Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „VIÐ hyggjumst virkja visku fjöldans og gera niður- stöðurnar aðgengilegar öllum sem vilja efla íslenskt samfélag,“ segir María Ellingsen leikkona. Í gær voru send út boðsbréf vegna Þjóðfundar sem haldinn verður 14. nóvember næstkomandi. Til fundarins er boðið 1.200 Íslendingum sem valdir eru af handahófi úr þjóðskrá og til fundar í eigin nafni. Auk þeirra er 300 fulltrúum stofnana, samtaka og annarra slíkra boðið til fundarins þar sem vænta má að æði mörg viðhorf heyrist. Grasrótarhópurinn Mauraþúfan stendur að þjóð- fundinum, sem kynntur var á blaðamannafundi í gær. Fyrirkomulag fundarins er að fólk verður kall- að saman í litla hópa og það fengið til að leggja orð í belg um viðhorf sín, skoðanir og fleira slíkt. „Þessi aðferð er vel þekkt og eftir fundinn eigum við að vera komin með tölfræðilega marktæka niðurstöður um hvað endurspeglar þjóðarvilja,“ segir Bjarni Snæbjörn Jónsson, einn aðstandenda fundarins. Hann segir að sérstaklega verði fiskað eftir því hvaða gildi og viðhorf sameina þjóðina fremur en sundra en slíkt hafi verið mjög áberandi í allri um- ræðu um menn og málefni að undanförnu. „Við viljum leita svara við þeirri spurning hvar okkur hrakti af leið og hvað hugmyndir og lausnir svo íslenska þjóðin komst af stað eftir efnahags- hrunið í fyrrahaust,“ segir Bjarni Snæbjörn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kynning Frá vinstri talið eru Bjarni Snæbjörn Jónsson, María Ellingssen og Sigrún Þorgeirsdóttir. Mauraþúf- an er grasrótarhópurinn sem stendur að Þjóðfundinum sem er í undirbúningi og miklar vonir eru bundnar við. Virkja visku þjóðar  Mauraþúfan boðar Þjóðfund 14. nóvember  Leita gilda sem sameina  1.500 manns boðaðir á fundinn VIÐ viljum byrja strax í næsta mán- uði og teljum góðar líkur á að það takist,“ segir Peter Travis Campell hjá hollenska fyrirtækinu ECA, sem undirbýr viðhaldsstöð fyrir 18 vopn- lausar orrustuflugvélar í stóra flug- skýlinu á Keflavíkurflugvelli. ECA sérhæfir sig í varnaræfingum fyrir Atlantshafsbandalagið, NATO, og reiknar með að 150-200 störf skapist hjá fyrirtækinu hér á landi, auk af- leiddra starfa á svæðinu. Um er að ræða fjárfestingu upp á 4,5 milljarða króna og er fjármögnun að mestu leyti tryggð, að sögn Campells, sem verður stöðvarstjóri hér. Stofnað verður félagið ECA á Íslandi. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á mánudag hefur ECA undirbúið verkefnið í samstarfi við ÍAV Þjónustu, dótturfélag Íslenskra aðalverktaka. Viðræður hafa einnig staðið yfir við íslensk stjórnvöld um ýmis leyfi fyrir starfseminni, en auk viðhaldsstöðvar og þjálfunaraðstöðu fyrir heri NATO-ríkjanna er mögu- legt að flugskóli verði starfaður. Engar varnaræfingar munu þó fara fram á vegum fyrirtækisins. Að sögn Campells þurfti einnig að semja við stjórnvöld í Hvíta- Rússlandi, þaðan sem orrustuþot- urnar eru fengnar frá Sukhoi- verksmiðjunum, til að tryggja að þoturnar séu ekki notaðar í hern- aðarlegum tilgangi. bjb@mbl.is Þotur Orrustuþoturnar koma frá Sukhoi og munu fá TF-stafina. ECA vill hefja störf sem fyrst Fjárfesting upp á 4,5 milljarða króna „VIÐ núverandi aðstæður í efna- hagslífinu kann að vera nauðsyn- legt að víkja tímabundið til hliðar sam- keppnisreglum til að ná fram nauðsynlegri hagræðingu í atvinnulífinu í því skyni að skapa sterkari fyrirtæki.“ Þetta segir í umfjöllun um bráðaað- gerðir á vefsíðu ASÍ sem lögð verð- ur fram til umræðu á ársfundi ASÍ í næstu viku. „Slíkt verður þó að gera af mikilli varfærni og gæta að langtímahagsmunum neytenda og ekki síður fyrirtækja, því að fá- keppni og einokun hefta möguleika nýrra fyrirtækja til að hasla sér völl á markaði,“ segir þar ennfremur. Tvö stærstu heildarsamtök launa- fólks verða með þing sín á sama tíma í næstu viku. Ársfundur ASÍ fer fram dagana 22. og 23. október og þing BSRB verður haldið 21. - 23. október. Efnahagsþrenging- arnar eru mál málanna samkvæmt dagskrám fundanna. Víkja samkeppn- isreglum til hliðar? TÓLF japönsk túnfiskveiðiskip voru á veiðum rétt utan íslensku efnahagslögsögunnar suður af landinu í fyrrinótt. Skipin sáust í eftirlits- og gæsluflugi Landhelg- isgæslunnar á TF-Sif. Ekki eru leyfðar túnfiskveiðar innan íslensku lögsögunnar en sam- kvæmt því sem fram kemur á heimasíðu sjávarútvegsráðuneyt- isins var ákveðið að veiðiheimildir Íslands fyrir árið 2009 úr stofni Austur-Atlantshafs bláugga- túnfisks yrðu geymdar og fluttar óskertar til ársins 2011. ai@mbl.is Tólf japönsk skip á túnfiskveiðum Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Í viðræðum launþegasamtaka, vinnuveitenda, ríkis og sveitarfélaga í Karphúsinu er nú m.a. reynt að finna leiðir úr vanda sem kominn er upp í kjaramálum á opinbera vinnu- markaðinum. Stefnir í ákveðið mis- vægi á milli umsaminna launahækk- ana hópa launþega eftir því hvort þeir semja við ríki eða sveitarfélög. Í hnotskurn snýst þetta um ólíkar leið- ir sem farnar hafa verið í samningum um hækkanir launataxta til að tryggja kaupmátt lægstu launa. Þegar stöðugleikasáttin var und- irrituð í júní gengu ASÍ og SA frá framlengingu samninga m.a. um krónutöluhækkanir kauptaxta 1. júlí og 1. nóvember. Þá kemur að óbreyttu til almenn 2,5% hækkun 1. júní 2010. Ríkið hefur farið aðra leið við endurnýjun samninga BSRB-fé- laga. Þar er kveðið á um krónutölu- hækkanir með sama hætti, sem fara svo stiglækkandi eftir því sem ofar kemur í launastiganum en 1. júní ná hækkanirnar þó upp að 310 þúsund kr. mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Að mati Samninganefndar ríkisins eru ASÍ/SA hækkanirnar mun meiri vegna 2,5% almennu hækkunarinnar í júní 2010. ,,Við lok samningstíma- bilsins endum við í rauninni heldur neðar en almenni markaðurinn,“ segir viðmælandi hjá ríkinu. Meginvandinn snýr að sveitar- félögunum, sem hafa ekki treyst sér til að ganga eins langt og ríkið í launakostnaðarhækkunum. Þetta hefur valdið kennurum áhyggjum en þeirra samningar eru ófrágengnir. Kennarafélögin semja sem kunnugt er við bæði ríki og sveitarfélög. „Það gengur engan veginn að það verði sitthvor línan í gangi gagnvart ríkinu og sveitar- félögunum,“ segir viðmælandi sem óttast að með þessu verði innsiglað- ur launamunur og ákveðnir hópar verði skildir eftir. Einnig er ósamið við BHM og fleiri félög. Ljóst er af máli manna að þeir vilji leita allra leiða til að leysa málið en fyrst verði að koma í ljós hvort samningar ASÍ og SA verða framlengdir 1. nóv. Reyna að leiðrétta misgengi  Þrjár ólíkar leiðir sem farnar eru á almenna og opinbera vinnumarkaðinum við hækkanir lægri launataxta skapa vandamál  Samningar kennara og BHM enn ófrágengnir  Leita lausna í Karphúsi Í viðræðum um stöðugleikasátt- ina í Karphúsinu er gerð tilraun til að leysa úr flækjum sem blasa við í kjaramálum opinberra starfsmanna vegna ósamræmis launahækkana hópa á næsta ári. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stíf fundarhöld Forystumenn á vinnumarkaði hafa skipt liði í þrjá vinnu- hópa sem funduðu í Karphúsinu í gær og halda viðræðum áfram í dag. „Við höfum áhyggjur af því að það gangi mjög hægt að ná hagkerfinu inn á sporið með þessari aðferð sem [Seðlabankinn og Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn] eru að beita,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ eftir fund í starfshópi um vaxta- og gengismál í Karphúsinu í gær. „Við höfum áhyggur af því að á sama tíma hækkar jafnvægis- gengið að nafnvirði og líkurnar á að evran fari aftur niður í 130 verða sífellt minni. Það hefur í för með sér að lífskjör og kaupmáttur rýrnar þeim mun meira. Það þýðir líka að afrakstursgeta útflutnings- fyrirtækjanna verður mjög mikil. Það er uppskrift að því að það verði mjög mismunandi launaþró- un í landinu,“ segir hann. Gylfi bendir líka á að gengi krónunnar verði að styrkjast sem allra fyrst og kaupmáttur að aukast. „Seðla- bankinn verður líka að horfa inn í framtíðina og vinna með okkur að því að finna leiðir út úr þessu. Ég met það svo að það sé vilji til þess.“ Uppskrift að mismunandi launaþróun Sama vinnulag hefur verið tekið upp í Karphúsinu og við gerð stöð- ugleikasáttmálans í júní. Fulltrúar allra helstu launþegasamtaka, samtaka atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga hafa skipt liði í starfshópum sem fást við stór við- fangsefni. Einn hópurinn fjallar um ríkisfjármál og fyrirhugaðar skattahækkanir. Annar um stór- framkvæmdir og atvinnumál. Þriðji hópurinn fjallar um vexti, gjaldeyrishöftin og gengi. Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri SA og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, eiga báðir sæti í þeim hópi. Í gær komu seðlabankastjóri og ráðuneytisstjórar á fundina. Skoða vexti, skatta og framkvæmdir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.