Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 27

Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 27
3. Lína langsokkur, Anna og Tommi Úr myndunum um Línu langsokk eftir sögum Astrid Lindgren frá 1969 og 1979 Lína langsokkur hlýtur að teljast einhver skemmtilegasti félagsskapur sem völ er á, enda allt mögulegt sé maður í slagtogi með henni. Þó að Tommi og Anna séu oft og tíðum frekar ferköntuð og lítið til í tuskið tekst Línu að fá þau með sér í svaka- legar svaðilfarir. 4. Riddarar hringborðsins Úr Monty Python and the Holy Grail frá 1975. Leikstjórar: Terry Gilliam og Terry Jones Þetta hlýtur að teljast fyndnasti fé- lagsskapurinn af þeim öllum, enda fá- ir hópar sem bjóða upp á að ferðast á hestbaki við kókoshnetuundirleik, bardaga við útlimalausan riddara og samskipti við riddarana sem segja „NÍ!“. Hópurinn samanstóð af þeim Sir Lancelot (John Cleese), Arthúr konungi (Graham Chapman), Sir Ekkert-svo-hugrakka-Robin (Eric Idle), hinum skírlífa Sir Galahad (Michael Palin) og Sir Bedevere (Terry Jones). 5. Ocean’s 11 Úr samnefndri mynd frá 2001. Leikstjóri: Steven Soderbergh Ef Reservoir Dogs kæra sig ekki um vinskap manns mætti leita á náðir annarar ekki síður töffaralegrar klíku, drengjanna hans Danny Ocean. Sjaldan hafa rán og aðrir glæpir verið jafnflottir og í þeirra meðförum. Svo er fallegt hvað hópurinn minnir á Be- netton-auglýsingu, þar sem allir kyn- þættir og kynslóðir eru jafnréttháar. Það vantar bara stelpurnar! 6. Goonies Úr samnefndri mynd frá árinu 1985. Leikstjóri: Richard Donner Réttið upp hönd ef ykkur langaði í fjarsjóðsleit eftir að hafa séð The Goonies! Einhver skemmtilegasta ævintýramynd allra tíma sagði frá hópnum góða sem hélt á vit ævintýr- anna í leit að sjóræningjaskipi. 7. The Regulators Úr Young Guns frá árinu 1988. Leikstjóri: Christopher Cain Þeir voru flottir á flótta undan rétt- vísinni, Billy the Kid og félagar hans í Young Guns. Það hefði sko ekki verið dónalegt að fá að ríða berbakt með þeim Emilio Estevez, Kiefer Suther- land og Dermot Mulroney um sléttur Nýja-Mexíkó undir lok þarsíðustu aldar. 8. Drapes Úr Cry Baby frá 1990 eftir John Waters Líkt og í Grease tilheyrði Drapes- hópurinn flottari skólafélögunum, og þau voru sko svöl! Töffarinn með tárið, hann Johnny Depp, spjallþáttadrottningin Ricky Lake og klámmyndaleikkonan Tracy Lords fóru fyrir flokknum misfríða sem hélt til heima hjá Iggy Pop. 9. Samúræjarnir sjö Úr Shichinin no samurai frá árinu 1954. Leikstjóri: Akira Kurosawa Ekki bara flottir heldur líka með hjartað á réttum stað. Samúræjarnir sjö kenna þorpsbúum ýmis fanta- brögð til að verjast yfirvofandi árás- um ræningjahópa sem herja á þorpið. Hver vill ekki kunna vel valin bar- dagabrögð ef á þarf að halda? 10. X-Men Úr X-Men myndunum. Leikstjóri: Bryan Singer Stökkbreyttar ofurhetjur gætu ver- ið fyrirtaksfélagsskapur, allavega fjöl- breyttur. Sérstaklega væri gaman að fá að velja sér sína eigin ofurkrafta. Til þess þarf maður þó að vera búinn und- ir algera útskúfun úr samfélaginu. En hverjum er ekki sama þegar Wol- verine (Hugh Jackman) og Storm (Halle Berry) eru vinir manns? MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009 ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR UPPLIFÐU FYNDNASTA FERÐALAG ALLRA TÍMA !! Frábær grínmynd í anda Shaun of the Dead með Emmy verðlaunahöfunum James Corden og Mathew Horne úr Gavin & Stacey þáttunum. Frábær ævintýra gamanmynd í anda fyrri myndar! 750 kr. almennt 550 kr. börn 750 kr. almennt 550 kr. börn ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR UPPLIFÐU FYNDNASTA FERÐALAG ALLRA TÍMA !! HHHH “Stærri, fyndnari, flottari ... Ef þú fílaðir fyrstu myndina, þá áttu eftir að dýrka þessa!” T.V. - Kvikmyndir.is Frá leikstjóranum Michael Bay kemur ein flottasta HASARMYND SUMARSINS Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt stórleikurunum Shia LaBeouf og John Torturo ásamt kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox kemur FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI ! POWER SÝNIN G Á STÆ RSTA TJALD I LAND SINS MEÐ D IGITAL MYND OG HL JÓÐI KL. 10 -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó Gullbrá og birnirnir 3 kl. 3:10 LEYFÐ SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ SÝND Í SMÁRABÍÓ OG HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓ OG HÁSKÓLABÍÓ Transformers DIGITAL kl. 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára Ghosts of girlfriends past kl. 5:45 - 8 B.i. 7 ára Transformers DIGITAL kl. 5 - 8 - 11 Lúxus Terminator: Salvation kl. 10:30 B.i.12 ára Lesbian Vampire Killers kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Night at the museum 2 kl. 3:30 LEYFÐ Year One kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Angels and Demons kl. 5 B.i.14 ára Sýnd kl. 4 Sýnd kl. 6 og 8Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 10 Sýnd kl. 4, 7 og 10(Powersýning) Ertu að taka þátt í ljósmyndakeppni mbl.is & canon? Prentaðu myndina þína á striga fyrir aðeins 4.950 kr. með heimsendingargjaldi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.