Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 TÆPLEGA 35 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í maímánuði, sem er 1.400 færri gestir en í sama mánuði í fyrra. Fækkunin nemur fjórum prósent- um milli ára. Brottförum Íslend- inga fækkar hins vegar verulega, voru 41.600 árið 2008 en 22.400 í ár. Ef litið er til helstu landa má sjá nokkra fjölgun frá Bandaríkjunum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, og Frakklandi. Danir standa í stað, Þjóðverjum og Hollendingum fækkar lítilsháttar en Pólverjum, Bretum og Kínverjum verulega. Gestum frá öðrum löndum og fjar- mörkuðum fækkar um fjórðung. Morgunblaðið/Ómar Færri á ferðalagi ULLA Magn- ússon, formaður SOS-barnaþorp- anna á Íslandi, hefur verið sæmd heiðurs- orðu alþjóða- samtakanna SOS-Kinderdorf International fyrir fram- úrskarandi störf í þágu samtak- anna. Það var alþjóðaforseti sam- takanna, Helmut Kutin, sem veitti Ullu viðurkenninguna á afmæl- ishátíð SOS-barnaþorpanna í Ráð- húsi Reykjavíkur. Verðlaun frá SOS- barnaþorpum Ulla Magnusson JAFNRÉTTISNEFND BSRB beinir þeim eindregnu tilmælum til ríkis- stjórnar og samningsaðila á vinnu- markaði að standa vörð um velferð- arþjónustuna. Starfsfólk í velferð- arkerfinu, á sjúkrahúsum, í heilsu- gæslunni, á stofnunum fyrir fatlaða og í skólum er í yfirgnæfandi meiri- hluta konur. Samdráttur og skerð- ing í velferðarþjónustunni bitnar því harkalegra á kvennastéttum. BSRB og jafnrétti BANDALAG kvenna í Hafnarfirði fer í sína árlegu gróðursetningar- ferð fimmtudaginn 11. júní kl. 19:00 í gróðurreitinn fyrir ofan Sléttu- hlíð. Kaffi og kruðerí verður á staðnum. Vonast er eftir góðri mætingu félagskvenna. Gróðursetning ANNAÐ tilfelli svínaflensu hefur verið staðfest hér á landi, en sextugur karl- maður á höfuð- borgarsvæðinu hefur greinst með veikina. Hann er á bata- vegi, samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni. Maðurinn kom til Íslands frá Bandaríkjunum 3. júní en veiktist eftir heimkomuna. Því er ekki talið að hann hafi smitað aðra á leið sinni til Íslands. Fylgst er með fjölskyldu hans og fleirum sem hann hefur umgengist en ekki hefur greinst smit hjá öðrum. Fyrsta svínaflensu- tilfellið hér á landi var staðfest 22. maí hjá karlmanni sem einnig var að koma frá Bandaríkjunum. Annað tilfelli svína- flensu staðfest STUTT Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is „TILLÖGURNAR endurspegla fyrst fremst það að við erum í tíma- þröng og því er brýnt að bregðast við strax,“ segir Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæðisflokksins og flutningsmaður efnahagstillagna þingflokksins. „Nógu mikið hefur verið talað um að verkefnið sé risa- vaxið, nú þarf að gera eitthvað.“ Í tillögunum er bent á að með því að skattleggja inngreiðslur til lífeyr- issjóða, í stað útgreiðslna eins og nú er gert, megi auka tekjur ríkissjóðs um 40 milljarða á ári án þess að skerða ráðstöfunartekjur launþega og eftirlaunaþega. Leið þessi myndi hægja á vexti lífeyrissjóðanna, en Tryggvi Þór Herbertsson, þingmað- ur flokksins, telur þó að kostirnir myndu vega upp þann galla. Meðal annarra aðgerða má nefna afnám stimpilgjalda og að draga frekar úr greiðslubyrði. Lagt er til að flestum aðgerðunum, m.a. í tengslum við heimilin, stofnun nýju bankanna og gerð raunhæfrar áætl- unar í ríkisfjármálum verði lokið fyrir 15. júlí nk. Áætlunin skal mið- ast við að á þremur árum verði hall- inn, án vaxtagjalda, horfinn. „Við leggjum áherslu á að hlut- irnir gerist í réttri röð. Fyrst þarf að leggja fram raunhæfa áætlun í rík- isfjármálum, sem lýsir hvernig á að loka 150 milljarða fjárlagagati. Bæði peningastefnunefnd Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bíða eftir slíkri áætlun. Fyrr er ekki hægt að lækka vexti eða losa um gjaldeyrishöft. Í öðru lagi þarf að koma bankakerfinu á réttan kjöl til að hægt sé að hjálpa heimilum og fyrirtækjum,“ segir Tryggvi. „Með þessum tillögum útilokum við þó ekki skattahækkanir eða nið- urskurð. Hér eru engar niðurskurð- artillögur, við getum við ekki sett þær fram því við höfum ekki aðgang að viðeigandi upplýsingum.“ Bent er á að endurskoðun pen- ingastefnunnar skuli gerð af ut- anaðkomandi sérfræðingum, „ekki bara þeim sem bera ábyrgð á fram- kvæmdinni,“ segir Bjarni, og vísar þar til úttektar Seðlabankans á pen- ingastefnunni. 40 milljarða í aukatekjur  Brýnum aðgerðum lokið eftir mánuð og hallinn verði horfinn eftir þrjú ár  Brýnt að leggja fram áætlun um hvernig á að loka 150 milljarða fjárlagagati  6 . # $ 6  4 7 89:; 8       6  4  6 6 6 6  6 Eignir „Eiginfjárstaðan hefur versnað og mun halda áfram að versna,“ seg- ir Tryggvi Þór Herbertsson. „Við sjáum að það er rétt um 46 ára aldur sem hjón eru að jafnaði orðin skuldlaus, eins og staðan er nú. Þegar fólk sér svona tölur fyllist það vonleysi og greiðsluviljinn hverfur ef ekkert er gert.“ Heimilum verði gert kleift að lækka greiðslubyrði af verð- tryggðum húsnæðislánum um 50% á mánuði í þrjú ár. Mynd- aður verði hópur með fulltrúum allra flokka sem kanni möguleika á niðurfærslu lána. ---- Skuldastaða ríkisins verði kort- lögð sem og vaxtabyrðin næstu árin og hvernig endurgreiðslum skulda verður háttað. ---- Settar verði fjármálareglur fyr- ir ríki og sveitarfélög til að auka samhæfingu og styðja sem best við peningastefnuna. ---- Reglum um gjaldeyrishöft verði breytt þannig að nýjar er- lendar fjárfestingar falli ekki und- ir höftin. ---- Ljúka þarf við stofnun nýju bankanna og tryggja að áhætta vegna gjaldeyrisjafnaðar, vaxta- munar og eignamats endi ekki hjá nýju bönkunum og þar með skattgreiðendum. ---- Mótuð verði skýr stefna, byggð á gagnsæi, jafnræði og hag- kvæmni um hvernig unnið verði að sölu á eignarhlut í fyrirtækjum sem ríkisbankarnir leysa til sín. ---- Spornað verði við atvinnuleysi, m.a. með fjölbreyttri uppbygg- ingu í orkufrekum iðnaði. Úr efnahagstillögum STEFNA skal að sölu á eign- arhlutum bankanna til al- mennings eftir skýrum reglum um dreifða eignarað- ild. Endurskoða þarf reglur á fjármálamarkaði sem og regl- ur um gagnsæi varðandi eign- arhald fyrirtækja og réttindi minni hluthafa. Þá skal fá ut- anaðkomandi sérfræðinga til að athuga framtíð gjaldeyr- ismála og upptöku annarrar myntar, þar með kanna kosti og galla aðildar að Mynt- bandalagi Evrópu. Skýrar reglur um dreift eignarhald GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í gær að fulltrúar Fjármálaeftirlitsins hefðu neitað að upplýsa þingmenn í viðskipta- nefnd um hvar endurreisn bank- anna væri á vegi stödd. „Við fáum engar upplýsingar um hvaða að- ferðafræði verður notuð af endur- skoðunarfyrirtækjum og ráðgjaf- arfyrirtækjum til að meta eignir bankanna eða um neitt sem snýr almennt að þessu,“ sagði Guðlaug- ur Þór. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tók undir þetta og benti á að tveimur þingnefndum hefði verið meinaður aðgangur að upplýsingum á grund- velli 5. greinar upplýsingalaga. Í 5. grein laganna væri kveðið á um rétt almennings til upplýsinga og svo virtist sem þingmenn hefðu minni rétt en almenningur. Líkt og Guðlaugur Þór sagði hún fráleitt að ætla, að kjörnir fulltrúar á Al- þingi gætu tekið upplýstar ákvarð- anir nema á grundvelli bestu fáan- legra upplýsinga. Málið væri prófsteinn á styrk Alþingis gagn- vart framkvæmdavaldinu, stofnun- um og embættismannakerfinu. Um var að ræða sameiginlegan fund efnahags- og skattanefndar og viðskiptanefndar þar sem verið var að fjalla um verðmat á eignum við uppgjör gömlu og nýju bank- anna. Álfheiður Ingadóttir, formaður efnahags- og skattanefndar, sagði að kannski kæmi til þess, að þing- menn þyrftu að fara að berja bús- áhöld í þingsalnum til að kalla fram upplýsingar. Þingmönnum neit- að um upplýsingar Þurfa þingmenn að berja á búsáhöld? GÆSIRNAR í Grasagarðinum í Laugardal virtust himinlifandi þegar þau Katrín og Jóhann heimsóttu þær og færðu þeim brauðbita í gær. Vafalaust lögðu þau þó aðallega leið sína í garðinn til að njóta nálægðarinnar við margbreytileg undur plönturíkisins fremur en að heilsa upp á vini okkar úr háloftunum. Garðurinn er ein af perlum borgarinnar á sumardögum, enda vex þar og dafnar stór hluti af íslensku háplöntuflórunni. Þar er jafnframt að finna fjölbreytt úrval erlendra plantna. Alls er að finna um 4.000 mismunandi plöntur í garðinum. haa@mbl.is Fjör í Grasagarðinum Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Gómsætt brauð í gogginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.