Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 22
22 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009
Sudoku
Frumstig
2
5 7 3 4
6 7
2
3 4 8 2
9 6 5
8 3
6
4 2 1 7 9
3 4
7 8
5 9 1
2 1 9
6 3
1 8
2 8 3
4 9 6 1
7 5 4 8
8 5 1
4 9
8 2 3
6 1
2 5
5 6 3
3
8 7 4
5 9 1 2
8 3 6 5 2 7 4 9 1
7 5 2 4 9 1 6 8 3
1 9 4 3 8 6 2 7 5
6 2 8 7 5 4 3 1 9
3 1 5 9 6 8 7 2 4
9 4 7 1 3 2 8 5 6
4 6 1 8 7 9 5 3 2
5 8 9 2 4 3 1 6 7
2 7 3 6 1 5 9 4 8
8 5 2 4 9 3 1 6 7
7 9 4 1 2 6 3 5 8
3 6 1 8 7 5 4 9 2
5 1 3 9 6 8 7 2 4
4 7 8 2 5 1 6 3 9
9 2 6 3 4 7 8 1 5
1 3 5 7 8 2 9 4 6
6 8 9 5 3 4 2 7 1
2 4 7 6 1 9 5 8 3
1 8 5 9 3 6 7 2 4
2 3 7 5 4 1 6 8 9
6 9 4 7 8 2 1 3 5
4 7 3 2 1 5 9 6 8
9 6 1 4 7 8 3 5 2
8 5 2 3 6 9 4 1 7
3 4 8 6 5 7 2 9 1
5 2 6 1 9 4 8 7 3
7 1 9 8 2 3 5 4 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 29. júní, 180. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Varir hins réttláta vita,
hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra
er eintóm flærð. (Ok. 10, 32)
Víkverji er himinlifandi með þjón-ustuna sem hann fékk í
reiðhjólaversluninni Markinu í Ár-
múla nýlega. Víkverji keypti sér for-
láta hjól þar fyrir rúmu ári og hefur
fengið afbragðsþjónustu upp frá því.
Um daginn bilaði svo hnakkur á reið-
hjóli sonarins og það vantaði lítið
stykki til að kippa málinu í liðinn.
Einn daginn átti Víkverji svo leið
um Skeifuna og brá sér inn á reið-
hjólaverkstæði sem þar er að finna.
Svörin sem fengust þar voru að slíkir
varahlutir væru ekki seldir einir og
sér og því þyrfti að kaupa alla stöng-
ina sem gengur ofan í stellið á hjól-
inu.
x x x
Víkverji var ósáttur við þau svörog því leið og beið og stráksi gat
ekki notað hjólið á meðan. En svo
ákvað Víkverji að rölta inn í Markið
og athuga hvort sömu svör fengjust
þar. Nú er Víkverji ekki þekktur við-
skiptavinur þar á bæ og starfsmenn
vita því ekkert hvort regluleg við-
skipti hafa átt sér stað eða ekki.
En viðmótið var frábært! Starfs-
maðurinn vippaði sér á bakvið og
kom ekki aftur fyrr en eftir nokkra
stund. „Ég kippti þessu af gömlu
hjóli hjá okkur og þú mátt bara eiga
þetta,“ sagði hann svo við Víkverja
og rétti honum stykkið mikilvæga
endurgjaldslaust. Svona viðmót
skiptir afskaplega miklu máli og Vík-
verja kemur ekki til hugar að leita til
annarrar reiðhjólaverslunar með
vandamál sín og viðskipti.
x x x
Víkverji staldraði við sjónvarps-stöðina ÍNN á laugardags-
kvöldið þar sem Icesave-samning-
arnir voru til umræðu. Hvað sem
segja má um Ingva Hrafn og hans
leið til að ræða málin þá vakti þátt-
urinn upp spurningar um af hverju
engir slíkir umræðuþættir eru á
RÚV nú þegar framtíð íslensku þjóð-
arinnar hefur aldrei verið svartari.
Er ekki þörf á að ræða málin á al-
mennilega og ofan í kjölinn í stað
þess að taka Kastljós, eina umræðu-
vettvang sjónvarpsins, að stórum
hluta undir léttmeti og dægur-
málahjal? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 storkin mjólk-
urfita, 4 glöð, 7 vondum,
8 landræk, 9 veggur, 11
mjög, 13 smágrein, 14
styrkir, 15 hirsla, 17
draug, 20 beina að, 22
lítil tunna, 23 bor, 24
hafna, 25 ákveð.
Lóðrétt | 1 sýkja, 2 lítill
bátur, 3 sterk, 4 konur, 5
flennan, 6 pinni, 10
kostnaður, 12 rándýr, 13
óhljóð, 15 álút, 16 auð-
veldi, 18 líffæri, 19 á
sand af peningum, 20
kraftur, 21 svara.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 útrennsli, 8 rukki, 9 geisa, 10 sól, 11 trant, 13
alinn, 15 felga, 18 smell, 21 nót, 22 fitug, 23 argur, 24
blindfull.
Lóðrétt: 2 tukta, 3 efist, 4 negla, 5 leiði, 6 þrot, 7 baun,
12 nóg, 14 lim, 15 fífa, 16 lítil, 17 angan, 18 starf, 19 eng-
il, 20 læra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. Bd3 Bc5 6. Rb3 Be7 7. a4 d6 8.
a5 Rf6 9. O-O O-O 10. Rc3 e5 11.
Be3 Be6 12. Rd5 Rc6 13. c4 Rd7 14.
Dd2 Rc5 15. Bc2 Bxd5 16. exd5
Rxb3 17. Bxb3 Rd4 18. Ba4 b6 19.
Bxd4 exd4 20. Dxd4 bxa5 21. Hae1
Bf6 22. Dd2 Ha7 23. b3 g6 24. He4
He7 25. Hxe7 Bxe7 26. He1 Bf6 27.
c5 Dc7 28. c6 Kg7 29. g3 Hb8 30.
He4 h5 31. Kg2 Db6 32. h3 Dc7 33.
f4 Dd8 34. De3 Dc7 35. g4 hxg4 36.
hxg4 Kf8 37. g5 Bg7 38. De2 Da7
Staðan kom upp í Sigeman-mótinu
sem lauk fyrir skömmu í Málmey í
Svíþjóð. Sigurvegari mótsins, enski
stórmeistarinn Nigel Short (2674),
hafði hvítt gegn sænska kollega sín-
um Emanuel Berg (2610). 39. c7! og
svartur gafst upp enda yrði hann
mát eftir 39… Dxc7 40. He8+.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Að segja sögu.
Norður
♠ÁK5
♥85
♦ÁDG76
♣G74
Vestur Austur
♠3 ♠D4
♥K974 ♥DG1063
♦1093 ♦8542
♣ÁKD52 ♣106
Suður
♠G1098762
♥Á2
♦K
♣983
Suður spilar 4♠.
Sem gjafari opnar suður á 3♠ og
norður hækkar í fjóra. Sjálfgefnar
sagnir, en hið sama verður ekki sagt
um vörnina. Eða hvað? Vestur tekur
þrjá efstu í laufi og þarf nú að spila
fjórða laufinu til að uppfæra ♠D. Er
það svo erfitt?
Ja, er eitthvað sem mælir á móti því
að suður sé með litlu hjónin sjöundu í
spaða, ♥Á blankan og tvo hunda í
tígli? Þá væri ekki gæfulegt að spila
út í tvöfalda eyðu og láta sagnhafa
henda niður tígulhundi heima.
Vörnin brást víða þegar spilið kom
upp í bandarísku landsliðskeppninni.
Ekki þó hjá Boyd og Robinson. Aust-
ur henti ♥G í þriðja hálaufið og vestur
skildi það sem beiðni um lauf áfram.
Þeir félagar kalla með lágum spilum
og því er ♥G frávísun í hjarta, en um
leið tilraun til að segja einhverja sögu.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ást og leikur eru þér efst í huga í
dag. Stundum verður maður þó að standa á
sínu og setja öðru fólki mörk.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þótt allt virðist ganga nokkuð átaka-
laust fyrir sig núna gæti það breyst í einni
svipan ef þú slakar of mikið á.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er ekki gott fyrir heimilislífið
að taka vinnuna með sér heim. Reyndu að
láta orð fylgja athöfn svo allt falli í ljúfa löð.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er eitthvert slen í þér og þú
ættir að geyma erfiðustu verkefnin til betri
tíma. Sýndu samt öllum fyllstu kurteisi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert stoltur af eigin afrekum en
skalt ekki ætlast til að aðrir séu það. Fólki
þykir sannarlega vænt um þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert hugsanlega of nátengdur
vinnu þinni til þess að geta stigið skref aft-
ur á bak og skilið sjálfan þig frá henni.
Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér, það
er ekki gott.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Viðureignin hefur margar lotur og
stigin eru ekki talin fyrr en bjallan glymur
í síðasta sinn. Að öðrum kosti fer allt úr
böndunum hjá þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Til þess að skilja það mál, sem
vefst fyrir þér nú, þarftu að kafa til botns
og velta upp öllum tiltækum staðreyndum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Einungis þeir sem reyna við
erfið verkefni eiga fyllilega eftir að meta
dirfsku þína núna. Gerðu öðrum grein fyrir
því.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu það vera að segja öðrum
stöðugt til syndanna. Vinalegt viðmót þitt
víkur fyrir leitandi vitsmunum. Líttu á
björtu hliðarnar og þá sérðu að margt er í
góðu lagi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hugurinn er á fullu við að
mynda sér skoðanir en munninn ættir þú
að nota til þess að hrósa fólki.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það sem þú gefur af þér verður að
veruleika. En ef þú gefur þér góðan tíma,
ættir þú að finna bestu lausnina.
Stjörnuspá
29. júní 1944
Leyndardómar Snæfellsjökuls,
skáldsaga Jules Verne, kom út
í íslenskri þýðingu, einni öld
eftir að hún var samin.
29. júní 1980
Vigdís Finnbogadóttir, 50 ára
leikhússtjóri, var kjörin forseti
Íslands. Hún hlaut 34% at-
kvæða, Guðlaugur Þorvalds-
son 32%, Albert Guðmundsson
20% og Pétur J. Thorsteinsson
14%. Vigdís var fyrsta konan í
heiminum sem kosin var þjóð-
höfðingi í lýðræðislegum kosn-
ingum. Hún var forseti í sex-
tán ár.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Eyrún Embla og Anton Bragi
Andrabörn og Rakel Ösp Gylfadótt-
ir héldu tombólu í Mosfellsbænum
og söfnuðu 3.100 kr. og færðu
Rauða krossinum ágóðann.
Hlutavelta
Dagný Garðarsdóttir og María
Halldórsdóttir frá Akranesi héldu
tombólu og söfnuðu 4.000 kr. til
styrktar Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra barna.
Hlutavelta
,,ÉG er nýbúinn að gera svo fínt í bílskúrnum að
mig dreymir um að fá borðtennisborð í afmælis-
gjöf,“ segir Viggó. ,,Ef konan gefur mér það ekki
getur verið að ég kaupi það bara sjálfur. Annars
er konan mjög nösk á að finna eitthvað fallegt.“
Viggó segist ekki vera erfiður hvað gjafir snerti.
Honum þykir fátt skemmtilegra en að renna fyrir
lax á sumrin og kæmu gjafir tengdar laxveiði sér
alltaf vel. Inntur eftir því hvernig draumaafmælis-
dagurinn væri svarar Viggó: „Hann myndi byrja á
því að ég svæfi vel út! Síðan fengi ég ekta breskan
morgunmat í rúmið. Á eftir kæmi nudd, heitur
pottur og dekur.“ Síðan myndi Viggó vilja njóta samvistanna með fjöl-
skyldunni, en hann er kvæntur Jarþrúði Ásmundsdóttur og með henni
á hann tvö börn, Gunndóru, sem er eins árs og Ásmund, sem er fimm
ára. Deginum myndi svo ljúka með því að fara út að borða með kon-
unni um kvöldið. Þegar talað var við Viggó um helgina var hann
staddur í Þykkvabæ í brakandi blíðu. Þar var hann í útilegu með fjöl-
skyldunni ásamt stórum hópi fólks. ,,Ef veðrið helst svona gott eyði ég
líklega afmælisdeginum hérna líka. Þá grillum við eitthvað gott um
kvöldið, nautasteik eða lambalæri.“ sigrunerna@mbl.is
Viggó Ásgeirsson markaðsstjóri 37 ára
,,Grilla eitthvað gott“
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is