Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009
Sudoku
Frumstig
7 2
8
1 6
3 1 5 6
7 8
9 2
8 4 1 9
7 3 2 5
5 3
3 8
8 9
5 6 2 8 1
7 1 4
9 5 4 7
2 6
5 9 8
1
3 5 7 9
5
3 2
7 1 2
8 4 9
3 7 5
6 3 8
2 1 6
4 3
9 7 4
9 7 3 4 2 5 6 8 1
6 2 4 1 8 7 3 9 5
1 5 8 9 6 3 7 4 2
7 4 1 8 3 2 5 6 9
2 3 5 6 4 9 8 1 7
8 6 9 5 7 1 2 3 4
3 1 2 7 9 8 4 5 6
4 9 7 3 5 6 1 2 8
5 8 6 2 1 4 9 7 3
2 6 4 9 3 8 5 7 1
1 8 7 2 6 5 3 9 4
5 9 3 7 4 1 2 8 6
7 4 6 8 9 2 1 3 5
9 5 8 6 1 3 7 4 2
3 2 1 5 7 4 8 6 9
4 1 2 3 8 6 9 5 7
8 7 5 4 2 9 6 1 3
6 3 9 1 5 7 4 2 8
3 4 6 8 7 1 9 2 5
5 1 9 2 4 3 8 7 6
2 7 8 6 9 5 3 4 1
7 2 4 5 3 6 1 8 9
6 8 1 4 2 9 7 5 3
9 3 5 7 1 8 2 6 4
1 6 7 9 5 2 4 3 8
8 9 2 3 6 4 5 1 7
4 5 3 1 8 7 6 9 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 10. júní,
161. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Hið sagða og hið ósagða, per-sónulegt rými, tilfinningasemi
og geðleysi eru rauður þráður í bók-
inni Laura og Julio eftir spænska
höfundinn Juan José Millás, sem ný-
komin er út í íslenskri þýðingu. Bók-
in fjallar um hjón, Lauru og Julio,
sem þurfa að taka á því að nágranni,
sem orðinn var að þungamiðju í lífi
þeirra, verður fyrir slysi og liggur í
dái. Við það myndast tómarúm í lífi
hljónanna, sem lesandinn upplifir í
gegnum eiginmanninn. Hann ber til-
finningar sínar ekki á torg og það
kemur fram í samskiptum hans við
konu sína og fjölskyldu. Inn í söguna
fléttast vangaveltur um sannleika og
lygi og hvort leitt geti til góðs að
segja ósatt. Í þeim efnum er ekkert
sjálfgefið í heimi Millás eins og í ljós
kemur í bókinni án þess að meira
verði gefið upp hér, utan hvað sagan
tekur brátt óvænta stefnu.
x x x
Millás er vinsæll höfundur áSpáni og hefur verið þýddur á
fjölda tungumála. Hann skrifar líka
vikulegan dálk í dagblaðið El País og
kemur vikulega fram í sjónvarps-
þætti þar sem hann hvetur áhorf-
endur til að senda sér sögu orða. Það
er fengur að þessari þýðingu.
x x x
Rússneska dagblaðið Novaja Ga-seta fjallar óhikað um spillingu
og afhjúpar valdníðslu. Fjórir blaða-
menn blaðsins hafa verið myrtir,
þeirra á meðal Anna Politkovskaja.
Nýlega barst ritstjóra blaðsins und-
arlegt umslag, sem reyndist inni-
halda tvö, afskorin asnaeyru. Fjöl-
miðlun í Rússlandi er opin og hver
sem er virðist geta komið skoðunum
sínum á framfæri, þótt skoðana-
skiptin eigi sér ekki stað í ríkisfjöl-
miðlunum. Afhjúpanir Novaja Ga-
seta birtast í 270 þúsund eintökum.
Málið er hins vegar að það virðist
engu máli skipta hvað birt er í
blaðinu, ekkert breytist. Alexander
Lebedev á blaðið ásamt Míkhaíl
Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtoga
Sovétríkjanna. Í gegnum Novaja
Gaseta heldur Gorbatsjov glasnost
gangandi í Rússlandi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 árabát, 8
lækna, 9 fúi, 10 velur, 11
dráttardýrin, 13 skyld-
mennisins, 15 foraðs, 18
logið, 21 næði, 22
böggla, 23 mannsnafn,
24 léttúðin.
Lóðrétt | 2 óhamingja, 3
fletja fisk, 4 hegna, 5
éta, 6 snaga, 7 hreyf-
anlegur, 12 nudd, 14
framkoma, 15 poka, 16
örlög, 17 stöðvun, 18
bergmálið, 19 áreiti, 20
tanginn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 glæta, 4 hokin, 7 látún, 8 rýkur, 9 inn, 11 rýra,
13 hann, 14 kerfi, 15 káta, 17 nekt, 20 hik, 22 illur, 23
rónum, 24 aftur, 25 siðuð.
Lóðrétt: 1 gælur, 2 æptir, 3 asni, 4 horn, 5 kokka, 6 nýr-
un, 10 nærri, 12 aka, 13 hin, 15 keipa, 16 tylft, 18 efnuð,
19 tómið, 20 hrár, 21 krás.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 e6 2. d4 d5 3. Rf3 c6 4. e3 Rf6
5. Rbd2 Rbd7 6. Bd3 Bd6 7. O-O
O-O 8. e4 e5 9. cxd5 cxd5 10. He1
He8 11. exd5 exd4 12. Re4 Rxe4 13.
Bxe4 h6 14. Dxd4 Rf6 15. Bd2 b6 16.
Bc2 Hxe1+ 17. Hxe1 Bb7 18. Bc3
Bc5 19. Dh4 Rxd5 20. De4 g6 21.
Bb3 Kh7 22. Re5 Hb8 23. Rxf7 Rxc3
24. Df4 Df8 25. bxc3 Hc8 26. h4 Dg7
27. Hd1 Bc6 28. h5 gxh5 29. Df5+
Dg6
Staðan kom upp á 8. asíska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Subic í Filippseyjum. Kínverski
skákmaðurinn Yangyi Yu (2.433)
hafði svart gegn íranska stórmeist-
aranum Morteza Mahjoob (2.498).
30. Rg5+! hxg5 31. Dxc8 Df6 32.
Bc2+ Kh6 33. Hd2 g4 34. Dg8 Bd6
35. He2 Be5 36. Hxe5 og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Blendin ánægja.
Norður
♠ÁDG4
♥653
♦ÁK52
♣75
Vestur Austur
♠10987 ♠53
♥KD2 ♥9874
♦G1086 ♦97
♣84 ♣G9632
Suður
♠K62
♥ÁG10
♦D43
♣ÁKD10
Suður spilar 6G.
Frank Stewart var ánægður með
frammistöðu sína. Með réttu, því hann
spilaði vel. Út kom ♠10. Hvernig spil-
aði Stewart?
Hann tók slaginn í borði og renndi
strax hjarta á gosann. Vestur drap og
skilaði spaða. Stewart kannaði laufið
með þremur efstu, tígulinn líka, en
ekkert féll. Eitt viðkvæmt augnablik
lét Stewart hvarfla að sér að svína í
hjarta, en sá að sér í tíma. Svíningin
var hreinn óþarfi, því síðasti spaðinn
laðaði fram eins konar tvöfalda þving-
un. Austur átti hæsta lauf, vestur
hæsta tígul og hvorugur gat haldið eft-
ir tveimur hjörtum. Hjarta á ásinn
kláraði því gott verk.
En 13 stig út, samt sem áður. Á hinu
borðinu sögðu N-S 7G, sem sagnhafi
rúllaði heim. Hann svínaði fyrir ♣G og
þvingaði svo vestur í rauðu litunum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Valdatafl er hluti lífsins, og þú
ert í skapi til að spila. Þú sækir manna-
mót og deilir allsnægtum með öðrum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er áskorun að halda vænt-
ingum innan ramma raunsæis. Reyndu
að taka hlutunum með ró og forðast yf-
irgang. Leyfðu tímanum að vinna með
þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hikaðu ekki við að leita nýrra
lausna á vandamálum í vinnunni. Láttu
ekki telja þér hughvarf, heldur haltu
þínu striki af festu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Njóttu sambandsins sem þú
nærð við leiðtoga og áhrifamikið fólk.
Taktu djarfar ákvarðanir til að nýta þér
þessa heppni þína.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Málin eru flóknari en þú heldur. Að
læra að þekkja einhvern og kenna hon-
um eitthvað um sjálfan sig er hvetjandi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Láttu ekki hugfallast heldur
gerðu það sem þarf til að koma skipulagi
á líf þitt. Vertu róleg/ur, þú þarft ekkert
að vita alla hluti.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Segðu hefðbundnum viðhorfum stríð
á hendur, nú er þörf fyrir ferskar hug-
myndir. Með því að vera þögull áhorf-
andi ertu í bestu aðstöðunni til þess að
meta hvað er rétt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Næsti mánuður verður anna-
samur því framundan eru margar veisl-
ur og mannfagnaðir. Nú er ekki rétti
tíminn til að taka mikilvægar ákvarðanir
í peningamálum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú væri upplagt að kalla fólk
saman og eiga skemmtilega stund.
Gættu hófs í mataræði heilsunnar vegna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Galdurinn felst í því að um-
breyta krafti sínum, dirfsku og ákefð í
ekta sjálfstraust. Sýndu öðrum sam-
starfsvilja.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hafðu stjórn á tilfinningum
þínum þótt eitthvað verði til að róta upp
í þeim. Ef þú gætir þess að halda þér
vakandi munu ást og auðæfi falla þér í
skaut.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Vinnan verður tómt strit í dag og
yfirmaðurinn einstaklega önugur í við-
móti. Gefðu hinum neikvæðu ekki leyfi
til þess að skyggja á þig.
Stjörnuspá
10. júní 1789
Jarðskjálftahrina hófst á Suð-
urlandi, frá Selvogi til Þing-
valla. Í heila viku voru skjálft-
ar með allt að tíu mínútna
millibili. „Land seig norðan
Þingvallavatns milli Almanna-
gjár og Hrafnagjár um rúma
60 sentimetra, vellirnir urðu
að mýrlendi og mun það meðal
annars hafa orðið átylla til að
leggja þinghald þar niður árið
1800,“ sagði í bókinni Náttúra
Íslands.
10. júní 1958
Útvarpsþátturinn „Lög unga
fólksins“ hóf göngu sína. Þátt-
urinn var á dagskrá á þriðju-
dögum og var einn vinsælasti
tónlistaþátturinn í marga ára-
tugi.
10. júní 1986
Fimm þúsund króna seðill var
settur í umferð. Á honum er
mynd af Ragnheiði Jónsdóttur
(f. 1646, d. 1715), en hún var
kona tveggja Hólabiskupa og
annáluð hannyrðakona.
10. júní 1993
Steinboginn yfir Ófærufoss í
Eldgjá var brotinn þegar er-
lendir ferðamenn komu að
honum. Boginn hafði verið
heill tveimur vikum áður.
10. júní 2004
Barnshafandi kona var hand-
tekin í Leifsstöð með fimm
þúsund e-töflur í bakpoka.
Þetta var sagt eitt mesta
smygl á slíkum töflum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Nei, það verður bara eitthvað svona með fjöl-
skyldunni,“ segir Sveinn Skúlason aðspurður
hvort hann ætli að halda upp á afmælið sitt en
hann er 55 ára í dag. Sveinn segist ekki vera vanur
að gera mikið úr afmælinu eða halda miklar veisl-
ur í tilefni þess. Dagurinn verði því í aðalatriðum
eins og hver annar vinnudagur en Sveinn er sviðs-
stjóri hjá lyfjafyrirtækinu GlaxoSmithKline.
Sveinn lætur krepputal og bölsýni lítið á sig fá
og er bjartsýnn á afmælisdaginn. „Þýðir nokkuð
annað en að horfa björtum augum til framtíðar og
vinna úr því sem maður hefur? Þetta gerist ekki
betra með þessum verkfærum og mannskap sem er fyrir hendi, eins
og einhver sagði,“ segir hann kíminn og þykir engin ástæða til að ör-
vænta.
Inntur eftir því hvort einhver liðinn afmælisdagur sé öðrum fremri
svarar Sveinn því neitandi en segir þó að fimmtugsafmælið hafi verið
sérlega ánægjulegt. Þá hafi kona hans og börn fært honum að gjöf
hestinn Hnokka, þá sjö vetra, en Sveinn er hestaáhugamaður. „Og
það er alltaf nýtt ævintýri í hvert sinn sem við hittumst,“ segir knap-
inn Sveinn. skulias@mbl.is
Sveinn Skúlason 55 ára
Bjartsýnn þrátt fyrir kreppu
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is