Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Í fyrri tíð var gamla stjórnar-ráðshúsið við Lækjartorg fang- elsi, enda byggt sem slíkt. Bar það af flestum öðrum húsum landsins og þótti myndarleg áminning um að konungsvaldið væri ekki eins langt undan og virtist.     Stafaði þá ógn frá húsinu og erekki alveg laust við að enn votti fyrir henni, einkum þó er yfirvöldin brýna fyrir almúganum að Icesave-grýlan taki þá óþekkt- arorma, sem hafa tilburði til að ganga uppréttir, þótt þeir geri það heima hjá sér og ekki sé nema örskotsstund í einu.     Úr tugthúsinuheyrðust hljóð sem vitn- uðu um að ólánsmönnum var haldið að vinnu og enn í dag berast spunahljóð úr húsinu. Ný- breytnin er sú, að það eru ekki gæfusnauðir fangar og snærisþjófar sem spinna, heldur fjölmiðlafulltrúar, sem hlaupið hefur á snærið hjá.     Jón Magnússon fyrrverandi al-þingismaður sér í gegnum spunann.     Hann skrifar: „Vinstri grænvirðast ekki átta sig á því að þeirra er fyrst og fremst ábyrgð- in á Icesave-samningnum. Foringi þeirra skipaði vanhæfa samninga- nefnd um Icesave, sem kom heim með ómögulegan samning sem Steingrímur J. lýsti stuðningi við og undirritaði. Það eru afleið- ingar þessara gjörða Steingríms J. sem Vinstri græn bera alla ábyrgð á. Kostir þeirra eru því í raun tveir. Að samþykkja gjörðir foringja síns eða lýsa vantrausti á hann.“ Er nokkru við þetta að bæta? Jón Magnússon hrl og fyrrverandi alþingismaður. Enn er spunnið Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 9 skýjað Lúxemborg 11 léttskýjað Algarve 26 heiðskírt Bolungarvík 9 skýjað Brussel 11 skýjað Madríd 20 léttskýjað Akureyri 9 léttskýjað Dublin 14 skýjað Barcelona 24 léttskýjað Egilsstaðir 7 heiðskírt Glasgow 14 skýjað Mallorca 24 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 8 léttskýjað London 14 heiðskírt Róm 19 heiðskírt Nuuk 3 skýjað París 15 skýjað Aþena 22 skýjað Þórshöfn 11 alskýjað Amsterdam 13 léttskýjað Winnipeg -8 heiðskírt Ósló 6 heiðskírt Hamborg 10 léttskýjað Montreal 3 skúrir Kaupmannahöfn 7 skýjað Berlín 9 léttskýjað New York 12 alskýjað Stokkhólmur 5 léttskýjað Vín 8 léttskýjað Chicago 3 skýjað Helsinki 3 skýjað Moskva 11 þoka Orlando 24 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 14. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3.05 3,2 9.16 1,1 15.26 3,6 21.52 0,8 8:16 18:12 ÍSAFJÖRÐUR 5.22 1,7 11.22 0,5 17.25 2,0 8:27 18:11 SIGLUFJÖRÐUR 0.54 0,3 7.23 1,2 13.12 0,5 19.27 1,3 8:10 17:54 DJÚPIVOGUR 0.06 1,7 6.12 0,6 12.43 1,9 18.56 0,7 7:47 17:40 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á fimmtudag Suðvestan 13-20 m/s og skúrir, en heldur hægari og léttskýjað að mestu á A-verðu landinu. Hiti 5 til 10 stig. Á föstudag Sunnan 10-18 m/s og fer að rigna um landið vestanvert, en annars hægari og þurrt að kalla. Hiti breytist lítið. Á laugardag og sunnudag Suðvestlæg átt og væta víða um land, en yfirleitt þurrt NA- til. Áfram milt veður. Á mánudag Búast má við austan hvassviðri eða stormi með rigningu. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða rigning fyrripartinn, eink- um þó sunnan- og vestanlands. Suðvestlægari og skúrir um landið sunnan- og vestanvert eftir hádegi, en annars þurrt að kalla. Hvessir í kvöld, einkum vestantil. Hiti 7 til 13 stig að deginum, hlýjast á A-landi. Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is GERT er ráð fyrir að makrílafli í Norðaustur- Atlantshafi verði í ár rúmlega 800 þúsund tonn. Það er verulega umfram ráðgjöf Alþjóðahafrann- sóknaráðsins, ICES, sem lagði til að makrílaflinn yrði í kringum 550 þúsund tonn á árinu. Afli Ís- lendinga er orðinn um 116 þúsund tonn, en aðrar þjóðir, einkum Norðmenn og Færeyingar, hafa veitt talsvert umfram ráðgjöf. Lagt er til að heildarafli makríls á árinu 2010 verði á bilinu 527-572 þús. tonn. Minnkandi afli kolmunna á næstu árum Alþjóðahafrannsóknaráðið telur að stofn norsk- íslenskrar vorgotsíldar sé nýttur á sjálfbæran hátt. Gert er ráð fyrir að aflinn á árinu 2009 verði rúm 1600 þús. tonn, þar af afli Íslendinga um 240 þús. tonn. Samkvæmt tillögu ráðsins verður afla- markið 1.483 þús. tonn af norsk-íslenskri síld 2010. Hrygningarstofn kolmunna hefur farið minnk- andi síðustu ár vegna minnkandi nýliðunar og var hann metinn um 3,6 milljónir tonna árið 2009. Ár- gangar frá 2005-2008 eru allir metnir mjög litlir, nálægt sögulegu lágmarki. Þess vegna er gert ráð fyrir að hrygningarstofn og afli muni minnka á næstu árum. Gert er ráð fyrir að aflinn á árinu 2009 verði um 600 þús. tonn, þar af afli Íslendinga tæp 100 þús. tonn. Samkvæmt tillögu ICES verð- ur aflamarkið 540 þús. tonn af kolmunna árið 2010. Hafrannsóknastofnunin hefur tekið þátt í starfi ICES við mat á stærð og veiðiþoli þessara stofna. Makrílaflinn umfram ráðgjöf  Norsk-íslenska síldin nýtt á sjálfbæran hátt  Lélegir árgangar kolmunna Á föstudag sl. átti félagið Geðhjálp 30 ára afmæli og af því tilefni af- henti stjórn Geðhjálpar frum- kvæðisverðlaun félagsins í fyrsta sinn. Verðlaunin voru veitt fyrir nýjungar í þjónustu við geðsjúka og úrræði til þess fallin að efla geð- heilsu. Að þessu sinni runnu verð- launin til þriggja aðila. Norð- lingaskóli í Reykjavík fékk verðlaunin fyrir framúrskarandi forvarnarstarf með einstaklings- miðuðu námi sem miðar að því að styðja nemendur í að finna og nýta og hæfileika sem best. Björgin – Geðræktarmiðstöð Suðurnesja hlaut verðlaunin fyrir að sinna með framsýnum hætti valdeflingu geð- fatlaða og fyrir að hjálpa fólki að finna leiðir til að auka lífsgæði sín. Jóna Rut Guðmundsdóttir verk- efnisstjóri hjá Reykjavíkurborg fékk verðlaunin vegna ötuls starfs að Straumhvarfaverkefninu – nýj- um búsetuúrræðum fyrir geðfatl- aða í Reykjavík. Geðhjálp hefur átt gott samstarf við Jónu Rut sem hefur sýnt góðan skilnig á mann- réttindum geðfatlaða og mikilvægi þess að þeir lifi sjálfstæðu lífi og njóti fullrar virðingar í samfélag- inu. Frumkvöðlar Félagsmálaráðherra Árni Páll Árnason ásamt frumkvæðis- verðlaunahöfum Geðhjálpar árið 2009. Frumkvæðisverðlaun Geðhjálpar veitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.