Morgunblaðið - 10.06.2009, Qupperneq 22
✝ Súsanna KristínStefánsdóttir
fæddist í Hafnarfirði
27. september 1938
Hún lést í Sunnuhlíð í
Kópavogi 1. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Stefán
Ottó Helgason múr-
arameistari, f. 23.
október 1920, d. 21.
júní 1956, og Ingibjörg
Sigurgeirsdóttir, f. 8.
janúar 1921, d. 2. jan-
úar 2003. Seinni mað-
ur Ingibjargar var
Kristján Þorláksson hvalveiðiskip-
stjóri, f. 19. júní 1909, d. 21. október
2000. Systir Súsönnu samfeðra er
Bergdís, f. 1941, gift Benedikt Guð-
mundssyni, f. 1938.
Súsanna giftist 27. september 1958
þeirra eru Súsanna Kristín, hjúkr-
unarfræðingur, f. 16. október 1981,
eiginmaður hennar er Auðunn Jóns-
son, f. 27. maí 1982, börn þeirra eru
Knútur Þór, f. 12. apríl 2006, og
Agnes Lind, f. 2. apríl 2009, Hólm-
fríður stærðfræðingur, f. 16. maí
1984, unnusti Ingólfur Finnbogason
lögfræðingur, f. 28. janúar 1982, og
Páll Óli framhaldsskólanemi, f. 5.
janúar 1991.
Súsanna tók gagnfræðapróf frá
Reykholti í Borgarfirði 1954 og hús-
mæðraskólapróf frá Varmalandi í
Borgarfirði 1956. Frá árinu 1966 til
1978 var hún starfsstúlka á Sólvangi
í Hafnarfirði. Árið 1978 útskrifaðist
hún úr Sjúkraliðaskóla Íslands. Hún
starfaði sem sjúkraliði á Borgarspít-
ala Reykjavíkur í þrjú ár. Árið 1981
hóf hún störf á St. Jósefsspítala,
Hafnarfirði, og starfaði þar allt til
ársins 2005. Súsanna gekk í Odd-
fellow regluna árið 1989 og var þar
virkur meðlimur meðan heilsan
leyfði.
Útför Súsönnu fer fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju í dag, 10. júní, og
hefst athöfnin kl. 13.
Páli Ólasyni bólstrara
og fyrrum starfsmanni
ÍSAL, f. á Siglufirði 22.
júlí 1937. Foreldrar
hans voru Óli Ólsen, f.
í Færeyjum 8. nóv-
ember 1899, d. 21.
mars 1964, og Þuríður
Pálsdóttir, f. á Skóg-
um í Reykjahverfi í
Suður-Þingeyjarsýslu
11. september 1902, d.
9. júlí 1968. Bróðir
Páls var Kjartan, f.
1935, d. 2008, eig-
inkona hans er Kristín
Valgerður Matthíasdóttir, f. 1937.
Börn Súsönnu og Páls eru Stefán
Ottó, f. 6. mars 1958, d. 1. mars 1989,
og Þuríður lífeindafræðingur, f. 24.
október 1960, gift Knúti Kristinssyni
múrara, f. 2. janúar 1958, börn
Ó, mamma mín, nú leiðir skilja
að sinni,
og sorgartárin falla mér á kinn,
en hlýjan mild af heitri ástúð þinni,
hún mýkir harm og sefar söknuðinn.
Í mínum huga mynd þín skærast
ljómar,
og minningin í sálu fegurst ómar.
Þú móðir kær þér aldrei skal ég
gleyma,
þinn andi fylgi mér á lífsins strönd.
Ég vil í hjarta heilræðin þín geyma
og halda fast í Drottins styrku hönd.
Með huga klökkum kveð ég góða
móður.
Ó, mamma mín, þú lífs míns
stærsti sjóður.
(Árni Gunnlaugsson)
Hver minning er dýrmæt perla.
Þín dóttir,
Þuríður.
Elsku amma.
Í dag kveðjum við þig í hinsta
sinn.
Við eigum margar góðar minn-
ingar með þér og afa. Það fyrsta
sem kom upp í huga okkar allra
þegar við fórum að hugsa til baka
voru sunnudagspönnukökurnar
þínar. Það stóðst alltaf að þegar við
komum í heimsókn þá stóðst þú við
hellurnar að byrja á pönnsunum og
oftar en ekki fengum við að hjálpa
til.
Einnig komu upp öll ferðalögin
sem við fórum saman. Hæst stend-
ur tjaldútilegan sem við fórum í til
Þingvalla. Um kvöldið var prím-
usinn tekinn upp og svið soðin. At-
hyglin sem við fengum frá nær-
liggjandi tjaldgestum var mikil,
það er víst ekki vani að sjóða svið í
útilegu! Oft komstu líka með afa
upp í bústað til okkar. Þar var mik-
ið gróðursett og varstu alltaf dug-
leg að hjálpa okkur að koma öllu
fyrir. Svo þurfti líka alltaf að ganga
hringinn og athuga hvort það væri
ekki í lagi með allt saman. Oftar en
ekki fannstu fuglahreiður á vorin.
Þú dekraðir alltaf við okkur þeg-
ar við komum til ykkar afa. Þú átt-
ir alltaf nammi handa okkur í
búrinu og fengum við alltaf að velja
okkur annaðhvort Draum eða
Malta.
Við munum sakna allra góðu
Súsanna Kristín
Stefánsdóttir
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓHANNS FRIÐRIKS SIGURBJÖRNSSONAR
fyrrum bónda Atlastöðum,
til heimilis að Laugabóli,
Svarfaðardal.
Lena Gunnlaugsdóttir,
Dagmar Jóhannsdóttir,
Gunnlaug Jóhannsdóttir, Birgir Kristbjörnsson,
Kristjana Jóhannsdóttir, Rögnvaldur Örn Snorrason,
Harpa Rún Jóhannsdóttir, Kristján Örn Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarþel
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, dóttur minnar og systur okkar,
GUÐFINNU ÓSKARSDÓTTUR,
Höfðavegi 28,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við öllu starfsfólki á deild
11E á Landspítalanum við Hringbraut fyrir afbragðsgóða umönnun
og hlýhug.
Guð blessi og varðveiti ykkur öll, kæru vinir.
Magnús Þór Jónasson,
Þórarinn Magnússon,
Elín Ósk Magnúsdóttir,
Sævar Þór Magnússon,
Elín Jónasdóttir,
Haukur Óskarsson,
Guðlaug Óskarsdóttir.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
ÞÓRHALLS GUÐNASONAR
frá Ásvelli,
sem lést laugardaginn 30. maí.
Sérstaklega þökkum við öllum þeim sem hjúkruðu
honum og önnuðust hann á undanförnum árum.
María Kjartansdóttir,
Svava Kjartansdóttir, Óli Þ. Guðbjartsson.
✝
Sendum öllum þeim fjölmörgu sem minntust
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SÓLVEIGAR PÉTURSDÓTTUR,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
með orðum, blómum, minningargjöfum, hlýju
handtaki eða á annan hátt, hjartans þakkir.
Trygglyndi ykkar og vinsemd snart okkur djúpt.
Hafið þökk fyrir.
Steinunn Pálsdóttir, Arnfinnur Friðriksson,
Sigurjón Pálsson,
Sólveig Þóra Arnfinnsdóttir
og ömmubörnin.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar
og tengdamóður,
ÁSTU SIGRÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki 3-S á
hjúkrunarheimilinu Eir fyrir hlýju og góða umönnun.
Guðjón Pétur Ólafsson, Hildur Gunnarsdóttir,
Ragnar Ólafsson, Jóhanna G. Z. Jónsdóttir,
Anna Margrét Ólafsdóttir, Birgir Eðvarðsson,
Ásta Björg Ólafsdóttir, Jón Ingiberg Guðmundsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
GÍSLI BJARNASON,
Lindasíðu 2,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju föstudaginn
12. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynning-
una á Akureyri.
Guðný Georgsdóttir,
Ævar Gíslason,
Kári Gíslason,
Árni Gíslason
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
TRAUSTI GUNNARSSON,
Eskihlíð 12 b,
Reykjavík,
lést í Selgilsbökkum 29. nóvember síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýnt hafa okkur
samúð og hlýhug á erfiðum tímum.
Sérstaklega viljum við þakka þeim sem voru viðstaddir minningarathöfn í
Háteigskirkju 17. desember og björgunarsveitum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Guðrún Magnea Karlsdóttir,
Halldóra Traustadóttir, Friðþór Jakobsson,
Gunnar Traustason, Hélène Fouquet,
Anna Traustadóttir, Ófeigur Ingi Gylfason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGMAR BJÖRNSSON,
Vættaborgir 96,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtudaginn,
4. Júní.
Útför hins látna fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn, 11.
Júní kl. 13.00.
Unnur G. Kristinsdóttir
Hrefna G. Sigmarsdóttir, Bergþór Kristleifsson,
G. Ólöf Sigmarsdóttir, Quentin D. Elliott,
Íris Björg Sigmarsdóttir, Ómar Pétursson,
Jóhannes B. Sigmarsson, Þórdís Sigurðardóttir,
Elísabet Sigmarsdóttir,
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minn-
ingargrein á útfarardegi verður
hún að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út. Greinar, sem berast eftir að út-
för hefur farið fram, eftir tiltekinn
skilafrests eða ef útförin hefur ver-
ið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefn-
um, www.mbl.is/minningar. Æviá-
grip með þeim greinum verður birt
í blaðinu og vísað í greinar á vefn-
um.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Engin lengd-
armörk eru á greinum sem birtast
á vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU,
5-15 línur. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan
og klukkan hvað útförin fer fram.
Minningargreinar