Morgunblaðið - 10.06.2009, Side 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
ÍBÚAR á Kjalarnesi krefjast undir-
ganga og girðingar við Vesturlands-
veg strax. Þeir krefjast þess einnig
að hámarkshraði verði virtur. Til
þess að leggja áherslu á kröfur sín-
ar ætla þeir að efna til aðgerða við
veginn síðdegis á föstudag.
„Við gerum þetta barnanna
vegna. Aðstæðurnar þarna eru
gríðarlegt áhyggjuefni. Vestur-
landsvegur sker í raun byggðina í
sundur. Börnin fyrir ofan veg
sækja í tómstundir og til leikfélaga
neðan vegar. Þau verða því að fara
yfir Vesturlandsveginn en algengt
er að 5 til 6 þúsund bílar fari þar
um á dag. Aðeins einstaka öku-
menn virða hraðatakmörkunina
sem er 70 km hámarkshraði á
ákveðnum kafla. Þess vegna er erf-
itt fyrir litla fætur að þræða á milli
bílanna,“ segir Ásgeir Harðarson,
foreldri á Skrauthólum á Kjalar-
nesi.
Munaði hársbreidd
Hann segir það algera mildi að
ekki hafi orðið alvarlegt umferð-
arslys við Grundarhverfi 3. júní síð-
astliðinn. Aðeins hafi munað hárs-
breidd að 5 ára drengur, sem var
að fara yfir veginn á eftir félaga
sínum, yrði fyrir þungaflutningabíl.
„Skömmu áður sama dag munaði
einnig litlu að barn yrði fyrir bíl
þótt móðir þess væri að fylgja því
og öðru barni sínu yfir veginn í
íþróttir. Aðstæðurnar hér eru
skelfilegar.“
Hógværar kröfur
Kröfur íbúanna eru í raun af-
skaplega hógværar, að mati Ás-
geirs. „Við förum fram á göng í
gegnum veginn við íþróttasvæðið
þar sem krakkarnir geta gengið og
hjólað, auk mannheldrar girðingar
frá Esjuskála að Klébergsskóla.
Þegar banaslys varð þarna fyrir 18
árum voru hönnuð göng í kjölfar
kröfu íbúanna en einhverra hluta
vegna voru þau aldrei sett. Síðan
hefur íbúafjöldinn tvöfaldast og um-
ferðin margfaldast.“
Skólinn við þjóðveginn
Ásgeir bendir á að þar sem Vest-
urlandsvegurinn klýfur byggðina
séu aðeins rétt tæpir 60 m í skól-
ann og innan við 100 m í næstu hús.
„Það er lykilatriði að börnin hafi
ekki greiðan aðgang að veginum og
það má að vísu segja að það sé
furðulegt að við skulum ekki vera
búin að setja upp girðingu sjálf þar
sem yfirvöld hafa ekki orðið við
kröfum okkar um bætt öryggi.“
Ályktun með kröfum íbúanna
sem samþykkt var á fundi þeirra
nú í vikunni var send til borgar-
stjóra Reykjavíkur, samgöngu-
nefndar Alþingis og Vegagerð-
arinnar.
Fulltrúar Vegagerðarinnar komu
upp á Kjalarnes í gær til þess að
skoða aðstæður og fagnar Ásgeir
því.
Jákvæð viðbrögð
„Þeir fóru yfir tillögur sem þeir
hafa nú þegar lagt fram og líst okk-
ur mjög vel á þær. Það er bara von-
andi að borgaryfirvöld sýni jafn já-
kvæð og skjót viðbrögð og Vega-
gerðin hefur gert. Girðingin verður
hins vegar að koma strax þótt við
vonum auðvitað að framkvæmd við
göngin hefjist sem fyrst.“
Íbúarnir vilja úrbætur strax
Vesturlandsvegur sker byggðina á Kjalarnesi í sundur Engin undirgöng fyrir börn sem þurfa
yfir veginn vegna tómstunda Íbúar efna til mótmælaaðgerða við veginn næstkomandi föstudag
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Hættulegur vegarkafli Klébergsskóli er í tæplega 60 metra fjarlægð frá Vesturlandsvegi. Engin girðing er þar.
TALNING Náttúrufræðistofnunar
Íslands á rjúpu nú í vor bendir til að
uppsveifluskeið sem hófst á aust-
anverðu landinu á síðasta ári nái nú
til alls landsins. Eftir tveggja ára
stofnvöxt eru rjúpur að verða al-
geng sjón í varplöndum um Norður-
og Austurland. Meðalaukning milli
ára 2008 og 2009 var um 25%.
Venjulega hafa fyrri uppsveiflu-
skeið varað í fjögur til fimm ár. Mið-
að við þær forsendur má búast við
að stofninn nái hámarki á árunum
2011 og 2012. Mat á veiðiþoli rjúpna-
stofnsins mun liggja fyrir í ágúst.
Árleg vortalning Náttúrufræði-
stofnunar Íslands á rjúpu gekk
ágætlega og voru rjúpur taldar á 44
svæðum í öllum landshlutum. Alls
voru taldir um 2.100 karrar sem eru
um 2% af áætluðum heildarfjölda
karra í landinu samkvæmt nýlegu
stofnstærðarmati. Áætlað er að far-
ið hafi verið yfir um 3% af grónu
landi neðan 400 m hæðar. Talning
voru unnin í samvinnu við allar nátt-
úrustofur landsins, þjóðgarðana í
Skaftafelli, Jökulsárgljúfrum og á
Þingvöllum, Fuglavernd, Skotvís og
áhugamenn. Um 65 manns tóku þátt
í talningunni.
Síðasta sveifla stofnsins, 2003 til
2008, var óvanaleg, varaði aðeins í
fimm ár og helgaðist af áhrifum
skotveiðibanns 2003 og 2004. „Ekki
er vitað hvort vöxtur stofnsins núna
sé upphafið að náttúrulegri upp-
sveiflu, þar sem sveiflutíminn er um
11 ár, eða hvort við munum sjá að
ári fækkun í stofninum líkt og var
vorið 2006 eftir aðeins tveggja ára
stofnvöxt,“ segir á ni.is.
Íslenski rjúpnastofninn sveiflast
mikið af náttúrulegum orsökum.
Fyrri hluti 20. aldar einkenndist af
mjög háum toppum í rjúpnahámörk-
um og var sá síðasti í þeirri röð árið
1955. Síðustu áratugi hefur hins
vegar gætt langtímaleitni niður á
við í stofninum. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Uppsveifla Rjúpa á þaki eyðibýlisins Barma í Reykhólasveit.
Uppsveifla í rjúpna-
stofninum um allt land
Stofninn í hámarki árin 2011 og 2012
Undirbúningur fyrir göng undir
Vesturlandsveg á Kjalarnesi hefur
verið í gangi hjá Vegagerðinni frá
því að samgönguráðherra fundaði
með íbúunum í apríl síðastliðnum.
Þetta segir Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri sem kveðst vona
að framkvæmdir hefjist strax í
sumar.
„Þær verða allavega á þessu ári
og í síðasta lagi í haust.“
Hann getur þess að menn vilji
að göngin nýtist þegar Vestur-
landsvegur verður tvöfaldaður. Þá
verði gerð samskonar göng undir
hina akbrautina.
„Endanleg veglína hefur nú ver-
ið fest í skipulagi Reykjavíkur-
borgar en það var forsenda þess
að við gætum farið að hanna.“
Undirbúningur fyrir göng í fullum gangi
Verkfræðistofan EFLA
Verkfræðistofan EFLA hf leitar að áhugasömum
aðila til að veita nýrri starfsstöð fyrirtækisins á
Akureyri forstöðu.
- Á AKUREYRI
Viðkomandi þarf að hafa háskólapróf í tæknigreinum og góða reynslu úr starfi.
Sérstök áhersla er lögð á orkumál og grunngerðarkerfi.
Um er að ræða bæði tækni- og stjórnunarstarf.
Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur eru mikilvægir eiginleikar.
EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki sem
veitir vandaða þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði
og tækni. Hjá fyrirtækinu starfa alls um 250 manns,
á Íslandi og í tengdum félögum í 7 öðrum löndum.
Megingildi EFLU er “ALLT MÖGULEGT”.
Umsóknarfrestur rennur út 19.júní
Vinsamlega sendið umsóknir til Ástu Bjarkar Sveinsdóttur,
starfsmannastjóra EFLU, á netfangið asta.bjork.sveinsdottir@efla.is.
EFLA hf. | Suðurlandsbraut 4A | 108 Reykjavík |
sími: 412 6000 | fax: 412 6001 |
www.efla.is | efla@efla.is