Morgunblaðið - 10.06.2009, Side 20

Morgunblaðið - 10.06.2009, Side 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 ✝ Arnór AlexÁgústsson fædd- ist í Reykjavík 12. mars 2003. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans 2. júní 2009 eftir harða og hetjulega baráttu við hvítblæði sem greindist í febrúar síðastliðnum. For- eldrar hans eru Sig- urbjörn Ágúst Ágústsson, f. 25. júlí 1972 og Hjördís Björk Þórarins- dóttir, f. 7. mars 1972. Systir Arn- órs er Silja Rut Tómasdóttir, f. 15. 1960 og 4) Margrét, f. 31. janúar 1961. Foreldrar Hjördísar eru Þór- arinn Böðvarsson, f. 3. apríl 1950 og Sigrún Ögmundsdóttir, f. 12. apríl 1952. Systkini Hjördísar eru 1) Þórarinn Böðvar, f. 15. apríl 1975. 2) Hildur Björk, f. 18. apríl 1981, í sambúð með Einari Karli Þórhallssyni, f. 19. apríl 1980. 3) Þórunn, f. 28. desember 1984, í sambúð með Kristmundi Guð- mundssyni, f. 13. júlí 1981 og sam- an eiga þau Úlfar Kristmundsson, f. 27. nóvember 2008. Arnór Alex ólst upp í Hafn- arfirði og var á leikskólanum Norðurbergi. Útför Arnórs Alex fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 10. júní, og hefst athöfnin klukkan 15. Meira: mbl.is/minningar febrúar 1996. Foreldrar Sig- urbjörns eru Ágúst Guðjónsson, f. 20. mars 1943 og Ragn- heiður Ágústsdóttir, f. 21. desember 1948. Systkini Sigurbjörns eru 1) Jón Viðar, f. 25. júní 1977, í sam- búð með Grétu Mar- íu Grétarsdóttur, f. 13. ágúst 1980 og saman eiga þau Daða Berg Jónsson, f. 11. júní 2006. 2) Lára Björg, f. 21. mars 1979. Samfeðra eru þær 3) Ólína, f. 24. janúar Yndislegi Arnór Alex okkar. Pabbi og mamma gráta. Mikið óskaplega söknum við þín. Litli fal- legi drengurinn okkar með ljósu krullurnar sínar og leiftrandi grænu augun sín. Þú varst svo sannarlega allt sem við óskuðum að eiga. Lít- illátur, ljúfur, kátur voru orð sem lýstu þér. Ljúfari og yndislegri drengs var ekki hægt að óska sér. Þú komst ekki auðveldustu leiðina í þennan heim og fórst heldur ekki auðveldustu leiðina út úr honum. Frá því að þú komst í heiminn þá gerðir þú líf allra innihaldsríkara, glaðlyndi þitt og bros nægði alltaf til að gleðja fólkið í kringum þig, bæði stóra og smáa. Þú lifðir hratt og örugglega, máttir engan tíma missa. Fyrir þér var svefninn óþarf- ur. Þér lá mikið á að fræðast um alla hluti, vissir allt um mannslíkamann, dýraríkið og öll helstu tækniatriði tölvunnar voru þér hugleikin. Þegar við horfum til baka þá var svo furðulegt, það var eins og þú vissir að þú myndir kveðja þetta jarðlíf of fljótt. Vikuna áður en þú greindist með hvítblæði þá varð þér tíðrætt um dauðann. Þú ætlaðir ekki að fara til Nangiala eins og bræðurnir Ljónshjarta, heldur upp til Guðs. Síðan ætlaðir þú að fæðast aftur og spurðir mömmu hvort það væri ekki öruggt að þú kæmir aftur í mömmu- bumbu þegar þú myndir fæðast aft- ur. Við vonum það svo innilega, Arnór Alex. Okkar nánustu ætt- ingja grunaði ekki í hvað stefndi svo fljótt eftir greininguna. Hjarta okk- ar var fullt af bjartsýni og von, von um að þú myndir sigra að lokum. Jafnvel þessa áttatíu daga á gjör- gæslu þá héldum við alltaf í vonina um að þér tækist að snúa til baka. Hversu heitt við báðum um bata og glöddumst innilega þegar vonir okk- ar voru vaktar. Þér tókst, Arnór minn, að bræða hjörtu þeirra ynd- islegu hjúkrunarfræðinga og lækna sem sinntu þér af mikilli umhyggju með þrautseigju þinni og blíðu lund. Fallegi engillinn okkar, nú ertu floginn á brott. Eftir sitja pabbi og mamma með brostið hjarta og minningu um lítinn yndislegan dreng. Minningu sem lifir ávallt. Eftir leið um lífsins hjarn er laus við þjáning stríða, við kveðjum Arnór englabarn, elsku drenginn blíða. (Egill Þórðarson.) Ástarkveðja Mamma og pabbi. Elsku litli drengurinn okkar, nú ertu farinn. Þú sem barðist svo hetjulega og varst svo duglegur, alltaf héldum við í vonina að þú myndir sigrast á þessum veikindum. Oft komst þú í heimsókn og stundum gistir þú hjá okkur, þú gafst okkur alltaf svo mikla gleði og hamingju. Það var sama hvað gekk á, ef þú varst lasinn eða hafðir meitt þig sagðir þú samt alltaf allt gott. Við kveðjum þig með sorg í hjarta, elsku litli kjötsúpukallinn okkar. Megi góður guð styrkja mömmu þína, pabba og systur. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson.) Kveðja, Ragnheiður amma og Ágúst afi. Okkar ástkæri Arnór Alex er lát- inn. Hann Arnór okkar háði harða baráttu fyrir lífi sínu og stóð sú bar- átta í þrjá mánuði. Það voru ótal sigrar sem hann vann á þessu tíma- bili og svo komu líka skref til baka. Við stórfjölskyldan trúðum því allt- af að hann kæmist í mark að lokum, annað væri ekki hægt. En svo varð því miður ekki niðurstaðan. Æðri máttarvöld tóku í taumana, opnuðu Gullna hliðið upp á gátt og strengdu línu sem hann svo sleit undir morg- un þann 2. júní og var honum fagn- að þar sem sigurvegara. Hann Arn- ór okkar á eflaust að fá þar stórt verkefni nú á næstu dögum. Það er nánast óbærilegt fyrir okkur að setjast niður og skrifa um litla drenginn okkar en við ætlum hér að stikla á stóru. Arnór okkar náði því að verða 6 ára sem er nú ekki hár aldur en hann skilur eftir sig ótrúlega margar og góðar minn- ingar. Hann var oft kallaður sátta- semjarinn eða friðarpostullinn. Ef foreldrarnir ætluðu að ávíta Silju systur þá var Arnór kominn til að verja hana vel og vandlega. Þegar ég, afi Þórarinn, fékk það hlutverk að fara með Arnór Alex í leikskólann hans, Norðurberg, þá tók ég stóran hring um Hafnarfjörð og fór að segja honum frá hinum ýmsu stöðum. Eftir að Arnór hafði hlustað lengi á mig var hann farinn að ókyrrast, og spyr mig hvaða leið ég sé að fara – hann sé að verða of seinn í leikskólann. Ég svara honum að þetta sé stysta leiðin í leikskól- ann. Arnór var nú ekki alveg sam- mála og sagði að mamma sín væri miklu fljótari og færi aðra leið. Ég fékk þá lánaða setningu úr Dýrun- um í Hálsaskógi og sagði: „Hún mamma þín er rugludallur og ratar ekkert um Hafnarfjörð“. Arnór varð alveg hneykslaður á afa sínum og svaraði höstugur: „Heyrðu afi, hún mamma mín er dóttir þín og maður talar ekki svona um börnin sín“. Hann kunni ekki að meta svona aulahúmor. Þegar ég var svo loks kominn að leikskólanum lagði ég nokkuð frjálslega í stæði og tók um tvö stæði fyrir bílinn. Þegar Arnór steig út úr bílnum og sá þessi ósköp sagði hann í ávítunartón: „Hann pabbi minn leggur ekki svona í stæði!“. Allt frá því að hann Arnór okkar greindist með hvítblæði, þá hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með samheldni foreldranna um að gæta litla drengsins, þau fengu líka ómet- anlegan stuðning frá sínum systk- inum, mágkonum og mágum, að ömmum og öfum ógleymdum. Úlfar litli 6 mánaða sá um að kalla fram bros hjá öllum í þessum erfiðu að- stæðum. Arnór minn reyndi líka að teygja sig til hans, og það veitti hon- um mikla gleði að sjá hann. Við afi og amma viljum færa kær- ar þakkir til starfsfólks gjörgæslu Landspítalans við Hringbraut fyrir ómetanlegt og fórnfúst starf. Það gerði allt sem í þeirra valdi stóð til að gera honum lífið bærilegt, kom með myndir af dýrunum sínum og sagði honum sögur af þeim, jafnvel þó vinnudegi væri lokið. Einnig vilj- um við færa kveðjur í leikskólann Norðurberg. Leikskólakennarar og ekki síst skólafélagar eiga öll um sárt að binda. Elsku Hjördís, Gússi og Silja. Megi guð vera með ykkur og styrkja í sorginni. Elsku Arnór Alex. Elsku drengurinn okkar. Guð veri með þér. Við vitum að þú ert kominn á góðan stað og líður vel þar sem þú ert núna. Ef allir væru þínum eiginleikum gæddir þá þyrfti ekki að syngja lag- ið „Við viljum frið á jörð“ því þá væri einfaldlega friður á jörð. Afi Þórarinn og amma Sigrún. Elsku Arnór Alex, fallegi strák- urinn minn, er látinn. Litli frændi minn sem var jafnframt besti vinur minn. Ég er svo stolt af honum. Það voru ótal sigrar sem litla hetjan gekk í gegnum og hann barðist eins lengi og hann gat. En núna er fal- legi engillinn minn kominn á betri stað. Ég heillaðist strax af Arnóri þeg- ar hann kom í heiminn og var ofsa- lega stolt móðursystir enda talaði ég líka mikið um hann. Að sækja hann á leikskólann var yndislegt. Þá reyndi ég oft að láta hann ekki sjá mig strax því þar sá maður hann leika sér og njóta sín með vinum sínum. Um leið og hann sá mig hljóp hann alltaf beinustu leið til mín. Ég er svo heppin að hafa kynnst honum Arnóri Alex. Hann var ein- lægur, ljúfur, með yndislegan húm- or, fallegur að innan og að utan og var dásamlegt barn. Hann fór með mér í nokkrar bæj- arferðir og tókum við þá alltaf strætó. Honum fannst alltaf ofsa- lega skrítið að frænkur hans tvær, háaldraðar, væru ekki með bílpróf. Arnór Alex var mikill spekingur og mikið að spá í hluti. Hann spáði mikið í líkamann og var ansi fróður. Í fyrrasumar vorum við úti í fót- bolta í garðinum á Hjallabrautinni ásamt Silju Rut systur og Hildi frænku og vorum að sparka á milli okkar fótbolta. Við reyndum að sparka eins fast og við gátum. Dýravinurinn Arnór sá svo tvær kisur koma inn á lóðina og ætlaði hann að knúsast aðeins í þeim en ég hélt áfram að sparka og þrumaði boltanum í bringuna á honum. Ég var alveg miður mín og hljóp til hans. Þá sagði Arnór Alex og horfði á mig með fallegu augunum sínum: „Þórunn, þú sparkaðir í lungun á mér …“ Við fórum þrjú út að borða síð- asta vetur, Arnór Alex, mamma hans og ég. Þá var ég kasólétt og Arnór var oft duglegur að klappa kúlunni minni enda var hann líka ofsalega spenntur að verða stóri frændi. Á meðan mamma hans var að panta matinn fyrir okkur þá var Arnór mikið búinn að stara á mig og kúluna og spurði mig svo fallega: „Þórunn, barnið í maganum, er það í fötum?“ Ég flissaði pínulítið og sagði honum svo að barnið væri ekki í neinum fötum. Arnóri fannst það ekki jafn fyndið og sagði svo hálf- pirraður: „Ég var nú bara að spyrja.“ Enda var hann líka dugleg- ur að spyrja mann spurninga. Ég gat reyndar ekki alltaf svarað þeim en það var allt í lagi, pabbi hans vissi allt. Við fjölskyldan eigum svo margar góðar minningar um litla drenginn okkar sem við munum varðveita vel. Elsku Arnór Alex. Ég sakna þín svo mikið, elsku strákurinn minn. Þú átt stóran hluta af hjarta mínu og hefur kennt mér svo margt þó að það væru 19 ár á milli okkar. Þú varst svo hjartahlýr, ljúfur og góður og náðir því góða fram í öllum. Ég mun sakna þess að geta ekki fylgst með þér spila tölvuleikina þína, sjá fallega bros þitt og heyra hlátur þinn. Það sem við áttum saman var sönn vinátta. Elsku Hjördís, Gússi og Silja Rut. Megi guð vera með ykkur og styrkja ykkur í sorginni. Ástarkveðja, Þórunn frænka. Elsku Arnór okkar, það er skrítið hvernig lífið getur breyst. Það er svo erfitt að skilja af hverju þú ert ekki hér hjá okkur, en vegir Guðs eru órannsakanlegir. Við þökkum fyrir allar þær stund- ir sem við áttum með þér. Það skipt- ir ekki máli hvað við vorum að gera, hvort sem við vorum uppi á hól, í bíó eða jafnvel heima hjá ömmu og afa, alltaf varst þú stóri frændinn sem Daði litli leit upp til. Þú passaðir hann svo vel og tókst hlutverk stóra frænda alvarlega og leystir það með mikilli prýði. Þú varst svo duglegur að segja Daða hvernig ætti að hegða sér og hafðir alltaf gaman af þó svo að Daði litli væri oft ekki eins stillt- ur og þú vildir. Elsku Arnór okkar, dugnaðurinn og harkan sem þú sýndir í veik- indum þínum voru með ólíkindum en svona spunnu örlögin þinn þráð. Í söknuðinum er gott að muna eftir að minningin um góðan dreng lifir. Sofðu, sofðu, litla barnið blíða, bjartir englar vaki þér við hlið. Móðurhöndin milda, milda, þýða, mjúkt þér vaggar inn í himinfrið. Vaki, vaki auga guðs og gæti góða, veika, litla barnsins þá. Sofðu, sofðu! Sorgin græti, sonur ljúfi, aldrei þína brá. (Benedikt Þ. Gröndal.) Jón Viðar, Gréta og Daði litli Berg. Í dag kveðjum við lítinn frænda sem er farinn frá okkur. Fjölskylda og vinir sitja eftir með mikla sorg og söknuð í hjarta. Arnór var aðeins sex ára gamall þegar hann laut í lægra haldi fyrir sjúkdómi sem læknavísindin réðu ekki við. Það er sárt að sjá á eftir Arnóri svo ungum hverfa yfir móðuna miklu og erfitt að sætta sig við að vágesturinn hafi farið með sigur af hólmi í þessari hörðu baráttu undanfarnar vikur. Vakað var yfir honum hverja stund, beðið fyrir honum og allt gert sem hugsast gat til hjálpa honum. Arnór var hamingjusamur ungur drengur í ástríkri fjölskyldu. Við munum þennan grannvaxna og fag- ureyga dreng sem einstaklega blíð- an og ljúfan, athugulan og áhuga- saman um marga hluti. Hann var t.d. sérfróður um bíla og bílateg- undir. Um þessi efni vissi hann meira en margir sem eldri voru. Svo yndislega æskan úr augum þínum skein. Svo saklaus var þinn svipur og sál þín björt og hrein. (Tómas Guðmundsson.) Elsku Hjördís, Gússi, Silja, ömm- ur, afar og aðrir aðstandendur, við samhryggjumst ykkur innilega. Arnór Alex Ágústsson Elsku litli bróðir minn, hann Arnór Alex, er orðinn engill. Hann var yndislega góður strákur. Mér þótti svo ótrú- lega vænt um þennan litla kút. Hann gerði aldrei neitt sem hann mátti ekki gera, hlýddi alltaf öllu sem honum var sagt. Honum fannst best að vera heima hjá okkur fjöl- skyldunni að kúra með okkur og spila tölvuleiki. Hann var gleðipinninn á heimilinu. Ég sakna hans svo mikið. Hann stóð sig svo vel í þessum veikindum sínum. En því miður þá tapaði hann stríð- inu. Ég er ekki bara að missa bróður minn heldur líka vin minn. Elska þig alltaf, Arnór minn. Ég mun aldrei gleyma þér. Sjáumst í himnaríki. Ástarkveðja, Silja Rut systir. HINSTA KVEÐJA Selhellu 3 Hafnarfirði Sími 517 4400 • www.englasteinar.is ÍSLENSKAR LÍKKISTUR Góð þjónusta - Gott verð Starmýri 2, 108 Reykjavík 553 3032 Opið 11-16 virka daga ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FINNBOGI ÓLAFSSON, Skólastíg 14a, Stykkishólmi, sem lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi mánudaginn 8. júní, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 13. júní kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á St. Franciskusspítalann eða Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. Helga Ólöf Finnbogadóttir, Reynir Gísli Hjaltason, Björg Kristín Finnbogadóttir, Andrés Kristjánsson, Ellert Rúnar Finnbogason, Sigurlína Ragúels, Anna Finnbogadóttir, Smári Steinarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.