Morgunblaðið - 10.06.2009, Page 6

Morgunblaðið - 10.06.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is SVÍAR munu frá og með júlíbyrjun setja aðild Íslands að Evrópusam- bandinu í forgang í þá sex mánuði sem þeir munu gegna formennsku í sambandinu fram til áramóta. Þetta sagði Carl Bildt, utanríkis- ráðherra Svíþjóðar, að loknum blaða- mannafundi norrænu utanríkis- ráðherranna í Reykjavík gær. Bildt boðar eindreginn stuðning Svía við aðildarumsókn Íslands. „Það þarf ekki að taka fram að við myndum fagna aðildarumsókn Ís- lendinga [...] Það sem við munum gera þegar umsóknin hefur borist okkur er að leggja hana fram fyrir framkvæmdastjórnina eins fljótt og kostur er svo að hún geti hafið þá vinnu sem nauðsynleg er fyrir hana til að geta tekið ákvörðun um samn- ingaviðræðurnar,“ sagði Bildt, sem vék því næst að þætti formennskurík- isins í aðildarviðræðunum. „Við munum augljóslega þurfa að sannfæra öll aðildarríkin 27. Við munum einnig hafa á borði okkar að- ildarumsóknir annarra ríkja, á borð við Albaníu. Við myndum hins vegar af ýmsum ástæðum setja afgreiðslu á aðildarumsókn Íslendinga í forgang vegna aðildar landsins að EES- samningnum.“ - Tekurðu undir það sjónarmið Al- exanders Stubb, utanríkisráðherra Finnlands, að stækkunarþreyta inn- an sambandsins gæti orðið til að seinka umsóknarferlinu? „Það gæti reynst hindrun sem ég álít þó ekki óyfirstíganlega. Ég lít einnig svo á að stækkunarþreytan eigi ekki jafn mikið við Ísland því það er ekki hægt að setja spurningar- merki við stöðu lýðræðisins í landinu. Ísland býr þrátt fyrir efnahags- þrengingarnar við þroskað hagkerfi og er auk þess aðili að EES-samn- ingnum. Með því hefur Ísland lokið þremur fjórðu hluta vegferðarinnar að samrunanum við Evrópu,“ segir Bildt og vísar til hlutfalls þeirra laga- bálka aðildarsamningsins sem þegar er búið að samþykkja í gegnum EES- samninginn. - Telurðu því góðar líkur á að Ís- land fái aðild að sambandinu? „Já, svo sannarlega. Það er enginn efi í huga mér varðandi það. Ef þetta er vilji Íslands þá mun þetta verða að veruleika. Í hönd fara tveggja ára erf- iðar samningaviðræður eins og hefð er fyrir.“ Ólík túlkun í Icesave-málinu Stubb, utanríkisráðherra Finn- lands, lýsti aðspurður einnig yfir stuðningi stjórnar sinnar við aðild Ís- lands að ESB en varaði þó við of mik- illi bjartsýni af Íslands hálfu. „Sjálfur vil ég sjá Ísland ganga í sambandið eins fljótt og auðið er en legg á það áherslu að þið skylduð ekki gera ykkur of miklar væntingar. Þetta er erfitt ferli,“ segir Stubb, sem tengir aðspurður uppgreiðslu Ice- save-skulda og mögulega aðild Ís- lands að Evrópusambandinu. Inntur eftir því hvers vegna Norð- urlandaþjóðirnar hefðu ekki stutt þá skoðun að íslensku þjóðinni bæri ekki að greiða upp Icesave-skuldahalann svaraði hann því til að það væri ekki hlutverk finnskra utanríkisráðherra að blanda sér í innanlandsmál á Ís- landi. Svo bætti hann við: „Rök mín eru þau að fagna beri sérhverri þeirri ákvörðun sem greiði götu Íslands að Evrópusambandsaðild.“ Aðspurðir hvort lausn Icesave- málsins hefði verið forsenda þess að afgreiða mætti lán Norðurlandanna til Íslendinga sögðu þeir Bildt og Per Stig Møller, utanríkisráðherra Dan- merkur, að svo hefði ekki verið. Þvert á þessi ummæli lét Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Nor- egs, þau orð falla í viðtali við Stöð 2 að lausn Icesave-deilunnar væri mikil- vægur áfangi í afgreiðslu lánsins. Aldrei auðvelt ferli Stubb segir umsóknarferlið að Evrópusambandinu aldrei auðvelt. „Menn skyldu ekki gera sér rós- rauðar væntingar um að afgreiðsla umsóknar muni liggja fyrir þegar í stað eða að sjálfar aðildarviðræð- urnar verði leikur einn,“ segir Stubb, sem telur óraunhæft að ætla að aðild- arviðræður Íslands gætu tekið allt niður í 18 mánuði, eins og bjartsýn- ustu Evrópusambandssinnar hafa haldið fram. Þrátt fyrir EES- samninginn sé löng og ströng samn- ingalota fram undan fyrir Íslendinga. Stubb hvetur einnig til varkárni þegar hann er spurður hvenær hann telji raunhæft að ætla að Ísland geti tekið upp evruna. „Aðild að Evrópusambandinu og evruupptaka er sinn hvor hluturinn. Aðild að sambandinu þýðir ekki sjálf- krafa upptöku evrunnar.“ Svíar hyggjast setja aðild Íslands að ESB í forgang  Taka málið upp í formennskutíð sinni í ESB  Stubb tengir aðild við Icesave Morgunblaðið/Eggert Ráðherrar sitja fyrir svörum Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar (frá vinstri), Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, Össur Skarphéðinsson, hinn finnski kollegi hans Alexander Stubb og danski utanríkisráðherrann Per Stig Møller. Nokkrir norrænir miðlar sóttu fund ráðherranna á Íslandi. ÞORSTEINN Pálsson hættir störfum sem ann- ar tveggja rit- stjóra Frétta- blaðsins á föstudaginn nk. að eigin ósk. Hann mun þó áfram skrifa greinar í blaðið um stjórnmál og þjóðmál, og einnig á fréttavefinn Vísi.is. Jón Kaldal, sem verið hefur ritstjóri við hlið Þorsteins, mun einn verða ritstjóri blaðsins. Aðstoðarritstjóri verður áfram Steinunn Stefánsdóttir. Þor- steinn hefur verið ritstjóri Frétta- blaðsins síðan í byrjun árs 2006 en hann hafði áður verið sendiherra í Kaupmannahöfn og London. Þor- steinn segist ætla að gefa sér meiri tíma til almennra ritstarfa, sem ótímabært sé að greina frá nú. Þorsteinn Pálsson hættir sem ritstjóri Þorsteinn Pálsson KONA á níræðisaldri lést í gær- morgun þegar eldur kviknaði í gömlu húsi á Kljáströnd við Eyja- fjörð. Eiginmaður konunnar var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri með reykeitrun og brunasár á hönd- um og andliti en líðan hans var í gærkvöldi sögð góð eftir atvikum. Hjónin eru frá Akureyri en húsið nota þau og fjölskyldan allt árið. Slökkviliðið í Grýtubakkahreppi sendi reykkafara inn í húsið og náði konunni út en hún var þá látin. Slökkvistarf tók um eina klukku- stund en að verkefninu komu átta slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn úr Grýtubakkahreppi og frá Akur- eyri. Rannsóknarlögregluna á Ak- ureyri grunar að eldurinn hafi kviknað út frá ofni sem kyntur er með viði. Ekki var rafmagn í húsinu. Maðurinn hafði farið snemma út í gærmorgun en þegar hann kom aft- ur að húsinu hafði eldurinn blossað upp. Hann reyndi að komast inn konu sinni til hjálpar en tókst ekki. Fór maðurinn því að bænum Höfða, skammt frá, til þess að biðja um hjálp. Þaðan var hringt í neyðarlín- una. skapti@mbl.is Kona á níræðisaldri lést í eldsvoða Ljósmynd/akureyri.net Bruni Á vettvangi í gærmorgun. „Það sem við töluðum langmest um eru þær tillögur sem lagðar eru fram í Stoltenberg-skýrslunni og hvernig ætti að útfæra þær. Nokkr- ar þeirra voru sérstaklega valdar út til þess að vinna áfram,“ sagði Öss- ur Skarphéðinsson utanríkisráð- herra að loknum fundi með nor- rænu utanríkisráðherrunum í Reykjavík um hádegisbilið í gær. „Ein af tillögunum varðar mögu- leikann á norrænu samstarfi um loftrýmisgæslu hér á Íslandi. Önnur tillaga sem varðar okkur mikið og við tókum sterklega upp er mögu- leiki á samstarfi í utanríkis- þjónustunni,“ sagði Össur og vísaði til hugmynda um samrekstur nor- ræna sendiráða í sparnaðarskyni. „Slíkt samstarf kæmi litlu landi eins og Íslandi til góða. Ég vek eftir- tekt á því að Stoltenberg talar í sinni skýrslu um möguleikann á því að tvö Norðurlandanna vinni sam- an. Það er því hugsanlegt fyrir okk- ur að efna til samstarfs við eitt- hvert Norðurlandanna á hinum ýmsu stöðum. Norrænu sendiráðin þurfa ekki öll að vera fimm saman,“ sagði Össur Skarphéðinsson. Öryggið tryggt og sparað í sendiráðunum BJÖRGUNARSKIP og bátar Slysa- varnafélagsins Landsbjargar voru kallaðir út í gærkvöldi eftir að til- kynnt var um reyk sem sæist um fjórar til fimm sjómílur norður af Njarðvík. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar tók einnig þátt í leitinni. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk um níuleytið í gærkvöldi til- kynningu frá sjófaranda sem varð var við reyk austur af Garðskaga. Stjórnstöðin kallaði samstundis út björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði og Hafn- arfirði. Auk þess björgunarbát Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Reykjanesbæ og þyrlu Landhelgis- gæslunnar. Einnig var varðskipi Landhelgisgæsl- unnar beint á svæðið en skipið var statt vestur af Reykjanesi. Ekki var vitað um að skip eða bátar væru á þessum slóðum og því tal- ið nauðsynlegt að kanna málið nán- ar, að því er sagði í tilkynningu frá Landhelgisgæsl- unni. Upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi var leit afturkölluð án þess að skýr- ing hefði fundist á reyknum, en varð- skip fylgdist áfram með svæðinu. Þyrla Gæslunnar og skip kölluð út Reykur sást á sjó norður af Njarðvík Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir forsendur hafa opnast fyrir frystingu eigna þeirra auðmanna, sem nú hafa fengið stöðu grunaðra við rannsókn sér- staks saksóknara á orsökum fjár- málahrunsins. „Þetta er vísun til þess sem var rætt í haust þegar við vorum með hugmyndir um að setja ætti inn sterkari ákvæði í lög til slíks. Þá voru menn hikandi og sögðu að fyrst þyrfti að liggja fyrir rök- studdur grunur,“ segir Stein- grímur í samtali við Morgunblaðið. „Núna er allstór hópur kominn með stöðu grunaðra hjá hinum sér- skipaða saksóknara en mér skilst að menn hafi farið þá leið, m.a. til að tryggja betur rannsóknarhags- muni. Þar með opnast víðtækari réttarheimildir ef efni bjóða.“ Hann vill þó ekkert segja hvort heimildum til eignafrystinga verði beitt. „Það er alfarið í höndum rannsóknaraðilanna og þeir einir geta svarað fyrir það.“ Steingrímur tekur þó undir að sterk krafa sé um slíkt í samfélag- inu. „Ég bendi á að út úr viðræðun- um við bresk og hollensk stjórn- völd um Icesave-málið hefur m.a. komið að þau eru tilbúin til sam- starfs um að reyna að passa upp á allar eignir gamla Landsbankans og við gætum átt þau að í þeim efn- um ef á þyrfti að halda. Það eru ákvæði í samningnum sem vísa í það samstarf.“ Forsendur komnar fyrir frystingu eigna Í VON um já- kvæðar nið- urstöður af viðræðum við yfirvöld Landspít- alans hafa starfsmenn Blóðbankans, sem ætluðu að ganga út 1. júní síð- astliðinn, frestað því til 1. júlí að ganga út. Freygerður Steinsdóttir trúnað- armaður segir starfsmenn hafa litið á tilkynningu um breytt vaktafyrir- komulag sem uppsögn og átti hún að taka gildi 1. júní. Samkvæmt nýja vaktafyrir- komulaginu hefðu tekjur skerst um 20 prósent. ingibjorg@mbl.is Viðræður við starfsmenn Blóðbankans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.