Morgunblaðið - 26.07.2009, Side 39
Velvakandi 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2009
Bórisfrísa
Myndasagan Bórisfrísa eftir Þorgrím Kára Snævarr hefur nú göngu sína á síðum Morgunblaðsins. Bórisfrísa er framhalds-
saga og næstu mánuði munu tvær síður birtast hverju sinni í sunnudagsblaðinu. Höfundurinn er að leggja síðustu hönd á
söguna en við síðustu talningu voru síðurnar orðnar rúmlega fimmtíu.
Sagan fjallar um Robba rottu, eða Rómúlus Rotberg eins og hann vill ekki kalla sig. Hann er kallaður til lands sem heitir
Bórisfrísa og neyddur til að hjálpa til við rannsókn á tilraun til að myrða drottninguna þar sem heitir Kamilla.
Þorgrímur er 15 ára og hefur sótt mörg myndasögunámskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Í júní hreppti hann sigur-
verðlaunin fyrir hluta Bórisfrísu í myndasögukeppni Borgarbókasafnsins og Myndlistaskólans
Eftir: Þorgrím Kára Snævarr
HENNI Kylie, sex ára stúlku frá Boston í Bandaríkjunum, brá heldur í
brún þegar hún ýtti á takka á sýningunni „Miðbærinn brennur!“ á Árbæj-
arsafni. Skyndilega kviknaði „eldur“ og bærinn fuðraði upp.
Sýningin um miðbæjarbrunann er ein af nokkrum sýningum á Árbæj-
arsafni. Á síðasta ári sóttu safnið samtals nærri 39 þúsund manns. Góð að-
sókn hefur verið að safninu í sumar.
Morgunblaðið/Ómar
Miðborgin brennur
Í tilefni af frétt um
bílkeyrslu í svefni
frá Húsafelli til
Keflavíkur
Í FRÉTTUM undan-
farið hefur nokkuð ver-
ið rætt um svefngöng-
ur og það hvort fólk
geti gert ýmsa furðu-
lega hluti undir slíkum
kringumstæðum.
Ég vil hér segja frá
einu slíku atviki sem
móðurafi minn Jón
Einarsson sagði mér
frá er ég var unglingur.
Afi var fæddur í
Breiðuvík í Borgarfirði
eystra 1865 og átti þar heima á sín-
um unglingsárum. Hann átti bróður
sem hét Þórarinn. Þórarinn átti sem
unglingur vanda til að ganga í svefni
og gerði hann þá stundum hina ótrú-
legustu hluti.
Eitt haust lentu nokkrar kindur í
sjálfheldu í klettum í fjalli þar í
grenndinni og hafði ekki tekist að
bjarga þeim þaðan því að komið var
frost og hálka svo ekki þótti hættu-
laust að reyna það.
Einn morguninn snemma urðu
foreldrar Þórarins vör
við að hann var farinn á
fætur og út og er að
var gáð sást hann
stefna til fjallsins. Var
honum veitt eftirför en
er nær var komið var
hann kominn í klettana
og áleiðis þangað sem
kindurnar voru. Horfði
fólkið óttaslegið á hann
fikra sig eftir syllunum
og koma kindunum
niður. Þorði það ekki
að gera vart við sig eða
trufla hann á neinn
hátt til að vekja hann
ekki, því að þá væri
voðinn vís.
Að þessu loknu hélt hann heim og
vaknaði ekki fyrr en þangað var
komið og vissi þá ógjörla hvað hafði
gerst .
Þetta er aðeins dæmi um hvað
gerst getur í svefngöngu.
Ingimar Sveinsson,
Hvanneyri.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag
, ,ímorgungjöf?