Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Page 6

Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Page 6
4 NÝTT KVENNABLAÐ NANNA ÓLAFSDÓTTIR, bankaritari: SAMTÖK Oft höfum við kvenfólkið fengið að kenna all óþyrmilega á því, hversu miklu við höfum tap- að vegna samtakaleysis oklcar. Á þessum tímum er það aðeins eitt, sem tek- ið er gilt, þegar fólk reynir að bæta kjör sín, og það eru samtökin. Þegar fjöldinn knýr á dyr hinna allsráðandi og krefst réttar síns, er eng- inn sem megnar að skella skollaeyrum við kröf- um hans, þegar til lengdar lætur. Samtök í ein- hverri mynd eru okkur brýn nauðsyn, jafnvel þó að undirtektir starfsmannafélags okkar séu í ágætu lagi, — svo langt sem þær ná. Oft vant- ar ekki vilja þeirra til þess að fá leiðrétt mál okkar, en framkvæmdirnar bila. Það má líka líta á þá hliðina, að kauphækkunarumleitanir — og þá sérstaklega til handa kvenfólki — skapa ekki vinsældir hjá yfirmönnunum, svo að ef til vill má telja aðgerðarleysið eðlilegt. Hvar sem við stöndum í mannfélagsstiganum og hvert sem hugur okkar leitar í þjóðmálum, hljótum við þó alltaf að standa sem eínn mað- ur í baráttu okkar fyrir raunverulegu jafnrétti í atvinnu- og launamálum. Við þekkjum það allar, skrifstofustúlkurnar að minnsta kosti, að þegar um vel launaðar stöður hjá fyrirtækjum þeim, sem við vinnum hjá, er að ræða, lætur sér enginn til hugar koma, að þær stöður séu jafnt fyrir okkur eins og karlmennina, sem vinna með okkur. Nei, ónei, það er rétt sama hvort samstarfsmaðurinn er slyngur starfsmað- ur eða aumasti labbakútur, hann á fyrsta rétt- inn til lausu stöðunnar, með örfáum undantekn- ingum þó. Að maður minnist nú ekki á það smá- atriði, að enginn karlmaður er svo lélegur að hann fari ekki upp fyrir kvenfólkið í launum, á skömmum tíma. Þegar kona kernst í sömu laun og karlmenn er það ekki fyrr en eftir tugi ára starf hjá stofnuninni, en komizt karlmaður ekki í lífvænleg laun eftir 8—10 ára þjón- ustu, er hann annað tveggja, langt fyrir neðan meðallag, sem starfsmaður, eða einstök gufa við að biðja um kauphækkun. Því að svo hast- arlegt sem það annars kann að virðast, er dugnaður í þeirri grein oft miklu vænlegri til árangurs en góðir hæfileikar, það er að segja þegar um karlmenn er að ræða. Þegar kvenfólk fer fram á sömu laun er það sagan, sem flestar GUÐLAUG SÆMUNDSDÓTTIR: Hækkar sunna, hírnar brá, hlíðar blómum skarta, vorið kinnum vekur á vonarljómann bjarta. Syngur fugl í laufgum lund, lækir skoppa, hjala, unaðsleg er árdagsstund, inn til fjalladala. þekkja, bláköld neitun eða þrotlausar vífilengj- ur. Ef við ættum samtök, sem ekki hefðu nema hálfan styrkleik þeirra samtaka vinnuveitenda okkar að útiloka okkur frá sömu kjörum og samstarfsbræðurna, væri okkur borgið. En því miður, við höfum engin samtök og við erum svo þolinmóðar, að aðdáun hlýtur að vekja. Við bíð- um og bíðum eftir að hnossið verði rétt okkur upp í hendurnar af pólitískum samherjum okk- ar, hverjir sem þeir kunna að vera, — en kona, líttu í kringum þig, líttu til hægri og vinstri, hvoru megin, sem þeir menn kunna að vera. sem þú styður til valda og athugaðu hvað þeir gera fyrir þig. Eg veit að mörg ykkar álítið stjórnmál vera einkamál karlmannanna og ef við athugum tölu þeirra málefna, sem komast í framkvæmd og beinlínis varða konurnar sem slíkar, þá er sú niðurstaða ekki alveg út í hött. Eitt stórmál, nýafgreitt frá Alþingi, mun þó hafa verulega þýðingu fyrir kjör kvenna, ef þær vilja notfæra sér það. Á ég þar við lög um laun starfsmanna ríkisins. Mikilvægasta atriðið í þeim lögum er ákvæðið um jafnrétti kynjanna til hinna betur launuðu starfa og að konur skuli njóta sömu aldurshækkana og karlmenn. Ennþá er þetta að vísu pappírsréttur, því að fram- kvæmd launalaganna er þann veg, að þeir, sem ber skylda til að framfylgja þeim, þverbrjóta þetta ákvæði. Til þess eru lögin að þeim sé hlýtt og það mun eiga að ná jafnt til forstöðumanna ríkisstofnananna, sem annara þegna. Mér þykir næsta ótrúlegt að shk lagabrot fáist ekki leið- rétt fyrir dómstólunum, ef það væri reynt.

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.