Nýtt kvennablað - 01.12.1952, Qupperneq 15

Nýtt kvennablað - 01.12.1952, Qupperneq 15
Prá _A_lþingi Frumvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt. Flm.: Gylfi Þ. Gíslason, Kristín Sigurðardóttir. Hvort hjóna um sig er sjálfstæður skattþegn, og skal við ákvörðun skatts þeirra hvors um sig farið eftir þessum reglum: Hvort hjónanna greiðir skatt af þeim tekjum, sem það aflar. Hafi annað hjóna engar tekjur eða lægri tekjur en hitt, skal því reiknaður til skatts allt að helmingur tekna hins, en þó aldrei hærri upphæð en 25000 kr., miðað við meðalvísitölu ársins 1952, né heldur meira en svo að tekjur þess fari fram úr tekj- om hins. Breytist meðalvísitalan, skal fyrr nefnd upp- hæð hækka eða lækka í samræmi við það . ■. . Tillaga til þingsályktunar um takmarkanir varðandi samskipti varnarliðsmanna og íslendinga. — Flm.: Rannveig Þorsteinsdóttir, Gísli GuSmundsson. Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að koma því til leiðar, að dvöl hermanna varnarliðsins hér á landi verði framvegis takmörkuð við þá staði, sem Rðið hefur til afnota, enda verði hindruð ónauðsynleg ferðalög hermannanna utan þessara staða. Jafnframt verði komiö í veg fyrir óþarfar ferðir íslendinga til bækistöðva varnarliðsins. Frumvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt. Flm.: Rannveig Þorsteinsdóttir. Giftri konu, sem aflar heimili sínu skattskyldra tekna, er heimilt að draga frá skattskyldum tekjum, er hún aflar, jafnháa upphæð (kaupgjald og fríðindi) og það kostar samkvæmt meðalútreikningi Hagstofu Islands eða annarrar slíkra stofnunar að hafa heim- ilishjálp jafnlengi og samtímis því, að tekjuöflunin stendur yfir. Frádráttur fyrir heimilishjálp vegna öflunar skattskyldra tekna má þó aldrei vera hærri en vinnulaun konunnar. Frumvarp til laga um almannatryggingar, og viðauka við þau. Flm.: Gylfi Þ. Gíslason, Kristín Sigurðar- dótlir, Helgi Jónasson, Jónas Árnason. Heimilt er tryggingaráði að greiöa auk barnalíf- eyris mæðralaun til ekkna, fráskilinna kvenna og ó- giftra mæðra, sem hafa tvö börn eða fleiri innan 16 ara á framfæri sínu, enda séu börnin á heimili móð- urinnar. • Nokkur eintök eru til af blöSunum með mynztrunum: >,Skálholt við Sólsetur“ og „Hólar“ (með litamerkjum). — Gegn tíu krónum (10 kr.) verða bæði mynztrin send hvert á land sem er. — NÝTT KVENNABLAÐ, Fjölnisvegi 7. NtTT KVENNABLAÐ Þetta fallega vegg- teppi fæst með lita- skýringum og öllu efni á vefnaðarstofu Korólínu Guðmunds- dóttur, Ásvallag. 10. Stærð jafans er HOx 190 cm„ — góbelin- saumur yfir 2 þræði. — Einnig hefur vefnaðarstofan feng- lið annað teppi, 20 cm. styttra. EPLAKAKA 250 gr epli, 180 gr. hveiti, 3 tsk. sléttfullar lyftiduft, 90 gr. smjör eða smjörlíki, 90 gr. sykur, 1 egg — 1 til 2 matsk. vatn. Ný epli eru flysjuð, skorin í sundur og raðað í eld- fast mót. Hveiti og lyftidufti er sáldrað saman. Eggi, sykri og bræddu smjörlíki hrært saman, heitu vatninu hellt út í. Með þeirri blöndu er vætt í hveitinu. Deig- inu hellt í mótið, yfir eplin. Bakað vað góðan hita í þrjú kortér. ( EGGJAHVÍTU KÖKUR 250 gr. ftrásykur, ekki grófur, 5 eggjahvítur. Hvíturnar þeyttar alveg stífar, þeim síðan hrært í sykurinn. Kökurnar eru hakaðar næstum hvítar, við mjög vægan hita. Frekar er að ræða um þurrkun en hökun. Ef ofninn er of heitur, verða kökurnar gular og seigar. Bezt er að hafa ofninn opinn og snúa plöt- unni við og við. i VAFIÐ STEIKT KJÖT. Beinin eru skorin úr lærinu (eða bóg og síöu) inn- an frá, þannig að kjötið sé heilt utan. Salt, pipar og sykri er stráð innan í kjötið og það vafið þétt saman, saumað cg varið e'ns og rúllupylsa. Láta má sveskjur, epli eða smábita af reyktu svínsfleski innan í. Steikt eins og venjuleg steik. Ekkert þarf að krydda kjötið soðið, fergt dálítið. Prýðilegt kalt til niðurskurðar. 13

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.