Morgunblaðið - 11.06.2009, Qupperneq 38
38 Aldarminning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Ný sending af grindum og búrum
Grindurnar eru komnar aftur og stóru
búrin. Besta verðið á Íslandi. Frábært
verð á snyrtiborðum. www.liba.is
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 29.900. Hljómborð frá kr.
17.900. Trommusett kr. 49.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsnæði í boði
Atvinnuhúsnæði
Við Síðumúla eru til leigu 100 fm
skrifstofuhúsnæði, húsnæðið er í
mjög góðu standi, hagstæð leiga.
Uppl. í síma 896-8068.
Húsnæði óskast
Óska eftir að kaupa fasteign
Erum að leita að íbúð á bilinu 60 -
110 fm með bílskúr. Óskum eftir
eignum með fermetraverð undir 150
þús. á fm. Upplýsingar sendist á
husnaedi2009@live.com
3 herb. íbúð óskast
Reglusamt par óskar eftir að leigja 3
herb. íbúð í 101, 103, 107, 200, 201
eða 225. Viljum greiða um 110 þús.
S: 699-5480.
Atvinnuhúsnæði
HAFNARFJÖRÐUR -
Hagstæð leiga
Skrifstofur - vinnustofur - verslun.
30 m² 35.000 kr.
105 m² með sérinngangi 125.000 kr.
20 m² 24.000 kr. Sími 898 7820.
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1
(Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í síma
561 6521 og 892 1938.
Stór ódýr sumarhús til leigu
í Kjós
Sumarhúsið er 70 fm með svefnplássi
fyrir allt að 8 manns í þremur svefn-
herbergjum. Aðskildar tvær stofur.
Á pöllum er pottur og nýtt gasgrill.
S. 844-6721.
Rotþrær-siturlagnir
Heildarlausnir - réttar lausnir.
Heildarfrágangur til sýnis á staðnum
ásamt teikningum og leiðbeiningum.
Borgarplast, www.borgarplast.is
s. 561 2211 - Völuteigi 31 -
Mosfellsbæ.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Matador heilsársdekk tilboð
165R13 kr. 3.900
155/70R13 kr. 5.500
165/65R14 kr. 7.900
185/65R14 kr. 8.900
195/65R15 kr. 9.900
215/55R16 kr. 16.900
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
KAUPI GULL
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, er að kaupa gull,
gullpeninga og gullskartgripi og
veiti ég góð ráð og upplýsingar.
Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og
illa farið. Upplýsingar hjá
demantar.is og í síma 699-8000,
eða komið í Pósthússtræti 13.
Bókhald
Framtöl - Bókhald
Bókhaldsþjónusta, ársreikningar,
framtöl, stofnun ehf., VSK uppgjör,
erfðafjárskýrslur, fjármálaráðgjöf.
Hagstætt verð. s. 517-3977,
netfang: framtal@visir.is
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Brúðkaup á DVD
Tek að mér HD vídeóupptökur á
hátíðarstundum og klippi saman í
fallega minningu á DVD. Nánari
upplýsingar í síma 899-2320 eða á
sigridur02@simnet.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari getur bætt við sig
verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Málningarvinna og múrviðgerðir
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og
góð umgengni. Tilboð eða tímavinna.
Lítið Mál ehf. S. 896-5758.
Ýmislegt
Einstaklega mjúkir og þægilegir
dömusandalar úr leðri og skinn-
fóðraðir. Margar gerðir og litir.
Stærðir: 36 - 42.
Verð: 8.950.- og 9.885.- Búðu þig
undir langt og sólríkt sumar!
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Veiði
Laxveiðileyfi. Til sölu veiðileyfi í
Álftá á Mýrum. Upplýsingar gefur
Dagur Garðarsson í síma 893 5337.
Vélar & tæki
Farmall A. árg. 1946
Til sölu stórfínn Farmall, nýlega
sprautaður, með sláttuvél. Dettur í
gang. Á sama stað gas + 220v
ísskápur. Tilboð. jks@visir.is
Sími: 898 6033.
Bílar
Daihatsu ek. 133 þús. km
Daihatsu Terios '00 ek. 133 þús.km,
beinsk., skoðaður, verð 290 þús.
S: 895-8523.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR.
Hvert sem er hvenær sem er.
16 manna.
9 manna.
Með eða án ökumanns.
Fast verð eða tilboð.
CC bílaleigan sími 861-2319.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Sisal teppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. Sími 533 5800.
www.strond.is
Einkamál
Chat.is
Við spjöllum saman og kynnumst
nýju fólki á Chat.is. Það kostar ekk-
ert, og vefurinn er í boði á fjölda
tungumála.
Kirkjulundur 19,
210 Garðabæ,
sími 565 9393.
www.rokras.is
Guðmundur Jónas-
son fæddist á Sauða-
dalsá á Vatnsnesi en
fluttist 5 ára með for-
eldrum sínum að Múla
í Línakradal og ólst þar
upp til fullorðinsára.
Guðmundur hóf ævi-
starf sitt tuttugu ára
gamall, þegar hann
fékk ökuskírteini sitt
18. desember 1929.
Vorið 1930 eignaðist
hann sinn fyrsta bíl,
nýjan Ford-vörubíl
sem kom með skipi til
Hvammstanga. Fyrstu árin voru
flutningar Guðmundar með vörur og
fólk um Húnavatnssýslu og hafði
hann tiltækt farþegaboddí á vörupall-
inn. Sumarið 1934 tók hann að sér
flutninga á símavinnuflokki. Næstu
sumur var hann með símaflokknum
við línulagnir í Dalasýslu, um Norður-
land og austast í Axarfirði. Á þessum
sumrum varð Guðmundur oft fyrstur
að fara ófarnar slóðir á bifreið, fór t.d.
um Klofning og einnig Axarfjarðar-
heiði til Þórshafnar.
Á þessum árum fluttist hann til
Reykjavíkur og hóf akstur á Vöru-
bílastöðinni Þrótti og stundaði ýmsa
tilfallandi flutninga, en við símavinnu
að sumri. Árið 1939 eignast hann sína
fyrstu fullbúnu farþegabifreið, nýjan
Guðmundur Jónasson
Chevrolet fyrir 22 far-
þega. Hægt var að taka
aftari hluta farþega-
rýmisins af og setja
vörupall í staðinn.
Þetta var hagkvæm
lausn til að nýta bílinn
bæði til farþega- og
vöruflutninga. Þessi
bifreið bar skráningar-
númerið R-346 og var
sá fyrsti í eigu hans
með það númer.
Haustið 1938 kvænt-
ist Guðmundur Stefan-
íu Eðvarðsdóttir frá
Helgavatni í Vatnsdal. Þau eignuðust
þrjú börn.
Árið 1939 tók Guðmundur að sér
flutninga á fólki fyrir skíðadeild Ár-
manns í Jósepsdal.
Árið 1946 eignast Guðmundur sína
fyrstu fjórdrifsbifreið sem var Dogde
Weapon með 10 farþega yfirbyggingu
frá Agli Vilhjálmssyni. Þessi bifreið
var sannarlega upphaf hálendisferða
hans. Árið eftir bættist við önnur bif-
reið og árið 1949 lét hann byggja 19
farþega GMC-bifreið sem bar núm-
erið R-346 og er næsta víst að engin
bifreið fór oftar slóðir um hálendið í
fyrsta sinn, slóðir sem margar eru
fjölfarnar enn í dag.
Sumarið 1950 stóð Guðmundur fyr-
ir leiðangri til að leita að bílfæru vaði
yfir Tungnaá. Meðal margra sem
voru með í ferðinni var Egill Krist-
björnsson. Þeir fóru í leitina á
gúmmíbát og eftir langa leit fundu
þeir vað sem var ekið yfir í fyrsta
sinn 27. ágúst. Vaðið var kallað
Hófsvað eftir hóflöguðum hólma í
ánni. Eitt aðaltakmark ferðarinnar
var að komast til Veiðivatna sem og
inn á Sprengisandsleið. Að komast á
bifreið yfir Tungnaá opnaði miðhá-
lendið fyrir umferð bifreiða og strax í
september sama ár var farin fyrsta
stóra ferðin með 40 farþega á 3 fjalla-
bílum yfir Tungnaá til Veiðivatna,
norður til Nýjadals, yfir Þjórsá og
um Kjalveg til baka. Áhugi Íslend-
inga var mikill á hálendisferðum og á
næstu árum fór Guðmundur ótelj-
andi ferðir um nýjar slóðir á hálend-
inu.
Með tímanum fóru erlendir ferða-
menn að koma með í ferðirnar og
varð þá þörf á fæði fyrir þá, en Ís-
lendingar notuðu skrínukostinn. Það
var upphaf þess að með í ferðum voru
sérstakir eldhúsbílar. Hélst þessi
ferðamáti allt til níunda áratugarins,
en með bættu vegakerfi og stórauk-
inni hótelgistingu hættu tjaldferðir
að mestu.
Snemma vetrar árið 1951 kom til
landsins Bombardier-snjóbifreið sem
Guðmundur hafði fest kaup á. Ekki
hafði verið aflað innflutningsleyfa
fyrir bifreiðina, en gegn því að fara
með bifreiðina til Austurlands og að-
stoða við flutninga þar í miklu fann-
fergi fékkst leyfið. Þegar snjóa leysti
og vegir urðu færir lagði Guðmundur
í ótrúlega ferð. Þá um vorið var leið-
angur á Vatnajökli til að bjarga
skíðaflugvélinni sem varð eftir á jökli
við Geysisslysið um haustið. Aðstoð-
armaður Guðmundar var með þegar
tekin var stefna frá Egilsstöðum suð-
vestur til Vatnajökuls og komust þeir
að Bárðarbungu og fluttu varning úr
Geysi af jökli. Þessi ferð var upphaf
Vatnajökulsferða Guðmundar og
voru ferðafélagar hans í þeim ferðum
margir Ármenningar og komu þeir
að stofnun Jöklarannsóknafélags Ís-
lands. Snjóbíllinn var notaður til ým-
issa flutninga á fólki og varningi.
Fjölmargar vetrarferðir voru farnar
með Sigurjóni Rist til vatnamælinga
á hálendinu sem voru nauðsynlegar
til byggingar vatnsorkuvirkjana og
ferðir með Jöklarannsóknafélaginu á
Vatnajökul voru árvissar.
Í byrjun voru allar fjórdrifsbif-
reiðar Guðmundar notaðar herbif-
reiðar, en 1957 setti hann nýja
Mercedes-Benz-díselvél í eina bifreið
sína sem gafst vel og 1960 eignaðist
hann fyrstu fullbúnu bifreiðina af
þeirri gerð og síðan voru nær allar
bifreiðar Guðmundar af þeirri gerð.
Árið 1959 tók Guðmundur að sér
flutninga á flugfarþegum fyrir Loft-
leiðir og síðar þegar allt millilanda-
flug fór um Keflavíkurflugvöll einnig
fyrir Flugfélag Íslands, og annaðist
fyrirtæki hans flutningana í marga
áratugi. Eftir 1960 fjölgaði erlendum
ferðamönnum hratt. Guðmundur
hafði í byrjun samvinnu við ferða-
skrifstofuna Orlof og síðar Lönd og
leiðir um sölu ferða, en árið 1976 fékk
starfsemin fullt ferðaskrifstofuleyfi
og hófst þá bein sala á ferðum til er-
lendra söluaðila og markaðsstarf er-
lendis.
Hálendið átti hug Guðmundar, þar
var hann í ferðum öll sumur til hins
síðasta. Hann lést í Reykjavík 5. mars
1985.
Gunnar Guðmundsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minn-
ingargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar