Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009 Páll Vilhjálmsson blaðamaðurskrifar í pistli sínum: „Nú- verandi ríkisstjórn getur ekki beðið um nýjar viðræður við stjórnvöld í London og Haag. Það verður að vera ný rík- isstjórn sem gerir það.     Steingrímur J. kemur eftirhelgi úr leið- angri til Tyrk- lands þar sem hann hittir m.a. fjármálaráð- herra Breta og Hollendinga. Áður hefur Öss- ur hitt utanríkis- ráðherra sömu þjóða. Komi Steingrímur J. tóm- hentur heim, eins og Össur, er morgunljóst að Icesave- samningurinn er fallinn.     Meginrök talsmanna rík-isstjórnarinnar fyrir því að hún skuli sitja áfram eru þau að enginn valkostur sé við sitjandi stjórn. Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur eiga að búa til þennan valkost með því að bjóða Vinstri grænum að verja minnihlutastjórn þeirra falli.     Minnihlutastjórn VG yrði umlágmarksverkefni; ganga frá fjárlögum ársins 2010, fá nýja samninga við Breta og Hollendinga um Icesave, end- urskoða samstarfið við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn, ganga á milli bols og höfuðs á afgangi útrásarinnar og sjá um fram- kvæmd á skuldaaðlögun heim- ilanna. Verkefnin yrðu unnin af ríkisstjórn Vinstri grænna sem fengi umboð til næsta vors en þá yrðu kosningar.“     Þetta eru athyglisverð sjón-armið hjá blaðamanninum. Páll Vilhjálmsson Mælt með minnihlutastjórn Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 2 léttskýjað Lúxemborg 14 skýjað Algarve 25 heiðskírt Bolungarvík 1 skýjað Brussel 14 léttskýjað Madríd 26 heiðskírt Akureyri -1 skýjað Dublin 12 skýjað Barcelona 23 léttskýjað Egilsstaðir -2 skýjað Glasgow 11 skúrir Mallorca 23 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 1 snjókoma London 16 heiðskírt Róm 25 heiðskírt Nuuk -1 léttskýjað París 18 skýjað Aþena 25 heiðskírt Þórshöfn 7 skýjað Amsterdam 13 léttskýjað Winnipeg 6 súld Ósló 7 skýjað Hamborg 11 skúrir Montreal 14 alskýjað Kaupmannahöfn 12 léttskýjað Berlín 14 heiðskírt New York 21 heiðskírt Stokkhólmur 7 skýjað Vín 20 léttskýjað Chicago 11 skýjað Helsinki 9 skúrir Moskva 12 alskýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 5. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 0.40 0,3 6.43 4,1 12.56 0,3 18.57 4,0 7:50 18:44 ÍSAFJÖRÐUR 2.48 0,1 8.41 2,1 15.02 0,2 20.52 2,1 7:58 18:45 SIGLUFJÖRÐUR 4.57 0,1 11.10 1,3 17.08 0,2 23.29 1,3 7:41 18:28 DJÚPIVOGUR 3.58 2,2 10.11 0,3 16.13 2,0 22.18 0,4 7:20 18:12 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á þriðjudag Vaxandi norðaustanátt og víða 10-15 m/s síðdegis. Slydda með köflum, en úrkomulítið suðaustanlands. Frost 0 til 8 stig, en hiti um eða yfir frost- marki að deginum. Á miðvikudag Norðanátt og él fyrir norðan og austan, en bjartviðri á S- og V- landi. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum. Á fimmtudag, föstudag og laugardag Austlæg átt og fremur úrkomu- samt. Heldur hlýnandi veður í bili. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Dálítil él norðan- og aust- anlands, en annars skýjað með köflum og slydda með köflum eða él sunnantil. Frost 0 til 7 stig, mest inn til landsins, en frostlaust við suður- og vest- urströndina að deginum. STÓRRIDDARAKROSS með stjörnu, þriðja stig hinnar íslensku Fálkaorðu seldist á 2.600 evrur, jafnvirði nær 475.000 króna, á þýsku uppboði fyrir safnara á föstudag. Upphafsboð var 1.500 evrur. Hinn landsþekkti safnari Magni R. Magnússon, fyrrum Hjá Magna, segir þetta vitni um að það sé greini- lega áhugi fyrir íslenskum orðum. Stórriddarakrossinn var þó ekki eina íslenska orðan sem seldist á uppboðinu. Einnig seldist stórridd- arakross á 2.000 evrur, rúmar 360.000 krónur. Upphafsboð var 1.000 evrur. Þá seldist riddararkross á 440 evrur, rétt um 80.000 krónur en upphafsboð var 250 evrur. Samkvæmt upplýsingum frá for- setaembættinu eru orðustigin nú fimm. Riddarakross er fyrsta stig orðunnar, það sem flestir eru sæmd- ir. Stórriddarakross er annað stig, og þá stórriddarakross með stjörnu. sigrunrosa@mbl.is Fálkaorða seld fyr- ir nær hálfa milljón Fálkaorðan Stórriddarakross með stjörnu er þriðja stig orðunnar. Áhugi erlendis fyrir íslensku orðunni LÖGREGLAN á Suðurnesjum kom í gærmorgun að manni sem var að reyna að stela bíl í Reykjanesbæ. Maðurinn, sem er sagður góðkunn- ingi lögreglunnar, var búinn að rífa víra og fleira undan mælaborði bif- reiðarinnar og var að reyna að gang- setja hana þegar lögreglan kom að honum. Maðurinn gisti fanga- geymslur og var sleppt að loknum yfirheyrslum í gær. Þá voru sex ökumenn teknir grun- aðir um ölvun við akstur á Suð- urnesjum í fyrrinótt, eða undir áhrif- um ávana- og fíkniefna. Einn ökumannanna var án réttinda. Tókst ekki að stela bílnum Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is MIKIL umferð var um íslenska flug- stjórnarsvæðið á laugardag. Bilun kom upp í tölvukerfi í flugstjórnar- miðstöð í Prestwick í Skotlandi og þurfti því að breyta loftleiðum véla sem voru á leiðinni frá Evrópu og vestur um haf, inn á íslenska svæðið. Alls fóru 363 vélar um íslenska svæð- ið, sem er með því meira sem gerist. Metið er hins vegar í kringum 500 flugvélar, en íslenska flugstjórnar- svæðið er eitt það stærsta í heimi. Fjölga þurfti um átta flugumferð- arstjóra á vakt þegar mest var. Úr álaginu dró síðan um miðjan daginn, enda var kerfið í Prestwick þá komið í samt lag svo allt gat gengið snurðu- lítið fyrir sig og með eðlilegum hætti. „Öll okkar plön höfðu gert ráð fyr- ir næsta lítilli flugumferð og sam- kvæmt því var vaktin mönnuð. Svo tóku mál nýja stefnu. Við kölluðum í allan þann mannskap sem þurfti til og þannig tókst okkur að vinna úr þessu. Okkar fólk stóð sig alveg frá- bærlega. Atvik lík þessu eru vissu- lega ekki algeng en koma einstaka sinnum upp. Alltaf tekst þó að vinna úr þeim, sem sýnir best hversu góð samvinna flugstjórnarmiðstöðvanna hér við norðanvert Atlantshafið í rauninni er,“ sagði Hjördís Guð- mundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða, í samtali við Morgunblað- ið í gærkvöldi. Umferðin var mikil en snurðulaus. Bilun í Skotlandi jók flugumferðina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.