
fastgengi með upptöku evru með
ESB-aðild.
3) Sjálfstæða peningamálastefnu
með ISK og fast gengi, en hefta
fjármagnsflutninga til frambúðar.
4) Sjálfstæða peningamálastefnu
með ISK og frjálsa fjármagnsflutn-
inga, en fljótandi gengi.
Íslenska krónan er ekki
raunhæfur valkostur
Íslenska krónan er því miður ekki
framtíðargjaldmiðill í hnatt-
væddum heimi ef Íslendingar vilja
njóta góðra lífskjara og taka þátt á
alþjóðlegum vettvangi. Kostir við
að halda í krónuna:
* Sjálfstæð peningamálstefna og
stefna í ríkisfjármálum Fórn-
arkostnaður miðað við fastgeng-
isstefnu og höft á fjármagnsflutn-
ingum:
* Gjaldeyrishöft til framtíðar
* Lítil eða engin erlend fjárfest-
ing
* Háir vextir vegna þess að Ís-
land verður talið áhættusamt land
til fjárfestinga
* Hár viðskiptakostnaður. Fórn-
arkostnaður miðað við flotgengi og
frjálsa fjármagnsflutninga:
* Landið er berskjaldað gagn-
vart spákaupmennsku
* Mikill óstöðugleiki og miklar
gengissveiflur
* Fjármagnsflótti
* Háir vextir vegna þess að Ís-
land verður talið áhættusamt land
til fjárfestinga
* Hár viðskiptakostnaður.
Niðurstaða: Sú leið að halda í ís-
lenska krónu er illframkvæmanleg.
Hún leiðir af sér einangrun og fá-
tækt.
Raunhæfar leiðir, en ekki
sársaukalausar
Þá standa fyrstu tvær leiðirnar eft-
ir, sem hafa þá kosti að leiða til
lægra vaxtastigs og lægri verð-
bólgu, auk þess sem Seðlabanki Ís-
lands verður í raun óþörf stofnun.
Á móti kemur kostnaður við að
reyna að tryggja okkur fyrir áföll-
um. Þá mun skipta miklu á hvaða
gengi myntskiptin fara fram, en sú
ákvörðun mun hafa ólík áhrif á
ólíka þjóðfélagshópa og atvinnu-
greinar.
Einhliða upptaka
evru eða US$
Kostir:
* Fljótlegt og tiltölulega einfalt í
framkvæmd
* Höldum sjálfstæði í ríkisfjár-
málum
* Engin hætta á að missa yfirráð
yfir náttúruauðlindum
* Þetta hefur verið gert í öðrum
smáríkjum með góðum árangri
Fórnarkostnaður
* Engin lánveitandi til þrautar,
ekki hægt að aðstoða banka í lausa-
fjárskorti
* Engin sjálfstæð peningastefna
* Líkur á að erlendir bankar
verði að taka yfir stóran hluta af
bankastarfsemi landsins
* Ekki gert í samvinnu við við-
komandi ríki og gæti því skapað
óvild í garð Íslands.
Við einhliða upptöku evru bætist
við sá kostur að evrusvæðið er
stærsti einstaki markaðurinn fyrir
útflutningsvörur Íslands og ís-
lenska hagkerfið á meira sameig-
inlegt með hagkerfi evrusvæðisins
en öðrum hagkerfum, sem auðveld-
ar sveiflujöfnun. Á móti kemur ein-
dregin andstaða ESB-ríkja við
hugmyndinni, sem gæti skapað
verulega óvild í garð Íslands. Við
einhliða upptöku US$ er það kost-
ur að mikilvægar innflutnings-
vörur, eins og t.d. olía, eru verð-
lagðar í dollurum, eins og
mikilvægar útflutningsvörur eins
og ál. Þá hafa ýmis ríki tekið upp
US$ einhliða án refsiaðgerða. US$
er jafnframt enn útbreiddasti
gjaldmiðill heims. Á móti kemur að
mikilvægar útflutningsgreinar nota
evru fyrst og fremst í viðskiptum.
Upptaka evru með ESB-aðild
Kostir:
* Evrópski seðlabankinn er bak-
hjarl og lánveitandi til þrautar.
* Ísland fær fullan aðgang að
ákvarðanatöku ESB og verður full-
ur þátttakandi í Evrópu.
* Aukinn stöðugleiki og betra
rekstrarumhverfi til lengri tíma lit-
ið fyrir íslensk fyrirtæki og heimili.
* Líkur á að hagsveiflur landsins
verði meira í takt við Evrópu.
Fórnarkostnaður
* Tekur a.m.k. nokkur ár, en yf-
irlýsingin ein og sér hefði einhver
áhrif.
* Tíminn sem tekur að fá fulla
aðild að evru gæti verið mjög erf-
iður fyrir íslenskt efnahagslíf.
* Göngumst undir Maastrich-
skilyrðin, sem hefta mjög sjálf-
stæði Íslands í ríkisfjármálum.
* Missum yfirráð yfir auðlindum
þjóðarinnar og stjórnun á nýtingu
þeirra – umdeilt atriði.
Lokaorð
Það er ljóst að íslenska krónan
dugar okkur ekki lengur. Þá eru
nokkrir kostir í stöðunni. Færa má
rök með og á móti þeim öllum, en
afstaða manna mun ráðast af því
hversu þungt einstakir kostir og
gallar vega í huga þeirra. Við tök-
um ekki afstöðu hér, enda ólíkar
skoðanir að finna í okkar hópi. Við
hvetjum hins vegar til þess að upp-
lýsingar um þessi mál séu settar
fram með skýrum og fordómalaus-
um hætti. Margar erfiðar ákvarð-
anir eru framundan. Nú eftir kosn-
ingar verður að vinna hratt og
örugglega að því að koma peninga-
málum Íslands í öruggan og trú-
verðugan farveg.
Aðgerðaleysi er dýrasti kost-
urinn.
F.h. 55 nema í HR,
BELINDA ÞURÝ THERI-
AULT, EYSTEINN JÓNSSON
OG BJÖRG KJARTANSDÓTTIR,
Valkostir með mismunandi
fórnarkostnaði
Frá hópi nema sem er í
MBA- námi í HR
HVAÐ þýðir sjálfbær nýting auð-
linda? Undanfarin misseri hefur
mikið verið rætt og ritað um sjálf-
bæra nýtingu náttúruauðlinda Ís-
lands. Því miður er því þannig far-
ið með þessa umræðu eins og svo
marga aðra að það er ekki talað
mannamál og almenningur áttar
sig ekki á hvað sjálfbærni þýðir.
Málið er einfalt. Sjálfbær nýting
auðlinda okkar þýðir að við eigum
að fara vel með landið okkar og
það sem það hefur upp á að bjóða
og koma því til skila með stolti til
komandi kynslóða. Það þýðir að
við eigum ekki að láta stund-
argræðgi stjórna ákvarðanatökum,
heldur standa vörð um menning-
arauð okkar sem er ekki lítill. Við
förum og aðrir koma í staðinn sem
munu dæma verk okkar. Ég hvet
alla Íslendinga og ekki síst fólk í
þjóðfélagslegum ábyrgðarstöðum
til að flykkjast á Draumalandið í
bíó.
HANNA LÁRA STEINSSON,
félagsráðgjafi.
Sjálfbærni
Frá Hönnu Láru Steinsson
SAMFYLKINGIN er undarlegur
krataflokkur. Af einhverjum ástæð-
um sem eru líklega flestum borg-
urum þessa lands
huldar (nema lík-
lega innvígðum
og innmúruðum
samfylking-
armönnum) telur
flokkurinn að
helsta bjargráð
Íslands í efna-
hagsmálum sé
innganga í ESB.
Það má í sjálfu
sér kalla kenn-
ingu að hagur landsins myndi
batna við inngöngu í ESB. Rökin
fyrir þeirri kenningu hafa hins veg-
ar verið einstaklega fátækleg. Svo
sem samfylkingarmenn hafa hamr-
að á árum saman innleiða Íslend-
ingar tilskipanir frá Brussel í ís-
lensk lög af miklu kappi vegna
EES-samningsins. Þær Evrópu-
reglur dugðu ekki til þess að
bjarga Íslandi frá hruninu. Eigum
við svo að trúa því að ástæða þess
að evrópsk löggjöf hafi ekki bjarg-
að Íslandi hafi verið sú að skammt-
urinn var ekki nógu stór?
Hvað er þá hægt að segja um
ástandið víða í Evrópu? Hvernig er
ástatt um þá sem tóku skrefið til
fulls og eru fullgildir meðlimir í
ESB? Skemmst er fá því að segja
að gríðarlegt atvinnuleysi er víða í
ESB, bankar hafa hrunið þar eins
og á Íslandi. Getur verið að eina
bjargráð Samfylkingarinnar sé að
flytja inn evrópska kreppu í stað
hinnar íslensku?
En evran hún bjargar er þá við-
kvæðið. Eins og atvinnumálum á
Íslandi er háttað nú er krónan í
raun helsta bjargræði Íslands.
Þessi veika mynt eflir mjög ís-
lenskt atvinnulíf gagnvart erlendu.
Væri Ísland með evru væru raun-
laun himinhá og aðlögun að evr-
ópsku launastigi tæki mörg ár. Með
evru væri langvarandi fjölda-
atvinnuleysi líklegt með tilheyrandi
fólksflótta.
Eins og ástandið er núna þarf
bjargráð sem duga en ekki ein-
hverjar innfluttar skyndilausnir.
Samfylkingin eins og reyndar rík-
isstjórnin öll þyrfti að hysja upp
um sig buxurnar og grípa til að-
gerða sem duga í efnahags- og at-
vinnumálum nú þegar.
STEFÁN S. GUÐJÓNSSON,
íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur.
Frá Stefáni S. Guðjónssyni:
Stefán S.
Guðjónsson
Þurfum við
ESB í stærri
skömmtum?
Í tilefni menningarvors í Mosfellsbæ
stendur Mosfellsbær í samvinnu við
mosfellska listamenn fyrir viðburðum
til að efla mannlífið á erfiðum tímum.
Mosfellskir listamenn leggja fram vinnu sína, starfsfólk
Mosfellsbæjar vinnur að undirbúningi og Menningarsvið
Mosfellsbæjar kynnir og auglýsir viðburðina.
Menningarvor verður haldið þrjá þriðjudaga í Bókasafni
Mosfellsbæjar og Listasal Mosfellsbæjar.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Heitt á könnunni.
Komum og upplifum saman menningarvor í Mosfellsbæ –
og styðjum hvert annað með því að njóta þess besta sem
bærinn hefur upp á að bjóða.
Þriðudagskvöldið 28. apríl kl. 20-21.30
Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarkona og bæjarlista-
maður fumsýnir heimildamynd sína “Forystufé” og spjallar
við gesti. Sigurður I. Snorrason klarinettuleikari, Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari og fleiri flytja létta tónlist.
Þriðjudagskvöldið 12. maí kl. 20-21.30
Jón Kalman stefánsson rithöfundur Spjallar við gesti um verk
sín og fleira. Kristjana Helgadóttir flautuleikari og Hrönn
Helgadóttir píanóleikari flytja létta tónlist.
Þriðjudagskvöldið 26. maí kl. 20.-21.30
Leikfélag Mosfellssveitar slær á létta strengi. Gréta Salóme
Stefánsdóttir fiðluleikari og fleiri flytja létta tónlist.
Menningarvor í Mosfellsbæ
VIRÐING JÁKVÆÐNI FRAMSÆKNI UMHYGGJA