Morgunblaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 29
Umræðan 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 ÁRSREIKNINGUR Reykjavík- urborgar fyrir árið 2008 var lagð- ur fram á síðasta fundi borg- arstjórnar og ber niðurstaða hans vott um styrka fjármálastjórn Reykjavíkurborgar. Rekstrarnið- urstaða A-hluta Reykjavík- urborgar, það er hins hefðbundna rekstrar sveitarfélagsins, var já- kvæð um 2,3 milljarða þrátt fyrir lægri tekjur af sölu bygginga- réttar, mikla verðbólgu og mikla gengislækkun íslensku krónunnar á síðasta ári. A-hluti Reykjavík- urborgar sýnir áfram- haldandi mikinn fjár- hagslegan styrk með háu eiginfjárhlutfalli, lágu skuldsetning- arhlutfalli og góðu greiðsluhæfi, þrátt fyrir þau miklu um- skipti sem átt hafa sér stað í ytri aðstæðum. Umræða og frétta- flutningur af 71,5 milljarða rekstrarhalla samstæðureikningsins skýrist einkum af reiknuðu gengistapi Orkuveitu Reykjavíkur vegna gengisfalls íslensku krónunnar. Þetta mikla gengistap sem þjóðin öll hefur verið að ganga í gegnum ýtti til hliðar staðreyndinni um sterka fjárhagsstöðu borgarinnar og þá jákvæðu staðreynd að rekstur borgarinnar fyrir utan fjármagnsliði stendur styrkum fótum. Eins og komið hefur fram hjá stjórnendum Orkuveitu Reykja- víkur er lausafjárstaða fyrirtæk- isins sterk. Rekstrarafkoma Orku- veitunnar fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir árið 2008 var jákvæð um 11,7 milljarða króna og batnaði um 17,5% frá árinu 2007. Tekjur fyrirtækisins vegna skuldastöðunnar eru fyrst og fremst í erlendum gjaldmiðli og því hækka tekjurnar í sama hlut- falli og skuldirnar. Rekstrarniðurstaða samstæð- unnar, A og B-hluta fyrir fjár- magnsliði, var jákvæð um rúmlega 8 milljarða sem sýnir að sam- stæðan öll hefur brugðist við breyttum rekstr- araðstæðum af miklu afli. Viðsnúningur í rekstri Samanburður ytri endurskoðenda á rekstrarafkomu A- hluta fyrir árin 2002 til 2008 ber vott um jákvæðan viðsnúning á síðustu árum og ábyrga fjár- málastjórn hjá Reykjavíkurborg. Ytri endurskoðendur vekja at- hygli á að rekstrarhalli var á A- hluta Reykjavíkurborgar á öllum árunum 2002-2006 en rekstr- arafgangur árin 2007 og 2008, fyr- ir fjármagnsliði (sjá mynd). Ný og breytt vinnubrögð við fjármálastjórnina Niðurstöður ársreikningsins bera því skýrt vitni að flest sviðin eru rekin innan fjárhagsramma þrátt fyrir gjörbreyttar verðlags- og gengisforsendur seinni hluta ársins. Borgarráð skipaði þegar í ágúst 2008 þverpólitískan að- gerðahóp um fjármál borgarinnar og þann 7. október 2008 sam- þykkti öll borgarstjórn samhljóða aðgerðaáætlun vegna aðstæðna í efnahags- og atvinnumálum sem hafði víðtæk áhrif á fjár- málastjórnina á árinu 2008 og fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2009. Reykjavíkurborg var fyrsta sveitarfélagið sem setti sér slíka þverpólitíska aðgerðaáætlun og fylgdu mörg önnur sveitarfélög í kjölfarið. Að auki samþykkti borg- arráð mikilvægar breytingar á reglum um gerð fjárhagsáætl- unar, reglum um fjárstýringu, reglum um innkaup og reglum um meðferð viðskiptakrafna og af- skriftir til að efla fjármálastjórn og eftirlit. Það er mitt mat að sú ákvörðun nýs meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að setja fjár- málastjórn borgarinnar í öndvegi og taka upp ný vinnubrögð á vett- vangi borgarstjórnar með sam- vinnu meirihluta og minnihluta hafi brotið blað í pólitískum vinnubrögðum og sýnt að sam- vinna stjórnmálaflokka skilar meiri árangri en hefðbundið karp um keisarans skegg. Það er mikilvægt við þær að- stæður sem nú eru uppi í efna- hagslífinu að stjórnmálamenn séu samstiga í aðgerðum til að sporna á móti óæskilegum áhrifum efna- hagskreppunnar og beri fram lausnir en ekki vandamál. Sú samstaða sem verið hefur í borg- arstjórn Reykjavíkur hefur skilað tilætluðum árangri og við munum halda áfram á sömu braut til að tryggja öflugan rekstur Reykja- víkurborgar borgarbúum til heilla. Styrk fjármálastjórn Reykjavíkurborgar Eftir Óskar Bergsson »Ný vinnubrögð sem byggjast á sam- vinnu stjórnmálaflokka hefur skilað meiri ár- angri en hefðbundið karp um keisarans skegg. Óskar Bergsson Höfundur er formaður borgarráðs. Í FYRRADAG lá fyrir greinargerð frá endurskoðunarskrif- stofunni Deloitte hf. um viðskipti Frjálsrar miðlunar ehf. við Kópa- vogsbæ á árunum 2003-2008. Miklar full- yrðingar og ádeilur eru hvergi sparaðar í skýrslunni sem átti að vera sett fram á hlut- lausan hátt. Undirritaður vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við skýrsluna: 1) Fullyrt er í skýrslunni að við- skipti Frjálsrar miðlunar ehf. og Kópavogsbæjar séu hugsanlega brot á lögum um opinber inn- kaup, sem sett voru seint á árinu 2007. Þessi ágæta endurskoð- unarskrifstofa virðist ekki hafa áttað sig á því að þau ákvæði lag- anna, sem tilgreind eru í skýrsl- unni, taka ekki til innkaupa sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila á þeirra vegum. Það er vægast sagt undarlegt að virtri endur- skoðunarskrifstofu skuli yf- irsjást slíkt lykilatriði og koma með svo alvarlega fullyrðingu, sem er sett fram til að gera mál- ið tortryggilegt. 2) Fullyrt er í skýrslunni að Kópa- vogsbær hafi verið stærsti við- skiptaaðili Frjálsrar miðlunar ehf. án þess að sett séu fram haldbær rök fyrir fullyrðing- unni. Látið er að því liggja að hluti eyðublaða í númeraröðinni sé ógildur á einhvern hátt. End- urskoðunarskrifstofan var ekki beðin um að meta umfang við- skipta Frjálsrar miðlunar ehf. almennt. Þetta er greinilega sett fram í þeim tilgangi að ala á efa- semdum og tortryggni í garð Frjálsrar miðlunar. 3) Í skýrslunni er því haldið fram að „almennt virðist ekki hafa verið gerðar verðkannanir eða leitað tilboða í verkefni, sem Frjáls miðlun hefur unnið fyrir Kópavogsbæ“. Þetta er fullyrt þrátt fyrir staðhæfingar hjá þremur af yfirmönnum bæjarins um að slíkt væri gert og er vitn- að í þá í skýrslunni. 4) Mikið hefur verið fjallað um afmælis- rit, sem átti að gefa út í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins 2005. Á árinu 2004 var 5 manna af- mælisnefnd kosin, sem átti að sjá um viðburði á afmæl- isári. Áætluð var fjárhæð til afmæl- isins í fjárhags- áætlun fyrir árið 2005 og ákvað afmælisnefndin hvað skyldi gert og bar ábyrgð á því. Það vakti því athygli að hvorki þáverandi formaður nefndarinnar né starfsmenn hennar voru boðaðir til fulltrúa Deloitte til að skýra málin varð- andi afmælisritið, sem aldrei kom út. 5) Ein ábending í skýrslu Deloitte er að bæjarstjórn ætti að sam- þykkja alla reikninga yfir tiltek- inni upphæð. Þetta myndi þýða að bæjarstjórn, þ.e. 11 kjörnir bæjarfulltrúar, myndu þurfa að hittast oft á fundum til að skrifa upp á reikninga! Slíkt þekkist nú ekki í nútíma stjórnsýslu. 6) Ábendingar í skýrslunni um betri vinnubrögð við færslur á bókhaldslykla og aðra þætti er varða bókhald eru réttmætar og við þeim verður brugðist. Sífelld vinna er í gangi hjá Kópavogsbæ að bæta verkferla og skilvirkni í stjórnsýslunni. Hér hafa í minni stjórnartíð verið settar siða- reglur fyrir bæjarfulltrúa og stjórnendur á bæjarskrifstof- unum, innkaupareglur, tvöfalt uppáskriftarkerfi reikninga og hrint af stað metnaðarfullu gæðakerfi. Tilhæfulaus ásök- un um lögbrot Eftir Gunnar I. Birgisson Gunnar I. Birgisson » Ákvæði laganna, sem tilgreind eru í skýrslunni, taka ekki til innkaupa sveitarfélaga, stofnana þeirra eða ann- arra opinberra aðila á þeirra vegum. Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. Í NÝLEGRI könn- un sem gerð var á tönnum hérlendis kom í ljós að ástand þeirra hafði versnað mikið og höfðu að meðaltali rúmlega 5 tennur skemmst í hverju 12 ára barni, en venju- lega er miðað við þann aldurshóp við sam- anburð. Þetta er mjög sorglegt, því að um 10 árum áður hafði aðeins rúmlega ein tönn skemmst í hliðstæðum hópi líkt og á hinum Norðurlöndunum, enda var þá búið að bæta tannheilsu lands- manna um 75% á 15 árum, mest með heilsuátaki sem byggð- ist á hollri fæðu, reglu- bundnu eftirliti með fyrirbyggjandi með- höndlun og aukinni áherslu á okkar ágæta vatn. Neysla sykurs í ýmsum neysluvörum, t.d. gosi og sælgæti, vegur vissu- lega þungt til aukningar tann- skemmda og hafa neysluskattar áreiðanlega áhrif til að minnka neysluna. Staðsetning sælgætis við af- greiðslukassa verslana og í hæfi- legri hæð fyrir augu barna, hefur ekki enn fengist breytt, þrátt fyrir tilmæli þar um, en sem dæmi má nefna að í Noregi hefur verið rek- inn áróður gegn þessu með góðum árangri undir forystu konungsfjöl- skyldunnar. Einnig eru gosflöskur oft á borð- um skólabarna, þegar þau eru að glíma við heimaverkefnin. Mjög ánægjulegt er hve margir aðilar hafa undanfarið sýnt tann- heilsu okkar mikinn áhuga, t.d. heilsugæslufólk, háskólinn, land- læknir og umboðsmaður barna, enda kemur vonandi ekki til þess aftur hérlendis að smíða þurfi upp í fermingarbörn eins og kom fyrir um miðja síðustu öld. Gervitennur í fermingargjöf Eftir Magnús R. Gíslason » Vonandi kemur ekki til þess aftur hér- lendis að smíða þurfi upp í fermingarbörn eins og kom fyrir um miðja síðustu öld Magnús R. Gíslason Höfundur er fyrrverandi yfirtannlæknir. @ Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.