Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 19.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið
með sköttum til Alicante. Sértiboð 1.,
8., 15. og 22. júlí. Aðeins örfá sæti.
Allra síðustu sætin!
Alicante
í júlí
frá kr. 19.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í
sólina við Alicante í júlí á hreint ótrúlegu
verði. Gríptu tækifærið og tryggðu þér
flugsæti á frábærum kjörum.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
Á MÓTI niðurskurði á framlögum
ríkisins til samgöngumála koma út-
boð tveggja verka í einka-
framkvæmd, en um er að ræða
Vaðlaheiðargöng og samgöngu-
miðstöð í Reykjavík.
Kristján Möller samgöngu-
ráðherra segir að þessi tvö verk
séu til skoðunar því þau hafi verið
komin mun lengra en til dæmis
áframhaldandi tvöföldun Suður-
lands- og Vesturlandsvegar.
„Skipulagsmál og undirbúningur
vegna Suðurlands- og Vesturlands-
vegar er ekki kominn eins langt,“
segir Kristján spurður hvers vegna
áherslan sé lögð á þessi tvö verk-
efni, en nokkur krafa hefur verið
um tvöföldun Suðurlandsvegar með
það fyrir augum að auka umferð-
aröryggi.
Grunnvinnu lokið
„Við búum að því varðandi
Vaðlaheiðargöng að fyrirtækið
Greið leið [einkahlutafélag á Ak-
ureyri] hefur unnið að undirbúningi
undanfarin fimm til sex ár. Það var
búið að kosta jarðvegskannanir og
alla vinnu varðandi skipulag vegna
Vaðlaheiðarganga,“ segir Kristján.
Hann segir að af hálfu Flugstoða
hafi verið unnin ákveðin þarfa-
greining og grunnvinna vegna sam-
göngumiðstöðvar í Reykjavík. „Við
bíðum bara eftir grænu ljósi frá
borginni varðandi skipulag, hvar
við megum byggja og hvernig.“
Kristján segir að það sama gildi
um samgöngumiðstöðina og Vaðla-
heiðargöng, ríkið búi þar að ákveð-
inni grunnvinnu sem hafi verið
unnin.
Lífeyrissjóðirnir munu líklega
koma að fjármögnun þessara verk-
efna, en að sögn Arnars Sig-
urmundssonar, formanns Lands-
samtaka lífeyrissjóða, eru
lífeyrissjóðirnir tilbúnir að leggja
90-100 milljarða króna á næstu
fjórum árum í opinberar fram-
kvæmdir með lánum til ríkisins eða
lánum til einkaaðila með rík-
isábyrgð. Lífeyrissjóðirnir líta á
þetta sem verðuga fjárfestingu, en
um er að ræða mikla örvun fyrir
atvinnulífið.
Fjármálaráðuneytið hefur skipað
sérstaka nefnd sem á að annast
viðræður við lífeyrissjóðina vegna
aðkomu þeirra að opinberum fram-
kvæmdum.
Kristján segir að þrátt fyrir nið-
urskurð verði árið í ár „annað
mesta framkvæmdaár Íslandssög-
unnar“. Kristján vísar til þess að
útgjöld til vegamála í ár verði 1,6
prósent af vergri landsframleiðslu.
Af stórum verkefnum sem unnið
er að má nefna Bolungarvíkurgöng
og Héðinsfjarðargöng, en þeim á
að ljúka um mitt næsta ár, að sögn
Kristjáns. Af stórum vegafram-
kvæmdum má nefna framkvæmdir
á Vopnafjarðarheiði, við Ísafjarð-
ardjúp, Hófaskarðsleið, Suður-
strandaveg og Bræðratunguveg
með nýrri Hvítárbrú.
Niðurskurður árið 2010
Á næsta ári á að skera framlög
til samgöngumála niður um rúma
átta milljarða. „Miðað við þessar
tölur verður úr tæpum tíu millj-
örðum að spila á næsta ári,“ segir
Kristján. Hann segist bjartsýnn á
að ljúka undirbúningi, hönnun og
skipulagsmálum vegna tvöföldunar
Suðurlandsvegar á næsta ári.
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Umferðaröryggi Samgönguráðherra segist bjartsýnn á að ljúka undirbúningi, hönnun og skipulagsmálum vegna
tvöföldunar Suðurlandsvegar á næsta ári, en þá á að skera framlög til samgöngumála niður um rúma átta milljarða.
Göngin framar í röðinni
en tvöföldun þjóðvega
Þar sem grunnvinnu vegna jarð-
ganga og samgöngumiðstöðvar
er lokið hafa þau verkefni for-
gang. Framlög til samgöngumála
verða skorin niður um átta millj-
arða króna á næsta ári.
Vaðlaheiðargöng fara í einkaframkvæmd en ekki tvöföldun Suðurlandsvegar
UNGI pilturinn sem lenti ofan í
sprungu í Geitlandsjökli á laugardag
handarbrotnaði í slysinu og lunga
féll saman. Hann liggur enn á
sjúkrahúsi en er að jafna sig.
Pilturinn, sem er fimmtán ára
gamall, var í skemmtiferð með fjöl-
skyldu og vinum og var við annan
mann á vélsleða.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi, sem rannsakar slysið, er ekki
enn að fullu ljóst hvers vegna sleð-
anum var ekið á undan öðrum sleð-
um og inn á sprungusvæði.
Rannsaka tildrögin
Slysið átti sér stað rétt hjá kletti í
jöklinum sem heitir Hamarinn, en
hann er um fjóra kílómetra frá skál-
anum á Kaldadal þar sem venjulega
er lagt upp á jökulinn. Lögregla seg-
ir margt enn óljóst um tildrög þess
að drengurinn féll ofan í sprunguna.
Þá sé ekki ljóst hvort pilturinn hafi
ekið snjósleðanum, en hann er ekki
nógu gamall til að öðlast réttindi á
slík tæki.
Ásgeir Sæmundsson björgunar-
sveitarmaður sem tók þátt í björg-
uninni segir piltinn hafa gert rétt
með því að stíga af sleðanum og
kanna umhverfið þegar hann upp-
götvaði að hann var kominn inn á
varhugavert sprungusvæði. Svo
virðist sem hann hafi bara gengið
nokkur skref áður en jökullinn
gleypti hann.
Gangi í línu
Ásgeir segir að fólk sem gengur á
jökli eigi að sjálfsögðu að binda sig
saman, í því felist mikið öryggi. Falli
einn ofan í sprungu geti hinn varið
hann falli og jafnvel bjargað honum
aftur upp úr. Hann segir jökulinn
hafa verið blautan og erfiðan enda
sólbráð mikil. „Staðreyndin er hins
vegar sú að jöklar eru alltaf var-
hugaverðir og það eru vélsleðar
líka.“ svanbjorg@mbl.is
Handarbrotnaði og lunga
féll saman við fall í sprungu
Var á vélsleða sem var ekið inn á varasamt sprungusvæði
Til bjargar TF-LÍF náði í piltinn af
jöklinum á laugardaginn.
LÖGREGLAN á Suðurnesjum
handtók á laugardag karlmann
sem hafði veist að lögreglumönnum
eftir að þeir tóku hund úr hans
vörslu.
Eigandinn hafði farið í útilegu á
föstudag og skilið hundinn eftir í
bílskúr í Reykjanesbæ. Er lög-
reglan kom í bílskúrinn blöstu við
ömurlegar aðstæður. Hvorki var
fóður né vatn hjá hundinum og
hland og saur á gólfi en hundurinn
mun alltaf hafa verið hafður í bíl-
skúrnum og honum lítið sinnt, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu.
Lögreglan tók hundinn í vörslu
sína en er eigandinn kom heim úr
útilegunni kvartaði hann við lög-
reglu um að hundurinn hefði verið
fjarlægður. Reynt var að útskýra
málið fyrir honum en hann brást ill-
ur við og réðst á lögregluna. Tveir
lögreglumenn meiddust í átök-
unum og þurftu að leita læknis.
Manninum hefur verið sleppt en
héraðsdýralæknir og Umhverfis-
stofnun hafa málið til rannsóknar.
Hundeigandi van-
rækti hund sinn og
réðst á lögreglu
KARLMAÐUR á
þrítugsaldri var
handtekinn í
fyrrinótt eftir að
lögreglu tókst að
stöðva slagsmál.
Maðurinn hafði
þá sparkað í
mann er lá í jörð-
inni. Atburð-
urinn átti sér
stað á Sólseturshátíðinni í Garði.
Að sögn lögreglu var manninum
sleppt eftir yfirheyrslu. Fórn-
arlambið hlaut minniháttar meiðsl
og þurfti ekki á aðhlynningu að
halda eftir árásina.
Handtekinn eftir
áflog í Garði
MIKIL ölvun var í umdæmi Selfoss-
lögreglu í fyrrinótt. Slagsmál brut-
ust m.a. út á Eyrarbakka og Hvols-
velli og gistu tveir fangaklefa á
Selfossi vegna þeirra en einn á
Hvolsvelli.
Tildrög slagsmála eru ekki ljós
en að sögn varðstjóra var mikið um
að fólk hafi verið að atast í næsta
manni. Líkamsárás var kærð í kjöl-
far slagsmálanna á Eyrarbakka. Sá
sem kærði reyndist hinsvegar
stjórnlaus í skapinu og var hann
annar þeirra sem fékk að sofa úr
sér í fangaklefa lögreglunnar á Sel-
fossi.
Pirringur á Eyrar-
bakka og Hvolsvelli
Í upphafi ársins var gert ráð fyrir
20,9 milljarða króna framlagi rík-
isins til stofnkostnaðar í vegagerð.
Vegna niðurskurðar lækkaði upp-
hæðin í 17,5 milljarða króna.
Vegagerðin var búin að bjóða út
12 verk vegna vegaframkvæmda á
þessu ári. Áætlaður verktaka-
kostnaður vegna þessara útboða
var 5,2 milljarðar en samanlögð
upphæð verksamninga var 3,2
milljarðar króna. „Verk sem við vit-
um að voru komin í ferli voru til
dæmis Arnarnesvegur, Reykjar-
braut í Húnavatnssýslu. [...] Á
þessu ári voru komin á dagskrá í
útboðsröð fyrsti áfanginn við tvö-
földun Suðurlandsvegar, seinni
áfangi Suðurstrandarvegar og ým-
is fleiri verkefni,“ segir Kristján
Möller samgönguráðherra.
Þremur verkefnum í útboðsferli,
sem búið var að opna tilboð í,
verður líklega að fresta vegna
sparnaðar. „Það er Álftanesvegur,
Laxárdalsvegur og ný brú á þjóð-
vegi 1 á Ystu Rjúkanda [Norður-
Múlasýslu]. Það er ekki klárt hvort
af þeim verkefnum verður,“ segir
Kristján.
Hvaða verkefnum verður frestað?