Morgunblaðið - 10.06.2009, Page 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009
BANDARÍSKI myndlistarmað-
urinn Bruce Nauman, sem er iðu-
lega efstur á lista tímarita yfir
áhrifamestu lista-
menn samtímans,
hlaut Gullna ljón-
ið, viðurkenn-
inguna sem veitt
er því framlagi til
Feneyjatvíær-
ingsins sem dóm-
nefnd telur besta
hverju sinni.
Á tvíæringnum
að þessu sinni
gefur að líta yfirgripsmikla sýningu
á verkum Naumans frá síðustu fjór-
um áratugum, og hafa gagnrýn-
endur hlaðið sýninguna lofi. Sýning-
unni er skipt á þrjá sýningarstaði í
borginni en Nauman er hinn op-
inberi fulltrúi Bandaríkjanna á
tvíæringnum.
Þá hlutu bandarísku myndlist-
armennirnir John Baldessari og
Yoko Ono sérstaka viðurkenningu
fyrir ævilangt framlag sitt til mynd-
listarinnar.
Verðlaun fyrir að vera besti lista-
maðurinn á aðalsýningu tvíærings-
ins, „Making Worlds,“ sem sýning-
arstjórinn Daniel Birnbaum setti
saman, hlaut þýski listamaðurinn
Tobias Rehberger. Hann breytti
kaffistofu sýningarhallarinnar Pa-
lazzo delle Esposizioni, sem þykir
alla jafna frekar daufleg, í kaótíska
upplifum neónlitra, svarta og hvítra
lína.
Natalie Djurgberg hlaut Silfur-
ljónið, sem efnilegasti listamaðurinn
í sýningunni sem Birnbaum setti
saman.
Gullljón til
Naumans
Listamenn verðlaun-
aðir í Feneyjum
Bruce Nauman
VIÐ höllina Chât-
eau de Vauven-
argues, nærri
borginni Aix-en-
Provence í Suður-
Frakklandi, er
gröf og á henni
stendur brons-
stytta eftir Pablo
Picasso. Í gröf-
inni hvílir lista-
maðurinn sjálfur en almenningi
býðst í fyrsta skipti í sumar að koma
og skoða hluta hallarinnar, sem var
heimili listamannsins í nokkur ár. Er
tekið á móti takmörkuðum fjölda
daglega, í tengslum við sýningu á
verkum Picassos og Cézanne í Aix.
Sýna höll
Picassos
Pablo Picasso
ANNAÐ hefti Tímarits Máls
og menningar er væntanlegt í
verslanir á morgun. Eins og í
fyrra hefti sínu slær ritstjórinn
Guðmundur Andri Thorsson
ögn pólitískan takt í efnis-
tökum sínum. Hrun efnahags-
lífsins, byltingarandi og end-
urmat gilda óma víða í heftinu.
Meðal efnis er grein banda-
ríska rithöfundarins Henry
David Thoreau um borg-
aralega óhlýðni, hugvekja frá Páli Skúlasyni um
hvers konar samfélag við viljum, smásaga eftir
Steinar Braga, vangaveltur Gunnars Karlssonar
um fullveldið og stöðu Íslands, ljóð, bókmennta-
fræði, leikhúspistill, ritdómar og ádrepur.
Bókmenntir
Pólitísk efnistök í
öðru hefti TMM
Tímarit Máls
og menningar.
KONAN og ástin í ljóðum Dav-
íðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi er heiti á tónleikum sem
haldnir verða á morgun,
fimmtudag, kl. 20.30 í Þor-
geirskirkju/Ljósavatnsskarði
og á laugardaginn 13. júní kl.
15 í Ketilhúsinu á Akureyri.
Þar munu söngkonan Björk
Jónsdóttir, Kór Möðruvalla-
rkirkju, Helga Bryndís Magn-
úsdóttur píanóleikari og kór-
stjóri og fiðluleikarinn Hjörleifur Valsson flytja
söngdagskrá tileinkaða „konunni og ástinni“ í
ljóðum Davíðs við þekkt lög ýmissa tónskálda. Inn
í dagskrána verður m.a. fléttað tilvitnunum úr
ævisögu skáldsins eftir Friðrik G. Olgeirsson.
Tónlist
Konan og ástin
í ljóðum Davíðs
Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi.
Myndlistarmennirnir Vera
Sörensen og Árni Björn Guð-
jónsson opna málverkasýn-
ingu í Perlunni í Öskjuhlíð í
dag kl. 17.00.
Þar verða til sýnis um átta-
tíu myndir eftir þau tvö.
Myndefni Veru er fjölbreytt,
portrett, dýra- og landslags-
myndir en Árni Björn er ein-
göngu með íslenskar lands-
lagsmyndir í þetta skipti.
Vera og Árni hafa deilt saman vinnustofu síðan
í haust og þar hafa þau haft opið hús en þetta er
fyrsta sýning þeirra saman fyrir utan vinnustof-
una.
Sýningin stendur yfir í Perlunni til 1. júlí.
Myndlist
Fjölbreytt mynd-
list í Perlunni
Árni Björn
Guðjónsson
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson, píanó-
leikari og einhver skærasta stjarna
Íslendinga í heimi sígildrar tónlistar,
gerði sér lítið fyrir og stofnaði fyr-
irtækið Hands On Music til að gefa út
sína fyrstu plötu, Debut. Hún kom út
17. maí sl.
„Ég var mikið að velta fyrir mér
hvernig ég vildi hafa þetta, var búinn
að tala við ýmis útgáfufyrirtæki og
það er svo margt sem kemur til. Ég
sá fram á það að það væru margir
kostir við að gefa út sjálfur, þó svo
það væri miklu meiri vinna,“ segir
Víkingur og nefnir í fyrsta lagi að
hann eigi þannig útgáfuréttinn að
upptökum sínum og í öðru lagi að
hann ráði allri umgjörð á útgáfunni,
dreifingu, markaðssetningu og fái að
hafa sitt að segja um útlit platna og
kynningarefnis. Honum hafi þótt
mjög mikilvægt að hafa sína fyrstu
sólóplötu eins veglega og hægt væri.
Úr eigin vasa
Víkingur þurfti að leggja sjálfur út
fyrir plötunni og því nokkur fjár-
hagsleg áhætta að standa í útgáfunni
sjálfur. Á tímum kreppu sé lítið
einkafjármagn að fá og kostnaðurinn
mikill enda hafi hann ákveðið að
spara ekkert til.
„Ég tók hana upp í einni frægustu
tónleikahöll í heiminum, Gewandhaus
í Leipzig, með frábærum upptök-
umeistara,“ segir Víkingur og bendir
á að geisladiskur sé gripur sem gam-
an er að eiga og þurfi því að vanda vel
til.
Með disknum er ítarlegur og per-
sónulegur texti eftir hann um verkin
sem hann flytur, 19. aldar tónlist eftir
Beethoven og Brahms.
Víkingur stefnir á að gefa út disk
árlega og segir líklegt að hann spili
allt öðruvísi verk á næsta diski. En
ætlar hann að fara að semja verk?
„Já, ég er í því líka en það er allt
saman ennþá inni í skáp. Sjáum til
hvenær ég kem út með það,“ segir
Víkingur og hlær.
Möguleikar í geisladisknum
– Er ekki mjög sjaldgæft að ungir,
klassískir hljóðfæraleikarar stofni út-
gáfufyrirtæki um eigið efni?
„Jú, einmitt. Ég hef náttúrulega
bara trú á því sem ég er að gera og ég
sé mikla möguleika í geisladisknum,
þrátt fyrir þá byltingu sem hefur orð-
ið á miðlun tónlistar með tilkomu iT-
unes, til dæmis. Geisladiskurinn sem
listaverk er mjög skemmtileg heild
þegar allt kemur saman,“ svarar Vík-
ingur Heiðar. Því vilji hann stjórna
sköpun þess listaverks. „Ég er sér-
staklega ánægður með grafísku hlið-
ina, en hönnuðurinn leitaðist við að
fanga anda tónlistarinnar á mynd-
rænan hátt. Svo er gaman að minnast
á að diskurinn er íslensk framleiðsla –
enda ekki sem hagstæðast að borga
mikið í evrum nú til dags.“
Sjónlaus í bili
Víkingur er hálfblindur í þrjá til
fjóra daga, að eigin sögn, eftir að hafa
fengið rispu á hornhimnu vinstra
augans. „Ég lenti í þessu í apríl fyrst,
veit ekkert hvað gerðist en ég hef ein-
hvern veginn rispað hornhimnuna.
Það þurfti að taka hana af meðan ég
var vakandi,“ segir Víkingur, rúm-
liggjandi. Það hafi verið óskemmtileg
reynsla og mikill sársauki fylgt í kjöl-
farið í heila viku. Nú hafi þetta tekið
sig aðeins upp.
„Ég er feginn því að ég er ekki
akkúrat að performera núna, þetta
hefði getað gerst á alveg hrikalegum
tíma,“ segir Víkingur kíminn. Hann
neyðist því til að taka sér hlé frá æf-
ingum og spilamennsku í nokkra
daga.
Víkingur Heiðar stefnir að því að gefa árlega út plötu undir eigin merki
Margir kostir við að gefa út sjálfur
Morgunblaðið/Eyþór
Í útgáfu Víkingur Heiðar hefur stofnað útgáfufyrirtækið Hands On Music.
ÞRIÐJUDAGSKVÖLD í Þing-
vallakirkju er tónleikaröð sem senn
hefur þriðja starfsár sitt. Einar Jó-
hannesson klarínettuleikari er í
forsvari fyrir tónleikaröðina og
kveðst hafa sérstakan augastað á
fólki sem spilar tónlist sem fer vel
við kirkjuna þegar hann velur lista-
menn til að spila. „Það er ekkert
sérstakt þema í tónleikaröðinni, því
þemu geta verið mjög íþyngjandi.“
Fyrstu tónleikarnir verða 23.
júní, þegar Guðmundur Vilhjálms-
son, orgel- og básúnuleikari, spilar
ásamt Silfursveinum sínum, en
sveinarnir þeir
eru málmblás-
arakvartett. Þeir
spila verk eftir
Gabrieli, Händel
og Mozart. 30.
júní leikur Averil
Williams flautu-
leikari. „Hún var
fyrsti flautuleik-
ari í Sinfón-
íuhljómsveitinni á 7. áratugnum, þá
kornung. Nú er hún að verða sjö-
tug, og er að koma hingað til að
gera sinn fyrsta einleiks-geisladisk.
Það var dásamleg tilviljun að geta
fengið Averil. Hún spilar verk eftir
Bach, Debussy og fleiri, og ég spila
með henni í Dúói eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson og Villa Lobos, en
Guðmundur leikur líka með henni,
sem organisti Þingvallakirkju.“ 7.
júlí leikur Chalumeaux-tríóið ásamt
Margréti Bóasdóttur sópr-
ansöngkonu. „Þeir spila m.a. svítu
eftir Graupner sem var mikils met-
inn á dögum Bachs. Það stóð til að
hann yrði kantor í Tómasarkirkj-
unni í Leipzig. Úr því varð ekki, og
þeir urðu að láta sér „nægja“ að fá
Jóhann Sebastian Bach,“ segir
Einar sposkur og bætir því að að
Graupner hafi verið prýð-
istónskáld. Margrét syngur með
þeim barrokkaríur og íslensk söng-
lög.
Á síðustu tónleikunum, 14. júlí,
kemur barokkhópurinn Custos
fram, en hann er skipaður Helgu
Aðalheiði Jónsdóttur blokkflautu-
leikara og gömbuleikaranum Krist-
ínu Lárusdóttur. Einar Clausen
syngur með þeim. „Þau eru auðvit-
að montin af því að leika á upp-
runaleg hljóðfæri, og þau stilla a-ið
á 415, eins og gert er í barokk-
tónlistinni.“
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
starfi kirkjunnar og Minning-
arsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur
frá Kárastöðum, en Guðbjörg var
organisti við Þingvallakirkju á
yngri árum og móðursystir Einars.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis,
en frjáls framlög í Minningarsjóð-
inn vel þegin. begga@mbl.is
Fer vel við kirkjuna
Tónleikaröðin Þriðjudagskvöld
í Þingvallakirkju hefst 23. júní
Morgunblaðið/Kristinn
Þingvallakirkja Tónleikaröð í kirkjunni hefst 23. júní.
Einar Jóhannesson
Það er því tímabært
að dillandi fiftís-
rokkið fái að hljóma á ný
fyrir nýja kynslóð. 35
»
Víkingur Heiðar troðfyllti Há-
skólabíó á einleikstónleikum á
Listahátíð þann 17. maí sl. „Allir
– m.a.s. ráðherrar og þingmenn
– vildu augljóslega vera við-
staddir þegar efnilegasti pían-
isti okkar í áraraðir lagði undir
sig stærsta tónleikasal landsins
einn og óstuddur,“ skrifaði Rík-
arður Ö. Pálsson, tónlistar-
gagnrýnandi hjá Morg-
unblaðinu, í dómi um
tónleikana. „En varla dró síður
úr forvitni hlustenda að hann
skyldi að þessu sinni einnig
tefla fram eigin píanóumrit-
unum á völdum gullald-
arsönglögum eftir Kaldalóns,
Emil Thoroddsen og Pál Ísólfs-
son. Ef með er tekinn ágætlega
skrifaður prógrammtexti Vík-
ings fer því að hilla undir altækt
píanóljón í fornri og fullri merk-
ingu orðsins frá þeim tíma er
fagið náði einnig yfir frum-
samin verk, útsetningar og
snarstefjaðan spuna af fingrum
fram,“ segir þar ennfremur.
Ekki amalegt að vera píanóljón!
Altækt píanóljón