Morgunblaðið - 05.10.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
Vilja óháðan dómstól
Hollenskir Icesave-innistæðueigendur vilja höfða mál gegn Seðlabanka og FME
Segja stranda á því að dómstólar og lögmenn séu of tengdir inn í Icesave-málin
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
HOLLENSKIR innistæðueigendur vilja höfða
skaðabótamál gegn Seðlabanka Íslands, Fjármála-
eftirlitinu og jafnvel hollenska seðlabankanum.
Gerard van Vliet, talsmaður samtaka hollenskra
Icesave-innistæðueigenda, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að óskastaðan væri að geta höfðað skaða-
bótamál hér á landi gegn bæði seðlabanka og FME.
Van Vliet segir að hægt sé að horfa á málshöfðun
út frá tveimur hliðum. Annars vegar hafi FME og
Seðlabanki Íslands vanrækt eftirlitsskyldu sína.
Hins vegar bendir Van Vliet á reglugerð Evrópu-
sambandsins um mismunun en eitt lykilatriða ESB
samningsins er að ekki megi mismuna á grundvelli
þjóðernis og vísar þar til umræðu um að hinn ís-
lenski tryggingasjóður innistæðueigenda eigi jafn-
vel forgangskröfu í bú Landsbankans.
Þá skapi það vandamál að erfitt sé að finna bæði
óhlutdræga dómara og lögmenn sem ekki séu á
einn eða annan hátt tengdir fjármálahruninu.
Telur hollenska seðlabankann líka ábyrgan
Van Vliet segir að ekki megi gleyma því að hol-
lenski seðlabankinn beri einnig ábyrgð og tekur
sem dæmi skýrslu vinnuhóps seðlabanka, þar kom
fram varðandi innistæður að ekki aðeins þyrfti að
horfa á greiðsluhæfi þess banka sem fyrir er í land-
inu, heldur þyrfti einnig að horfa til greiðsluhæfis
móðurbankans og seðlabanka þess banka.
„Hollenski seðlabankinn vissi marga hluti sem
hann segist nú ekki hafa vitað og við fáum ekki upp-
lýsingar um samskipti hans við FME. Við báðum
um þessar upplýsingar en þeir höfnuðu því. Við
vonum að FME leggi þessi samskipti fram fyrir Al-
þingi þannig að við getum séð samskipti þeirra við
hollenska seðlabankann.“ Van Vliet vísar þar í
skýrslu sem hann segir að verði lögð fyrir Alþingi í
lok þessa mánaðar.
Um 200 manns eru í samtökunum og segjast þau
eiga samtals 25 milljónir evra inni vegna Icesave.
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
GUNNAR Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri PrimaCare, segir und-
irbúning í fullum gangi, inntur eftir því
hvort eitthvað standi í vegi fyrir því að
hægt sé að hefjast handa strax, varð-
andi fyrirhugaða byggingu einka-
sjúkrahúss og hótels á vegum fyrir-
tækisins í Mosfellsbæ.
Hvað afstöðu stjórnvalda til fram-
kvæmdarinnar, segir Gunnar hana ekki hafa neina sér-
staka þýðingu í þessu samhengi, þar sem það sé Land-
læknir sem gefi leyfi fyrir svona starfsemi. „Það er
einfaldlega að byggja spítalann og byggja hótelið. Síðan
biðjum við hann um að taka þetta út.“
Matthías Halldórsson landlæknir segir leyfilegt að
stofna einkasjúkrahús á Íslandi. Hann hafi átt óform-
legar viðræður við Gunnar og það líti út fyrir að áreið-
anlegir aðilar standi að baki Prima-
Care. Það verði einfaldlega að leggja
mat á starfsemina þegar allt sé komið
og veita þá starfsleyfi ef allt reynist í
lagi.
Nýja starfsemin mun skapa um 600
til 1.000 varanleg störf og segir Gunn-
ar að fyrst og fremst verði ráðnir inn
Íslendingar. Þegar sé byrjað að tala
við lykilstarfsfólk en ferlið sé rétt að
byrja og ráðið verði í almennari störf á
næsta ári.
Gunnar segir allan undirbúning fyrir bygginguna fara
af stað á næstu vikum. Skoða þurfi skipulagsmál á um-
ræddu svæði en búið sé að deiliskipuleggja það og það
eigi ekki að tefja verkið. Hvað fjármögnun varðar segir
Gunnar að einnig sé verið að vinna í því af fyrirtæki sem
sjái um fjármögnunina.
Fyrstu sjúklingar eru sagðir væntanlegir í lok árs 2011
ef allt gengur upp.
Allt að þúsund störf í boði
Unnið að hönnun og undirbúningi einkasjúkrahúss og hótels
í Mosfellsbæ Byrjað að ráða lykilstarfsfólk í starfsemina
Gunnar
Ármannsson
Matthías
Halldórsson
„ÞAÐ var ým-
islegt þarna
áhugavert sem
bráðabirgðafang-
elsi en ekki til
þess að leysa
þennan vanda í
tengslum við
vöntun á örygg-
isfangelsi og
gæsluvarðhalds-
fangelsi,“ segir
Páll Winkel for-
stjóri Fangelsismálastofnunar, en
ellefu formleg tilboð bárust þegar
Ríkiskaup auglýstu eftir aðstöðu
fyrir bráðabirgðafangelsi.
Páll segir að farið verði yfir til-
boðin í vikunni með dómsmálaráðu-
neyti og þá þurfi að tryggja fjár-
magn til þess að fara í þessa aðgerð.
Inntur eftir því hvort fjármögnun sé
þá ekki trygg segir Páll að gefið hafi
verið grænt ljós á leitina en fjár-
mögnun sé ekki frágengin, enda
liggi ekki fyrir hversu mikið hús-
næðið muni kosta.
Páll segir bráðabirgðafangelsi
nauðsynlegt til að taka af mesta kúf-
inn og um sé að ræða fangelsi fyrir
fanga sem hægt sé að treysta til þess
að vera vistaðir við opnar aðstæður.
Í útboðinu var gerð krafa um að
staðsetningin væri í um hálftíma
akstursfjarlægð frá Litla-Hrauni og
segir Páll það gert þar sem fag-
menntaðir fangaverðir séu flestir
þar. Tilboðin koma alls staðar að af
landinu og það frumlegasta er boð
um ísbrjót.
sigrunrosa@mbl.is
Ellefu til-
boð um
fangelsi
Páll Winkel, for-
stjóri Fangels-
ismálastofnunar.
Ákvörðun í vikunni
LÖGREGLA handtók síðdegis í gær
fjóra menn í tengslum víð hníf-
stunguárás á Spítalastíg í Reykjavík
í fyrrinótt. Meintir árásarmenn, sem
allir hafa áður komið við sögu lög-
reglu, eru af erlendu bergi brotnir.
Þeir eru grunaðir um að hafa ráðist
á erlendan karlmann og stungið
hann með hnífi um þrjúleytið í fyrri-
nótt. Sá sem varð fyrir árásinni er
ekki talinn alvarlega særður. Ekki lá
fyrir í gærkvöldi hvort mennirnir
yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Víða voru ryskingar á Reykjavík-
ursvæðinu í fyrrinótt. Fjórar líkams-
árásir komu til kasta lögreglu og á
skemmtistaðnum Players í Kópa-
vogi var maður handtekinn eftir að
hafa sparkað í liggjandi mann. Þá
var ráðist á dyravörð í Laugardals-
höll og Glaumbar við Tryggvagötu.
sbs@mbl.is
Hnífamenn
handteknir
Í HAUST hefur verið mikil þátttaka í starfi
sunnudagaskólans í Lindasókn í Kópavogi sem
vísast er raunin í fleiri sóknum landsins. Í gær
mættu alls 240 börn í sunnudagaskólann í Lind-
um sem til þessa hefur verið jafnhliða messu-
haldi. Aðsóknin veldur því, að héðan í frá verða
æskulýðsstarfið og messan hvort á sínum tíma
sunnudagsins. „Þetta er barnmargt hverfi sem
skýrir mikla aðsókn að nokkru. Einnig erum við
hér með fjölbreytta dagskrá; söng, fræðslu og
brúðuleikhús,“ segir sr. Guðmundur Karl Brynj-
arsson sóknarprestur. Hann telur ógerlegt að
tengja góða aðsókn við efnahagsástandið, stað-
reyndin sé einfaldlega sú að kirkjustarf höfði til
fólks og þar hverfi kynslóðabilið.
Börnin biðjast fyrir í sunnudagaskólanum
Líflegt kirkjustarf í Lindasókn
Morgunblaðið/hag