Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Síða 12

Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Síða 12
10 NÝTT KVENNABLAÐ Mermingar- og minningarsjóður kvenna Þann 27. september, fyrir þremur árum, af- henti dóttir Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, Laufey Valdimarsdóttir, Kvenréttindafélagi íslands 2000 krónur, sem varið skyldi til stofnunar sjóðs, er bæri heitið: Menningar- og minning- arsjóður kvenna. Með þessu kvaðst hún vera að uppfylla ósk og koma í framkvæmd hug- mynd móður sinnar, sem oft hefði haft á orði hve mikil þörf væri fyrir slíkan sjóð til að styrkja efnalitlar, gáfaðar stúlkur til náms. Sjóður þessi er nú stofnaður og þegar orðinn meira en 25 þúsund krónur. Á öðrum stað í þessu blaði verður sagt nánar frá tilgangi hans og tekjuöflun samkvæmt skipulagsskrá, er sam- þykkt var af fulltrúaráðsfundi Kvenréttindafé- lagsins. Skal því ekki farið nánar úti það hér. Flestum, ef ekki öllum, mun við íhugun vera ljóst, að ríkjandi hugsunarháttur og þjóðfé- lagshættir gera stúlkum mun erfiðara fyrir en piltum, að stunda langskólanám og leita sér mannveru, er þreyta eða sjúkleiki lagðist að. En er svefn var sígin á brár barnanna, bar eigi ósjaldan við, að Kristveig legði leið sína að beði einhvers heimamanns, er elli, sjúkdómar eða harmar þjáðu. Þar þurfti hún að hugga eða hjúkra áður en hún ynni sjálfri sér hvíldar, hvort sem í hlut átti ættingi eða óskyldur, ung- ur eða ellihrumur. Hins vegar hélt hún því lítt á lofti, þótt hún sjálf væri eigi heil heilsu, en gerði þar jafnan minna úr en vert var. Mörg hin síðari ár gat hún aldrei á heilli sér tekið. Þó var það sem áður, umhyggjan fyrir annara högum, sem hún bar fyrir brjósti, en mælti fátt um sína vanheilsu, þótt aðspurð væri. Þótt öllum væri kunnugt hversu sjúk hún var, vonuðu allir vinir og ættingjar, að ekki væri liðið að leiðarlokum. Því brá oss öllum, er oss barst fregnin um andlát Kristveigar og urðum harmi lostin. En í raun og veru ber oss að fagna og þakka. Oss ber að fagna því, að nú er andi hennar laus úr viðjum hins þjáða líkama. En hins vegar megum vér þakka að hafa orðið þess aðnjótandi, að verða samferðamenn henn- ar, sem alla ævi var þess megnug að veita öðr- um af kærleika sínum, Iireinleika og hetjuluntí. Svafa Þorleifsdóttir. framhaldsmenntunar, þótt þær nú hafi sama rétt til skólavistar. Það þarf því ekki að draga í efa að Mennigar- og minningarsjóður kvenna mun hvarvetna mæta vinsældum og skilningi og verða vel til féfanga. Yfir hugmyndinni sjálfri er svo mikil reisn og glæsilegur hug- sjónabragur, að hún má á sína vísu teljast tákn- ræn fyrir þann frelsisfögnuð og dáðadrauma, sem nú fylla hugi allra sannra íslendinga. f sambandi við sjóðstofnun þessa er okkur ljúft og skylt að minnast með fáum orðum frú Bríetar Bjarnhéðinsd., sem allra kvenna mest og bezt barðist fyrir aukinni menntun kvenna og samvinnu þeirra í milli. Til þess að ná til allra kvenna í landinu gaf hún út Kvennablaðið í 25 ár. Hóf blaðið göngu sína 1895. Það átti mikl- um vinsældum að fagna og var efni þess fjöi- breytt. Frú Bríet skrifaði mikið í blaðið, en auk þess skrifuðu nokkrar konur í það og einstöku karlmenn. Blaðið f jallaði um skólamál og félaga- starfsemi innanlands og utan, kvenréttindamál, um skyldur konunnar og barnauppeldi, búska;.) og heimilisstjórn. Flutti myndir af merkum konum og æfiágrip þeirra. Þar voru eldhúsbálk- ar og góð ráð. Þýddar sögur og frumsamdar op; íslenzk og þýdd kvæði. Eg ætla ekki að telja upp fleira, en hvetja ungar stúlkur og konur til þess að lesa Kvennablaðið (sem nú er svo kall- að), eg skil varla að þeim finnist ekki sá lestur borgi sig vel. Frú Bríet ferðaðist víða um land, þó erfiðar væru samgöngur. Hún flutti fyrir- lestra og var oft rætt um efni þeirra á eftir. Fyrirlestrarnir voru víðast hvar vel sóttir. Marga fýsti að sjá og heyra ritstjóra Kvenna- blaðsins tala. Ilún var búin að undirbúa jarð- veginn og vinna traust og álit margra kvenna. Hún kom, sá og sigraði. Mörgum fannst að hér væri á ferð óvenjuleg kona, aðsópsmikil og mælsk, gáfuð og menntuð og kjarkmikil, sem lét ekki allt fyrir brjósti brenna. Hún hvatti konur til starfa. Eggjaði þær til að berjast sjálfar fyrir jafnrétti sínu. Ekkert minna en fullt pólitískt jafnrétti gætu þær sætt sig við. Sama rétt til skólanáms og atvinnu- og kosn- ingarrétt og kjörgengi til Alþingis til jafns við karlmenn. Allir fundu að frú Bríet talaði eins og sá sem vald hafði. Margar konur snérust til fylgis vio hana og veittu henni brautargengi. Þær skildu að hún var ekki að vinna fyrir sig, heldur alla kvenþjóðina, hún vildi frelsi, jafnrétti og

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.