Morgunblaðið - 26.07.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.07.2009, Blaðsíða 28
28 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 FYRIR 15 til 20 ár- um var að tilhlutan sveitarstjórnarmanna á Austurlandi skipuð nefnd um jarð- gangagerð í fjórð- ungnum. Tækniþekk- ing við gerð jarðganga hefur aukist það mikið að nú er fyrir hendi verkkunnátta sem kominn er til að vera hvort sem stuðnings- mönnum fjallveganna líkar það vel eða illa. Hér á landi velta fyrirtæki hundr- uðum milljarða króna þegar íslensk- ur banki aðstoðar við fjármögnun vegganga erlendis sem eru 11 til 14 km löng. Gerð hafa verið nokkur veggöng síðustu tvo áratugina milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, á norð- anverðum Vestfjörðum, undir Hval- fjörð, Almannaskarð og milli Reyð- arfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Nú er að koma til sögunnar nýr og fullkominn tækjabúnaður sem mun auðvelda heilborun jarðganga um ókomna framtíð. Í framhaldi af þessu viðurkenna enn fleiri lands- byggðarþingmenn að tími fjallvega sem standa í meir en 400 til 600 m hæð sé nú liðinn. Fyrir síðustu kosn- ingar kom þetta fram í viðtali við fyrrverandi samgönguráðherra sem sagðist hér eftir aldrei ætla að eiga frumkvæðið að fjölgun fjallveganna í þessari hæð yfir sjávarmáli þegar framfarir í jarðgangagerð aukast á komandi árum. Allar hrakspár sem stuðningsmenn fortíðarinnar nota gegn bættum samgöngum í formi vegganga hafa nú runnið út í sand- inn án þess að þeir standi uppi sem sig- urvegarar. Uppbyggður vegur í 530 m hæð um Öxi sem ekki yrði öruggur fyrir þriggja til sex metra háum snjóþyngslum og miklum blindbyl getur aldrei við þessar að- stæður tryggt heils- árstengingu Djúpavogs við Egilsstaði og Aust- ur-Hérað. Í þessari hæð er Öxi alltof ill- viðrasöm og ekki hættulaus í 17% halla sem erfitt er að minnka um 10% án þess að grafa um leið tvenn stutt veggöng. Þá tek- ur önnur fyrirstaða við ef hallinn í brekkunni ofan við Hemru verður minnkaður niður í 7% þegar komið yrði inn á snjóþungt svæði. Þar geta snjóflóðahættur sem enginn sér fyr- ir hrellt vegfarendur. Víða um land hefur það skeð á stöðum sem taldir hafa verið 100% öruggir hingað til. Annað vandamálið sem eftir stendur snýst um hvort heppilegra sé að leggja þennan heilsársveg alla leið inn í Berufjarðardal og grafa þaðan lengri göng upp í Skriðdal sem gætu orðið 5 til 7 km löng. Án þeirra verða snjóþyngsli og blindbylur á Öxi allt- af til vandræða og sömuleiðis veð- urhæð sem getur farið í 30 til 40 metra á sekúndu, jafnvel meira, án þess að það sjáist fyrir. Að öllum lík- indum mætti þá afskrifa styttri göngin sem stæðu hærra yfir sjáv- armáli. Fullyrðingar um að byggðirnar losni úr allri vetrareinangrun með uppbyggðum vegum á snjóþungum svæðum í meir en 400 til 600 m.y.s. án jarðganga eru ótrúverðugar. Þessir vegir hafa þveröfug áhrif þegar samgöngur verða óöruggar . Krafan um að loka Breiðdalsheiði mun frekar koma af stað hörðum deilum milli Djúpavogsbúa og Breið- dælinga. Í þeirri hæð sem þessir tveir þröskuldar milli Breiðdals- víkur, Djúpavogs og Egilsstaða standa eiga heilsársvegir ekki heima. Besta fjárfestingin er að af- skrifa þessa tvo fjallvegi með tvenn- um göngum inn í Breiðdal til þess að dæmið klárist strax. Fyrir Djúpavogsbúa og Berufirð- inga sem vilja heilsárstengingu við Fljótsdalshérað um Öxi stendur val- ið um tvennt, samhliða jarðgöngum undir Breiðdalsheiði eru það göng innar í Berufirði sem kæmu út í Breiðdal eða neðansjávargöng undir utanverðan fjörðinn. Kostnaðurinn við snjómokstrana á fjallvegunum sem íslenska ríkið forðast eins og heitan eld skilar sér aldrei. Tvenn veggöng inn í Breiðdal geta oddvitar fortíðarinnar ekki heimtað eftir þrjá til fjóra áratugi. Fyrir samgöngu- ráðherra er varasamt að lofa vega- framkvæmdum næstu þrjú árin á ellefu stöðum á landsbyggðinni. Það verður Vegagerðinni ofviða. Næst í röðinni eru Dýrafjarðargöng, veg- göng til Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, undir Vaðlaheiði og Lónsheiði. Tími fjallveganna er liðinn Eftir Guðmund Karl Jónsson » Allar hrakspár sem stuðningsmenn for- tíðarinnar nota gegn bættum samgöngum í formi vegganga hafa nú runnið út í sandinn… Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. ÞAÐ ER spauglaust að rata úr þessu völund- arhúsi græðginnar sem við höfum verið hrakin inn í af þjófum, kjánum og öðrum siðblindum. Úr þessu húsi komumst við aldrei sofandi og heldur ekki dottandi, við verðum að vera vakandi og á vaktinni og hafa þor til að ráðast til atlögu við landráðamenn íslenska og bleyðibullur erlendar sem hafa það eitt þor að stíga ofan á radd- litla og lítilsgilda undir borðinu. Þar sem menn eru augliti til auglit- is við samningsborð, þá gildir eng- in réttarmismunun, nema því að- eins að samningsliðin séu af mismunandi gæðum. Svo sýnist sem íslensku samn- ingamennirnir með hið uppvakta hrokafulla talandi skegg í öndvegi hafi verið úr lítt unnu hrágúmmíi í þessu Icesave-máli Landsbankans, gegn langþróuðum hjólbörðum iðn- og herveldisins breska. Það er ekki breskur almenningur sem er óvinur okkar heldur nokkrir bresk- ir stjórnmálamenn sem óttuðust um stöðu sína á þann nákvæmlega sama hátt og Jóhanna og jókerinn hennar hér heima á Íslandi. Þannig er það með græðgina, að það er sama hver hún er, hún verð- ur alltaf jafn siðblind. Jóhanna og jókerinn hennar eru nú þegar orðin okkur jafnvel hættulegri en útrás- arflónin voru. Það stafar ekki endi- lega af illvilja heldur mun fremur af vitleysi. Þetta hörmulega vit- leysi hefur nú tafið okkur í átta mánuði. Allt púðrið hefur farið í Evrópusambandskjaftæði með við- límdri Icesave-þvælu. Gáfuparið Jóhanna og jókerinn hennar skilar okkur Evrópusambands- samninganefnd með einstefnuloka og án markmiða með sjálfumglöð talandi skegg þau hin bæði í önd- vegi. Útrásarflónin Fólk sem vinnur með rassinum er fylgjandi Evrópusam- bandsaðild vegna þess að þá fær það púða undir rétt eins og þeir guðirnir sem vinna í Brussel. Með Evrópusambands- aðild fáum við sem stöndum í lappirnar og vinnum með hönd- unum ekki neitt nema þeir okkar sem læra á regluverkið og hafa gaman af að krota á eyðu- blöð og hafa geð til að hlaupa á milli stofnana með tímasetningum réttum til að sníkja aur. Bændur þeir ís- lenskir til sjós og lands, hversu stolt- ir sem þeir eru, verða ekki lengur bændur ólseigir og ódrepanlegir, heldur eyðublaðabændur á faralds- fæti að sníkja aur, þar til þeir bogna af óheiðri og annarri niðurlægingu. Þá taka útrásarflónin við því svona kerfi eru þeirra ær og kýr. Við sem borgum skuldir óreiðuflóna fáum að kaupa erlenda kjúklingavængi á mógrillið okkar en hvorki læri né bringur því við verðum á svörtum skuldalista svo lengi sem á okkur tórir sem nú lifum. Ef svo horfir sem sér, þá verður ísaldarsauðfé íslenskt geymt í genabönkum sem og kýr, því það er hvergi hægt að ala þessar skepnur án Íslendinga vegna van- skilnings og þurftarleysis. Fiski- menn, aðrir en íslenskir, verða feitir um stund á meðan fiskast við Ísland. Ísland er harðbýlt Og á því illbúandi nútímalífi ef ekki nyti auðlinda þess. Auðlindir Ís- lands eru það sem alla heillar og Evrópusambandið vantar til að styrkja innviði sína. Íslendingar sjálfir heilla enga vegna óafgreiddra mála sem nú fara með mestu ruglu- dallar Íslandssögunnar, kosnir þó með löglegum hætti og er það veru- lega umhugsunarvert. Aðild að Evr- ópusambandinu er óafturkræf að- gerð, sérstaklega með þann skuldahala sem á að hengja aftan í okkur. Við hér í norðvesturhorni Evrópu verðum aldrei mikilsgild þar innan um milljónir. Hvers vegna eru Bretar og ýmsir aðrir svo lukkulegir með aðildarumsókn frá Íslandi? Ekki aðildarumsókn þeirra, er með skrokk sínum og án rasssetu byggðu þetta land. Heldur aðildarumsókn Jóhönnu sam- anspyrt við Icesave-klúðrið. Þegar samningurinn liggur á borðinu, þá skuluð þið sanna til að okkur verð- ur stillt upp við vegg og sagt að nú sé ekki hægt að snúa við, of mikið hafi verið unnið til að ná þessum stórgóða samningi. En samningur verður það ekki því að í möppunni verða bara skilyrði Evrópusam- bandsins með rykrósum til nokk- urra ára. Rassatkvæði duga ekki Þingmenn eiga að sjálfsögðu að greiða atkvæði eftir sannfæringu sinni og það er hafið yfir gagnrýni, nema sú sannfæring sé öndverð við gefin fyrirheit fyrir kjör. Við þær aðstæður og þau málefni sem nú eru uppi á Íslandi þá er það flónlegt að leggja ekki lóð sitt á og gefa skýrt í ljós skoðun sína. Þeir þing- menn sem nenna ekki eða eru svo viti skroppnir að halda að rass- greitt atkvæði dugi við þær að- stæður sem nú eru ættu að finna sér annað að gera eða prófa hið minnsta að biðjast afsökunar á mis- tökum sínum. Atkvæði verður það að vera með lóði sem vigtar, er við sem litlu ráðum liggjum undir áföll- um. Völundarhús græðginnar Eftir Hrólf Hraundal » Þannig er það með græðgina, að það er sama hver hún er, hún verður alltaf jafn siðblind. Hrólfur Hraundal Höfundur rekur vélsmiðju úti á landi. RANNSÓKNIR sýna að gæði hjúkr- unar hafa mikil áhrif á lífsgæði og heilsu fólks. Ljóst er að þörf fyrir hjúkrunarfræð- inga eykst verulega á komandi árum og því nauðsynlegt að mæta þeirri þörf. Þá er brýnt að heilbrigð- isyfirvöld, heilbrigðis- starfsfólk og landsmenn allir leiti nýrra leiða til að efla heilbrigði þjóðarinnar og minnka kostnað í heilbrigðiskerfinu með öryggi, gæði og hagkvæmni að leiðarljósi. Minni skortur á hjúkrunarfræðingum? Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga gerði nýverið könnun á mann- eklu í hjúkrun og svör komu frá 50 stofnunum, sem ráða yfir 65% stöðugilda hjúkrunarfræðinga í landinu. Spurningar í könnuninni voru sambærilegar spurningum sem notaðar voru í yfirgripsmikilli könnun félagsins um sama efni frá 2007. Niðurstöður könnunarinnar nú gefa vísbendingar um mikla breytingu því skortur á hjúkr- unarfræðingum miðað við metna þörf er nú 3,84%, en sú tala var 21,5 % árið 2007. Bent er á að fé- lagið gerir fyrirvara um áreið- anleika þessara talna því um óformlega könnun er að ræða. Ástæður þessa eru m.a. að vegna efnahagsþrenginga hefur heilbrigð- isþjónusta verið skert á ýmsum sviðum; stöðugildum fækkað, dreg- ið úr yfirvinnu, ekki ráðnir hjúkr- unarfræðingar í afleysingar, tiltek- inni þjónustu lokað tímabundið, mannfrekar vaktir styttar og næt- urvaktir lengdar. Sums staðar hafa minna menntaðir starfsmenn kom- ið í stað meira menntaðra. Slíkt getur haft í för með sér að erfiðara er að veita flókna hjúkrunarmeð- ferð, t.d. á hjúkrunarheimilum og getur því þurft að flytja sjúklinga á sjúkrahús, þar sem kostnaður er meiri. Augljóst er að framangreind atriði hafa áhrif á gæði þjónustu og jafnvel öryggi en Landlækn- isembættið fylgist með þeim þátt- um. Þá má benda á að hjúkr- unarfræðingar hafa hækkað starfshlutfall sitt og þeir sem unn- ið hafa í einkageiranum hafa hætt þar störfum og flutt sig í opinbera geirann. Góð menntun – betri heilbrigðisþjónusta Íslendingar hafa verið svo lán- samir að búa við mjög gott heil- brigðiskerfi og í erlendum sam- anburði á gæðum heilbrigðisþjónustu hefur oft komið fram hve gæði þjónustu hérlendis eru mikil. Enginn vafi leikur á því í okkar huga að ein aðalástæða þess er góð menntun heilbrigð- isstarfsmanna. Íslendingar hafa verið í framvarðarsveit hvað varð- ar menntun hjúkrunarfræðinga en nú eru 70% íslenskra hjúkr- unarfræðinga með B.Sc-próf og sí- vaxandi hluti þeirra með fram- haldsmenntun. Námskrár í hjúkrunarfræðinámi eru í stöðugri mótun og úttektir sýna að námið stenst fyllilega alþjóðlegan sam- anburð. Sífellt flóknari heilbrigð- isþjónusta krefst vel menntaðs starfsfólks sem tryggt getur gæði þjónustu og öryggi sjúklinga. Rannsóknir sýna að betri mönnun og meiri menntun hjúkrunarfræð- inga hefur áhrif á lengd legutíma sjúklinga, dánartíðni, fjölda fylgi- kvilla, hættu á óhöppum og gæði eftirlits með sjúklingum. Fari mönnun undir öryggismörk getur það haft í för með sér ómældar þjáningar og aukið kostnað umtals- vert. Þörf fyrir fleiri hjúkrunarfræðinga Brýnt er að mennta nógu marga hjúkrunarfræðinga til þess að geta mætt þörfum samfélags- ins. Ýmsar breytingar krefjast enn fleiri hjúkrunarfræðinga, t.d. hækkandi meðalaldur þjóðarinnar og fjölgun alvarlegra og lang- vinnra heilsufarsvandamála. Hjúkrunarfræðingar skipta miklu máli hvað varðar forvarnir og heilsuvernd. Þá eykur styttri legutími á sjúkrahúsum þörf fyrir hjúkrunarþjónustu utan þeirra. Áhyggjuefni er hve stórt hlutfall hjúkrunarfræðinga lætur af störf- um vegna aldurs næstu árin en tæplega fjórðungur starfandi hjúkrunarfræðinga er á aldrinum 55-64 ára. Einnig er áhyggjuefni að í núverandi efnahagsástandi leita fleiri hjúkrunarfræðingar starfa erlendis, þar með taldir nýútskrifaðir hjúkrunarfræð- ingar, en það getur leitt til þess að fagþekking flyst úr landi sem verður ekki auðveldlega byggð upp aftur. Á undanförnum árum hafa útskrifast að meðaltali rúm- lega 100 hjúkrunarfræðingar ár hvert. Áætlað er að útskrifa þurfi 130-170 hjúkrunarfræðinga ár- lega til að halda í horfinu. Aðsókn að hjúkrunarfræðinámi hefur nú aukist verulega og því er brýnt að háskólum sé gert fjárhagslega kleift að taka við fleiri hjúkr- unarfræðinemum. Heilsa – ein besta fjárfesting sem völ er á Heilbrigðisþjónusta hefur af- drifarík áhrif á heilsufar og lífs- gæði. Sagt er að kostnaður við hana sé mikill, en hafa ber í huga að verið er að fjárfesta í heilsu. Tryggja þarf að fé sem varið er til heilbrigðismála nýtist sem best. Því þarf að forgangsraða og móta heildræna stefnu um hvaða þjónusta skuli veitt af ríkinu. Ár- íðandi er að koma í veg fyrir að mikilvæg þjónusta skaðist í nú- verandi ástandi með þeim afleið- ingum að byggja þurfi hana upp á ný með ærnum tilkostnaði. Þó að aðstæður séu þannig nú að flest stöðugildi hjúkrunarfræð- inga séu mönnuð er líklegt að skortur á hjúkrunarfræðingum muni aukast aftur af fyrr- greindum ástæðum ef ekkert er að gert. Því er mikilvægt að horfa til framtíðar og mæta aukn- um áhuga ungs fólks á hjúkrun sem endurspeglast í aukinni að- sókn að hjúkrunarfræðinámi. Stöndum vörð um heilbrigðisþjónustuna Eftir Önnu Björgu Aradóttur og Lauru Sch. Thorsteinsson » Þörf fyrir hjúkr- unarfræðinga eykst verulega á komandi ár- um og því nauðsynlegt að gera háskólum kleift að taka við fleiri hjúkr- unarfræðinemum. Anna Björg Aradóttir Anna Björg er yfirhjúkrunarfræð- ingur Landlæknisembættisins og Laura er verkefnisstjóri hjá Land- læknisembættinu og aðjúnkt við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Laura Sch. Thorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.