Morgunblaðið - 10.06.2009, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 10.06.2009, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 SÝND Í ÁLFABAKKA JENNIFER ANISTON ER FRÁBÆR Í ÞESSARI RÓMANTÍSKU GAMANMYND ÞAR SEM WOODY HARRELSON OG STEVE ZAHN FARA Á KOSTUM SEM TVEIR ÁSTFANGIR MENN SEM ERU REIÐUBÚNIR AÐ BERJAST UM ÁST HENNAR MEÐ EINKAR FYND- NUM AFLEIÐINGUM. SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI HEIMILDARMYND UM HANDBOLTALANDSLIÐ ÍSLANDS Á ÓLYMPÍULEIKUNUM Í PEKING 2008 SÝND Í KRINGLUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKUTALI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI Í , KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI „HEAD-POUNDINGLY (IN A GOOD WAY), SIDESPLITTINGLY FUNNY.“ 90/100 – THE HOLLYWOOD REPORTER EIN ALBESTA GRÍNMYND SUMARSINS ER KOMIN FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA „THIS IS SO FAR THE BEST COMEDY OF THE YEAR.“ PREMIERE „THE SUMMER PARTY MOVIE OF ALL OUR TWISTED DREAMS.“ ROLLING STONE „THIS PROFANELY FUNNY COMEDY EXCEED EXPECTATIONS AND ACHIEVE THE STATUS OF BREAKOUT HIT.“ 90/100 - VARIETY / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI THE HANGOVER kl. 6D - 8D - 9D - 10:20D - 11:20D 12 DIGITAL MANAGEMENT kl. 6 - 8 - 10:20 10 GOTT SILFUR GULLI BETRA kl. 6:30 L CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 43D L 3D DIGTAL HANNAH MONTANA kl. 4 L ALFREÐ ELÍASS.& LOFTLEIÐIR kl. 4D (síðasta sýning á föstudag) L DIGITAL THE HANGOVER kl. 5:50 - 8D - 8:30 - 10:20D - 11 12 DIGTAL THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 10:20 16 THE HANGOVER kl. 5:50 - 8 - 10:20 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 8 10 MANAGEMENT kl. 8 - 10:20 10 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN kl. 6 L ADVENTURELAND kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 HANNAH MONTANA kl. 5:50 L CORALINE 3D kl. 5:503D m. ísl. tali L 3D DIGTAL Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is LEIKARINN David Carradine fannst látinn á hóteli í Bangkok í síðustu viku, eins og flestir sem fylgjast með menningarfréttum ættu að vita. „Hver er þessi David Carradine?“ kunna þó margir af yngri kynslóðinni að spyrja og ekki furða. Yngra fólk man kannski eftir honum í tvískiptri kvikmynd Quentins Tarantino, Kill Bill. Þar fór Carradine með hlutverk hins dularfulla og stór- hættulega Bill en persónuna bjó Tarantino til með Carradine í huga. Carradine var afar sáttur við frammistöðu sína í Kill Bill, taldi hana með því betra sem hann hefði komið nærri á ferlinum og þar er svo sannarlega af nógu að taka. Það má segja að Tarantino hafi komið honum aftur á stjörnu- kortið, vakið hann úr gleymsk- unnar dái, líkt og hann gerði með töffarann John Travolta í Pulp Fiction. Dálæti Tarantinos á Car- radine var enda gríðarlegt og hann leit á leikarann sem goðsögn eða költ-hetju, sem hann vissulega var meðal aðdáenda Kung Fu þáttanna. Og Tarantino er þekkt- ur fyrir að hafa nef fyrir töffurum. Austur mætir vestri David Carradine var 72 ára þegar hann lést 3. júní sl. og átti langan leikferil að baki, lék í yfir hundrað kvikmyndum og tugum sjónvarpsþátta- og mynda á ferl- inum, auk þess að leika í leik- ritum, en framan af honum var hann þekktastur fyrir túlkun sína á Kwai Chang Caine í sjónvarps- þáttunum Kung Fu sem sýndir voru í bandarísku sjónvarpi á ár- unum 1972-75. Caine þessi er kín- versk-bandarískur munaðarleys- ingi, alinn upp í klaustri af Shaolin-munkum sem kenna hon- um hina miklu kung-fu bardaga- og íhugunarlist. Caine heldur svo til Ameríku, til villta vestursins, að leita hálfbróður síns og þarf ítrekað að beita kung-fu-brögðum Goðsögnin öll  Kung-fu-leikarinn eitursvali, David Carradine, kom víða við á löngum ferli  Þekktastur í dag fyrir leik sinn í Kill Bill Í Kill Bill 2 Vígalegur í hlutverki sem sniðið var að persónu hans. Reuters Vinir Leikstjórinn Quentin Tarantino var og er mikill aðdáandi Carradine enda skrifaði hann hlutverk Bill í Kill Bill sérstaklega fyrir leikarann. Carradine kunni ekkert fyrir sér í austurlensku bardagalistinni kung-fu, þegar hann var fenginn til að fara með hlutverk kung-fu- meistara í sjónvarpsþáttunum Kung Fu. Þetta sést nokkuð glögglega ef skoðuð eru mynd- skeið úr þáttunum á YouTube, þ.e. að Carradine var ekki þraut- þjálfaður í listinni. Leikarinn fékk mikinn áhuga á kung fu þegar hann hóf að leika í þáttunum og hóf að stunda það að jafnaði, enda umgekkst hann marga kung fu meistara við tökur. Í viðtali við Larry King árið 1991 sagðist Car- radine hafa stundað kung fu í 20 ár en fyndist enn sem hann ætti afar mikið eftir ólært í listinni. Það tæki alla ævina að komast að kjarna þessarar listar og lífs- speki. Kunni ekki kung-fu Kung Fu Carradine ungur að ár- um í sjónvarpsþættinum Kung Fu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.