Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Eftir Ómar Friðriksson og Jón Pétur Jónsson „VIÐSKIPTI Kópavogsbæjar við FM [Frjálsa miðlun] námu rúmum 39 milljónum króna á 6 ára tíma- bili eða um 6,5 milljónum króna á ári að meðaltali sem bendir til að ákvæði laga um opinber innkaup hafi verið brotin þar sem viðskipti við félagið á sambærilegri þjón- ustu á 4 ára tímabili fara langt yf- ir 10 milljóna króna mörkin sem sett eru í lögunum,“ segir í grein- argerð endurskoðunarfyrirtæk- isins Deloitte um viðskipti Kópa- vogsbæjar við Frjálsa miðlun ehf. árin 2003-2008. Greinargerðin var unnin að beiðni bæjarráðs og birt í gær. Frjáls miðlun er í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar, bæjar- stjóra í Kópavogi. Miklar deilur hafa verið í bæjarstjórn vegna við- skiptanna og var Deloitte beðið um að leggja mat á hvort við- skiptin hefðu verið í samræmi við reglur um innkaup og ákvarðanir í samræmi við góða stjórnsýslu. Fullnægja ekki skilyrðum Í greinargerðinni kemur fram að frá 1. jan. 2003 til 31. des. 2008 voru viðskipti Kópavogsbæjar við FM alls 39.114.253 kr. Saman- standa þau af alls 185 útgefnum reikningum og voru flokkuð eftir ýmsum verkefnum, s.s. ljósmynda- kaup, upplýsingavefur, umhverf- isviðurkenningar og afmælisrit bæjarins. Komast endurskoðendurnir einnig að þeirri niðurstöðu að reikningar frá FM virðist í mörg- um tilfellum hafa verið bókaðir á ranga bókhaldslykla í fjárhags- bókhaldi og almennt hafi ekki ver- ið gerðir skriflegir verksamningar vegna verkefnanna. Þá er á það bent að reikningar frá FM fullnægi ekki skilyrðum virðisaukaskattslaga um sundur- liðun upplýsinga. „Við teljum ekki heimilt að nýta endurgreiðslu virðisaukaskatts af þjónustu FM en það hefur verið gert í sumum tilvikum,“ segir í greinargerð Deloitte. Vakin er athygli á því að frá 23. mars 2005 hafi bærinn móttekið og greitt 5 reikninga frá FM vegna afmælisrits. ,,Verkefninu virðist ekki hafa verið lokið og ekki liggja fyrir aðrar afurðir en drögin að uppsetningu sem voru prentuð út 23. mars 2005.“ Í umfjöllun um ranga bókun á bókhaldslykla í fjárhagsbókhaldi bæjarins er vakin sérstök athygli á því að á lykilinn „Styrkir vegna menningarmála“ eru færðar rúm- ar 2,8 milljónir og á lykilinn „Aðr- ir styrkir og framlög“ eru færðar rúmar 1,8 milljónir. „Alls eru 17 reikningar bókaðir á þessa lykla á umræddu tímabili, þar af eru 5 reikningar vegna afmælisrits í tengslum við 50 ára afmæli Kópa- vogsbæjar […]. Fjöldi reikning- anna sem eru bókaðir á þessa lykla útilokar að um tilfallandi mistök sé að ræða,“ segir í grein- argerð Deloitte. Hugsanlega brot á lögum  Alvarlegar athugasemdir gerðar við viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun ehf. í greinargerð Deloitte  Viðskiptin námu 39 milljónum á 6 árum Morgunblaðið/ÞÖK Hitamál Ómar Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokks, í meirihlutasamstarf- inu við Sjálfstæðismenn, boðar fulltrúaráð til fundar vegna skýrslunnar. GUNNAR Birg- isson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist ekki líta á grein- argerð Deloitte sem áfellisdóm. Þar séu hins veg- ar ábendingar um að margt megi fara betur í bók- haldinu og að sjálfsögðu verði tekið tillit til þess. Hann hafnar því að lög um opinber innkaup hafi verið brotin í viðskiptum bæjarins við Frjálsa miðlun. „Þessi skýrsla segir það líka að ég er ekki tengdur viðskiptum þessa fyrirtækis við bæinn,“ segir hann. „Við þurfum líka að fá skýringar um afmælisritið frá afmælisnefnd- inni. Hún ber ábyrgð á því.“ Gunnar segist vera leiður yfir því að bókhaldsfærslurnar séu ekki nógu góðar hjá bænum, eins og gerðar séu athugasemdir við í skýrslu Deloitte. „Við munum bæta úr því en ég tók ekki við sem bæjarstjóri fyrr en um mitt ár 2005 og í minni tíð hafa verið samþykktar nýjar innkaupareglur, við höfum sett upp tvöfalt uppá- skriftakerfi og nú erum við nýbúnir að samþykkja siðareglur fyrir bæj- arfulltrúa og starfsmenn bæjarins. Ég vil hafa þetta í lagi en ef um tengda aðila er að ræða eins og í þessu tilviki þar sem um dóttur mína er að ræða, er mjög auðvelt að gera það tortryggilegt. Samfylkingin hef- ur reynt að gera þetta tortryggilegt til að reyna að hafa af mér æruna og reyna að koma mér út úr pólitík.“ Voru gerðar verðkannanir „Það er einnig gagnrýnt að ekki hafi verið gerðir skriflegir verksamn- ingar og virðisaukaskattur ekki rétt færður. Það sem vekur athygli er að þeir fullyrða að það hafi ekki verið gerðar verðkannanir. Það gengur þvert á það sem sviðsstjórarnir segja, að það hafi verið gerðar verðkann- anir og útboð,“ segir hann. „Ég vil hafa þetta í lagi“ Ótengdur viðskiptum FM við Kópavogsbæ Gunnar Birgisson „Það er mjög alvarlegt hvernig þetta hefur verið unnið varðandi þetta fyrirtæki,“ sagði Ómar Stefánsson, for- maður bæjarráðs Kópavogs. „Þetta eru ekki vinnu- brögð sem við framsóknarmenn kærum okkur um að séu stunduð í Kópavogsbæ,“ bætti hann við. Ómari var að sögn brugðið þegar hann sá greinargerð Deloitte. Ætlar hann að boða til fulltrúaráðsfundar eins fljótt og hægt er og ræða þessa stöðu. „Þessi skýrsla staðfestir það sem okkur grunaði að viðskiptin við þetta fyrirtæki eru mjög óeðlileg,“ segir Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Samfylkingin vill að Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, víki. „Ef hann finnur það ekki hjá sjálf- um sér að víkja, þá þurfa hans félagar í meirihlutanum að taka ákvörðun um það hvort þeir treysta honum áfram til þess að sitja í þeirra umboði sem bæjar- stjóri,“ segir hún. „Vinstri græn krefjast þess að bæjarstjórinn, sem og meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Kópavogs axli ábyrgð vegna málsins. Bæjarstjórinn hlýtur að skoða stöðu sína í ljósi skýrsl- unnar og þeirra ásakana um brot sem þar koma fram. Vinstri græn telja eðlilegast að bæjarstjórinn víki,“ segir í yfirlýsingu frá VG í Kópavogi.  Fulltrúa Framsóknar er brugðið  Samfylking og VG krefjast afsagnar                                !   " #$%& ' ( #  )* " #  +" #  * ,  ! #   -)   .     / +" #  * / ) &0 $  ) !$ 1$!  * /  $                        2)  1#  3 45 Vöruhótelþjónusta Eimskips Vöruhótelið býður upp á heildarþjónustu frá því vara kemur til landsins þar til viðskiptavinur þinn fær hana í hendurnar. EIMSKIP VÖRUHÓTEL Frekari upplýsingar eru veittar í síma 525 7600 eða sendið fyrirspurnir á netfangið vh@eimskip.is P IP A R • S ÍA • 9 0 2 9 6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.