Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kan- aríeyjum 25. október í 30 nætur á frábæru til- boði. Þú bókar flugsæti og færð að vita 4 dögum fyrir brottför hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað á ótrúlegum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð frá kr. 149.900 Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð í 30 nætur. Frábær ferð - 30 nætur Stökktu til Kanarí 25. október frá kr. 149.900 Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur sigrunrosa@mbl.is „VIÐ vorum boðaðir á almennan fund í heilbrigðisráðuneytinu fyrir nokkrum vikum og þar var okkur tilkynnt að stefnan væri að skera almennt niður á bilinu 5%-8%. Stað- an hjá okkur er þannig að samn- ingar okkar eru að renna út núna um áramótin,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS), sem hefur óskað eftir við- ræðum við heilbrigðisráðuneytið til að fá úr því skorið hvað verður. Jón Viðar segir erfitt að fara í niðurskurð án þess að það bitni á þjónustunni. Þá sé það þeirra skoð- un að hlutur sveitarfélaga sé mun stærri en hann ætti að vera í rekstri slökkviliðs og sjúkraflutn- inga og ríkið ætti að koma meira inn í. Jón Viðar segir að stóra spurn- ingin sé hvort það takist samningar fyrir næsta ár. Tíðni sjúkraflutn- inga hefur aukist um 2%-4% á ári og það sé orðið meira álag. Það undirstriki að það sé hagkvæmt fyrir alla aðila að samreka þjón- ustuna. „Það er okkar skoðun að það sé besta úrræðið fyrir ríkið og sveit- arfélögin að samreka slökkviliðið og sjúkraflutninga. Mörg dæmi sanna að mannafli sem nýtist á milli er rekstrarlega hagkvæmur. Geta hvors aðila fyrir sig til að glíma við stór verkefni er líka meiri.“ Helstu tekjur SHS hafa komið frá Flugstoðum auk ríkis og sveit- arfélaga. Flugstoðir sögðu upp samningi sínum við SHS í febrúar og rennur hann út 1. mars á næsta ári. Jón segir að með hliðsjón af bæði niðurskurðinum og uppsögn samningsins verði reynt að leggja áherslu á að tryggja atvinnu hans manna og reyna að finna nýjar leið- ir til að fá aukið fé í reksturinn. Með dýrari einingum „Ég sé ekki annað en að það sé verið að skera niður hjá þeim sem eru með beina samninga við heil- brigðisráðuneytið, þ.e. höfuðborgar- svæðið, Akureyri og Keflavík. Það eru þeir sem eru að vinna þetta með lægsta einingaverðið,“ segir Sverrir Björn Björnsson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. „Heilbrigð- isráðuneytið er með heilbrigðis- stofnanir sem vinna þetta sjálfar með miklu hærra einingaverði.“ Óvissa um sjúkraflutninga Í HNOTSKURN »Sjúkraflutningar vorufluttir yfir til ríkis frá sveitarfélögum árið 1990. »Þá var hlutur ríkisins íkostnaði SHS um 42% en er í dag kominn niður í 23% á kostnað sveitarfélaga. »Allir starfsmenn SHS erumenntaðir bæði sem sjúkraflutningamenn og slökkviliðsmenn.  Sjúkraflutningar skornir mest niður þar sem þjónustan er hagkvæmust  Slökkviliðsstjóri SHS óskar eftir viðræðum  Samningar renna út um áramót Morgunblaðið/Jim Smart Slys Að störfum í sjúkrabíl. BANDARÍKJAMAÐUR áði sína fyrstu Íslandsnótt í tjaldi á Arnarhóli eftir að hafa gengið sunnan úr Leifs- stöð. Hann vildi tjalda í miðbænum og spurði um Arn- arhól. Í upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn fékk hann þau svör að strangt til tekið væri ekki bannað að tjalda þar, þó slíkt tíðkaðist ekki. Aðspurður sagði Bandaríkja- maðurinn að hávaðasamt hefði verið á Arnarhóli í fyrri- nótt, enda þótt enginn hefði þó ónáðað hann sérstaklega. Morgunblaðið/Golli Áði sína fyrstu Íslandsnótt á Arnarhóli Tjaldaði í miðborginni BRYNDÍS Ísfold Hlöðversdóttir hefur ákveðið að hætta sem vara- borgarfulltrúi Samfylking- arinnar. Hún seg- ist hætta í fullri sátt við borg- arstjórnarflokk- inn. Nýverið sagði Bryndís af sér sem formaður Jafnréttisvakt- arinnar, að eigin sögn vegna óánægju með seinagang núverandi félagsmálaráðherra, Árna Páls Árnasonar, við ákvörðunartöku um starfsemi hópsins. Bryndís segir málin ekki tengjast. Hún hafi tekið ákvörðun um að bjóða sig ekki fram í næsta prófkjöri borgarstjórn- arflokksins, þar sem hún ætli að hverfa til annarra verkefna. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir Bryndís Ísfold hættir í pólitík DAGNÝ Ósk Aradóttir Pind var kosin for- maður Ungra jafnaðarmanna á landsþingi sam- takanna í Iðnó um helgina. Tek- ur hún við af Önnu Pálu Sverrisdóttur sem gaf ekki kost á sér áfram. Dagný er 24 ára meist- aranemi í lögfræði við Háskóla Ís- lands og starfar einnig í hlutastarfi á markaðs- og samskiptasviði skól- ans. Sat hún m.a. í stjórn Röskvu og stúdentaráði. Dagný formaður UJ í stað Önnu Pálu Dagný Ósk Aradóttir Pind JÖRÐ hefur skolfið undanfarna sól- arhringa í nágrenni Herðubreiðar norður af Vatnajökli. Öflugasti skjálftinn mældist 3,1 stig á Ricther laust eftir miðnætti í fyrrinótt en upptökin voru í Herðubreið- artöglum, suðvestur af fjallinu fræga. Tveir skjálftar, sem mældust 2,7 og 2,8 stig, urðu á svipuðum tíma á sömu slóðum. Alls höfðu á áttunda tug skjálfta mælst á svæðinu síð- degis í gær. „Þetta er ekki óvenjulegt og svona hrinur hafa oft komið áður. Snörpustu skjálftarnir í þessari lotu voru rétt rúm þrjú stig, áttu upptök sín á allt að tveggja kílómetra dýpi og ég býst ekki við að fólk hafi al- mennt fundið þá,“ sagði Guðjón Guðmundsson jarðeðlisfræðingur í samtali við Morgunblaðið. Jarðskjálftar við Herðubreið FRAMLÖG til kvikmyndasjóða verða skorin niður um 200 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010. Stjórn Sambands íslenskra kvik- myndaframleiðenda segir þetta beina aðför að mannaflsfrekri sprotagrein sem hafi verið í miklum vexti og að með niðurskurðinum tap- ist um hundrað ársverk. Segir stjórn SÍK á vefsíðu sinni niðurskurðinn undarlegan, enda staðreynd að þeir sem fá framlög úr sjóðnum nái vanalega að sexfalda framlögin með annarri fjármögnun til kvikmyndagerðar. Er bent á að bein áhrif af niður- skurði þýði að ekki verði af fram- leiðslu tveggja kvikmynda, tveggja sjónvarpsþáttaraða og að minnsta kosta fjögurra til fimm heimilda- og stuttmynda. Hefur stjórn SÍK þegar fengið fund með menntamálaráðherra til að „komast til botns í því hvernig standi á því að þessi stórfelldi niðurskurður bitni eingöngu á einni menningar- tengdri grein“. Kvik- myndagerð klippt niður 100 ársverk tapast BORGARÍSJAKA rak inn á Ön- unarfjörð í gærmorgun. Þetta er ekki einsdæmi en algengra er þó að til stakra jaka sjáist út af Norður- landi en á innfjörðum vestra. Í flest- um tilvikum er hafís á þessum tíma árs rekís sem kemur úr Grænlands- jökli. Jakarnir, sem sáust vel frá Flateyri, lónuðu út af Ingjalds- sandi. „Þetta eru stórir jakar sem var mjög óvænt að sjá þegar ég kom á stjá í morgun. Ég lét veðurstofuna strax vita og í dag hef ég séð báta frá Flateyri sigla þarna í kring. Núna er útfall hér í firðinum en jak- arnir, sem eru að brotna í tvennt, hreyfast hvergi, sem bendir til að þeir hafi strandað,“ sagði Elísabet Kristjánsdóttir, bóndi á Sæbóli á Ingjaldssandi, í samtali við Morg- unblaðið síðdegis í gær. Guðjón Guðmundsson á Flateyri sigldi út að jökunum og sagði ann- an jakann á ellefu faðma dýpi en hinn á sextán. Þeir væru greinilega fastir en dýptin segði nokkuð um stærð. Ofan sjávar væru jakarnir um það bil fjórir metrar á hæð. sbs@mbl.is Hafís rak inn á Ön- undarfjörð Ljósmynd/Katrín Björk Guðjónsdóttir Hafís Jakarnir eru um það bil fjórir metrar á hæð að mati sjómanna sem sigldu að þeim. Síðdegis í gær voru jakarnir að brotna í sundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.