Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 23
Menning 23FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009 ALÞJÓÐLEGUR dagur bygg- ingarlistar er í dag. Í kvöld bjóða Arkitektafélag Íslands og hönnunar- og arkitekt- úrdeild Listaháskóla Íslands til fyrirlestrar Péturs Ármanns- sonar um ævi og verk Gunn- laugs Halldórssonar arkitekts, en öld var liðin frá fæðingu hans í ágúst. Gunnlaugur er í hópi merkustu frumherja ís- lenskrar byggingarlistar. Snemma á 4. áratugnum gerðist hann helsti boð- beri nýrra viðhorfa í húsagerð. Meðal verka hans eru verkamannabústaðir við Hringbraut austan Hofsvallagötu, Háskólabíó og íbúðarháhýsi við Sólheima 25-27. Aðgangur er ókeypis. Arkitektúr Minnast Gunnlaugs Halldórssonar Gunnlaugur Halldórsson BÓKMENNTANÁMSKEIÐ um verk Kristínar Marju Bald- ursdóttur hefst í Gerðubergi í kvöld, í tengslum við Ritþing um skáldið sem haldið verður í Gerðubergi 31. október. Nám- skeiðskvöldin verða fjögur, á mánudagskvöldum frá 20 - 22, en kennari er Sigfríður Gunn- laugsdóttir. Á námskeiðinu verður skyggnst inn í sögu- heim Karitasarbóka Kristínar Marju; saga Karitasar er ekki einungis saga af langri og viðburðaríkri ævi einnar manneskju heldur saga íslenskrar þjóðar í öld einsog hún hljómar af vörum konu sem valdi sér það hlut- skipti að verða listakona. Skráning í s. 5757700. Bókmenntir Aldarvegferð Karit- asar í Gerðubergi Kristín Marja Baldursdóttir BLÚSKVÖLD Blúsfélags Reykjavíkur eru haldin á Rós- enberg fyrsta mánudagskvöld í hverjum mánuði. Í kvöld leikur heimsfrægt Blúsband Jóns Ólafssonar; R.B. Blúsbandið úr Rangárþingi og hljómsveitin Klassart úr Sandgerði. Gest- gjafi og kynnir á Blúskvöldum Blúsfélagsins er Halldór Bragason gítarleikari. Þetta er annar veturinn í röð sem Blús- félag Reykjavíkur stendur fyrir föstu tónleika- haldi á Rósenberg, en fyrstu tónleikarnir í fyrra voru blúsdaginn mikla 6. október. Markmið Blús- félags Reykjavíkur og tilgangur er að auka hróð- ur blústónlistarinnar á Íslandi. Tónlist Klassart og fleiri á Blúskvöldi í kvöld Halldór Bragason Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is „ÞÓTT bilið milli skáldskapar og svokallaðs veruleika sé stutt og stundum eiginlega ekkert þykir mér rétt að taka fram að þessar sögur eru skáldskapur,“ segir í upphafi smásagnasafnsins Prívat og persónulega eftir Birgi Sigurðs- son sem geymir sjö sögur. Maður þarf ekki að lesa lengi í þessari bók til að fá sterkt á til- finninguna að sögurnar séu byggð- ar á ævi þinni. Hversu mikið af þér og þínu lífi er í þessum sögum? „Viltu að ég reikni það í prósent- um? Ætli það sé ekki svona frá fimm upp í sjötíu og sex og hálft prósent! Þegar Dagur vonar var sýndur var ég spurður hvort hann væri byggður á mínu eigin lífi. Þá svaraði ég: Já og nei og nei og já og þó aðallega nei. Það þýddi að hann væri fyrst og fremst skáld- skapur. Sama gildir um þessar sög- ur. Sá veruleiki sem er þarna á bak við hefur verið ummyndaður í skáldskap.“ Varð að vera í fyrstu persónu Sögurnar eru allar sagðar í fyrstu persónu. Af hverju fórstu þá leið? „Mér fannst að í þetta sinn yrði það að vera þannig. Ég hef ákaf- lega litla heilagleikatilfinningu fyrir smásagnaforminu svokallaða. Mað- ur á ekki að hella hugsunum sínum og tilfinningum eins og deigi ofan í eitthvert fyrirfram tilbúið form. Eiga þetta að vera einhverjar smá- sagna-formkökur? Það má skrifa smásögur á milljón vegu í alls kon- ar formi. Í rauninni er ekkert smá- sagnaform til. Það er ímyndun, uppfinning bókmenntafólks og rit- höfunda sem vilja algilda sjálfa sig og sín viðhorf. Slík algildisviðhorf koma alltaf upp öðru hvoru í um- fjöllun um skáldskap og listir. Í þessari bók minni er einn sögu- maður í öllum sögunum og sömu persónur koma fyrir í fleiri en einni sögu. Samt eru sögurnar sjálfstæðar og fullgildar smásög- ur.“ Áhugi á fólki Endurtekningar eru notaðar nokkuð í þessum sögum og setja mark sitt á stílinn. Gerirðu þetta algjörlega markvisst? „Þær verða til bæði sjálfrátt og ósjálfrátt. Ég hef lært að nota þær og líka lært að forðast þær. Þetta er spurning um jafnvægi. En ég hef aldrei hugsað mikið um stíl. Þá getur maður hæglega lent út á til- gerðar-galeiðu. Ég hef fyrst og fremst hugsað um að segja hlutina eins og ég vil segja þá. Síðan hef ég þaulunnið allt sem ég hef gert. Þá verður til það sem kalla má stíl.“ Persónur þessarar bókar eru minnisstæðar og stundum finnst manni þú sýna þær í nokkuð mis- kunnarlausu ljósi en samt með væntumþykju. „Alveg frá því að ég var lítill hef ég haft mikinn áhuga á fólki. Kon- ur leituðu mikið til móður minnar með vandamál sín. Þá var ég oft hjá, reyndi að svelgja hvert orð í mig og starði á þær, skoðaði þær. Þetta hefur kannski þróast upp í afhjúpunarþörf sem leitar útrásar í skáldskap. Þessi þörf verður líka oft til þess að ég sé fólk í spaugi- legu ljósi og sjálfan mig líka. Ég vona að það skili sér í þessum sög- um. Ég er enn að skoða fólk og mér hættir enn til að stara á það. Konan mín er alltaf að reyna að venja mig af því.“ Er hún þessi skemmtilega kona í síðustu sögunni í bókinni? „Hún er að minnsta kosti skemmtilegasta manneskja sem ég hef kynnst.“ Verkin tala Af hverju gefurðu bókina sjálfur út? „Ég var of seinn með hana til Forlagsins þar sem flest verk mín hafa verið gefin út. Ég hefði getað fengið hana útgefna á næsta ári en þá býst ég við að vera á kafi í öðru verki, þannig að ég ákvað að leita til annars útgefanda; Birgis Sig- urðssonar. Það má ekki á milli sjá hvor fer meira í taugarnar á hin- um, Birgir Sigurðsson útgefandi eða Birgir Sigurðsson rithöfundur.“ Að hvaða verki ertu að vinna núna? „Ég tala aldrei um verk sem ég er að vinna að. Ég fann snemma á mínum ferli að ef ég talaði um efni sem ég var að fást við þá dó það fyrir mér. Menn eru ólíkir hvað þetta varðar. Ég átti vin, mikinn listamann, sem nú er dáinn. Hann hafði unun af að tala um það sem hann var að fást við þá stundina. Það var honum algjör nauðsyn. Mín nauðsyn er hins vegar að steinþegja yfir því sem ég er að fást við. Það talar fyrir mig þegar það birtist.“ Morgunblaðið/Ómar Birgir Sigurðsson „Ég hef fyrst og fremst hugsað um að segja hlutina eins og ég vil segja þá.“ Ekki smásagnaformkökur  Birgir Sigurðsson gef- ur út eigið smásagnasafn  Ekkert smásagnaform til, segir höfundurinn  Hefur þaulunnið allt sem hann hefur gert Birgir Sigurðsson fæddist 28. ágúst 1937 í Reykjavík. Hann hefur skrifað ljóð, skáldsögur, leikrit og rit almenns eðlis. Hann hefur auk þess fengist við þýðingar og gerð heimildarmynda. Leikritið Dagur vonar vakti mikla athygli þegar það var sýnt í Iðnó en það var gefið út á bók árið 1987. Leikrit Birgis hafa verið sýnd hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhús- inu og Leikfélagi Akureyrar. Þau hafa einnig verið flutt í Ríkisútvarp- inu. Erlendis hafa þau verið sýnd í Los Angeles, London, Kaupmanna- höfn, Álaborg, Þórshöfn, Vaasa og Stokkhólmi. Fyrsta skáldsaga Birgis, Hengi- flugið, kom út 1993 en hann hefur síðan sent frá sér skáldsöguna Ljósið í vatninu. Fjölhæfur rithöfundur og leikskáld SÖGUR tékkneska rithöfundarins Franz Kafka taka iðulega óvænta stefnu og sama má segja um deilur og úrskurði um handrit Kafka og pappíra hans suður í Ísrael. Franz Kafka lést árið 1924 og höfnuðu handritin hjá vini hans í Prag, Max Brod, sem óhlýðnaðist fyrirmælum Kafka um að brenna þau; í dag er Kafka talinn til mestu höfunda 20. aldar. Brod náði síð- ustu lestinni frá Prag, með papp- íra Kafka, áður en nasistar náðu þar völdum árið 1939 og settist að í Ísrael. Hann lést árið 1968 og allar götur síðan varðist ritari hans, Esther Hoffe, öllum ósk- um fræðimanna um að fá aðgang að skjölunum. Fræðimenn hafa ætíð haldið því fram að Brod hafi ætlað að hafa þau aðgengileg. Hoffe hunsaði þær óskir og seldi hluta skjalanna fyrir milljónir dala, þar á meðal handrit Réttarhaldanna, frá 1914. Hoffe lést fyrir tveimur árum og tók Eva dóttir hennar að sér vörslu pappíranna. Írsaelska dagblaðið Haaretz stefndi henni fyrir að meina aðgang að skjölunum og fyrir helgi skipaði ísraelskur dómstóll Evu Hoffe að opna fyrir aðgang að þeim. Samkvæmt fréttum Haaretz um réttarhöldin er ólíklegt að fjölskylda Hoffe hleypi neinum að skjölunum í bráð. Úskurðinum hefur verið áfrýj- að og mun Eva Hoffe hafa hlegið að þeim fullyrðingum að skjölin liggi undir skemmdum í íbúð móður hennar, sem var víst full af köttum. „Ég er ekki vitlaus,“ mun hún hafa sagt. „Skjölin eru í örygg- ishólfi.“ Skjölin eru í ör- yggishólfi Enn er tekist á um handrit Franz Kafka Franz Kafka SUÐUR-AFRÍSKI rithöfundurinn J.M. Coetzee gæti orðið fyrsti rithöf- undurinn til að hljóta hin eftirsóttu Man Booker-verðlaun í þriðja sinn en á morgun verður tilkynnt hver fimm tilnefndra höfunda hlýtur þau. Hann er tilnefndur nú fyrir bókina Summertime, um ungan ævisagna- höfund sem vinnur að ævisögu látins höfundar sem hét John Coetzee. Veðbankar telja þó yfirgnæfandi lýkur á því að Hilary Mantel, 57 ára gamall Breti, hljóti verðlaunin fyrir söguna Wolf Hall, um líf og samtíma Thomas Cromwells. Aðrir tilnefndir höfundar eru A.S. Byatt, sem er tilnefnd fyrir The Cildren’s Book, en hún hlaut verð- launin árið 1990; Adam Foulds, sem er 35 ára gamall er tilnefndur fyrir The Quickening Maze, sannsögulega skáldsögu sem gerist á geðveikra- hæli nærri London um miðja 19. öld, og Sarah Waters er tilnefnd fyrir skáldsöguna The Little Stranger. Tilnefningu til Man Booker- verðlaunanna geta hlotið enskumæl- andi höfundar frá Samveldislönd- unum og Írlandi. Verðlaunaféð er um tíu milljónir króna. Talsmenn veðbanka segja enga tilnefnda bók hafa verið jafn líkleg til að sigra og Wolf Hall Mantels. Coetzee eða Mantel verð- launaður? Gylfi er hjartastór maður og hefur mikla frásagnargáfu eins og heyrist. 28 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.