Morgunblaðið - 05.10.2009, Síða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Flug
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 39.900. Hljómborð frá
kr. 8.900. Trommusett kr. 79.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsnæði óskast
Garðabær: hús óskast til leigu
Fjölskyldu, sem er að flytja til lands-
ins, vantar einbýlis- eða parhús til
leigu í Garðabæ. Öruggum greiðslum
heitið og tryggingar í boði.
sunnasig@hotmail.com
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
Málarar
getum bætt við okkur inni- og
útivinnu, einnig parketlagnir. Uppl. í
síma 893 4180.
Ýmislegt
Teg. 7204 - mjúkur og æðislegur í
BCD skálum á kr. 3.950,- boxer buxur
í stíl á kr. 1.950,-,
Teg. 82115 - mjög gott aðhald í CDE
skálum á kr. 3.950,- boxer buxur í stíl
á kr. 1.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bátar
Skemmtibátur, gott dekkpláss
Í bátnum er nýtt AIS-tæki, ný talstöð
ásamt dýptarmæli og radar. 40 hest-
afla vél með nýjum startara, altana-
tor og m.fl. Uppl. í síma 894 3117.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
KRINGLUBÓN ekið inn stóri-
litli turn. Opið mán.-fös. 8-18,
lau. 10-18. S. 534 2455
GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj.
Firðinum (undir verslunarm.)
Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái og leðurhreinsun
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Raðauglýsingar
Tilboð/Útboð
Lóðir & lagnir
Einn verktaki í allt verkið
Tökum að okkur verk fyrir fyrirtæki, stofnanir,
húsfélög og einstaklinga. Dren, skolp-
lagnir, hellulagnir, lóðafrágangur, jarðvegs-
skipti, snjóbræðslulagnir, grunnar, fleyganir,
vörubílar og allt frá smágröfum til stærri
tækja og fleira. Gerum föst verðtilboð.
Guðjón, sími 897 2288.
MÍMIR 6009100519 III° HEKLA 6009100519 VI
Félagslíf
atvinna
✝ Sigurður Frið-geir Jóhannsson
fæddist í Neðri-
Breiðadal í Önund-
arfirði 24. mars
1931. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 24. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Jóhann Jón Hil-
aríus Jónsson, f.
14.5. 1901 í Neðri-
Breiðadal í Önund-
arfirði, d. 1.9. 1963,
og Sigurlaug Jó-
hannsdóttir, f. 7.6. 1907 á Hóli í
Þorgeirsfirði í Fjörðum, d. 28.12.
2003. Systkini Sigurðar eru Jó-
hann Jón, f. 9.11. 1929, Magnús
Gunnar, f. 18.10. 1933, Margrét
Hildur, f. 23.3. 1935, Svanfríður
Bjarney, f. 25.7. 1936, d. 4.3.
2009, Friðgerður Lilja, f. 10.6.
1942, Önundur Ingi, f. 7. 11. 1945,
og Sigríður Ásdís, f. 18.11. 1948.
Börn þeirra eru Jóhann Ingi, f.
1984, Tómas Aron, f. 1986, og
Berglind Sif, f. 1990. 3) Heiðdís, f.
7.9. 1965, gift Sigvalda S. Ein-
arssyni, f. 31.1. 1965. Synir þeirra
eru Þórður Karl, f. 1991, og Er-
lingur, f. 2000. 4) Heiðrún, f. 8.10.
1971. Dætur hennar eru Snædís
Inga, f. 1995, og Sara Bryndís, f.
2004. Sigurður ólst upp frá
þriggja ára aldri á Selakirkjubóli
í Önundarfirði hjá föðurforeldrum
sínum, Jóni Jónssyni, f. 5.4. 1876,
d. 17.4. 1960, og Friðgerði Sig-
urlínu Jóhannsdóttur, f. 10.6.
1876, d. 12.1. 1962. Sigurður flutti
síðan 16 ára til foreldra sinna í
Hrísey og stundaði sjóróðra með
pabba sínum frá Hrísey og vann í
síldinni á Hjalteyri á sumrin.
Hann tók gagnfræðapróf frá Hér-
aðsskólanum á Laugum í Reykja-
dal 1950. Sigurður flutti árið 1951
í Mosfellssveit og starfaði nokkur
ár við Áburðarverksmiðjuna. Eft-
ir að hann kvænist Svövu fluttu
þau til Reykjavíkur. Hann fékk
heildsöluleyfi árið 1954 og starf-
aði við heildverslun alla sína
starfsævi.
Útför Sigurðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 5. október,
og hefst athöfnin kl. 13.
Hinn 24.7. 1954
kvæntist Sigurður
Svövu Steinunni
Ingimundardóttur, f.
12.9. 1932 á Hrísbrú
í Mosfellsdal. For-
eldrar hennar voru
Ingimundur
Ámundason, f. 6.5.
1896, d. 13.1. 1979,
og Elínborg Andr-
ésdóttir, f. 3.6. 1900,
d. 22.3. 1995. Sig-
urður og Svava eign-
uðust fjögur börn.
Þau eru: 1) Elínborg,
f. 24.10. 1953, gift Sigurbirni Leifi
Bjarnasyni, f. 24.4. 1954, d. 2.5.
1991. Börn þeirra eru Svava
Björg, f. 1971, Eva f. 1977, Sig-
urður Bjarni, f. 1980, og Sig-
urbjörg, f. 1983. Barnabörn
þeirra eru tvö, Alexander Leifur,
f. 1991, og Svanhildur Ýr, f. 2002.
2) Jón Ingi, f. 25.3. 1961, kvæntur
Lindu Jóhannsdóttur, f. 8.6. 1965.
Þau eru mörg minningabrotin sem
koma upp í hugann þegar ég hugsa
um pabba. Fyrsta minning mín frá
æsku er þegar ég hleyp á móti pabba
í sveitinni hjá Möggu frænku, en
hann var að koma með rútunni og
labbaði eftir vegarslóðanum að bæn-
um, örugglega með eitthvað góðgæti
í töskunni. Pabbi elskaði bækur og
því voru margar ferðirnar með hon-
um í fornbókabúðirnar og bókasafn-
ið. Ég man líka eftir eftirvænting-
unni á aðfangadag þegar maður fékk
jólapakka frá Bókastúfi og var pakk-
inn merktur með merkimiða með
skriftinni hans pabba. Hann hélt
þeim sið í mörg ár að gefa mér bók í
jólagjöf, enda finnst mér eitthvað
vanta ef engin bók kemur upp úr
jólapökkunum.
Við yngri systurnar eigum líka
nöfnin okkar honum að þakka því að
daginn áður en átti að skíra mig þá
dreymdi hann draum og í honum
birtust tvö nöfn, Heiðdís og Heiðrún,
mamma féll fyrir þessu og pabbi
fékk að ráða nöfnin á okkur. Pabbi
var sá eini sem gaf mér gælunafn
þegar ég var lítil og notaði hann það
oftast þegar við vorum bara tvö sam-
an. Ég var þá Dísin hans og fannst
það vera eitthvað sem pabbi hefði
einkarétt á að kalla mig og því kom
alltaf svipur á mig þegar einhver
annar reyndi að kalla mig Dísu.
Pabbi var rólegur og hæglátur
maður og fannst gaman að stússast
einn með bækurnar sínar, plöturnar,
fyrstadags umslögin, frímerkin,
geisladiskana og krossgáturnar.
Hann var gangandi alfræðiorðabók
og gæddum þeim einstaka hæfilega
að muna allt sem hann las. Hann var
ekki gefinn fyrir já og nei svör, elsk-
aði útúrsnúninga og orðaleiki þannig
að það gat tekið ár að spyrja hann að
einhverju sérstaklega þegar ég var
unglingur og hafði ekki mikla þol-
inmæði fyrir þessum eiginleikum.
Ég vildi óska þess að maður hefði
skrifað niður öll þessi skemmtilegu
orð sem hann bjó til. Ég man eftir
því að þegar ég var ólétt að frum-
burðinum, Þórði Karli, þá spurði
pabbi mig alltaf hvernig kúlubúinn
hefði það. Ég á enn spjald sem við
festum á dyrabjölluna á Öldugötu
þar sem skrifað var „Kúlubúi Sig-
valdason“ .
Það hefur verið erfitt að upplifa
síðustu árin með pabba þegar heils-
an hrakaði, mér fannst sárast þegar
hann gat ekki lengur ráðið krossgát-
una og lesið bækurnar sínar. Tíminn
eftir að pabbi og mamma fluttu til
okkar í Melselið hefur verið ómet-
anlegur, áttum við pabbi oft góðar
stundir innan um bækurnar hans að
leysa saman krossgátur, því að með
lagni og þolinmæði þá náði maður að
fá hann til að muna eftir ótrúlegum
hlutum þrátt fyrir sín veikindi. Eig-
inleiki hans að vera með orðaleiki
hvarf heldur aldrei.
Ég veit að núna ertu kominn á
góðan stað, ert í þínu besta formi að
rýna í bækur og blöð og að glettast
við Svönu frænku. Ég vona að þú
sendir mér hugskeyti þegar ég reyni
næst að leysa helgarkrossgátuna og
smakka rauðvínið sem við náðum
ekki að drekka saman.
Dísin þín,
Heiðdís.
Sigurður Friðgeir
Jóhannsson Elsku afi, þú varst alltafbesti afi sem ég hef átt. Það
var gaman að spila við þig ól-
sen ólsen, veiðimann og
lönguvitleysu. Þú kenndir
mér líka að leggja kapal.
Stundum fórum við út að
labba í kringum Melsel og þú
bentir á fuglana og sagðir
mér hvað þeir hétu. Ég
sakna þín og mun aldrei
gleyma þér.
Þinn,
Erlingur.
Því hvert sem ég fer
fylgir hann mér,
ég finn hann hvar sem mig rek-
ur.
En farinn hann er
– hvað hann var eða hver –
hans mynd frá mér engin tekur.
(Sigríður Einars.)
Í dag kveð ég afa minn
með djúpum söknuði.
Þín,
Snædís Inga.
HINSTA KVEÐJA
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minn-
ingargrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út. Greinar, sem berast eftir að út-
för hefur farið fram, eftir tiltekinn
skilafrests eða ef útförin hefur verið
gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Engin lengdar-
mörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsing-
ar um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á netfangið
minning@mbl.is og láta umsjónar-
menn minningargreina vita.
Minningargreinar