Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 41

Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 41
Dagbók 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 Sudoku Frumstig 5 2 3 9 4 6 8 2 5 7 5 3 7 6 4 5 6 1 7 9 1 8 3 2 5 7 4 8 9 2 7 5 9 1 2 2 9 7 8 5 7 3 1 4 6 4 6 8 6 8 1 2 5 4 8 6 3 9 2 2 5 1 3 3 4 7 5 9 2 6 4 8 3 7 2 1 6 5 9 5 9 7 6 4 3 1 2 8 2 1 6 5 9 8 4 3 7 3 2 1 8 5 7 9 6 4 9 7 5 2 6 4 3 8 1 6 4 8 3 1 9 2 7 5 8 6 4 1 3 5 7 9 2 7 3 9 4 8 2 5 1 6 1 5 2 9 7 6 8 4 3 1 2 7 6 3 8 9 4 5 3 8 9 1 4 5 7 6 2 5 4 6 7 9 2 8 3 1 7 3 8 5 1 9 6 2 4 6 9 5 4 2 3 1 8 7 4 1 2 8 7 6 5 9 3 2 5 4 9 8 1 3 7 6 9 7 1 3 6 4 2 5 8 8 6 3 2 5 7 4 1 9 2 7 3 1 4 8 5 6 9 6 5 1 3 2 9 8 4 7 9 8 4 6 5 7 3 1 2 8 2 5 4 1 6 7 9 3 3 4 7 8 9 5 6 2 1 1 9 6 7 3 2 4 5 8 4 3 2 5 7 1 9 8 6 7 6 9 2 8 4 1 3 5 5 1 8 9 6 3 2 7 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 11. júní, 162. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. (Mk 13, 27.) Víkverji hefur að undanförnuhugsað um hjón. Þau voru í þeirri stöðu að allt þeirra líf var lit- að af blússandi velgengni. Þau voru ánægð, með lífið og hvort annað. Svo gerðist það einn dag að þau urðu fyrir gríðarlegu fjárhagsáfalli. Karlinn hvarf pínulítið inn í sig en sagði þó konu sinni að þetta yrði allt í lagi. Hún spurði hann nokkuð um gang mála en ætíð var fátt um svör hjá karli. x x x Hvert áfallið af öðru reið yfir ogáfram lét karl við konu sína eins og allt væri í lagi og hann réði við aðstæður. Hann vildi hlífa henni við fréttum af því hversu slæmt ástandið í raun væri, hún spurði ekki frétta og hann sagði henni ekki neitt. Þegar þarna var komið sögu var karl orðinn viðskotaillur. Hann gerði sér enga grein fyrir því að konan gæti hjálpað honum í vand- ræðunum og væri jafnvel betur til þess fallin að leysa úr þeim. Þar kom þó að karl þoldi ekki álagið lengur og hrökk upp af. Áhyggj- urnar átu hann upp innan frá. x x x Þá loks kom að því að konan fékköll gögn í hendur. Um stund þyrmdi yfir hana og hún hugsaði sem svo: Ég ræð aldrei við þetta. Sú hugsun varð þó skammæ og konan bretti upp ermar, settist niður og tók að skoða málin. Á skömmum tíma sá hún heildarmyndina og hóf að vinna sig út úr vandanum sem karl var búinn að koma þeim í áður en hann geispaði golunni. Hún sá leiðina og lagði af stað æðrulaus. x x x Ríkisstjórn Íslands ætti að látaalmenning fá allar þær upplýs- ingar sem hún hefur yfir að ráða. Núverandi ríkisstjórn hefur fallið beinustu leið í sömu gryfju og rík- isstjórn Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar var í: gryfju leyndarmál- anna. Ef almenningur í landinu þekkir ekki vandann getur hann ekki tekið höndum saman um að leysa hann. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 klettur, 4 fá- vís, 7 ginna, 8 líkindi, 9 hamingjusöm, 11 aga, 13 venja, 14 hæð, 15 mjótt, 17 ferming, 20 siða, 22 halar, 23 smávægileg, 24 ákvarða, 25 fiskar. Lóðrétt | 1 híðis, 2 stækkað, 3 smáflaska, 4 fjall, 5 svigna, 6 fífl, 10 þjálfun, 12 rödd, 13 skynsemi, 15 fyrirtæki, 16 viðarbörkur, 18 kirtil, 19 heldur, 20 rykkornið, 21 bára. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 tólfæring, 8 græða, 9 feyra, 10 kýs, 11 uxana, 13 afans, 15 svaðs, 18 ósatt, 21 tóm, 22 kuðla, 23 Ingvi, 24 lausungin. Lóðrétt: 2 ógæfa, 3 flaka, 4 refsa, 5 neyta, 6 uglu, 7 laus, 12 nið, 14 fas, 15 sekk, 16 auðna, 17 stans, 18 óminn, 19 angri, 20 táin. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. Rf3 Rc6 3. c4 Bg4 4. Rc3 e6 5. cxd5 exd5 6. Bf4 Bxf3 7. gxf3 Bd6 8. Bg3 Rge7 9. e3 O-O 10. a3 f5 11. f4 Dd7 12. Db3 De6 13. O-O-O Ra5 14. Da4 b6 15. Bd3 c6 16. Hhe1 Kh8 17. f3 Dh6 18. Kb1 a6 19. e4 Rc4 20. Bxc4 b5 21. Da5 dxc4 22. e5 Bb8 23. d5 cxd5 24. Rxd5 Rxd5 25. Hxd5 Dc6 26. Hed1 Bc7 27. Db4 Hf7 28. Bf2 h6 29. Dc5 De6 30. H5d2 He8 31. h4 Hb8 32. Dd5 De8 33. e6 He7 34. Bd4 Hxe6 35. Hg2 He7 Staðan kom upp á 8. asíska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Subic í Filippseyjum. Kínverski stórmeistarinn Weiqi Zhou (2.563) hafði hvítt gegn heimamanninum Jayson Gonzales (2.465). 36. Hxg7! Hxg7 37. Hg1 Be5 38. Bxe5 Dxe5 39. Dxe5 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Engin samúð. Norður ♠G103 ♥G1095 ♦973 ♣865 Vestur Austur ♠75 ♠9 ♥ÁKD42 ♥8763 ♦KG4 ♦D1086 ♣K42 ♣DG97 Suður ♠ÁKD8642 ♥– ♦Á52 ♣Á103 Suður spilar 4♠. „Maður hefði nú haldið að tromp væri eðlilegt útspil eftir þessar sagnir.“ Ábótinn seinheppni, aðalpersónan í klaustursögum Davids Birds, var hér í vestur og spilaði út ♥Á gegn 4♠. Suður hafði opnað á alkröfu, ábótinn kom inn á 2♥ og austur stökk í 4♥. Suður lauk svo sögnum með 4♠. Bróðir Lucius var í suðursætinu, einn besti spilarinn í klaustrinu. Lucius trompaði með ♠4, spilaði ♠6 á tíuna, hjarta úr borði og henti tígli heima. Ábótinn spilaði trompi til baka, sem Lucius tók á gosann, spilaði enn hjarta og henti öðrum tígli. Komst svo inn á ♠3 til að taka tíunda slaginn á fríhjarta. „Ég bjarga engu með því að skipta yfir í lauf,“ sagði ábótinn réttilega, en fékk enga samúð frá félaga sínum: „Nei, en þú gafst samninginn með út- spilinu.“ Stjörnuspá (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það ríður á miklu að þú missir ekki sjálfstjórnina, þótt þér líki ekki allt, sem upp á kemur. Láttu eftir duttl- ungum sköpunargyðjunnar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Satt er að hreinskiptin tjáning er grunnur góðra samskipta. Reyndu að taka tillit til þess og fara þér hægt. Lof- aðu ekki upp í ermina á þér. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Láttu það ekki slá þig út af laginu, þótt vinur þinn virki mjög ann- ars hugar. Hann fer um og breytir nei- kvæðni í eitthvað jákvætt. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Reikna má með sviptivindum, óvæntum gjöfum og gróða hjá þér í dag. Sýndu fólki væntumþykju og skiln- ing og þá gengur þér allt betur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú munt vekja aðdáun annarra sökum skipulagshæfileika þinna og hversu vel þér tekst að nýta tímann. Allt sem þú þarfnast er beint fyrir framan þig. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Láttu þér ekki bregða þótt margt óvænt gerist í dag og þú eignist jábræður sem þú hafðir allra síst átt von á. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Notaðu tímann fyrir tómstundaiðju. Settu markið hærra en þú álítur þig ráða við, annars vinnur hitt liðið. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú gætir rekist á gamla kunningja og skólafélaga og það mun hugsanlega opna þér ný tækifæri. Ekki sitja á þér, samþykktu þau tilboð sem þér berast. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Rómantíkin gerir vart við sig á hárréttu augnabliki. Leyfðu fleirum að láta ljós sitt skína og sýndu öðrum þá þolinmæði sem þú vilt njóta. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú gerir meiri kröfur til þín en skynsamlegt getur talist. Nýjar um- bætur og stórtækar breytingar eru lík- legar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Tjáskipti gegna mikilvægara hlutverki en endranær á næstu vikum. Reyndu að láta sem ekkert sé og sjá hvað þarna býr undir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þig langar til þess að upplýsa einhvern um eitthvað sem er þér mik- ilvægt. Vertu því opinn og óhræddur við að takast á við nýja og spennandi hluti. 11. júní 1928 Flugfélag Íslands fór í fyrsta áætlunarflug sitt milli Reykja- víkur og Akureyrar á Súlunni, sem var sjóflugvél sem tók fimm farþega. 11. júní 1938 Lög um stéttarfélög og vinnu- deilur voru staðfest. Þau voru talin marka tímamót í sam- skiptum launþega og atvinnu- rekenda. 11. júní 1994 Jón Baldvin Hannibalsson sigraði Jóhönnu Sigurð- ardóttur í formannskjöri á flokksþingi Alþýðuflokksins með 60% atkvæða. Þegar úr- slitin lágu fyrir sagði Jóhanna í ræðu: „Ósigur er ekki enda- lok alls, því í sigri geta rætur ósigurs leynst en í ósigri ræt- ur velgengni. Minn tími mun koma.“ 11. júní 2007 Sjö göngugarpar luku göngu á fimm fjallstinda í fimm lands- hlutum, Heiðarhorn á Vest- urlandi, Kaldbak á Vest- fjörðum, Kerlingu á Norðurlandi, Snæfell á Aust- urlandi og Heklu á Suður- landi. Ferðalagið tók tvo og hálfan sólarhring. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Stefán Guð- mundsson í Túni verður níræður sunnudaginn 14. júní næstkom- andi. Af því til- efni verður fjöl- skyldan með afmæliskaffi í Þingborg kl. 15 til 18 á afmælisdaginn og vonast til að sjá sem flesta vini og ættingja, en engar afmælisgjafir. 90 ára „ÉG held að björtustu tímar ævinnar séu fram- undan,“ segir Kristinn Jakobsson kjötiðnaðar- maður sem í dag er fertugur. Kristinn á og rekur Kjöthúsið við Smiðjuveg í Kópavogi og segir að nú sé nóg að gera. „Nú eru allir á landinu og þá eru fleiri munnar að metta,“ segir hann en verslunin hefur í nógu að snúast þessa dagana við að sjá landanum fyrir kjöti á grillið. Kristinn segist verða þess var að meira sé keypt af góðu grillkjöti en áður, veitingahúsamenning útrásaráranna víki nú fyrir grillveislum í garðinum. Kristinn heldur ekki beinlínis upp á afmælið á þessu sinni en er á leið til Vestmannaeyjum með eiginkonu sinni. „Ég er að fara að styðja dóttur mína, hún er að spila þar á Pæjumóti,“ seg- ir Kristinn en hann hyggst láta það nægja þetta árið. Sjálfur er Kristinn viðriðinn fótboltann en hann er knattspyrnu- dómari auk þess að stunda kjötiðn. Hann dæmdi nýlega einn sinn stærsta leik þar sem England mætti Kasakstan á kasakstanskri grund. „Það er voða gaman fyrir lítinn Íslendinga að fá að taka þátt í svona viðburði og fá að vera inni á vellinum. Það var virkilega gaman og mikill heiður.“ skulias@mbl.is Kristinn Jakobsson fertugur Fer á Pæjumótið í Eyjum Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.