Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 37

Morgunblaðið - 26.07.2009, Síða 37
Auðlesið efni 37 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009 Al-þjóð-lega skáta-mótið Roverway 2009 var sett í Reykjavík síðast-liðinn mánu-dag. Undan-farið hafa streymt til landsins skátar á aldrinum 16-26 ára. Erlendir þátt-takendur eru um 2.500 talsins og koma frá meira en 50 löndum, auk um 500 íslenskra skáta sem taka þátt í mótinu. Á föstu-daginn var reist 3.100 manna þorp við Úlf-ljóts-vatn sem standa mun fram á þriðju-dag. Þar verða meðal annars fimm kaffi-hús, víkinga-þorp, lista-þorp, þjóð-félags-þorp, um-hverfis-þorp og íþrótta-þorp. Al-þjóð-legt skáta-mót í Reykjavík Morgunblaðið/Jakob Fannar KR-ingar náðu einum af betri úr-slitum íslensku fót-bolta- sögunnar á fimmtu-dag þegar þeir slógu gríska liðið Larissa út úr Evrópu-deild UEFA. Liðin skildu jöfn, 1:1, í Grikk-landi og þar með eru KR-ingar komnir í 3. umferð keppninnar með saman-lögðum sigri, 3:1. KR-ingar lentu í þeirri stöðu sem þeir óttuðust mest því staðan var orðin 1:0 fyrir Larissa eftir hálf-tíma leik. En skipu-lagður leikur KR-inga kom í veg fyrir það og þegar upp var staðið náðu leik-menn Larissa aðeins tveimur skotum á mark Vestur-bæjarliðsins allan leikinn. Grétar Sig-finnur Sigurðar-son jafnaði metin fyrir KR þegar korter var til leiksloka. KR-ingar mæta Basel frá Sviss og eiga heima-leikinn næsta fimmtu-dag, 30. júlí, en liðin mætast síðan í Basel viku síðar, hinn 6. ágúst. Magnaðir KR-ingar Morgunblaðið/Eggert Fimmtán manna hópur, undir stjórn Daða Einarssonar, vinnur við að gera tölvu-sjón-brellur í Hollywood-kvik- myndir í hinum gömlu höfuð-stöðvum Símans við Aðal-stræti. Þar rekur Daði íslenskt úti-bú fyrir breska auglýsinga- og kvikmynda- eftir-vinnslu-fyrirtækið Framestore er sér-hæfir sig í því að gera tölvu-brellur fyrir auglýsingar og kvikmyndir. Í næstu viku lýkur hópurinn vinnu við nýja kvikmynd breska leik-stjórans Guys Ritchies er skartar Robert Dow- ney jr. í hlut-verki Sherlocks Holmes og Jude Law í hlut-verki Dr. Watsons. Síðustu tólf mánuði hefur hópurinn einnig unnið að myndum Spikes Jonze, Baz Luhrmans og Dags Kára svo eitthvað sé nefnt. Næsta verk- efni er að vinna að nýrri mynd Angel- inu Jolie sem ber heitið Salt. Daði segir að fall krónunnar hafi hjálpað íslenska úti-búinu tölu-vert. Nú geti þeir boðið erlendum kvik- mynda-gerðar-fyrirtækjum upp á ódýr- ari lausnir fyrir sömu gæði og annars staðar. Tölvu-brellur fyrir Holly- wood-myndir Morgunblaðið/Golli Daði Einarsson stjórnar íslensku úti-búi sjón-brellu-smiðjunnar. Ekki er meiri-hluta-stuðn- ingur við Icesave-málið á Al- þingi. Annað-hvort verður af- greiðslu málsins frestað fram á haust eða það fellur í atkvæða-greiðslu á Al- þingi. Þetta eru þeir tveir kostir sem eru í stöðunni, samkvæmt heimildum Morgun-blaðsins, sem herma að allt að fimm þing- menn VG séu tilbúnir að fella málið ef ekki nást fram á því veiga-miklar breytingar. Þeirra á meðal er Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir og Lilja Mós- esdóttir sem vék sæti í efnahags- og skatta-nefnd á miðviku-dag. Ice-save sett á ís? Á mánu-dag voru liðin 40 ár frá því að geim-farið Apollo 11 gerði það sem áður hafði verið talið ó-fram-kvæman-legt og lenti á tunglinu. Áhöfn Apollo 11 saman-stóð af geimförunum Neil Arm-strong, Edwin „Buzz“ Aldrin, og Michael Collins. Orð Armstrongs þegar hann steig fyrstur manna fæti á tunglið eru löngu orðin fleyg. „Þetta er lítið skref fyrir mann, en risa-stórt skref fyrir mann-kynið.“ Aldrin steig á tunglið nokkrum mínútum á eftir Arm-strong en Michael Collins hring-sólaði í kringum tunglið í geim-farinu á meðan. Reuters Risa-stórt skref fyrir mann-kynið Þrettán ára stúlka tók jeppa í Húsa-felli á miðviku-dags-nótt og ók honum til Kefla-víkur. Svo virðist sem stúlkan hafi verið í fasta-svefni þegar hún tók bílinn, en hún á það til að ganga í svefni. Stúlkan gekk úr sumar-bústað sem hún dvaldi í að húsi þar sem bíl-lyklarnir voru geymdir. Þar skrifaði hún kveðju til bíl- eigandans „frá nætur-röltaranum“, tók bíl-lyklana og ók af stað. At-hugull veg-farandi í Kefla-vík tók eftir sér-kennilegu aksturs-lagi jeppans. Þegar betur var að gáð reyndist barn vera undir stýri. Ættingi stúlkunnar sagði að stúlkan hefði verið undir miklu álagi undan-farið. Stúlkan lenti í bíl-slysi á liðnu hausti og fékk þá höfuð-högg og heila-hristing. Fyrir fá-einum vikum munaði litlu að stúlkan yrði fyrir bíl og fékk hún tals-vert áfall við það. Ný-lega varð dauðs-fall í fjölskyldunni og missti stúlkan þar náinn ást-vin. Stúlkan var hjá föður sínum í sumar-bústað í Húsa-felli. Hún er ekki vön að aka bíl. Stúlkan hefur engin bein tengsl við Kefla-vík og hefur aldrei búið þar. Ung stúlka ók í svefni Stór-hætta skapaðist í mikilli um-ferð á sunnu-dagskvöld þegar lög-reglan veitti öku-níðingi á þrítugs-aldri eftir-för. Eftir-förin hófst við Suður-fell í Breið-holti í Reykja-vík, þegar á-bending barst um athugunar-vert aksturs-lag bifreiðar. Þar reyndist á ferð bíll sem var stolið á bensín-stöð Skeljungs í Árbænum síð-degis. Eltinga-leikurinn barst vítt og breitt um Breið-holt, Elliða-árdal og inn á Stekkjar-bakka þaðan sem öku-maðurinn ók inn Reykjanes- brautina, upp Ártúns-brekkuna og áfram Vesturlands-veg. Þegar komið var á Kjalar-nes ók maðurinn inn Hval- fjörð. Lög-reglu tókst að stöðva manninn norðan-vert í Hval-firði, við af-leggjarann inn í Svína-dal, þar sem bíllinn hafnaði úti í skurði. Öku-níðingi veitt eftir-för

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.