Morgunblaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 24
24 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is V ið leggjum áherslu á að draga úr verkjum og öðrum einkennum sem geta fylgt því að vera með krabbamein eða í krabbameins- meðferð. Þetta gerum við með því að styrkja líkamann, bæta vellíðan og auka lífsgæði, draga úr ótta, streitu, þunglyndi, kvíða, ógleði og öðrum algengum fylgikvillum krabbameins,“ segir doktor Barrie R. Cassi- leth, en hún er frumkvöðull á fræðasviði sem kallað hefur verið viðbótarmeðferð við krabba- meinsmeðferð, eða samþættar krabbameins- lækningar (Intergrative Oncology). „Viðbót- armeðferð er alltaf notuð með hefðbundnum lækningum við krabbameini og hún felst aldrei í líkamlegu inngripi. Hún er byggð á vís- indalegri þekkingu og er í boði á mörgum sjúkrahúsum í þróuðum löndum. Nudd, nála- stungur, slökun og hreyfing eru meðal þess sem fellur undir viðbótarmeðferð. Til dæmis hefur verið sýnt fram á að regluleg hreyfing bætir lífslíkur krabbameinssjúklinga. Og það þarf hvorki að vera flókið eða dýrt, fólk þarf ekki endilega að fara í ræktina, það getur dug- að að fara í röskan göngutúr í tuttugu mínútur á dag.“ Hún segir að nálastungur séu engar skottulækningar, heldur er vísindalega sannað að þær virka og það er vitað hvernig þær virka. „Nálastungur virka sérstaklega vel gegn verkjum og þar af leiðandi getur fólk dregið úr verkjalyfjanotkun. Nálastungur virka líka vel á munnþurrk, sem fylgir sumum krabbameinsmeðferðum og getur verið mjög slæmur.“ Margt varasamt í boði Þegar Barrie Cassileth starfaði fyrst með krabbameinssjúklingum og fjölskyldum þeirra, fyrir tæpum þremur áratugum á krabbameinsmiðstöð í Pennsylvaníu, þá komst hún að því að mjög há prósenta krabbameinssjúklinga leitaði út fyrir hina hefðbundnu lækningu. „Ég komst líka að því að margt af því sem var í boði var varasamt og sumt jafnvel hættulegt og þannig er það því miður ennþá. Alveg síðan þá hef ég verið að gera rannsóknir, meðal annars á jurtum og vítamínum, til að komast að því hvað er í lagi og hvað er ekki í lagi fyrir krabbameinssjúkl- inga. Það er mjög sorglegt þegar verið er að notafæra sér þá viðkvæmu stöðu sem krabba- meinsveikt fólk er í, og bjóða því fulla lækn- ingu á grundvelli einhvers sem enginn fótur er fyrir. Fólk er jafnvel látið hætta í sinni krabbameinsmeðferð. Engar töfralausnir sem lofa fullri lækningu við krabbameini eða sagðar eru koma í stað hefðbundinna lækn- inga, eru í lagi.“ Hún segir eitt af því sem kynnt sé sem einhverskonar lækning við krabbameini, sé háskammtar af C-vítamíni. „Því miður er þessu einmitt öfugt farið. C- vítamín styrkir frumur líkamans og þar af leiðandi líka krabbameinsfrumur, þannig að í háskömmtum getur það ýtt undir vöxt krabbameinsfrumna.“ Vefsíða fyrir fagfólk og sjúklinga Barrie Cassileth er forstöðumaður á deild viðbótarmeðferðar í krabbameinsstofnun í New York, sem er virt stofnun og heitir Me- morial Sloan-Kettering Cancer Center (MSKCC). Þessi stofnun stendur að vefsíð- unni: www.mskcc.org/aboutherbs, en þar eru birtar allar nýjustu vísindalegar rannsóknir á jurtum, vítamínum og fleiru. Þar eru áreið- anlegar leiðbeiningar um hvað beri að varast að taka og hvað er í lagi. Þar getur bæði fag- fólk og krabbameinssjúklingar aflað sér öruggra upplýsinga. „Allir hafa fullt frelsi til að taka ákvarðanir um eigin heilsu en það skiptir líka máli að þær ákvarðanir séu teknar á vel upplýstum grunni. Því miður er mjög mikið um rangar upplýsingar á netinu um jurtir, vítamín og aðferðir til að vinna á krabbameini. Í jurtum eru til dæmis virk efni og sum þeirra geta truflað starfsemi lifr- arinnar og þar af leiðandi haft áhrif á virkni hefðbundinna krabbameinslyfja. Eins inni- halda sumar jurtir efni sem getur dregið úr storknunarhæfileikum blóðsins og þar af leið- andi verið hættulegt fyrir fólk sem er til dæmis á leið í skurðaðgerð. En ég tek það fram að jurtir og jurtalyf geta verið mjög góð fyrir heilbrigt fólk sem ekki er í krabbameins- meðferð.“ Umræðan þarf að vera opin Þóra Jenný Gunnarsdóttir, lektor í hjúkr- unarfræðideild HÍ, er ein þeirra sem hafa unn- ið að heimsókn Barrie Cassileth hingað til lands. „Þessi umræða innan heilbrigðisgeirans er nauðsynleg og það er frábært að fá hana Barrie til okkar, bæði fyrir okkur fagfólkið og sjúklingana. Það er mjög mikilvægt að umræð- an sé sem opnust og að sjúklingar séu sem best upplýstir. Sjúklingar þurfa að vera óhræddir við að segja læknum sínum hvað þeir eru að taka inn, annað en lyfin sem læknirinn hefur ávísað á, til að fá svör við því hvað er í lagi og hvað ekki. Og læknar þurfa að vera opnir fyrir þessari umræðu. Við hvetjum líka fólk til að leita til ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags- ins, með hvaðeina sem viðkemur því að vera með krabbamein, en það getur verið svo ótal margt, hvort sem það tengist andlegri líðan eða líkamlegri, félagslegum úrræðum eða öðru,“ segir Þóra sem hlýddi á erindi hjá Barrie í gær ásamt fjölmörgu öðru heilbrigðisstarfsfólki. Ný vídd í heilbrigðisþjónustu Morgunblaðið/Kristinn Frumkvöðull Dr. Barrie R. Cassileth er mikil hugsjónamanneskja og hefur unnið að rannsóknum sínum í tæpa þrjá áratugi. Dr. Barrie R. Cassileth er ekki talskona skottulækninga eða töfralausna. Hún heldur opinn fund í hádeginu í dag í ráðgjafar- þjónustu Krabbameinsfélagsins, um svokallaða viðbótarmeðferð.  Nuddmeðferðir (Massage therapies)  Meðferð til að tengja huga og líkama (Mind-Body therapies)  Nálastungur (Acupuncture)  Lífsstíll – næring og líkamleg hreyfing (Fitness, nutrition and physical activity)  Jurtir og bætiefni (herbs and other dietary supplements) Meginþættir Samþættra viðbótarmeðferða Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is ÞÆR hafa hist til að mála saman í hverri viku frá áramótum í hús- næði dýragarðsins í Slakka í Laugarási í Biskupstungum, kon- urnar sjö sem opnuðu nýlega myndlistarsýningu á sama stað, þar sem þær sýna afraksturinn. Sumar þeirra hafa sótt námskeið í myndlist en allar eiga þær það fyrst og fremst sameiginlegt að vera áhugasamar á myndlistar- sviðinu. Þær mála ýmist með olíu, akríl eða vatnslitum og sumar þeirra eru einnig með blýants- teikningar. Allt byrjaði þetta á því að í haust tóku nokkrar konur í sveitinni sig til og sendu inn auglýsingu í inn- ansveitarblað Bláskógabyggðar þar sem þær buðu hverri þeirri konu í sveitinni sem vildi, að vera með í hópi kvenna sem ætlaði að koma saman á dimmum vetr- arkvöldum og mála en ekki síður njóta samverunnar. Einnig óskuðu þær eftir húsnæði til að sinna áhugamáli þessu. Viðbrögðin voru góð og milli tuttugu og þrjátíu konur komu saman í byrjun, en erfiðlega gekk að fá húsnæði og voru því ekki nema sjö konur eftir í hópnum þegar Helgi Sig- urbjörnsson, eigandi dýragarðsins í Slakka, bauð þeim um áramót að nota húsnæði sem tilheyrir dýra- garðinum, í ljósi þess að yfir vetr- artímann stendur það autt. Þessar sjö konur eru á ólíkum aldri, sú yngsta er rúmlega þrítug og sú elsta um sjötugt. Sýningin „Sjö konur“ er opin á sama tíma og dýragarðurinn í Slakka og stendur til 17. júní. Sjö konur sýna í dýragarði Konurnar sjö Hér standa þær stoltar við nokkrar myndanna í Slakka á opnunarkvöldinu. F.v.: Kolbrún Ósk Sæ- mundsdóttir, Agnes Heiður Magnúsdóttir, Þuríður Sigurðardóttir, Dröfn Þorvaldsdóttir, Guðrún Sigurrós Poulsen, Eva Hillströms og Jóhanna Óskarsdóttir. www.mskcc.org/aboutherbs www.icepharma.is/fundur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.