Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 41

Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 / SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI STATE OF PLAY kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára OBSERVE AND REPORT kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára 17 AGAIN kl. 8 - 10:10 LEYFÐ FAST AND FURIOUS kl. 8 B.i. 12 ára KNOWING kl. 10:10 B.i. 12 ára I LOVE YOU MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára FAST AND FURIOUS kl. 10:20 B.i. 12 ára BOY IN THE STRIPED PYJAMAS kl. 8 B.i. 12 ára EMPIRE SKY SAMbio.is Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss ....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR TIL AÐ SEGJA ÞAÐ? SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND SEM KEMUR ÖLLUMTIL AÐ HLÆJA HVER SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT BARA UNGUR EINU SINNI? EIN AF BESTU MYNDUM ALLRA TÍMA SAMKVÆMT IMDB.COM „AFHVERJU GETA BANDARÍKJAMENN EKKI GERT SVONA MYNDIR LENGUR?“ CNN SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL “ÞESSI MYND HÉLT MÉR ANNAÐ HVORT GLOTTANDI EÐA SKELLI- HLÆJANDI ÚT ALLA LENGDINA. MÆLI VEL MEÐ HENNI.” VIP SALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA CHRIS EVANS, DAKOTA FANNING OG DJIMON HUNSOU ERU MÖGNUÐ Í FRUMLEGUSTU SPENNUMYND ÞESSA ÁRS! GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ! 25.04.2009 5 14 16 26 33 9 5 2 1 3 6 2 9 8 4 20 22.04.2009 2 8 13 39 43 47 1925 31 Ég veit ekki hvort það geng-ur nærri helgispjöllum aðsegja þetta, en ég læt það vaða. Mér finnst sumartískan í ár ljót … já, eða svona mestmegnis. Ég fór einn rúnt um helstu fata- verslanir borgarinnar um daginn og sá fátt girnilegt. Það sem blasti við mér á slánum virkaði tuskulegt og litir eins og laxableikt, grátt og húðlitað voru of áberandi. Laxa- bleikur er án efa einn ljótasti litur sem til er á fatnaði og minnir mig bara á níunda áratuginn og þar kem ég að kjarna málsins. Níundi áratugurinn og upphaf þess tíunda hefur tekið tískuna yfir, því miður. Samfestingarnir sem sjást nú eru gott dæmi um það, þá er ég að tala um víða og tuskulega jogging- samfestinga sem var klassískt að klæðast með belti, legghlífum og vöfflur í hárinu hér áður fyrr. Annað sem stakk í augu í búð- unum var kögur sem hefur aldrei náð að vera flott eftir hippa- tímabilið, nú er það í sinni ýktustu mynd, á skóm og kjólum og erm- um og töskum og er bara ljótt að mínu mati, Kate Moss ber það ekki einu sinni.    Eitt furðulegasta tískufyrirbærisíðustu ára hefur mátt sjá á ungstirnum Hollywood í vetur og er án efa eitt það ljótasta sem ég hef séð. Það eru rifnar sokkabuxur og leggings. Hverjum datt eig- inlega í hug að það gæti verið töff að vera með lykkjufall? Ekki einu sinni hörðustu rokkgellur ná að gera þetta flott. Rifnar gallabuxur eiga líka sína endurkomu, nú enn rifnari en áð- ur, nánast svo að sá sem klæðist þeim gæti kallast berleggjaður. Öfgar sem líta ekki vel út. Snjóþvegnar gallaflíkur sjást líka mikið og sem betur fer hefur sú útgáfa af snjóþvegnu heppnast vel og er bara eitt af því fáa úr tískufortíð níunda áratugarins sem á góða endurkomu.    Stórir karlmannlegir jakkar meðaxlapúðum er annað sem hefði mátt kyrrt liggja. Reyndar hafa sumir hönnuðir aðeins tremmað niður fyrirmyndina, gert þá að- sniðnari, minnkað axlirnar og brett upp ermarnar en aðrir fara með þetta alla leið, því miður. Eins og með annað frá níunda ára- tugnum bætir þessi jakkatíska á alla nokkrum kílóum og gerir þær sem ekki eru horaðar himnalengj- ur eins og kassa í laginu, ef ekki er farið rétt að. Annað sem ég hef hryllt mig yfir eru axlapúðar, stutt- buxnadragtir, víðar klofbuxur og ber magi. Ber magi er einmitt eitt af því hræðilega sem sást á tískupöllunum á vor/sumar sýn- ingunum, það er tíska sem er oft illa misnotuð og vandmeðfarin, ég vona bara að það verði of kalt hér á landi í sumar til að stúlkur fari að bera magann niður á Aust- urvelli.    Reyndar má mæla þessari sum-artísku bót með því að þó hún líti illa út á slánni fer hún vel á sumum, hún er samt ekki vinkona kvenlegra lína. Bæði efnin og snið- in ýkja allar línur og það verður að passa samsetninguna því hætta er annars á að verða kerlingarleg. Þótt ég hallmæli hér ákveðnum flíkum í sumartískunni geri ég mér fyllilega grein fyrir því að á réttu manneskjunni og rétt samsett er allt flott og sem betur fer er miklu meira í boði í búðunum svo ég þarf ekki að klæðast þessum flíkum. Mér finnst þetta bara ekkert flott » Annað sem ég hef hrylltmig yfir eru axlapúðar, stuttbuxnadragtir, víðar klof- buxur og ber magi. Getty Images Rifin Cameron Diaz sást nýlega í þessari vægu útgáfu af rifnu- gallabuxnatísku sumarsins. ingveldur@mbl.is AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir Reuters Jogging Breski fatahönnuðurinn Hannah MacGibbon sækir mikið í níunda áratuginn eins og sést á þessari mynd af henni. Reuters Kassajakki Fatahönn- uðurinn Stella McCartney hannaði þennan jakka sem ger- ir ekki neitt fyrir lín- urnar, ekki einu sinni fyrir þessa fíngerðu fyr- irsætu. Ekki smart Lindsey Lohan í rifnum leggingsbuxum. Reuters Samfest- ingur Grár, gugginn og gam- aldags. Reuters MacGibbon Kann að vera flott á tískupöll- unum en vandmeðfarið er í er komið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.