Morgunblaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 4
Að á Passat EcoFuel kem
st þú frá Reykjavík
til Akureyrar og til baka á
n þess að þurfa að
fylla á eldsneytistankinn.
Vissir þú?
METANDAGAR HEKLU 12.-16. OKT. - Komdu og reynsluaktu metanbíl frá Volkswagen METAN er innlendur orkugjafi METAN er helmingi ódýrara en bensín
* Miðað við blandaðan akstur.
** Miðað við 80% akstur á metani og 20% á bensíni og verðlag 12. okt. 2009.
Volkswagen Passat
EcoFuel 1.4 TSI
Hefðbundinn 2.0 lítra
bensínbíll af annarri gerð
150 hestöfl
450 km
430 km
880 km
Afl vélar
Langdrægni á metantanki*
Langdrægni á bensíntanki*
Samtals*
Eldsneytiskostnaður 20.000 km**
Eyðsla 100 km blandaður akstur
140 hestöfl
0 km
765 km
765 km
160.934 kr.
6,9m3 metan / 7,2 l bensín
308.550 kr.
8,5 l bensín
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
„ÁSTANDIÐ er þannig að við höf-
um þurft að líða 30% hækkun síð-
an um áramót,“ segir Friðrik Frið-
riksson, grænmetisbóndi í Jörfa á
Flúðum og formaður Félags græn-
metisframleiðenda. Blikur eru á
lofti hjá garðyrkjubændum vegna
fyrirhugaðs umhverfisskatts sem
fram kemur í nýútkomnu fjárlaga-
frumvarpi og margir grænmetis-
bændur velta nú fyrir sér að hætta
vetrarræktun vegna aukinna
álagna á greinina. Friðrik segir að
ekki sjái fyrir endann á hækk-
unum á garðyrkjubændur.
„Rafmagnið er orðið það dýrt og
allt sem að þessu kemur, perur og
annað, gerir það að vetrarrækt-
unin er of stór biti,“ segir Friðrik
og bætir við að í svartasta skamm-
deginu þurfi að lýsa í 18 tíma á
sólarhring. „Markaðurinn þolir
ekki hærra verð, ekki ofan á allt
hitt sem stjórnvöld eru að gera.“
Hækka þyrfti verðið um tugi pró-
senta út úr búð til að standa undir
auknum álögum. „Og það sjáum
við ekki fyrir okkur,“ segir Frið-
rik.
Hann segir garðyrkjubændur nú
sitja við útreikninga á því hvernig
mæta eigi fyrirhuguðum hækk-
unum. „Afleiðingarnar af þessu
eru, bara hér á Flúðum, að ef
menn hætta framleiðslu í þessa
mánuði, október, nóvember, des-
ember, janúar, glatast hérna 50-60
störf,“ segir Friðrik. Þá er staðan
á atvinnugreininni sú sama og hún
var fyrir 18-20 árum. „Þá er bónd-
inn bara einn að þrífa hér frá nóv-
ember og fram í febrúar,“ segir
hann og slær út hendinni í hlýju,
vel upplýstu gróðurhúsinu þar sem
starfsfólk hamast við að tína tóm-
ata. Að þeim tíma liðnum þyrfti að
hefjast handa að nýju við að ráða
fólk og Friðrik segir að það sé
hægara sagt en gert. „Við þurfum
að flytja inn allt starfsfólk, hérna
á þessari stöð eru bara fjórir Ís-
lendingar af ellefu starfsmönnum,“
segir hann. Sextán manns starfa í
stöðinni yfir sumarið. Þegar jafn-
vægi er í starfseminni allt árið er
auðveldara að halda Íslendingum í
vinnu.
Friðrik er um það bil að fara að
setja niður nýjar tómataplöntur en
segist enn ekki hafa tekið ákvörð-
un um hvort hann hætti yfir þessa
dýru mánuði. „Við höldum í vonina
um að stjórnvöld dragi einhverjar
hækkanir til baka og að hætt verði
við þessar nýju hækkanir, af því
við finnum fyrir velvilja hjá neyt-
endum og þingmönnum,“ segir
hann en bendir á að allt reynist
svo þversum þegar í stofnanirnar
er komið. Og Friðrik upplýsir að
ekki sé unnt að anna eftirspurn
eftir íslensku grænmeti. „Manni
finnst dálítið skrítið að hvert
megavatt til ylræktar skapar 7-8
störf en hvert megavatt í áliðnaði
skapar bara eitt. Og það á þessum
tímum þegar það vantar atvinnu
fyrir fólkið okkar og gjaldeyri!“
segir hann með áherslu.
Þola ekki frekari álögur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áfram „Eins og staðan er ætlum við að reyna, en það er tap á rekstrinum yfir þessa dimmustu mánuði,“ segir
Friðrik Friðriksson, grænmetisbóndi í Jörfa á Flúðum og formaður Félags garðyrkjuframleiðenda.
Grænmetisframleiðendur íhuga að hætta vetrarræktun Hækka þyrfti verð um tugi prósenta til að
standa undir auknum álögum en markaðurinn þolir ekki hærra verð 30% hækkun frá áramótum
Í HNOTSKURN
»Friðrik notar 2,5-3 millj-ónir kílóvattstunda á ári.
Því er ljóst að króna, og þó
það væru aurar, á hverja kWst
er fljót að telja í rekstrinum.
»Friðrik notar meiri raf-orku en Eyrarbakki og
Stokkseyri til samans en hann
borgar sama verð fyrir hverja
kWst.
»Þó að raforkan sé ódýrariá nóttunni og um helgar
kemur það grænmetisbændum
ekki til góða þar sem plöntur
þurfa reglubundna birtu.