Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 35

Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 35
Menning 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Talsvert er um liðið síðansíðast heyrðist frá hinnimjög svo þekkilegu rokk-abillísveit, Langa Sela og Skuggunum. Þeir félagar nutu tals- verðra vinsælda á árunum kringum 1990, ekki síst fyrir lagið ógleym- anlega „Breiðholtsbúgí“ en ný breiðskífa hef- ur ekki litið dagsljós frá bandinu síðan 1992. Það er því tímabært að dillandi fift- ísrokkið fái að hljóma á ný fyrir nýja kyn- slóð og góðu heilli hafa Langi Seli og Skuggarnir engu gleymt. Satt að segja er vart á þeim að heyra að nokkur viðstaddra hafi verið í pásu. Platan hefst á laginu „Ryk og sól“, bráðskemmtilegum slagara beint úr smiðju Ricky Nelson og stemmningunni er aldrei sleppt, svo heitið geti, fyrr en síðasta lagið rennur sitt skeið. Rokkabillíið er allsráðandi endanna á milli en merkilegt nokk fara lagahöfund- arnir, Langi Seli og Jón Skuggi, létt með að blæbrigðabæta lögin hvert á sinn hátt svo hlustandanum leiðist aldrei heldur bíður ákafur eftir næsta útspili. Má í þessu sam- bandi nefna hið dýrðlega „Sörfað í Sandvík“ hvar ósungið brimbrett- arokk gælir við hlustirnar, blú- stónum bregður víða fyrir eins og við er að búast þegar rokkabillí er annars vegar þó aldrei tapist neitt af tápinu og fjörinu nema síður sé. Í hinu frábæra lagi „Nóttin er á enda“ krydda þeir kumpánar stuðið með vel afgreiddum vínylplöt- urispum. Er þá ónefnt annað instrúmental lag, „Kveðja Sporð- drekans“ sem minnir nokkuð á gömlu góðu Shadows nema hvað Hank Marvin er hér búinn að fá sér fáeina gráa og lokatónninn oft skemmtilega togaður og teygður eftir því. Þó músík af þessu tagi sé svo amerísk sem frekast má verða eru lög Langa Sela og Skugganna með báða fætur í íslenskum veruleika – til þess sjá textarnir. Þar er víða komið við og nægir að nefna Kefla- víkurflugvöll, Kaffi Mokka, Ísafjörð og óræða malarvegi úti á landi. Bandið er þá skemmtilega beitt í textagerðinni – sem er í það heila afbragðsgóð – og kveður að „nú skal stóru fjalli breyta í hjall“, „bis- nessmenn á rassa runnu“ og ekki má gleyma „rigningu og roki“ í samnefndu lagi. En gleðin er ekki síður atkvæðamikil í kveðskapnum og allt klabbið er reitt fram á króm- uðu silfurfati galsafengins rokk- abillís svo ómögulegt er annað en að hrífast með. Spilamennskan er líka fagmannleg og fumlaus hvert sem litið er. Ekki má gleyma að hrósa Langa Sela og Skuggunum fyrir sérlega vel heppnað plötuumslagið sem fangar fiftís-stemmninguna full- komlega enda fagmenn sem véla um hönnunina, þeir Ragnar Kjart- ansson og Goddur. Platan er nefni- lega rétt eins og myndin á hulstr- inu; svalur, amerískur ísskápur, troðfullur af spennandi krásum. Langi Seli og Skuggarnir – Drullukalt bbbbn JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST Drullu- gott! Eftir Árna Matthíassonarnim@mbl.is Í KVÖLD verður blásið, eða rétt- ara sagt slegið, til samkomu í Só- dómu undir yfirskriftinni Strum und Klang, en undir þeirri tor- ræðu yfirskrift leiða þeir saman hesta sína Steintryggsbændur Steingrímur Guðmundsson og Sigtryggur Baldursson, bassaleik- arinn Borgar Magnason og raf- eindatónsmiðurinn Vignir Karls- son, sem þekktari er sem Kippi Kaninus. Sigtryggur Baldursson segir að tónleikarnir séu í raun sprottnir úr æfingagleði, en svo var mál með vöxtum að þeir Steingrímur og hann tóku upp Steintryggsæf- ingar vegna tónleika sem fyrir- hugaðir voru í Lundúnum. Þegar þeim tónleikum var svo frestað til haustsins voru þeir komnir í svo mikið spilastuð, fannst svo gaman að vera teknir til við æfingar að nýju, að þeir héldu áfram og lykt- ar semsé með tónleikum í kvöld. Eins og fram kemur eru þeir Steintyggir ekki einir á ferð, eða eins og Sigtryggur rekur söguna: „Við höfum verið að vinna svo skemmtilega músík með Kippa Kanínus að einboðið var að hafa hann með okkur og svo er hann aftur að vinna skemmtilega músík með Borgari og það var gráupp- lagt að hafa þetta Double Bill; fyrst spila þeir lög eftir Borgar, síðan komum við á svið og spilum með þeim lög sem við sömdum allir saman sérstaklega fyrir þetta kvöld og svo á Steintryggur lokaorðið með Kippa og Gísla galdri.“ Að sögn Sigtryggs munu þeir aðallega spila lög af síðasta diski þeirra félaga, en þess beri að geta að þau séu öll endurunnin og -útsett til að spila á tónleikum, „öll brotin upp í frumeindir og púslað saman upp á nýtt.“ Æfingagleði Steintryggur; Borgar Magnason, Steingrímur Guðmunds- son, Vignir „Kippi Kaninus“ Karls- son og Sigtryggur Baldursson. Plokkað og slegið Fréttir á SMS Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Patti Húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum Við framleiðum sófasett, hornsófa og tungusófa eftir óskum hvers og eins. Mikið úrval af áklæðum íslen sk fr amle iðsla íslen sk fr amle iðsla Chersterfield 3+1+1 DL-634 3+1+1 Aspen man-8356 leðursett 3+1+1 NICE man-8183 3+1+1 Man-8205 sws 50%afsláttur Öll sófaborð með seldum sófum tilboðsverð: 149.900 kr Fullt verð: 399.900 kr tilboðsverð: 269.900 kr Fullt verð: 319.900 kr tilboðsverð: 279.000kr Fullt verð: 434.900 krSWS-8851 3+1+1 tilboðsverð: 149.000kr Fullt verð: 219.900 kr tilboðsverð: 239.900kr Fullt verð: 359.900 kr tilboðsverð: 399.900 kr Fullt verð: 499.900 kr íslen sk fr amle iðsla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.