Morgunblaðið - 10.06.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009
Hermann Guðmundsson, forstjóriN1, segir að olíufélagið ætli að
gefa oftekin gjöld vegna hækkunar
eldsneytisgjalda til góðgerðarmála.
Gefa?
Hugsunin kann að vera rétt, enorðalagið er vægast sagt óvið-
eigandi.
Ekki er hægt aðgefa án þess
að eiga og það er
ábyggilegt að N1
á ekki þessa pen-
inga.
Skeljungur ætl-ar að end-
urgreiða þeim sem tóku bensín á
bensínstöðvum félagsins gjaldið.
Ólíklegt er að allir þeir, sem hafatekið bensín á meðan hækkunin
var innheimt að ástæðulausu, muni
sækja þennan rétt sinn, meðal ann-
ars af þeirri ástæðu að margir halda
kvittunum einfaldlega ekki til haga.
Sennilegast er að Skeljungurmuni því halda langmestum
hluta ágóðans af hinni ótímabæru
hækkun bensíngjaldsins og ekki er
það betri niðurstaða.
Það er rétt hjá N1 að láta féðrenna til góðgerðarmála, þótt
tæplega sé um gjöf félagsins að
ræða – gjöfin er frá viðskiptavin-
unum.
Hin olíufélögin ættu að gera slíkthið sama – taka þá upphæð,
sem eftir verður þegar við-
skiptavinir hafa sótt rétt sinn, og
láta hana sömuleiðis renna til góðra
málefna.
Ekki veitir af fé til góðra verka ísamfélaginu um þessar mundir.
Dælan gengur.
Er hægt að gefa án þess að eiga?
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 10 skýjað Lúxemborg 18 skýjað Algarve 22 heiðskírt
Bolungarvík 10 léttskýjað Brussel 16 léttskýjað Madríd 21 heiðskírt
Akureyri 8 skýjað Dublin 14 skýjað Barcelona 23 léttskýjað
Egilsstaðir 6 alskýjað Glasgow 15 léttskýjað Mallorca 26 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 9 alskýjað London 16 léttskýjað Róm 25 léttskýjað
Nuuk 2 snjókoma París 16 léttskýjað Aþena 34 heiðskírt
Þórshöfn 9 alskýjað Amsterdam 16 léttskýjað Winnipeg 12 skúrir
Ósló 15 heiðskírt Hamborg 19 skýjað Montreal 12 skúrir
Kaupmannahöfn 11 skúrir Berlín 18 skýjað New York 18 alskýjað
Stokkhólmur 14 léttskýjað Vín 27 skýjað Chicago 16 þoka
Helsinki 11 skýjað Moskva 22 skýjað Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
10. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.56 0,7 7.55 3,4 13.56 0,7 20.14 3,7 3:03 23:53
ÍSAFJÖRÐUR 3.58 0,5 9.40 1,8 15.44 0,5 21.57 2,1 1:44 25:22
SIGLUFJÖRÐUR 6.15 0,2 12.30 1,1 18.11 0,4 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 4.51 1,9 11.02 0,5 17.25 2,1 23.41 0,7 2:20 23:35
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Norðlæg átt, 5-8 m/s. Skýjað
að mestu og dálítil rigning af og
til, en þurrt að kalla SV- og V-
lands. Hiti 8 til 14 stig sunnan-
og vestanlands, en 2 til 9 stig
norðan- og austantil.
Á föstudag
Norðaustlæg átt, 5-8 m/s. Víða
skúrir um landið austanvert, en
skýjað með köflum og yfirleitt
þurrt vestanlands. Hiti breytist
lítið.
Á laugardag, sunnudag og
mánudag
Hæg N-læg eða breytileg átt,
skýjað með köflum og smá-
skúrir. Áfram svalt norðaust-
antil, en hlýrra suðvestanlands.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Fremur hæg breytileg átt, skýj-
að eða skýjað með köflum og
þurrt að mestu, en smáskúrir
suðaustanlands. Hiti 5 til 14
stig, hlýjast sunnanlands.
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
TÆPLEGA 19 þúsund einstaklingar eru á van-
skilaskrá vegna skulda sem þeir hafa misst í lög-
innheimtu. Á milli 400 til 500 detta af skránni mán-
aðarlega en nýir bætast við. Í október í fyrra voru
ríflega 16 þúsund á vanskilaskránni.
„Við erum að ná sögulegu hámarki alvarlegra
vanskila,“ segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Creditinfo. „Á næstu 12 mánuðum er útlit
fyrir að 10.275 einstaklingar bætist við en þetta er
þá fólk sem ekki er með mál í löginnheimtu í dag.“
Hún telur að fjöldinn geti farið niður í sjö til átta
þúsund verði frekar komið til móts við einstak-
linga, létt á greiðslubyrði þeirra, stýrivextir lækki
og hjól atvinnulífsins fari að snúast: „Gangi þessi
spá hins vegar eftir má sjá að botninum verður
náð hvað varðar almenning um mitt sumar 2010.
Afleiðingarnar verða því hvað þyngstar fyrir
heimilin til áranna 2014-2015 því flest vanskilamál
eru til birtingar í 4 ár nema skuldir séu uppgerðar
á tímabilinu.“
Rakel segir vanskil ekki bundin landsvæði, aldri
eða tekjum en þau séu þó meiri á Suðurnesjum en
annars staðar á landinu og vanskil minnki eftir að
fólk hefur náð sextugsaldri: „Algengast er að fjöl-
skyldufólk, á aldrinum 30-50 ára, sé í vanda.“
Nærri 19 þúsund á vanskilaskrá
Um þrjú þúsund hafa bæst við frá því í október Búist við að skráin bólgni
Í HNOTSKURN
»Alls eru 3.690 manns, eða tæplega 20%þeirra sem skráðir eru í alvarlegum
vanskilum, með eitt mál í löginnheimtu.
HERMANN Jón Tómasson tók í
gær við starfi bæjarstjóra á Akur-
eyri, af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur.
Hún verður formaður bæjarráðs í
hans stað og tók einnig við embætti
forseta bæjarstjórnar af Kristjáni
Þór Júlíussyni, alþingismanni og
fyrrverandi bæjarstjóra.
Fulltrúar Framsóknarflokks og
VG gagnrýndu í gær að skipt væri
um bæjarstjóra við þær aðstæður
sem nú eru í þjóðfélaginu.
Samið var um það, þegar meiri-
hlutinn var myndaður, að samfylk-
ingarmaður gegndi starfinu síðasta
ár kjörtímabilsins. „Við gengum frá
ákveðnu samkomulagi við upphaf
kjörtímabilsins, það hefur legið fyrir
frá upphafi og allir hafa haft nægan
tíma til að undirbúa málið. Við höf-
um unnið þétt saman í þessu starfi
þannig að það er ekkert vandamál
fyrir mig að taka við. Ég er öllum
hnútum kunnugur þannig að þessi
breyting á ekki að hafa nein áhrif á
starfsemi bæjarins,“ sagði Hermann
Jón við Morgunblaðið í gær. „Við er-
um vissulega að fást við ýmis verk-
efni sem við völdum okkur ekki en
við verðum engu að síður að takast á
við þau; stóra málið er að tryggja að
Akureyri komi vel út úr þessum
öldudal sem íslenskt samfélag er í
núna,“ sagði bæjarstjórinn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lyklavöld Sigrún afhendir Hermanni lykilinn að skrifstofu bæjarstjóra.
Hermann Jón er sestur
í bæjarstjórastólinn