Morgunblaðið - 05.10.2009, Qupperneq 22
22 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
TÍMI TIL
AÐ VAKNA
Z
ALLT Í LAGI! ÞAÐ
ER GOTT AÐ VITA!
TAKK KÆRLEGA FYRIR
UPPLÝSINGARNAR
ÉG REYNI AÐ
VERA HJÁLPLEGUR
Z
ÞEIR
KVÖDDU
MIG EKKI
HVERNIG
GEKK
VINNAN?
BARA ÁGÆTLEGA... EN
STUNDUM VELTI ÉG ÞVÍ FYRIR
MÉR HVORT ÞETTA SÉ ÞESS VIRÐI
ENGA
VITLEYSU!
AUÐVITAÐ ER
ÞETTA ÞESS VIRÐI!
AF
HVERJU ERTU
EKKI MEÐ ÓL?
HVAÐ GET ÉG
SAGT? ÉG ER
VILLIDÝR
TAKK FYRIR AÐ BJÓÐA
MÉR Í PÁSKAMATINN.
ÞETTA LÍTUR MJÖG VEL ÚT
TAKK,
NJÁLL
ÞÚ VEIST AÐ ALLT
SEM VIÐ LEGGJUM
HÉR Á BORÐ HEFUR
SÉRSTAKA MERKINGU
HVAÐA MERKINGU
HEFUR ÞAÐ AÐ ÞESSI
SÓSA SÉ HVÍT
EN HIN RAUÐ?
ÞAÐ MERKIR AÐ
VIÐ SETTUM
RAUÐRÓFUR Í
AÐRA ÞEIRRA
FRAMLEIÐENDUNUM FANNST „MARVELLA“
SVO LÉLEG AÐ ÞEIR ÆTLA EKKI AÐ
SÝNA HANA Í KVIKMYNDAHÚSUM
ÞÚ ERT ENNÞÁ AÐAL STJARNAN
Í STÓRRI LEIKSÝNINGU
ÞAR FÓR
LEIKFERILLINN
MINN
HVAÐA
VITLEYSA!
EKKI
GLEYMA...
Birta Ösp, Kristófer, Óskar, Þorbjörg Brynja, Sigrún Klara, Harpa Katrín,
Elvar Otri, Vilhjálmur Yngvi og Goði Ingvar voru með söfnun hjá Spöng-
inni í Grafarvogi og Borgarholtsskóla og færðu Rauða krossinum ágóðann,
sem var 23.014 krónur.
Hlutavelta
Eru stjórnarliðar
sekir um landráð?
Evrópusambandið er
ekki aðeins efnahags-
samband. ESB er er-
lent yfirvald með yfir-
ráð yfir mörgum
innanríkismálum aðild-
arríkjanna. Svo spurn-
ing vaknar hvort það sé
landráð að reyna að
koma Íslandi undir er-
lend yfirráð.
Almenn hegningar-
lög tala um landráð í
86. gr: „Hver, sem sek-
ur gerist um verknað,
sem miðar að því, að
reynt verði með ofbeldi, hótun um
ofbeldi, annarri nauðung eða svikum
að ráða íslenska ríkið eða hluta þess
undir erlend yfirráð, eða að ráða
annars einhvern hluta ríkisins und-
an forræði þess, skal sæta fangelsi
ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.“
Eru stjórnarliðar sekir um:
„verknað, sem miðar að því, að reynt
verði með [...] nauðung eða svikum
að ráða íslenska ríkið eða hluta þess
undir erlend yfirráð“ ESB? Ef rétt
reynist að Icesave samningur rík-
isstjórnarinnar miðar að því að liðka
fyrir inngöngu Íslands í ESB; en
sönnunargögn þess efnis hrannast
upp úr öllum áttum. Og ef frásagnir
þingmanna um að vera beittir nauð-
ung í Icesave málinu eru sannar; en
það að hóta stjórnar slitum er nauð-
ung. Þá hafa hinir ábyrgu í rík-
isstjórn gert sig að landráðamönn-
um fyrir landslögum.
Jón Þór Ólafsson.
Hryllingshaustið mikla
ÞAÐ er óhætt að segja að ekki blási
byrlega fyrir okkur hér á eyjunni
okkar fögru. Það er liðin tíð að hun-
ang falli hér af hverju strái. Dimmir
skuggar sem sífellt lengjast og föln-
uð laufin á stígnum segir að brátt
komi veturinn. En það
er líka haust í sálum
margra núna og marg-
ir kvíða ákaflega fram-
tíðinni.
Það var líka ömur-
legt að horfa á þing-
setninguna í sjónvarp-
inu þar sem dökkklætt
ráðherraliðið sat hnípið
við þingsetninguna og
sumir voru svo daprir á
svipinn að halda hefði
mátt að þeir væru að
koma frá jarðarför. Ég
efast ekki um að mál-
efnin sem þetta fólk
glímir við eru ákaflega
erfið, en þjóðin þarf á
því að halda að hér sé samhent rík-
isstjórn sem heldur andlitinu út á
við, telur kjark í sitt fólk og leiðir
það örugglega gegnum hinn mikla
brimskafl.
Að lokum vil ég segja þetta: þrátt
fyrir allt þurfum við að sjá spaugi-
legu hliðarnar á lífinu og hafa húm-
orinn ætíð í för með okkur, það er
bara svo miklu betra heilsu okkar og
vellíðan svo mikils virði.
Sigrún Reynisdóttir.
Hvað næst
SIGRÚN Stefánsdóttir virðist vera
að breyta Rás 1, bara breytinganna
vegna. Nú síðast í morgun, 1. októ-
ber, var veðrið kringum landið horf-
ið eftir tíufréttir. Margir sakna
morgunvaktarinnar eins og hún var
milli kl. 7 og 8. Pétur Halldórsson og
Hanna G. eru fínt útvarpsfólk, tek
ég fram. Við sem erum að koma okk-
ur inn í daginn erum ekki alveg
tilbúin fyrir vísindaspjall. Sigrún
hættu að hringla svona í dagskránni,
ég tala fyrir munn fjölda fólks.
Ragnheiður Jónsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.30,
útskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna,
lífsorkuleikfimi, fótaaðgerð, lesið og
spjallað kl. 13.30, annar lestur úr bókinni
Skáld-Rósa eftir Gísla H. Kolbeins. Blöð-
in liggja frammi.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín
kl. 9-16, leikfimi kl. 10, brids kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
og kaffitár kl. 13. Blásarasveit FEB æfing
kl. 19.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía og
gler- og postulínsmálun kl. 9.30, handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi við til há-
degis, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15,
kóræfing kl. 17, tréskurður kl. 18 og
skapandi skrif kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna
og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8 og 9, kvennaleikfimi
kl. 9, 9.45 og 10.30, bókband kl. 10,
gönguhópur kl. 11, matur og kaffi.
Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga kl. 10, Gafl-
arakórinn kl. 10,30, glerbræðsla kl. 13,
botsía og félagsvist kl. 13.30, tréskurður
kl. 14. www.febh.is
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30 hjá Ragnheiði, opin vinnustofa
kl. 9-16, brids kl. 13, kaffisala.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 11.30. Uppl. í síma 564-1490 og
á www.glod.is
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga frá Graf-
arvogskirkju í dag kl. 10. Sundleikfimi á
morgun kl. 9.30 í Grafarvogssundlaug.
Leshópur FEBK Gullsmára | Sigmundur
Ernir Rúnarsson, rithöfundur, ljóðskáld,
sjónvarpsmaður og alþingsmaður, verð-
ur gestahöfundur Leshóps FEBK í félags-
heimilinu Gullsmára á morgun, 6. októ-
ber kl. 20. Enginn aðgangseyrir.
Norðurbrún 1 | Handavinna kl. 9-15.30,
skurðstofan opin eftir hádegi f. útskurð,
botsía kl. 10, bingó kl. 13.30 í borðsal.
Skráning á námskeið. Matur í hádegi.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-15
30, botsía kl. 9, leikfimi kl. 11, matur,
kóræfing kl. 13.30, tölvukennsla kl. 15,
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band, postulínsmálun, morgunstund kl.
9.30, botsía kl. 10, upplestur, fram-
h.saga kl. 12.30, myndlist kl. 13.30,
handavinnustofan opin og spilað kl. 13,
stóladans kl. 13.15. Uppl. í s. 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opnaður kl.
9, botsía og leikfimi kl. 13, kaffi.