Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 13

Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Þetta helst ... ● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á Íslandi hækkaði um 0,4% í gær og er lokagildi hennar 733 stig. Hlutabréf Össurar hækkuðu um 0,9% en bréf Marels lækkuðu hins vegar um 1,3%. Viðskipti með hlutabréf námu 22 millj- ónum króna, en viðskipti voru með bréf í fjórum félögum. Viðskipti með skulda- bréf voru meiri eða fyrir 13,1 milljarð. Krónan hélt áfram að veikjast í gær og er gengisvísitalan komin í 232,3 stig. Veiking í gær var um 0,9%. gretar@mbl.is Hækkun í Kauphöllinni ● Seðlabanki Íslands ætlar ekki að framlengja innstæðubréf sem eru á gjalddaga 24. júní næstkomandi. Bréfin voru gefin út til þriggja mánaða og að stóru leyti í eigu erlendra fjárfesta sem voru fastir með krónur sínar á Íslandi vegna gjaldeyrishafta. Verðmæti útistandandi bréfa er 67 milljarðar króna en var 123 milljarðar í mars sl. Vextir hafa verið greiddir út vikulega og mögulegt var að innleysa bréfin á hverjum miðvikudegi. Ríkið hefur aukið framboð á skamm- tímaverðbréfum og metur Seðlabank- inn það svo að fjárfestar færi peningana sína yfir í slíkar eignir. bjorgvin@mbl.is Seðlabanki hættir út- gáfu innstæðubréfa ● FINNSKA flug- félagið Finnair mun að öllum líkindum fækka starfsfólki enn frekar en nú þegar hefur verið gert, en um 600 manns hafa misst vinnuna hjá félag- inu að undanförnu. Ástæðan er minnkandi tekjur. Flugfarþegum Finnair hefur fækkað um 15% í ár í samanburði við sama tímabil í fyrra. Áætlanir fyrirtækisins miða að því að ná fram að minnsta kosti 100 milljóna evra sparnaði á árinu til viðbótar við svipaðan sparnað sem ákveðinn var fyrr á árinu. gretar@mbl.is Finnair fækkar starfs- fólki vegna samdráttar KRÖFUHAFAR eignarhalds- félagsins Eglu, sem er í eigu Ólafs Ólafssonar kaupsýslumanns, samþykktu í gær- morgun nauða- samning félags- ins. Í frumvarpi samningsins sem lagt var fram í apríl sl. kom fram að félagið myndi ekki lifa án nauða- samnings við lánardrottna. Skuldir Eglu eru rúmir 8,3 milljarðar króna, á meðan áætlað verðmæti eigna nemur um 1,2 milljörðum króna, eða um 15% af skuldum. Samningurinn gerir ráð fyrir að almennir lánardrottnar fái 15% krafna sinna greiddar með reiðufé, annars vegar 10% innan fjögurra vikna og hins vegar 5% innan tólf mánaða frá staðfestingu samnings- ins. Þá felur frumvarpið í sér að lán- ardrottnar bíði niðurstöðu þeirra málsókna sem Kjalar ehf., sem skuldar Eglu rúma 7,7 milljarða króna, hyggst höfða á hendur gamla Kaupþingi og Glitni vegna vanefnda á gjaldmiðlaskiptasamningum. Samningurinn gerir ráð fyrir að allir fjármunir sem Egla eignast, umfram þau 15% sem kröfuhöfum er lofað innan 12 mánaða frá staðfest- ingu samnings, muni renna til lán- ardrottna þar til kröfur þeirra eru að fullu greiddar. thorbjorn@mbl.is Samningur Eglu í höfn Ólafur Ólafsson Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SAMKOMULAG hefur náðst á milli kröfuhafa Exista um að félagið verði sett í greiðslustöðvun á næstu vikum, samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Kröfuhafarnir hafa þegar komið sér saman um innlendan aðila sem þeir vilja sem aðstoðarmann í greiðslustöðvuninni, en deilur eru um framtíð stjórnenda Exista. Johannes Heinloth, frá Bayerische Landesbank (BL), var staddur hér á landi í lok síð- ustu viku fyrir hönd stærstu erlendu kröfuhafa Exista. BL er í forsvari fyr- ir sambankalán alls 27 alþjóðlegra banka til Exista. Erlendu kröfuhaf- arnir eru alls 37 talsins. Vilja forstjórana áfram Fundað var tvisvar á dag á meðan Heinloth var á landinu og heimildir Morgunblaðsins herma að hann hafi farið frá Íslandi með rammasam- komulag milli kröfuhafa. Stærstu innlendu kröfuhafar Ex- ista, Nýja Kaupþing og gömlu bank- arnir þrír, reyndu fyrir nokkrum vik- um að taka yfir félagið og setja stjórnendur þess af. Sú gjörð var byrjunarpunkturinn á því ferli sem nú virðist ætla að enda á að félagið verði sett í greiðslustöðvun. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er þó enn deilt um hvort for- stjórarnir, Erlendur Hjaltason og Sigurður Valtýsson, eigi að sitja áfram. Vilji erlendu kröfuhafanna stendur til þess, en þeir íslensku eru því ósammála. Þeir eru þó opnir fyrir því að Erlendur og Sigurður gegni einhverskonar ráðgjafarhlutverki þó þeir verði látnir sleppa stýrinu. Nauð- synlegt er að ná sátt milli kröfuhaf- anna í þessu máli áður en að Exista verður sett í greiðslustöðvun. Hluthafar Exista tapa sínu Þegar félagið verður sett í greiðslu- stöðvun mun stjórn Exista í raun missa vald sitt yfir félaginu til skipaðs aðstoðarmanns, þótt hún muni sitja áfram. Kröfuhafarnir munu síðan skipa nefnd sem mun hafa eftirlit með ferlinu. Tilgangur þess verður að há- marka endurheimtir kröfuhafanna og þar sem kröfur eru mun hærri en eignir þá hafa hluthafar Exista að öll- um líkindum tapað sínum eignarhlut. Þar eru bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir stærstir í gegnum fé- lag sitt BBR ehf. Þeir eignuðust um 78 prósent hlut með hlutafjáraukn- ingu í desember, en Fyrirtækjaskrá skoðar nú hvort að sú hlutafjáraukn- ing standist lög. Kröfuhafar Exista vilja greiðslustöðvun  Samkomulag nánast til  Deilt um framtíð forstjóranna Í HNOTSKURN »Morgunblaðið skýrði fráþví á laugardag að skila- nefnd Glitnis hefði þegar gjald- fellt kröfur sínar á Exista. »Forsvarsmenn Exista neitaþví hins vegar að skila- nefndin eigi raunverulegar kröfur á félagið. »Því munu dómstólar að öll-um líkindum skera úr um niðurstöðu þess máls. Eftir Helga Vífil Júlíusson helgivifill@mbl.is ÍSLAND er skuldsettasta land inn- an Efnahags- og framfarastofnunar- innar (OECD) í ár, sé litið til heild- arskulda hins opinbera miðað við verga landsframleiðslu, samkvæmt grófum útreikningum Morgunblaðs- ins. Tekið er með í reikninginn að ríkissjóður hefur gengist í ábyrgð fyrir 650 milljarða króna vegna Ice- save-samningsins en ekki er hugað að erlendum eignum Landsbankans sem koma munu á móti. Téð skulda- hlutfall nemur 160% samanborið við meðaltalið 73% á evrusvæðinu. Sé litið framhjá Icesave-samningnum nemur hlutfallið 114%. Hafa ber í huga að samanburðar- tölurnar frá OECD eru frá desem- ber á síðasta ári og eru áætlaðar fyr- ir árið í ár, nýrri tölur eru ekki til. Margt hefur breyst frá þeim tíma, en þó mest á Íslandi. Þrátt fyrir það er í gögnum OECD áætlað að hlutfallið fyrir Ísland verði 122%. Útreikningar Morgunblaðsins byggðust á tölum frá Hagstofunni sem birtust í maí í ritinu Þjóðarbú- skapurinn, en þar er áætlað um helstu hagstærðir landsins. Í ritinu er áætlað að heildarskuldir hins op- inbera verði 1.599 milljarðar króna í ár. Við þessa upphæð bætti Morg- unblaðið téðri Icesave-upphæð til þess að bera saman skuldir landsins við aðrar þjóðir innan OECD. Hag- stofan spáir að verg landsframleiðsla verði 1.465 milljarðar króna í ár. Er um grófa útreikninga að ræða, en þeir gefa þó ákveðna mynd af skuldastöðu Íslands. Skuldsettasta land OECD Ísland einnig skuldugt þó litið sé fram hjá Icesave <=;) 44 >?@48 $ 3 444  ) &! !B   .!; $       !!"  # C   = 5  & 8       !    "#"$% ! ! &'!# (" )*+ ,-  D D    D  D Eftir Helga Vífil Júlíusson helgivifill@mbl.is ÞROTABÚ fjárfestingafélagsins Grettis lagði yfir tuttugu milljónir króna í nýtt eignarhaldsfélag enska knattspyrnufélagsins West Ham þegar kröfuhafar Hansa tóku knattspyrnufélagið yfir, að sögn Elvars Arnar Unnsteinssonar, skiptastjóra Grettis. Hann sagði í samtali við Morg- unblaðið að með þessu væri verið að verja mikil verðmæti. Þrotabúið á um 7% hlut í knattspyrnufélaginu. Talsmaður Straums, sem er stærsti hluthafi West Ham, vildi ekki tjá sig um málið. Ekki náðist í aðra hlut- hafa. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins urðu lánardrottnar sem lögðu fé í rekstur knattspyrnu- félagsins að samþykkja nýja eig- endur. Var það ekki sjálfgefið. Hansa, félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, missti West Ham í hendur lánardrottna sinna. Kröfu- hafar Hansa stofnuðu eignarhalds- félagið CB Holding um West Ham. Straumur, sem er undir slitastjórn, á 70% hlut í knattspyrnufélaginu, MP banki á 8%, Byr 7%, þrotabú Grettis 7%, þrotabú Samson 4% og gamli Landsbankinn 4%, sam- kvæmt upplýsingum frá hluthöfum. Björgólfur, eða félög tengd honum, var stór kröfuhafi á Hansa en hann er ekki að finna hluthafalista West Ham. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins voru um að ræða víkj- andi lán en slík lán fara aftast í kröfuhafaröðina. Reuters Hamrarnir Skiptastjóri segir að ver- ið sé að verja mikil verðmæti. Lögðu fé í West Ham >.E. >.E(     D D >.E/ 01E      D D @!FG!  H8I      D D 3</ @ E        D D >.E1 >.E&      D D ● FYRSTA skrefið í endurfjármögnun færeyska olíuleitarfyrirtækisins Atl- antic Petroleum er lokið. Gjalddagar á svonefndu brúarláni fyrirtækisins hinn 31. júlí og 31. desember næstkomandi hafa verið framlengdir til 31. desember 2010 eða fyrr. Endanlegur gjalddagi á láni Atlantic Petroleum mun ráðast í fyrirhuguðu hlutafjárútboði fyrirtæksins og/eða lánafyrirgreiðslu. Þetta kemur fram í til- kynningu frá Atlantic Petroleum, en fyr- irtækið er skráð í Kauphöllinni á Íslandi. gretar@mbl.is Atlantic Petroleum frestar gjalddögum Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is VILJI er fyrir því innan ríkisstjórn- arinnar að hækka greiðslur banka og sparisjóða til Tryggingasjóðs innstæðueigenda til að gera sjóðinn betur í stakk búinn að mæta hugs- anlegum greiðslum vegna Icesave- reikninganna, ef eignir Landsbank- ans duga ekki til, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Um er að ræða leið sem samn- inganefnd íslenska ríkisins vegna Icesave-reikninganna hefur lagt til með það fyrir augum að takmarka hugsanlega ábyrgð ríkissjóðs, en ríkissjóður ber ábyrgð á greiðslum til þrautavara ef tryggingasjóð- urinn er ekki gjaldfær og eignir Landsbankans duga ekki til. Nokkrar útfærslur eru nú skoðaðar með það fyrir augum að takmarka hugsanlega ábyrgð ríkissjóðs. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins þykir sú leið að hækka greiðslur bankanna til tryggingasjóðsins ein- föld og þægileg. Ekki sé áhugi á því að fara leið skattlagningar í þessu máli. Fyrirséð er að með tíð og tíma verði nýju ríkisbankarnir þrír einkavæddir að nýju þótt ekki liggi neinir tímarammar fyrir. Ef hækka á greiðslur þeirra sem eiga aðild að sjóðnum þarf að breyta lögum um innstæðutrygg- ingar og tryggingakerfi fyrir fjár- festa. Samkvæmt lögunum skal heildareign innstæðudeildar trygg- ingasjóðsins að lágmarki nema 1% af meðaltali tryggðra innstæðna í viðskiptabönkum og sparisjóðum frá árinu á undan. Nái heildareign ekki lágmarkinu þurfa bankarnir að greiða sérstakt gjald til sjóðsins sem nemur 0,15% af meðaltali tryggðra innstæðna í hlutaðeigandi banka. Nýju bankarnir bera byrðina  Vilja hækka greiðslur bankanna til Tryggingasjóðs inn- stæðueigenda  Hugmyndin að takmarka ábyrgð ríkissjóðs Morgunblaðið/Árni Sæberg Bolmagn Steingrímur J. Sigfússon. Ríkisstjórnin hefur látið skoða leiðir til þess að efla Tryggingasjóð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.