Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009 47.000 manns í aðsókn! FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI HHHHH “ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Ekki fyrir viðkvæma „Afskaplega undarleg, gríðarlega óvenjuleg og skringilega fullkomin!“ - Damon Wise, Empire „Frammistaða Dafoe og Gainsbourg er óttalaus og flokkast sem hetjudáð.... Ég get ekki hætt að hugsa um þessa mynd. Þetta er alvöru kvikmynd og hún yfirgefur huga minn ekki. Von Trier hefur náð til mín og komið mér úr jafnvægi.“ - Roger Ebert HHHH „Verður vafalaust titluð meistarverk...“ – H.S., Mbl Sýnd kl. 4, 7 og 10 650kr. Uppáhalds BIONICLE®-hetjurnar vakna til lífsins í þessari nýju og spennandi mynd Íslens kt talHHHH– S.V. MBL Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins Sýnd m/ ísl. tali kl. 4 (650 kr.) Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 7 og 10 HHH „Ef þú sást fyrstu myndina og fílaðir hana, þá máttu alls ekki sleppa þessari!“ T.V. – Kvikmyndir.is Mikil grimmd og logandi frásögn. Lisbeth Salander er orðin klassísk og ein eftirminnilegasta persóna glæpabókmenntana. F.E. Rás 2 HHH „Skylduáhorf fyrir alla aðdáendur Larssons, – sannarlega eldfim spennumynd.” MMJ – kvikmyndir.com HHHH „Öllu því svalasta, magnaðasta og flottasta úr þykkri spennusögu er þjappað saman í alveg hreint frábæra spennumynd.“ – ÞÞ, DV HHHH „Stúlkan sem lék sér að eldinum er ekki síðri en forveri hennar ... afar spennandi, takturinn betri... Michael Nykvist og Noomi Rapace eru frábær í hlutverkum sínum“ – VJV, FBL Uppgötvaðu ískaldan sannleikann um karla og konur Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI Stúlkan sem lék sér að eld. kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Stúlkan sem lék sér að eld. kl. 5:20 - 8 - 10:40 Lúxus Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 ára Jennifer‘s Body kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.16 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ Bionicles kl. 4 LEYFÐ Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is Það er langt um liðið síðanþau stórmerki hafa gerstað mynd frá Norðurlönd-unum hefur slegið jafn rækilega í gegn og Karlar sem hata konur, sem er fyrsti hluti þrennu sem kenndur er við Millennium, eft- ir Svíann Stieg Larsson. Þá sögu þekkja flestir og nú er röðin komin að mynd 2, Stúlkunni sem lék sér að eldinum. Hún segir frá áframhald- andi baráttu þeirra tölvuhakkarans, pönkarans og hins eldsnjalla rann- sóknarmanns Lisbeth Salander (Rapace) og blaðamannsins og að- stoðarritstjóra tímaritsins Millenni- um, Mikaels Blomkvist (Nyqvist), við sænska óbótamenn. Í fyrstu myndinni, sem var vel skrifuð, dæmigerð morð- og mannshvarfs- gáta með snjallri sögufléttu, kom hin unga og eggjandi, tvíkyn- hneigða Salander hinum miðaldra Blomkvist til hjálpar og leysti meira og minna gátuna sem hann var að fast við. Að þessu sinni er Salander í forgrunni, en fær hjálp frá Blom- kvist þegar syrtir í álinn undir lok myndarinnar. Í upphafi Stúlkunnar sem lék sér að eldinum er Salander að snúa aft- ur til heimalandsins eftir langt frí um heiminn þveran og endilangan þar sem hún hefur lifað í vellyst- ingum og komið auð sínum (sem hún stakk undan í fyrstu myndinni) tryggilega fyrir í skattaskjólum ver- aldar. Á meðan hefur Blomkvist haft nóg á sinni könnu við að upp- lýsa glæpa- og hneykslismál og fæst nú við vændi og kynlífsþrælasölu sem tengist mönnum á æðstu stöð- um. Samverkamaður hans er nýr blaðamaður á Millennium sem hefur komist í feitt en Salander er fjarri góðu gamni uns nýliðinn og kærasta hans finnast skotin til bana með fingraför Salander á morðvopninu. Þau voru greinilega komin á rétta leið í hættulegu máli sem teygir m.a. anga sína til fortíðarinnar og hins dularfulla Alexanders Zala- chenkos (Staykov), föður Salander. Af hverju er Salander eins og hún er? Sú spurning brann á manni í Körlum sem hata konur, og léði, ásamt magnaðri túlkun Rapace, myndinni aukakrydd. Samspil þeirra tveggja, Rapace og Nyqvists, var sjóðheitt og gefandi og um- hverfið, ramminn í kringum dul- arfull morð og óleyst mannshvarf, var aristókratísk, glæsileg tákn- mynd um auð og hnignun í sið- spilltu faðmlagi sem hreif mann með sér. Nú er nýr leikstjóri tekinn við taumunum og er bersýnilega ekki eins útsjónarsamur smekk- maður og forveri hans. Sjálfsagt er saga Larssons eitthvað slakari, meira í ætt við venjulegan sjón- varpskrimma með hefðbundnum átökum og eltingaleikjum. Og ásta- sambands aðalpersónanna er sakn- að. Millikaflar eru oftar en ekki skrifaðir á svipaðan máta og hér gefur að líta, aðeins hægt á ferðinni áður en gefið er inn á lokasprett- inum. Og þrátt fyrir hefðbundnari afgreiðslu, sögu og efnistök er Stúlkan sem lék sér að eldinum þrælgóð skemmtun og æsispenn- andi, grimm og harðvítug þegar kemur að uppgjörinu. Hún fær mann til að bíða spenntur eftir loka- kaflanum sem er væntanlegur í byrjun næsta árs. Þá vilja örugg- lega fleiri en ég upplifa vissar breytingar, við sjáum hvað setur. Rapace er státin og flott og er að þessu sinni í aðalhlutverki og hefur sterka nærveru þótt hún sé ekki jafn afgerandi undirheimaprinsessa og í fyrsta þætti. Nyqvist og Endre eru trúverðug og aukaleikarar margir góðir. Þó er eins og eitt helsta hörkutól myndarinnar missi dampinn undir lokin. Við fáum mörg snjöll svör við spurningum um fortíð Salander, sem verður að lík- indum fullsvarað í Luftslottet som sprængdes. saebjorn@heimsnet.is Laugarásbíó, Smárabíó, Regn- boginn, Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri Stúlkan sem lék sér að eldinum – Flickan som lekte med elden bbbmn Leikstjóri: Daniel Alfredson. Aðalleik- arar: Noomi Rapace, Michael Nyqvist, Lena Endre, Georgi Staykov, Mickey Spreitz , Sofia Ledam, Per Oscarsson. 129 mín. Svíþjóð. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Gamli, sænski stórleikarinn Per Oscarsson (1927-), er skraut- fjöðrin í Stúlkunni sem lék sér að eldinum. Oscarsson er enn ábúðarmikill og útgeislunin á sínum stað, en hann er einn virtasti leikari Svía og vann m.a. verðlaun á Cannes árið 1966, fyrir Sult. Oscarssson á marga leiksigra að baki á fjölunum en með þekktustu bíómyndum hans má nefna Ole dole doff (Jan Troell 6́8), Nybyggarna (Jan Troell 7́1) og Ronja Rövardotter (Tage Danielsson 8́4). Oscarsson, sem er frægur sérvitringur, hefur leikið í hátt í 150 kvikmyndum á ferlinum. PER UPP Á PUNT Ung og eggjandi „Af hverju er Salander eins og hún er?“ Tönn fyrir tönn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.