Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
MARGVÍSLEG tækifæri opnast fyrir Þör-
ungaverksmiðjuna með kaupum á nýju skipi.
Atli Georg Árnason, framkvæmdastjóri, segir
að á næstunni verði miklar breytingar á
rekstrarumhverfi fyrirtækisins.
„Með Fossánni fáum við skip sem getur
annað tvöfaldri afkastagetu verksmiðjunnar,“
segir Atli Georg. „Við stefnum á aukna þara-
öflun, sem er ekki eins takmarkandi frá nátt-
úrunnar hendi og þangið.“
Mjöl úr þangi og þara er verðmæt afurð, en
þaramjölið er þó enn verðmeira. Með þanginu
hefur Þörungaverksmiðjan unnið talsvert af
hrossaþara, sem er sóttur á svipaðar slóðir og
þangið. Nú verður í auknum mæli sótt í stór-
þara í Breiðafirðinum, sem er dýpra auk þess
sem meira er af honum þannig að náttúran
setur síður takmarkanir.
„Núna er verið að vinna í verksmiðjunni
um 200 tonn af blautum þara, sem skilar 40-
50 tonnum af þurrefni,“ segir Atli Georg.
„Tilraunasending frá okkur fer á næstunni til
Frakklands, en Frakkarnir eru komnir langt
með að vinna náttúruleg sýklalyf úr þaranum.
Þarna getur orðið gríðarlega verðmætur
markaður. Við höfum þegar samið um veru-
legt magn sem ég vona að aukist enn á næsta
ári. Þá erum við að vinna að því að opna nýja
markaði í Asíu og Evrópu fyrir þarann.“
Nú tengjast 32 stöðugildi beint starfsemi
Þörungaverksmiðjunnar. Gangi áætlanir upp
þarf að bæta 15-20 störfum við í verksmiðj-
unni sem er stærsti vinnuveitandinn í Reyk-
hólasveit. Þá þarf líka að tryggja fleiri atriði,
sem ekki eru á borði Þörungaverksmiðj-
unnar.
Byggja þarf varnargarð við höfnina, sem er
lífæð starfseminnar. Huga þarf að fjölgun
íbúða, en mikill skortur er á íbúðahúsnæði á
svæðinu og bygging iðngarða, sem um tíma
hefur verið á teikniborðinu, myndi auka mjög
fjölbreytni í atvinnulfinu.
Skipið og höfnin snúningsásar
„Það þarf að gera fólki kleift að koma á
svæðið,“ segir Atli Georg. „Það er alveg ljóst
að nýtt skip og höfnin eru snúningsásinn hér
og ég efast um að margir geri sér grein fyrir
hversu mikið af verðmætum útflutningi fer
héðan frá Reykhólum beint til útlanda.
Ég hef í marga mánuði barist fyrir því að
byggingu varnargarðs sem er á áætlun á
næsta ári verði alls ekki slegið á frest. Með
garðinum verður hér lífleg og blómleg höfn.
og héðan gætu farið innan ekki svo langs
tíma um tíu þúsund tonn af þurru mjöli,“ seg-
ir Atli Georg Árnason.
Afköst aukin
á öllum sviðum
Fjölgun starfsfólks framundan á Reykhólum
Þaramjöl í sýklalyf Varnargarði má ekki fresta
Nýtt skip og nýir markaðir eru viðfangs-
efni Þörungaverksmiðjunnar á Reykhól-
um. Samhliða þessu væntanlega fleira
starfsfólk. Fleiri þurfa þó að leggjast á ár-
ar til að tryggja öryggi og fjölbreytni at-
vinnulífs í byggðarlaginu.
FOSSÁ ÞH 362 er nýtt skip þörungaverk-
smiðjunnar á Reykhólum og leysir af hólmi
Karlseyna, sem komin er til ára sinna. Ísfélag
Vestmannaeyja og verksmiðjan á Reykhólum
gengu nýverið frá samningum um skipið, en
kaupverðið fæst ekki gefið upp.
Fossáin, sem nú fær nýtt hlutverk við þara-
og þangöflun, var gerð út frá Þórshöfn á
Langanesi til kúfisksveiða. Breyta þarf skipinu
mikið til að uppfylla sértækar þarfir þör-
ungaverksmiðjunnar. „Skipið verður skrælað
að innan, við myndum segja að það yrði gert
fokhelt ef við værum að tala um íbúðarhús,“
segir Atli Georg Árnason framkvæmdastjóri.
Tilboð í breytingar voru opnuð 29. sept-
ember og bárust sjö tilboð, þar af voru fimm
frá innlendum fyrirtækjum og tvö frá Evrópu.
Atli segist vona að hægt verði að semja við inn-
lenda aðila, en verið er að fara yfir tilboðin. Í
raun var þörungaverksmiðjan að tryggja sér
skrokk skipsins og þurfa lestar að vera stórar.
Þá þarf skipið að geta unnið á miklum grynn-
ingum.
Fyrr á árinu var leitað tilboða í nýsmíði á
skipi fyrir þörungaverksmiðjuna. Tólf tilboð
bárust og reyndust þau öll öll mun hærri en
hugmyndir verksmiðjunnar.
Karlseyin verður áfram í rekstri á meðan
Fossánni er breytt að sérstökum þörfum verk-
smiðjunnar. Að því loknu verður Fossáin að
hinni nýju Karlsey og leysir þá gömlu af hólmi.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvaða
hlutverk gamla Karlseyin fær, en ýmislegt er
til skoðunar.
Morgunblaðið/Líney
Fossá aflar þara og þangs