Morgunblaðið - 11.06.2009, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 11.06.2009, Qupperneq 43
Menning 43FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 Ég er annaðhvort barnaleg eða brjál- uð að taka að mér þetta stóra hlutverk. 49 » MYNDLISTARSÝNINGIN Laugavegurinn 2009 stendur enn yfir í listamannahúsinu START ART að Laugavegi 12b. Sýningin er í ýmsum rým- um við og á gönguleið þvotta- kvenna fyrri tíma. START ART-hópurinn hef- ur rekið galleríið í rúm tvö ár en hyggst loka því 1. júlí n.k. og finna annan farveg fyrir samstarfið í framtíðinni. Hópurinn hvetur fólk til að heimsækja galleríið og skoða sýninguna sem er bæði úti og inni við og á leið sem er frábær göngu- eða hjólaleið fyrir alla. Leiðarvísa um staðsetningu listaverka má finna í listamannahúsi START ART. Myndlist Enn opið hjá START ART Frá þvottalauga- gjörningi 23. maí. ÚTGÁFA margmiðlunar- disksins Ten Tails verður kynnt í bókverkabúðinni Út- úrdúr í Nýlistasafninu, Lauga- vegi 26, í kvöld kl. 20. Inn- gangur er Grettisgötumegin. Ten Tails inniheldur verk eftir tíu ólíka listamenn frá Ís- landi, Englandi og Skotlandi og er útgáfunni ætlað að kanna mörk og möguleika bókar- formsins sem listræns miðils í rafrænni útfærslu. Ten Tails er gefinn út í tak- mörkuðu upplagi í samvinnu við Edinburgh Col- lege of Art (ECA) og Kynningarmiðstöð íslenskr- ar myndlistar (CIA.is) í ritstjórn Kristínar Dagmarar Jóhannesdóttur. Myndlist Útgáfa listadisksins Ten Tails í Útúrdúr Magnús Pálsson á verk á disknum. PÍANÓLEIKARINN Birna Hallgrímsdóttir heldur tón- leika í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20. Tónleikana heldur hún í til- efni af því að hún er í þann mund að ljúka framhaldsnámi frá The Royal College of Music í London. Á efnisskránni eru verk eftir Haydn, Brahms, De- bussy og Rachmaninov. Birna hóf píanónám fimm ára gömul, vorið 2006 lauk hún B. Mus gráðu frá Listaháskóla Íslands og síðastliðin tvö ár hefur hún verið nemandi við Royal College of Music. Miðaverð á tónleikana í kvöld er 2000 kr. og 1500 kr. fyrir eldriborgara, öryrkja og námsmenn. Tónlist Birna með píanó- tónleika í Salnum Birna Hallgrímsdóttir Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „HÁTÍÐIN hefur alltaf verið glæsi- leg á sinn hátt, en hún er sérstaklega glæsileg og viðamikil núna,“ segir Greipur Gíslason, framkvæmda- stjóri tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið, sem fram fer á Ísafirði dag- ana 18.-23. júní. „Þetta helgast af því að við erum með stóra kammersveit, Kammersveitina Ísafold, í aðal- hlutverki, og hún sinnir stóru hlut- verki á hátíðinni, með tvenna stóra tónleika. Ísafold verður með sína eigin tónleika, þar sem frumflutt verður nýtt verk, Bow to String, fyr- ir selló og kammersveit, eftir stjórn- andann, Daníel Bjarnason og það er gaman að segja frá því að til að leika í því, kemur sellóleikarinn upprenn- andi, Sæunn Þorsteinsdóttir, hingað frá Bandaríkjunum. Ísafold leikur líka tónleika með nýjum verkum eft- ir þrjá stráka, sem valdir voru til að semja verk fyrir hljómsveitina.“ Þrjú sérstök hátíðarverk Eins og frá var greint í Morgun- blaðinu í vetur, gátu tónskáld sent inn efni sitt með umsókn um að semja verk fyrir hátíðina. Tón- skáldin þrjú sem valin voru, eru Högni Egilsson, Viktor Orri Árna- son og Gunnar Karel Másson. „Þeir fylgjast svo með æfingaferlinu þegar hátíðin hefst og það er nýmæli, en æfingarnar fara fram undir hand- leiðslu danska tónskáldsins Bents Sørensen. Þetta verður því eins kon- ar smiðja, meðan á æfingum stend- ur.“ Greipur segir mikla ánægju að geta boðið upp á tvenna glæsilega einleikstónleika; annars vegar með Pétri Jónassyni gítarleikara, sem leikur íslenska og spænska tónlist, og hins vegar háklassíska tónleika píanóleikarans Vovka Ashkenazy, sem leikur verk eftir Rakhmaninov, Beethoven og Chopin. Tónleikar Tómasar R. Einarssonar með Ragn- heiði Gröndal og Mugison eru líka meðal stórviðburða hátíðarinnar. „Síðast en ekki síst vil ég nefna Sólstöðutónleika í beinni útsendingu Rásar eitt, þar sem allir listamenn- irnir koma fram, en í mismiklum mæli. Þetta eru tónleikar fyrir þá sem ekki komast vestur en langar að heyra, og verða í Ísafjarðarkirkju kl. 16, sunnudaginn 21. júní,“ segir Greipur. Menningarstofnanir hjálpa til Það er áhugamannafélagið Við Djúpið sem stendur á bak við hátíð- ina. „Hátíðin er haldin með fulltingi menningarstofnana á Ísafirði, sem láta meðal annars dýrt húsnæði í té, sem ekki er sjálfgefið að við fáum. Í ár erum við á fjárlögum, og fáum auk þess styrk frá Menningarráði Vestfjarða. Það hefur ekki verið mikið erfiðara í ár en fyrri ár að fá styrki til hátíðahaldanna – það er alltaf erfitt; en eini styrkurinn úr einkageiranum kemur frá Flugfélagi Íslands.“ Áhugi heimamanna á hátíðinni er mikill og vaxandi að sögn Greips, þrátt fyrir að kveikjan að henni komi annars staðar að. „Í fyrra komu um þúsund manns á tónleika, og það tel ég gott.“ Dásemdir við Djúpið  Vovka Ashkenazy, Pétur Jónasson, Sæunn Þorsteinsdóttir, Tómas R. Einarsson og Ísafold eru meðal þeirra sem koma fram á sex daga tónlistarhátíðinni Við Djúpið Við Djúpið Kammersveitin Ísafold frumflytur íslensk verk á hátíðinni. viddjupid.is Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is EMMA Bell vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína í hlutverki annars tveggja sagnaþula í upp- færslu Íslensku óperunnar á Lúk- retía svívirt eftir Britten árið 2000. Hinn sagnaþulurinn var eig- inmaður hennar, Finnur Bjarnason. Á þeim tæpa áratug sem liðinn er hefur ferill Emmu heldur betur tekið flugið; og ef það eru einhver viðmið, þá er hún búin að leggja Scala-óperuna að fótum sér og syngur í Metropolitanóperunni í haust. Í kvöld syngur hún hins veg- ar með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Háskólabíói. „Ég ætla að syngja Exultate jubilate eftir Mozart, Knoxville: Summer of 1915 eftir Barber og aríur úr óperum og óperettum.“ Greifynjan í Brúðkaupi Fígarós er hlutverkið sem dregur Emmu Bell vestur um haf í Metropolitan- óperuna í haust, en í vetur hefur hún staðið á sviðinu í Covent Gar- den sem Elvíra í Don Giovanni og á Scala sem Anne Trulove í Rakes Progress eftir Stravinskíj. Listin mikla „Frá því ég byrjaði að syngja hefur óperan alltaf verið listin mikla í mínum huga. Ég hefði aldr- ei getað hugsað mér að leika á sviði, en að leika og syngja, – vá! – það er stórkostlegt. “ Líf óperusöngv- arans, annað en það að syngja sín hlutverk, er ekki eintómur dans á rósum að sögn Emmu. „Það er ekki eftirsóknarvert og mér líkar það ekkert sérlega vel. Hvert verkefni kallar á það að maður sé sex vikur að heiman. Þá kemst maður loks aftur heim, til þess eins að leggja í næstu ferð. Þetta er ekki aðlaðandi lífsstíll fyrir fjölskyldufólk.“ Tónleikasviðið hefur sína kosti Emma syngur líka í tónleika- uppfærslum og kveðst hafa jafn gaman af því og óperusöngnum, þótt leikinn og leikumgjörðina vanti. „Í óperunni er hljómsveitin alltaf niðri í gryfju og söngvari þarf þess vegna ekki að hafa neitt sam- band við hljóðfæraleikarana. Það er hræðilegt að hafa aldrei horft í augu þeirra sem fylgja manni gegnum heilu aríurnar og óp- erurnar, þótt maður viti auðvitað að þeir fylgi manni af festu og ör- yggi. Á tónleikasviðinu er nándin meiri og samskiptin við aðra tón- listarmenn mun nánari. Það er kosturinn við tónleikasönginn að skynja þá nánd.“ Að leika og syngja – vá!  Emma Bell syngur aríur og óperettutónlist með Sinfón- íuhljómsveit Íslands á tónleikum í Háskólabíói í kvöld Morgunblaðið/Heiddi Emma Bell „Það er hræðilegt að hafa aldrei horft í augu þeirra sem fylgja manni gegnum heilu óperurnar, … á tónleikasviðinu er nándin meiri.“ TVEGGJA ára rannsókn á safni lát- ins kirkjulistarsafnara, Johns Sisto í Illinois í Bandaríkjunum hefur leitt í ljós að um 1600 verk í safni hans eru þýfi. John Sisto lést árið 2007, og í kjöl- far andlátsins kom á daginn að á heimi hans var listmunasafn sem taldi 3500 gripi. Meðal þeirra voru skjöl rituð af konungum og páfum og forsíða bókar í eiginhandriti Mussol- inis. Talsmaður alríkisrannsóknar- lögreglunnar FBI sagði í blaðavið- tali að verðmæti stolnu munanna væri á bilinu 5–10 milljónir dala, eða um 650 milljónir til 1,3 milljarðar ís- lenskra króna. John Sisto mun hafa stolið öllum mununum á ferðum sínum til Ítalíu, og þangað verður þeim nú skilað aft- ur, að rannsókn lokinni. Ekki verður höfðað sakamál vegna þjófnaðarins. Bíræfinn þjófur Safn kirkjumuna fannst í dánarbúi Þýfi Ýmsir dýrgripir, sem John Sisto stal á Ítalíu, fundust í safni hans. FULLT var út úr dyrum á tón- leikum Skál- holtskórsins og tónlistarmanna Getsem- anekirkjunnar í Berlín um helgina. Eftir flutning Brynj- ólfsmessu eftir Gunnar Þórðarson risu gestir úr sæt- um hrópuðu og klöppuðu tónskáldinu og flytjendum lof í lófa án afláts. Tónleikar Skálholtskórsins á mánudag voru einnig mjög vel sóttir og gestir ákaflega hrifnir af íslensku kórlögunum sem þar voru flutt. Gunnar og Brynjólfur slá í gegn Gunnar Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.