Nýtt kvennablað - 01.12.1965, Side 4

Nýtt kvennablað - 01.12.1965, Side 4
María Montessori Hinn hjartahlýi uppeldisfræðingur, frumkvöðull núfíma smóbarnakennslu — Sonur hennar segir frá. Þegar ég var barn, vaknaði ég snemma morgun einn í húsinu okkar í Róm við það, að rúmið mitt hristist, og ég heyrði skruðninga. Eg var varla búinn að opna augun, þegar móðir mín kom inn róleg og brosandi og settist á rúmstokk- inn hjá mér. „Mario,“ sagði hún, „sérðu, hvernig ljósa- krónan sveiflast fram og aftur?“ Eg sá það. „Finn- urðu, hvernig gólfið titrar?“ Ég kinkaði kolli. drengsins á fjöllunum, og sveitarskáldið varð þjóðskáld — þjóðskáldið KRISTJÁN JÓNSSON. Kristján Jónsson er fyrst og fremst skáld fyrir með- skapaða náttúrugáfu. Hann orti aðdáanlega fögur ljóð löngu áður en hann „lærði“ — löngu áður en hann kom í latínuskólann í Reykjavík. — En það eru að þessu leyti ekki margir Kristjánar!" Nokkrar þýðingar á ljóðum erlendra höfunda eru prent- aðar aftast í 3. útg. ljóða Kristjáns Jónssonar. Meðal þeirra er: SKÁLDIÐ í ÚTLEGÐINNI Eftir Heine. Þegar morgunsólin sæla sveipar allt með ljósi gljáu, geng ég fram hjá glugga þínum, gleðja mig þín augun bláu. Þú með undrun á mig lítur, auga þitt mig spyr hið bjarta: „Hvaðan ertu, útlendingur, og hvað liggur þér á hjarta?“ Ég er skáld á Fróni fæddur, á Fróni kunnur hverjum manni, þegar mestu manna’ er getið, mín er einnig getið, svanni. Til þess, sem mitt hryggir hjarta, hjörtu’ á Fróni allmörg finna, ef þar er minnzt á þungar sorgir, þá er getið harma minna. Jónas Hallgrímsson og Hannes Hafstein þýddu mörg kvæði eftir Heine. Eftir Heine er kvæðið Álfareiðin: „Stóð ég út í tunglsljósi, stóð ég út í skóg,“ sem er eitt meðal þeirra ljóða, sem oftast hafa verið kyrjuð á landi hér. Móðir mín baðaði út höndunum, eins og hún ætlaði að segja mér frá einhverju dásamlegu furðuverki. „Það er jarðskjálfti, Mario.“ Þegar móðir mín var lítil stúlka, var hún lé- legasti nemandinn í bekknum. Hún gat alls ekki munað það, sem hún átti að læra. En þegar María var tíu ára, breyttist hún allt í einu. Jafn- framt Jjví sem trúaráhugi hennar vaknaði, sem er ekki óalgengt hjá telpum á hennar aldri, fannst henni hún hafa köllun. Foreldrar hennar upp- götvuðu það í fyrsta sinn, Jjegar hún veiktist al- varlega af inflúensu. Læknirinn sagði, að þau skyldu búast við hinu versta, en María reyndi að tala kjark í móður sína. „Þú skalt ekki hafa áhyggjur, mamma mín, ég dey ekki. Það er svo margt, sem ég á eftir að gera.“ Hún varð efst í bekknum. Foreldrum hennar fannst, að ltún ætti að verða kennari, það var eina menntabrautin, sem konum var þá opin. En hún vildi ekki heyra Jrað nefnt. Hún ætlaði að verða verkfræðingur. Þegar hún var fjórtán ára gömul, fór hún í tækniskóla fyrir pilta. Næsta ár tók hún að læra lífeðlisfræði, og að lokum ákvað hún að taka próf í læknisfræði. „Það er ekki hægt,“ sagði Guido Baccelli, sem var forseti læknisfræðideildarinnar í háskólan- um í Róm. En henni tókst að fá inngöngu. Hún fékk styrk og vann fyrir námskostnaðinum að nokkru leyti með einkakennslu. Móðurafi minn, sem var mjög andvígur þessu uppátæki henn- ar, vildi ekki tala við hana í mörg ár. Þar sem hún var eina konan í skólanum, varð hún að Jiola aðkast og spott. En hún fékk prófskír- teinið sitt. Hún var ráðin við sálfræðideild háskólans. Hlutverk hennar var að heimsækja geðveikra- Iiæli borgarinnar til þess að finna rannsóknar- efni. Á Jieim tíma voru vanþroska börn álitin sál- sjúk og látin á geðveikrahæli. Á einum stað sá hún hóp af fávitum, sem voru geymdir eins og 2 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.