Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 2

Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533 Fyrsta myndakvöld vetrarins hjá FÍ. Fyrsta myndakvöld vetrarins hjá Ferðafélagi Íslands verður miðvikudaginn 14. október. Þá verða sýndar myndir af Vatnaleiðinni milli Hnappadals og Norðurárdals og um leið verður kynnt nýútkomið smárit FÍ um Vatnaleiðina. Eftir kaffihlé verða sýndar myndir frá óeiginlegum Laugavegum og var farin í fyrsta sinn í sumar og fer Páll Ásgeir Ásgeirsson yfir ferðasöguna.. Í þessari ferð var gengið um fáfarnar slóðir í Hattveri, Jökulgili, Hattafellsgil, Ljósártungur og Rjúpnafellsgil. Sjaldan var gengið um hinn eiginlega Laugaveg en notast við hefðbundna gististaði á honum. Myndakvöldið hefst kl. 20 og er aðgangseyrir sem fyrr kr. 600 og er kaffi og meðlæti innifalið. Allir velkomnir. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „REYNSLAN hjá Áströlum og Ný- sjálendingum af svínaflensunni er sú að þeir voru með marga alvarlega veika sjúklinga á spítölum. Það gerði reksturinn erfiðan því þeir voru einnig með marga veika einstaklinga inni á gjörgæsludeild. Það er vitað að ef við fáum marga þannig einstakl- inga hér geti það orðið erfitt fyrir spítalana,“ segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir hjá sóttvarnalækni, sem segir einkennin geta verið alvarleg. „Læknar syðra hafa sent læknum á norðurhveli sterk varnaðarorð um að þeir hafi aldrei séð svona alvar- lega lungnabólgu hjá ungu fólki og fólki á miðjum aldri.“ Þórólfur hvet- ur hins vegar til stillingar og bendir á að spítal- arnir séu með viðbragðsáætl- anir. Landspítal- inn sé ágætlega undirbúinn. „Menn eru hins vegar alltaf hræddir við útbreidda faraldra. Það gæti sett starfsemi spítalans úr jafn- vægi ef margir leggjast inn alvarlega veikir á stuttum tíma. Spítalinn gæti þurft að endurraða og breyta sem gæti haft miklar af- leiðingar í för með sér. Ef margir sjúklingar þurfa öndunarvélar eða að leggjast inn á gjörgæslu gæti það truflað starfsemina og hugsanlega komið niður á þjónustu við aðra.“ Snemma á ferðinni Þórólfur segir það miður að svína- flensan sé fyrr á ferðinni en vonast var til og að því séu áætlanir um að ljúka bólusetningu á stórum hluta þjóðarinnar áður en flensan nær út- breiðslu, ekki lengur í myndinni. Fyrsti skammturinn af bóluefninu kemur á morgun, alls 12.500 skammtar, en ekki 15.000 eins og til stóð, og segir Þórólfur annan skammt væntanlegan í mánaðarlok. Heilbrigðisstarfsmenn fá forgang en síðar í mánuðinum verður fólk með undirliggjandi sjúkdóma næst í röðinni. Um jólin er vonast til að búið verði að bólusetja um 200.000 manns. Gæti orðið erfitt fyrir spítalana  Læknar á suðurhveli vara við heiftarlegri lungnabólgu af völdum svínaflensu  Fyrsti skammtur af bóluefni á leiðinni Þórólfur Guðnason KÓKOSBOLLUR, hákarl með súkkulaði, matar- kex, agúrka og apríkósur sem skolað var niður með ógeðsdrykk. Þetta var kokteill keppenda í kappáti sem fram fór í gærkvöldi í félagsmiðstöð- inni Græðgyn í Grafarvogi. Sigurvegari kvölds- ins var Kristinn Hafliðason og verður hann fulltrúi Græðgynar á Grafarvogsleikum félags- miðstöðva síðar í mánuðinum, þar sem keppt verður í frumlegum greinum og skemmtilegum. ETIÐ AF GRÆÐGI Í GRÆÐGYN Morgunblaðið/Kristinn SAFNARÁÐ hefur lokið yfirferð yfir þá muni sem mats- menn á vegum danska uppboðsfyrirtækisins Bruun og Rasmussen mátu verðuga til kaups 7. september sl. Tug- ir gripa voru skoðaðir en ekki þótti ástæða til að stöðva sölu á nema einum; forláta Þorláksbiblíu. Margrét Hall- grímsdóttir, þjóðminjavörður og formaður safnaráðs, segir næsta skref eiganda annarra muna að sækja um undanþágu til að af sölunni geti orðið. Forngripi eldri en 100 ára og listaverk eldri en 50 ára má ekki flytja úr landi, nema höfundurinn geri það. Þor- láksbiblía er frá árinu 1644. Talið er að um fjörutíu eintök séu til á landinu. Biblían var prentuð þegar Guðbrands- biblía seldist upp en Þorlákur þessi Skúlason var dóttur- sonur Guðbrandar. Prentunin er talin hafa staðið yfir í sjö ár og á varð- veittum eintökum má ýmist sjá titilblöð með ártalinu 1637 eða 1644. Hið fyrra var gert við upphafsár þrykk- ingarinnar en hið seinna á lokaárinu. Nokkur eintök hafa verið seld af biblíunni, á um og yfir eina milljón króna. andri@mbl.is Vilja ekki að Þorláks- biblía verði seld úr landi Bókin góða Þorláksbiblían er fágæt. Hér er um að ræða eintak sem gefið var héraðsbókasafni Borgarfjarðar. Ekki ástæða til að halda eftir öðrum munum frá matsdegi ENN og aftur varar lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu eigendur og um- ráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum, en talsvert hefur verið um innbrot í bíla á höf- uðborgarsvæðinu. Eru það ekki síst myndavélar og tölvur sem freista þjófa, sem stunda það að stela úr bíl- um. Nú um helgina bárust lögreglunni sex tilkynningar um innbrot í bíla. Um var að ræða innbrot í bíla í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði en úr þeim öllum var stolið ýmsum verðmætum. „Þetta verða eigendur eða um- ráðamenn ökutækja að hafa hugfast og muna að skilja ekki verðmæti eft- ir í bílum. Sé það óumflýjanlegt minnir lögreglan á að mikilvægt sé að slíkir hlutir séu ekki í augsýn,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. Fólk skilji ekki eftir verðmæti Talsvert um innbrot í bíla að undanförnu Helmingur um hundrað nemenda í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði var veikur í gær sem er einsdæmi, að sögn Valdimars Mássonar skóla- stjóra, sem segir 20 hafa bæst við á listann eftir helgina. Skýringin á þessari hröðu aukn- ingu kann að liggja í því að grunn- skólinn, tónlistarskólinn og leik- skólinn eru í sömu byggingu. Flensan er þannig einnig að stinga sér niður í leikskólanum þar sem 18 af 39 börnum eru veik. Tómlegt er um að litast á leikskól- anum og segir Hrafnhildur Guð- jónsdóttir skólastjóri aðeins 12 börn hafa mætt í skólann í gær. Á Akranesi voru 40 af um 420 nemendum Brekkubæjarskóla lasnir í gær og 10 af um 80 starfs- mönnum. Að sögn Arnbjargar Stefánsdóttur skólastjóra er ekki óvanalegt að mörg börn veikist á haustin. Veikindi starfsfólks setji hins vegar skólastarfið úr skorðum og fá yngstu börnin forgang. Í engu ofangreindra dæma hafa svínaflensutilvik verið staðfest. Óvenjumörg börn veik fyrir austan Morgunblaðið/Kristján Að leik Flensan breiðist út.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.