Morgunblaðið - 29.06.2009, Blaðsíða 2
Vilja ekki tjá sig um póstinn
Allir stjórnarmenn í Lífeyrissjóði Kópavogs fengu tölvupóst frá framkvæmda-
stjóra sjóðsins þar sem hann kvaðst óttast að FME vildi fá að skoða bókhaldið
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
HVORKI Flosi Eiríksson, bæjar-
fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópa-
vogi og stjórnarmaður í LSK, né
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins í Kópavogi og
jafnframt stjórnarmaður í Lífeyris-
sjóði Kópavogs, LSK, vildu í gær tjá
sig um tölvupóstsamskipti milli
stjórnarmanna LSK sem Morgun-
blaðið fjallaði um á laugardag.
Í frétt Morgunblaðsins á laugar-
dag kom fram að tölvupóstur sem
Sigrún Bragadóttir, framkvæmda-
stjóri LSK, sendi Sigrúnu Guð-
mundsdóttur, stjórnarmanni í LSK,
hefði verið sendur öllum stjórnar-
mönnum. Í honum stóð: „Ég hitti
Hjalta endurskoðanda hér niðri áðan
og sagði honum frá þessu. Hann er
hræddur um að þeir birtist og heimti
að skoða bókhaldið á þessu ári og þá
erum við í vanda.“ Pósturinn var ein-
göngu sendur til Sigrúnar Guð-
mundsdóttur en ekki til annarra
stjórnarmanna og biðst Morgun-
blaðið velvirðingar á þessum mistök-
um.
Á hinn bóginn sendi Sigrún fram-
kvæmdastjóri annan tölvupóst,
þennan sama dag, til allra stjórnar-
manna LSK með drögum að grein-
argerð til FME um hvort fjárfest-
ingar sjóðsins samræmdust lögum.
Í póstinn skráði framkvæmda-
stjórinn jafnframt „vangaveltur“ í
fjórum liðum og fjórði töluliðurinn
var svohljóðandi: „Ég er pínulítið
hrædd um að þeir birtist óvænt og
heimti að skoða bókhaldið. Það er
allt rétt sem kemur fram í bréfinu
nema að þann 6. janúar síðastliðinn
lánuðum við bænum aftur 330 millj-
ónir. Heildarskuld bæjarins er því
580 milljónir.“
Flosi sagði í yfirlýsingu frá 21.
júní að gögn hefðu verið „matreidd“
sérstaklega fyrir stjórn sjóðsins en
aðrar upplýsingar síðan kynntar
Fjármálaeftirlitinu. Ómar Stefáns-
son tók undir þá gagnrýni.
Ómar Stefánsson Flosi Eiríksson
„Vangaveltur:
1. Hvers vegna þessi skammi frest-
ur?
2. Góður punktur hjá Ómari, af
hverju er þetta svo óformlegt? Það
koma alltaf svo formleg bréf frá
þeim og tveir starfsmenn undirrita.
3. Eigum við Gunnar að fara aftur
og hitta þá?
4. Ég pínulítið hrædd um að þeir
birtist óvænt og heimti að skoða
bókhaldið. Það er allt rétt sem
kemur fram í bréfinu nema að þann
6. janúar 2009 lánuðum við bæn-
um aftur 330 milljónir. Heildar-
skuld bæjarins er því 580 millj-
ónir.“
Úr pósti til stjórnar
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HJALTI Sæmundsson, aðalvarð-
stjóri á Vaktstöð siglinga, segir að
strandveiðar muni hafa í för með sér
mikið álag á hans fólk. Í stað þess að
fjölga vaktmönnum þar sé fyrirhugað
að fækka fólki. „Við erum björgunar-
miðstöð hafsins í kringum Ísland og
því er þetta stórhættulegt.“ Ráð-
herrar og stjórnmálamenn segist
e.t.v. bera ábyrgð en álagið hvíli á
starfsmönnum Vaktstöðvarinnar.
Þeir taki ástandið mjög nærri sér.
Enginn sjómaður fórst í fyrra
Hjalti bendir á að mikill árangur
hafi náðst í öryggismálum á hafi úti
og á síðasta ári hafi það gerst, líklega í
fyrsta sinn í Íslandssögunni, að eng-
inn sjómaður hafi farist. Margvíslegir
þættir hafa stuðlað að þessum góða
árangri eins og stórbættur búnaður
og menntun, forvarnir, framlag
björgunarsveita
og Landhelgis-
gæslu ásamt
starfinu á Vakt-
stöðinni.
„Við erum með
miklu meira eftir-
lit með bátum og
skipum en flug-
stjórn í kringum
flugið. Að meðal-
tali eru um 400
skip og bátar á sjó og verða vænt-
anlega 5-600 þegar strandveiðar
komast í gang. Við þurfum að fylgjast
náið með öllum þessum flota. Hér eru
eingöngu þrír menn á vakt og nú á að
fækka þeim um einn. Það segir sig
sjálft að ef Vaktstöð siglinga getur
ekki unnið af fullum krafti og einurð
mun eitthvað undan láta.“ svanbjorg-
@mbl.is
Öryggi á hafi í hættu
Hjalti
Sæmundsson
Strandveiðar auka álagið en fyrirhugað
er að fækka fólki á Vaktstöð siglingaBaldur Jónsson pró-fessor og málfræð-
ingur lést í gær í
Reykjavík eftir frem-
ur skammvinn veik-
indi. Baldur fæddist
20. janúar 1930 á
Efri-Dálksstöðum á
Svalbarðsströnd,
S-Þingeyjarsýslu, son-
ur Elínbjargar Bald-
vinsdóttur húsfreyju
og Jóns Þorlákssonar
bókbindara. Baldur
lauk stúdentsprófi frá
MA 1949 og meist-
araprófi í íslenskum
fræðum frá HÍ 1958 með málfræði
sem kjörsviðsgrein. Þá hélt hann
utan og lagði stund á nám í
germönskum málvísindum við Uni-
versity of Michigan.
Að loknu námi starfaði Baldur
lengstum sem kennari og prófess-
or í íslenskri málfræði við Háskóla
Íslands. Hann stjórn-
aði fyrstu
máltölvunar-
rannsóknum hér á
landi á árunum 1973
til 1980 og stóð fyrir
tölvuvinnslu orð-
stöðulykla að nokkr-
um íslenskum ritum;
þar á meðal eddu-
kvæðum Konungs-
bókar 1984 og ís-
lensku Biblíu-
útgáfunni frá 1981.
Baldur beitti sér fyrir
stofnun Íslenskrar
málstöðvar 1985 og
Málræktarsjóðs 1991 og veitti
hvoru tveggja forstöðu. Auk fræði-
starfa var honum umhugað um ís-
lenskt málfar og málrækt almennt
og mörgum eru minnisstæðir út-
varpsþættir hans um daglegt mál.
Baldur er höfundur fjölmargra ný-
yrða, m.a. í flugmáli, málfræði og
tölvutækni, og beitti sér fyrir
stofnun og starfsemi orðanefnda í
ýmsum starfsgreinum. Hann
gegndi fjöldamörgum félags- og
trúnaðarstörfum og eftir hann
liggja fjölmargar ritgerðir, grein-
ar, bækur og þýðingar á alþýðleg-
um fræðiritum.
Baldur var íþróttamaður á yngri
árum og stundaði einkum frjálsar
íþróttir með Þór á Akureyri og
fimleika við Háskóla Íslands. Hann
gekk við fjórða mann á skíðum
norður Kjöl páskana 1951 en á
þeim árum voru slíkar ferðir fátíð-
ar.
Hann hlaut ýmsar viðurkenn-
ingar og var sæmdur riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
málrækt 17. júní 1991.
Eftirlifandi maki Baldurs er
Guðrún Stefánsdóttir fjölmiðla-
fræðingur. Þau eignuðust þrjá
syni, Jón, lækni, Stefán, látinn og
Ólaf, lækni.
Andlát
Baldur Jónsson prófessor
ÖKUMAÐUR kastaðist út úr bíl
sínum eftir bílveltu á Þingvallavegi á
Mosfellsheiði í gær. Slysið varð
skammt vestur af Gljúfrasteini á sjö-
unda tímanum. Ökumaðurinn virtist
ekki hafa verið í bílbelti og kastaðist
því út úr bílnum.
Hann var töluvert slasaður en þó
með meðvitund þegar lögreglu og
sjúkralið bar að. Ökumaðurinn var
fluttur á slysadeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi.
Þingvallavegi var ekki lokað
vegna slyssins en töluverðar tafir
urðu á umferð vegna þess.
Bílvelta varð á
Þingvallavegi
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, lenti á bílastæði kirkjunnar í
Þorlákshöfn í gærkvöldi. Að sögn
talsmanns Gæslunnar tafðist þyrlan
við vegaeftirlit og vegna slæms
skyggnis yfir Hellisheiðina var
ákveðið að lenda á bílastæði kirkj-
unnar um stund. Tíminn var notaður
til að bæta bensíni á þyrluna áður en
haldið var áfram til Reykjavíkur.
jmv@mbl.is
Þyrla lenti á
kirkjuplani
HINN árlegi Tungufljótsróður Kayakklúbbsins
fór fram um helgina. Sextán ræðarar tóku þátt
að þessu sinni og var keppt í fjórum riðlum.
Ragnar Karl Gústafsson sigraði, Aðalsteinn
Möller lenti í öðru sæti og Thomas Altmann í því
þriðja.
Á myndinni má sjá Ragnar Karl taka fram úr
Aðalsteini Möller á síðustu metrunum og tryggja
sér þannig sigurinn í úrslitarimmunni.
BARIST VIÐ STRAUM Í BLÍÐSKAPARVEÐRI
Ljósmynd/Guðmundur Tómasson