Morgunblaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.10.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 * M .v .1 5 0 þ ú su nd kr .i nn le nd a ve rs lu n á m án u ð i, þ .a .1 /3 h já sa m st ar fs að ilu m ./ S já ná n ar á w w w .a u ka kr on ur .is . 40 andlitshreinsar á ári fyrirAukakrónur Þú getur keypt þér 3 andlitshreinsa í mánuði í apótekum Lyfja & heilsu fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða fengið þér eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. * AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000 Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is N B Ih f. (L an d sb an ki nn ), kt .4 71 0 0 8 -2 0 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 3 9 3 2 1 Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ÍSLANDSBANKI keypti 2,6 pró- senta hlut Ólafs Jóhanns Ólafssonar í Geysi Green Energy (GGE) í júlí síðastliðnum. Þetta staðfestir Ásgeir Margeirsson, forstjóri GGE. Ólafur Jóhann keypti hlutinn fyrir tíu millj- ón dali, um 1,3 milljarða króna á nú- virði, í júlí 2008. Ekki er ljóst hversu mikið ríkisbankinn Íslandsbanki greiddi fyrir hlutinn. Morgunblaðið beindi fyrirspurn til Íslandsbanka um málið. Í svari Más Mássonar, forstöðumanns sam- skiptamála bankans, segir orðrétt að Íslandsbanki „geti ekki tjáð sig um málefni einstakra viðskiptavina“. Skömmu áður en að Ólafur Jóhann seldi sinn hlut hafði GGE selt 10,8 prósenta hlut í HS Orku til kanad- íska fyrirtækisins Magma Energy. Nokkru seinna bætti Magma 32,32 prósenta hlut Orkuveitu Reykjavík- ur í HS Orku. Kom inn með Wolfensohn Ólafur Jóhann keypti sig inn í GGE á sama tíma og Wolfensohn & Co., bandarískt fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki sem er meðal annars í eigu James Wolfensohn, fyrrum bankastjóra Alþjóðabank- ans. Fyrirtækið ætlaði sér að borga 15 milljónir dala, um 1,9 milljarða króna á núvirði, fyrir 3,9 prósenta hlut í GGE. Í kjölfarið settist Adam Wolfensohn, sonur James, í stjórn GGE. Eftir hrun íslenska bankakerf- isins í október í fyrra neitaði Wolfen- sohn hins vegar að greiða fyrir hlut- inn og bar fyrir sig óvenjulegar aðstæður. Líkt og kom fram í Morg- unblaðinu í gær þá fór stjórn GGE fram á það við forstjóra félagsins, Ásgeir Margeirsson, að hann inn- heimti fjármunina eftir lögfræðileg- um leiðum. Þorsteinn Vilhelmsson, fyrrum stjórnarmaður í GGE, sagði þar að forstjórinn hefði hins vegar ekki farið í „þær aðgerðir sem stjórnin fól honum að framkvæma“. Ásgeir hafnar því að hafa ekki sett málið í innheimtu og segir það vera komið í ferli. Íslenska ríkið, lífeyrissjóðir og sveitarfélög, meðal annars Grinda- vík, eiga nú í viðræðum um að eign- ast GGE um þessar mundir. Lands- bankinn, Íslandsbanki og fulltrúi lífeyrissjóða fengu fjóra menn skip- aða í fimm manna stjórn GGE á aðal- fundi félagsins í lok ágúst, en fjár- hagsstaða félagsins er veik og framtíð þess í höndum helstu lána- drottna þess, sem eru ofangreindir bankar. Ef þessar hugmyndir ganga eftir munu opinberir aðilar og lífeyr- issjóðir eignast 55 prósenta hlut GGE í HS Orku. Íslandsbanki keypti hlut Ólafs Jóhanns í Geysi Green  Keypti sig inn í Geysi Green í júlí 2008  Ári síðar keypti Íslandsbanki hlutinn Ólafur Jóhann Ólafsson Ásgeir Margeirsson ÞETTA HELST ... ● VELTA á skuldabréfamarkaði nam rúmum þrettán milljörðum króna, en velta með hlutabréf var sem fyrr öllu minni, eða 49 milljónir. Mesta breytingin á ávöxtunarkröfu varð á stysta flokki ríkisskuldabréfa, sem eru á gjalddaga í mars 2010. Hækkaði krafan um 0,6 prósentustig. bjarni@mbl.is Töluverð hækkun ávöxtunarkröfu ● Landsvaki, rekstraraðili verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbankans, hefur ákveðið að áfrýja dómum Hér- aðsdóms Reykjavíkur er varða mál- efni peningamarkaðssjóðs Lands- bankans til Hæstaréttar. Ákvörðun um þetta var tekin á stjórnarfundi í gær. Í dómi Héraðsdóms í síðustu viku var fallist á varakröfu átján hlutdeildarskírteinishafa í sjóðnum og viðurkenndur réttur þeirra til skaðabóta. Aðalkröfu hópsins var hins vegar vísað frá. thordur@mbl.is Landsvaki áfrýjar sjóðs- dómi til Hæstaréttar Landsvaki rekur sjóði Landsbanka. ● Ríkissjóður tók í gær tæpa 33 milljarða króna að láni með því að selja fjárfestum ríkisvíxla til fjögurra mánaða. Alls bárust tilboð fyrir tæpa 46 milljarða í útboðinu. Vextirnir sem ríkið þarf að borga af þessari upphæð eru 8,5 prósent. Vaxtagreiðslurnar nema því um 935 milljónum króna. Ávöxtunarkrafa á bréf ríkisins hækkaði í gær. bjorgvin@mbl.is Ríkið tók lán og borgar tæpan milljarð í vexti Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is BANDARÍSKA lyfjafyrirtækið Alvogen, sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja, hyggst byggja upp hluta starfsemi sinnar á Íslandi á næstu misserum. Undir forystu starfandi stjórnarformanns, Róberts Wessman, fyrrverandi for- stjóra Actavis, hefur Alvogen sett sér það markmið að komast í hóp tíu stærstu samheitalyfjafyrirtækja heims innan fimm ára. Er fyrirhugað að hluti af starfsemi félagsins, svo- kölluð stoðsvið, verði staðsett hér á landi. Þau hafa það hlutverk að styðja við vöxt Alvogen á erlendum mörkuðum og munu m.a. bera ábyrgð á stefnumótun, skoðun fjár- festingatækifæra og uppbyggingu vörumerkis Alvogen. Þá verður ýmis sérfræðiþjónusta, sem snýr að fyrr- nefndum verkefnum, keypt hér á landi. Nú þegar hafa nokkrir lykil- stjórnendur verið ráðnir til félagsins á Íslandi. Má þar nefna Fjalar Krist- jánsson, sem mun taka þátt í upp- byggingu þróunarstarfs félagsins, en hann starfaði áður hjá Actavis. Þá hefur Bjartur Logi Ye Shen verið ráðinn til að sinna fjármála- greiningum og gerð viðskiptaáætl- ana, en hann var áður hjá Glitni og Salt investments. Jafnframt hefur félagið ráðið Önnu Kristínu Ás- björnsdóttur sem aðstoðarmann stjórnarformanns Alvogen. Auk Ró- berts, Fjalars og Halldórs Krist- mannssonar, sem sinnir ýmsum verkefnum hjá Alvogen, er Svafa Grönfeldt líka hjá fyrirtækinu en hún situr í stjórn þess. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera fyrrum starfsmenn Actavis. Tilkynnt var um kaup fjárfesting- arsjóðs í umsjón Róberts Wessman á ráðandi hlut í Alvogen í sumar, en fyrirtækið er með yfir 100 ára rekstrarsögu og var áður í eigu Procter og Gamble. Róbert er því kominn í beina samkeppni við fyrr- um vinnuveitanda sinn, en hann var forstjóri Actavis um árabil og lét af því starfi í ágúst á síðasta ári. Róbert Wessman í beina samkeppni við Actavis Hluti af Alvogen verður á Íslandi Róbert Wessman Bjartur Logi Ye Shen Fjalar Kristjánsson Anna Kristín Ásbjörnsdóttir ALLS bárust 22 framboð í stjórn Íslenska lífeyris- sjóðsins. Kosið verður um fjóra stjórnarmenn, tvo til tveggja ára og tvo til eins árs, á aukaárs- fundi mánudag- inn 19. október næstkomandi. Bankastjórn Landsbankans skipar fimmta stjórnarmanninn. Tvær konur eru í framboði en tuttugu karlmenn. Embætti sérstaks saksóknara hefur rannsakað fjárfestingar fimm lífeyrissjóða sem voru í stýr- ingu hjá Landsbankanum, þar á meðal Íslenska lífeyrissjóðinn. Jóhann Páll Símonarson, sem hefur gagnrýnt vinnubrögðin, segir marga meðframbjóðendur sína með sterk tengsl við Landsbankann. Margir gefa kost á sér í stjórnarkjöri Aukafundur íslenska lífeyrissjóðsins Jóhann Páll Símonarson ● VÍSITALA neysluverðs mun hækka um 0,5 prósent í október, gangi spá greiningardeildar Íslandsbanka eftir. Það þýðir að 12 mánaða verðbólga mun lækka úr 10,8% í 9%. Gerir grein- ingardeildin ráð fyrir því að húsnæðis- liður vísitölunnar verði óbreyttur milli mánaða. Þá spáir hún því að 12 mán- aða verðbólga muni lækka hratt það sem eftir lifir árs og verði komin í um 6 prósent í árslok. bjarni@mbl.is Spá því að verðbólga verði 6% í árslok

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.