Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Blaðsíða 15

Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Blaðsíða 15
NÝTT KVENNABLAÐ 13 kennt okkur 300 orð í kínversku — hljóðfræðis- lega — á þrem mánuðúm. Okkur dreymdi auð- vitað ekki um, að geta lært að lesa eða skrifa þetta erfiða mál. Það var „mandarín“-málið, sem hún kenndi okkur, en það er nú kallað „al- gilda málið“ í Kína. „Tjing so“ (fáið ykkur sæti), sagði frú Quo og „ding ti ti ti hong hau“ (Það er gott veður í dag) og hún leiddi okkur inn í völundarhús kín- verskunnar með mikilli lægni. Samt vorum við venjulega þreyttar þegar kennslustundin var á enda og það lifnaði yfir okkur, þegar Madame sagði við systurdóttur sína, Doris Tan, gull- fallega sextán ára blómarós, „djo lau matsja tju ta“, sem þýðir „segðu þjónustustúlkunni að færa okkur te“ .... og gömul ,,amah“ kom þá hoppandi inn með stóra tekönnu, hneygði sig fyrir okkur og skenkti teið. Byrjaði nú mikill kliður bæði á ensku og kínversku. „Ni naj dou na e zong zu“, sem þýðir „hvaða bók heldur þú upp á“. Hvað er þetta — við skildum það! Hún var góður kennari hún frú Quo. Og hvað henni þótti gaman að kenna okkur málið sitt. Eg kynntist frú Quo á skrifstofu kínversku hjálparstarfseminnar í Santa Barbara, en sú starfsemi hefir gert mikið gagn og sent á þrem árum 27.000 dollara til hjálpar kínverskum börnum. Ilver einasti eyrir, sem inn kemur i þessari hjálparstarfsemi er sendur beint til frú Chiang til Chungking, en hún úthlutar pening- unum til barnaheimilanna, sem hún hefir umsjá með. Kostnaðurinn við hjálparstarfsemina er enginn, þar eð allir gefa starf sitt án endur- gjalds og jafnvel leiga skrifstofunnar er borguð af einum meðlimanna. Hjálparstarfsemin er kölluð „Dollari á mánuði handa Kína klúbb“. (One Dollar a month for China Club), en hver meðlimur skuldbindur sig til að láta af hendi einn dollara á mánuði hverjum. Nú eru meir en 600 meðlimir í klúbbnum og meðlimatalan allt- af að aukast. Sumir meðlimanna gefa miklu meir; t. a. m. óperusöngkonurnar Lotte Lehman °g Ganna Walska, að eg nú ekki tali um allar þær stórríku konur, sem eiga heima í Santa Barbara og bera starfsemina fyrir brjósti. For- maður klúbbsins og stofnandi heitir Gladys Drake. Ástralíukona, indælismanneskja og mik- ilsmetin í Santa Barbara. Varaformaður var frú Harrison King, sem átti heima í Kína í 20 ár og varð að flýja þaðan undan Japönum. Hún er vinkona frú Chiang og sat brúðkaup hennar og Chiang Kaj-shek’s á árunum í Shanghai. Þessar ágætu konur hafa verið og eru óþreytandi í starfi sínu að safna peningum handa hungruðu kínversku börnunum. Skrifstofa klúbbsins er í miðjum Kínabæn- um í Santa Barbara og öll húsgögn kínversk, lánuð klúbbnum af Kínverjum í bænum og margir munirnir dýrgripir hinir mestu; þar á meðal stórt kínverskt altari, ævagamalt, allt út- skorið með mikilli prýði og innlagt gulli. Stund- um datt mér í hug, þegar ég sat á skrifstofunni — ég var skrifari klúbbsins — ameríska orða- tiltækið „að sitja (eða ganga) í fegurð“, svo falleg er skrifstofan, en margir komu inn, til þess að skoða munina og fóru venjulega út sem meðlimir klúbbsins með áhuga fyrir starf- seminni .... og nokkrum dollurum fátækari en þegar þeir komu inn. Allir geta orðið meðlimir í klúbbnum, hvar í heiminum, sem þeir eru nið- urkomnir. Einu sinni á ári, venjulega í júlímánuði, held- ur klúbburinn „kínverska viku“ til ágóða fyr- ir hjálparstarfsemina; þá sátum við við borð á götunum og tókum á móti peningagjöfum, en vikan endaði annaðhvort með samkundu í stærsta klúbbhúsi bæjarins eða í „djúpa garð- inum“ við hið undurfagra dómhús Santa Bar- bara bæjar, sem frægt er um víða veröld. Einu sinni man ég að við höfðum sýningu á kínversk- um búningum á svona samkundu, sýndum bæði gömlu búningana og nýtísku kjólana, en frú Quo, indæl að venju, gaf skýringar á búning- unum og útsauminum á þeim, en sumir búning- anna höfðu verið í ætt hennar í mörg hundruð ár og eru forlátagripir. Þá áskotnaðist klúbbn- um mikið fé, en fólk í Santa Barbara er góð- gerðasamt; öllum er ljóst hvað Kínverjar hafa átt mikinn þátt í að stríðið gengur nú betur i Austurlöndum og allir vita, að hvergi í heim- iuum er meiri eymd en i Kína. Á aðalfundi S. í. S. í sumar mætti kona í fyrsta sinn sem fulltrúi. Prú Guðrún Guðjónsdóttir, Reykjavík, var fulltrúi frá Kf. Reykjavíkur og nágr. í stjórnarskrárnefnd eig-a 4 konur sæti, ein frá hverj- um stjórnmálaflokki: Prú Auður Auðuns (Sjálfst.fl.) — Guðrún Björnsdóttir (Frams.fl.) — Svafa Jónsdóttir (Alþ.fl.) frk. Elísabet Eiríksdóttir (Soc.fl.) munum að það er eingöngu fyrir forgöngu og samtök kvenna, að konur fengu fulltrúa í þessari nefnd. Þær njóta nú mikils trausts og ísl. konur vænta mikils af þeim.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.