Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 16

Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 16
KENNARI í Klébergsskóla á Kjalarnesi taldi sig hafa orðið fyrir svo miklum líkamlegum óþægindum af völdum geislunar frá far- símasendi á þaki skólans að hann hætti störf- um, tímabundið að minnsta kosti. Þetta stað- festir skólastjórinn, Björgvin Þór Þórhallsson. Farsímasendirinn var settur upp á reykháf á þaki elstu byggingar skólans í nóvember síðast- liðnum. Áður en sendirinn var settur upp kann- aði skólastjórinn málið hjá menntasviði Reykja- víkurborgar og Geislavörnum ríkisins. „Á grundvelli þeirra upplýsinga sem ég fékk sam- þykkti ég að þetta yrði sett upp.“ Í kjölfar kvartana fyrrgreinds kennara hafði skólastjórinn samband við Geislavarnir ríkisins á ný. „Upplýsingarnar sem ég fékk voru þær sömu og áður, nefnilega að geislunin frá send- unum væri langt undir viðmiðunarmörkum. Menn hefðu mælt hana á tugum staða um allt land, meðal annars við grunnskóla. Ég hef nú beðið um að geislunin frá sendinum hér verði mæld til að taka af allan vafa.“ Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá Geislavörn- um ríkisins, mældi geislunina út frá sendinum á Klébergsskóla í gær. Hann segir að hún sé vel undir viðmiðunarmörkum. „Starfsmenn Geisla- varna hafa mælt á tugum staða þar sem stað- settir eru farsímasendar. Í öllum tilvikum hef- ur geislun verið langt innan við alþjóðleg viðmiðunarmörk, venjulega innan við 1 prósent markanna. Þessar niðurstöður eru í samræmi við mælingar í öðrum löndum. Vegna óvissu um langtímaáhrif farsímanotkunar mælum við með að dregið sé úr óþarfa notkun, sérstaklega hjá börnum. Við mælum einnig með hand- frjálsum búnaði.“ ingibjorg@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Klébergsskóli Farsímasendirinn var settur upp í nóvember. Hætti vegna farsímasendis  Kennari taldi sig hafa veikst vegna farsímasendis á þaki skólans  Geisl- unin vel undir viðmiðunarmörkum, samkvæmt mælingum Geislavarna 16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 Skóli fyrir þig? Langar þig að stunda skemmtilegt nám: * í heimavistarskóla? * í góðum félagsskap? * í fögru umhverfi? Innritun stendur yfir í Handverks- og Hússtjórnarskólann á Hallormsstað. Skólinn kennir matreiðslu og handverkslist á framhaldsskólastigi. Uppl. www.hushall.is eða í síma 471 1761 NORRÆNA embættismanna- nefndin um jafnréttismál og nor- ræna kvenna- og kynjarann- sóknastofnunin bjóða til ráðstefnu um kyn og völd á Norðurlöndum, á Grand Hótel Reykjavík, dagana 18.- 19. nóvember nk. Ráðstefnan er opin og er þátt- taka ókeypis. Kyn og völd Á FÖSTUDAGINN sl. gekk Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar, á fund dóms- málaráðherra. Með í för voru for- menn Foreldrafélags ættleiddra barna. Tilefni fundarins var að leggja áherslu á óskir félagsins um að innlendum reglum um ættleið- ingar verði breytt. Má þar helst nefna þröngar reglur um ald- urshámark verðandi kjörforeldra og langan biðtíma eftir ættleiðingu. Ráðherrann gaf þó, að sögn, eng- an ádrátt um að reglum um aldurs- mörk verðandi foreldra yrði breytt. Morgunblaðið/Kristján Íslensk ættleiðing ABC barnahjálp veitti tveim skól- um sérstaka viðurkenningu við skólaslit í vor. Melaskóla var veitt viðurkenning fyrir að hafa safnað hæstri fjárhæð árin 2000 til 2008, en börn úr skól- anum hafa tekið þátt í söfnuninni frá því að hún var fyrst sett á stað árið 1998. Fossvogsskóla var veitt viðurkenning fyrir að hafa safnað hæstri fjárhæð árið 2009. Alls söfn- uðust 8.227.936 kr. í söfnun ABC barnahjálpar sem fram fór í febr- úar síðastliðnum. Alls tók 3.191 barn úr 113 skólum þátt í söfn- uninni og var safnað fyrir skóla- máltíðum barna. Skólamáltíð kost- ar um 50 kr. og munu um 12.000 börn í Pakistan, á Indlandi, Filipps- eyjum, í Úganda, Kenía, Burkina Fasó og Senegal njóta góðs af söfn- uninni í mars. Viðurkenning frá ABC barnahjálp FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is BALDUR Guðlaugsson og Bolli Þór Bollason, sem áður voru ráðuneytis- stjórar í fjármála- og forsætisráðu- neytinu, neituðu að hætta störfum af sjálfsdáðum eftir að ríkisstjórn Sam- fylkingarinnar og Vinstri grænna tók við völdum nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Eftir að forystumenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna höfðu lagst yfir mál- ið, og m.a. farið yfir réttarstöðu Baldurs og Bolla Þórs, var ákveðið að færa þá um set frekar en að greiða þeim full laun í takt við samn- ingsbundin réttindi þeirra. Sér- staklega er réttarstaða Bolla Þórs sterk en Baldur átti minna eftir af ráðningarsamningi sínum, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hann mun að líkindum hætta störf- um um næstu áramót, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þeir hafa báðir starfað sem embætt- ismenn hjá íslenska ríkinu um ára- tugaskeið. Embættismenn hafa rík starfsréttindi samkvæmt lögum, meðal annars til þess að tryggja bet- ur starfsöryggi þeirra innan stofn- ana sem stýrt er af pólitískt kjörnum fulltrúum. Baldur hefur nú verið skipaður ráðuneytisstjóri í menntamálaráðu- neytinu og Bolli Þór er kominn í sambærilegt starf í félagsmálaráðu- neytinu. Þeir höfðu verið í tíma- bundnu leyfi frá því slitnaði upp úr samstarfi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í janúar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var áhersla lögð á að nýta starfskrafta þeirra sem best en þeir tveir hafa mikla reynslu af ráðuneyt- isstjórastörfum. Þó var meiri vilji til þess að halda Bolla Þór við stjórnunarstörf heldur en Baldri, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Sérstaklega höfðu forystumenn stjórnarflokkanna áhyggjur af því að umdeild viðskipti Baldurs með hlutabréf í Landsbankanum, 17. september í fyrra, væru til þess fall- inn að rýra traust á stjórnkerfinu. Baldur seldi bréf sín eftir að hafa setið fundi fyrir hönd fjármálaráðu- neytisins um nauðsyn þess að flytja Icesave-reikninga Landsbankans yf- ir í dótturfélag í Bretlandi. Baldur hefur sjálfur neitað því, m.a. í sam- tali við Morgunblaðið 20. nóvember, að hann hafi haft aðrar upplýsingar um stöðu Landsbankans á þessum tíma heldur en almenningur. Þá hef- ur hann ekki viljað staðfesta and- virði bréfanna sem hann seldi. Neituðu að hætta störfum fyrir ríkið  Ráðuneytisstjórar færðir til í starfi Ráðuneytisstjórar voru færðir til í starfi vegna þess að þeir voru ekki tilbúnir að hætta störfum af sjálfsdáðum. Sterk réttarstaða réð úrslitum um að þeir héldu starfi sem ráðuneytisstjórar. Baldur Guðlaugsson Bolli Þór Bollason RAGNA, Íris og hvolpurinn Birta létu fara vel um sig í fjörunni á Kjal- arnesi í góða veðrinu í gær. Náttúran var í sínu fínasta pússi og börn og ferfætlingar nutu þess að hvíla sín ungu bein með sjávarlyktina í nösunum. Þegar fjarar út er ýmislegt að sjá sem annars er falið undir sjávarborð- inu og þá er um að gera að skoða umhverfið og spá og spekúlera. Morgunblaðið/Eggert FREISTANDI FJARA „Ég er sáttur við þessa niðurstöðu og hlakka til að takast á við verkefni þessa ráðuneytis,“ segir Bolli Þór Bollason, nýskipaður ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Hann segir verkefni ráðuneyta nú verulega krefj- andi. Ögrandi sé að taka þátt í þeim. „Þá er auk þess verið að færa verk- efni á milli ráðuneyta. Það er alveg ljóst að það mun mæða mikið á ráðu- neytunum öllum, félagsmálaráðuneytinu ekki síst,“ sagði Bolli Þór í samtali við Morgunblaðið. Ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu er nú Ragnhildur Arnljótsdóttir. Baldur Guðlaugsson hefur í dag störf hjá menntamálaráðuneytinu en Guðmundur Árnason, sem verið hefur ráðuneytisstjóri í mennta- málaráðuneytinu síðan árið 2002, verður ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu- neytinu, a.m.k. tímabundið. Indriði H. Þorláksson, sem verið hefur ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu á þessu ári, verður aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra frá og með morgundeginum. Ekki náðist í Baldur Guðlaugsson við vinnslu fréttarinnar. Bolli Þór ánægður með niðurstöðuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.