Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009
VIÐBRÖGÐ VIÐ FLÓÐBYLGJU ÆFÐ
Átján lönd við Indlandshaf taka í dag þátt í æfingu með stuðningi Sameinuðu þjóðanna til að æfa viðbrögð
við flóðbylgju af völdum neðanjarðarskjálfta eða eldsumbrota og kanna gagnsemi viðvörunarkerfis IOTWS
Heimildir: Fjölmiðlamiðstöð SÞ, USAid
ÁSTRALÍA
AUSTUR-TÍMOR
BANGLADESS
PAKISTAN
BÚRMA
ÓMAN
INDÓNESÍA
SINGAPÚR
MALDÍEYJAR
SRÍ LANKA
MALASÍA
MADAGASKAR
MÁRITÍUS
SEYCHELLES-
EYJAR
MÓSAMBÍK
TANSANÍA
KENÍA
INDLAND
IOTWS
VIÐVÖRUNARKERFIÐ
VIÐVÖRUNIN SEND ÚT
ÆFINGIN
Viðvörunarkerfinu
var komið á í
löndunum við
Indlandshaf með
hjálp Bandaríkjanna
og UNESCO eftir
flóðbylgjuna miklu
árið 2004
Jarðskjálfti eða
eldsumbrot valda
flóðbylgju
Æfð viðbrögð við
jafnöflugum skjálfta og varð
árið 2004, en hann mældist
9,2 stig á Richterskvarða
og olli gríðarlegri
eyðileggingu í löndum frá
Ástralíu til Suður-Afríku
Í æfingunni á flóð-
bylgjan að fara á
rauntíma yfir Indlands-
haf. Gert er ráð fyrir því
að það taki hana um 12
klst. að berast frá
Indónesíu til strandar
Suður-Afríku
Viðvaranir og
tilkynningar verða
sendar út frá veðurstofu
Japans og Flóðbylgju-
viðvörunarmiðstöðinni á
Hawaii, en þær hafa
aðstoðað við uppbygg-
ingu viðvörunarkerfisins
frá árinu 2005
Lönd sem
taka þátt í
æfingunni
Margvísleg tæki, m.a. dufl,
stöðvar sem mæla sjávarföll og
skjálftamælar eiga að greina
flóðbylgjurnar
Gögn frá tækjunum eru
flutt í gegnum gervihnött í
greiningarmiðstöð
Flóðbylgjuviðvörun er síðan send til
almannavarnayfirvalda í löndunum og fjölmiðla
Skjálftamælar
Stöðvar sem
mæla sjávarföll
Dufl Viðvörunar-
miðstöðin
Varað
við
flóðbylgju
Ríkisstjórnir
landanna
Fjölmiðlar
Strandgæsla
Slökkvilið
Lögregla
Héruð Borgir
Þorp
Bæir
Íbúar
Skip
Staðbundnar
mælinga-
stöðvar
Mælingar Greining og spá Upplýsingum dreift
1
2
3
4
1
2
3
4
Flóðbylgjudufl
Mælar á
hafsbotni
Stöðvar
sem mæla
sjávarföll
Flekamót
Gervihnöttur
Skjálftamælar
Greiningar-
miðstöð
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
VACLAV Klaus, forseti Tékklands,
hefur lengi verið harður andstæð-
ingur frekari samruna ríkja Evrópu-
sambandsins og er nú síðasta fyrir-
staða þess að Lissabon-sáttmálinn
taki gildi í aðildarlöndunum 27.
Eftir að Lech Kaczynski, forseti
Póllands, staðfesti sáttmálann á
laugardaginn var, er Tékkland nú
eina aðildarlandið sem hefur ekki
enn fullgilt hann. Vaclav Klaus olli
miklu uppnámi í Brussel á föstudag
þegar hann krafðist þess að Tékk-
land fengi undanþágu frá sáttmál-
anum til að tryggja að Evrópudóm-
stóllinn, dómstóll Evrópusam-
bandsins, gæti ekki hnekkt úr-
skurðum tékkneskra dómstóla um
eignir Súdeta-Þjóðverja, þ.e. þýsku-
mælandi íbúa héraðanna Bæheims
og Mæris, sem voru hraktir frá
Tékkóslóvakíu eftir síðari heims-
styrjöldina og sviptir eignum sínum.
Vill bindandi tryggingu
Klaus óttast að fái Tékkland ekki
þessa undanþágu geti Súdeta-Þjóð-
verjar endurheimt eignir sínar í
landinu. Stjórn Tékklands segir að
lögfræðilegar athuganir hafi leitt í
ljós að þessi ótti sé ástæðulaus.
Aðstoðarmaður Klaus, Ladislav
Jakl, segir að forsetinn krefjist laga-
lega bindandi tryggingar fyrir því að
Súdeta-Þjóðverjar geti ekki endur-
heimt eignir sínar með hjálp Evrópu-
dómstólsins. Þetta sé ófrávíkjanlegt
skilyrði fyrir því að hann staðfesti
Lissabon-sáttmálann og Klaus sætti
sig ekki við að leiðtogar Evrópusam-
bandsins leysi deiluna með því að
undirrita sérstaka yfirlýsingu eins og
þá sem gefin var út til að fullvissa Íra
um að sáttmálinn hefði ekki áhrif á
hlutleysisstefnu, skatta og fóstureyð-
ingarlög þeirra.
Tékkneska þingið samþykkti
Lissabon-sáttmálann fyrr á árinu en
Klaus lýsti því yfir að hann myndi
ekki skrifa undir hann fyrr en stjórn-
lagadómstóll Tékklands kvæði upp
úrskurð um kvartanir sautján þing-
manna sem telja að nokkur ákvæði
sáttmálans stangist á við stjórnar-
skrá Tékklands. Tefji Klaus staðfest-
ingu sáttmálans fram yfir þingkosn-
ingar í Bretlandi á næsta ári og
komist Íhaldsflokkurinn þá til valda
ætlar David Cameron, leiðtogi
flokksins, að bera sáttmálann undir
þjóðaratkvæði. Líklegt er að Bretar
myndu þá fella sáttmálann.
Ljóst er að Klaus myndi ekki sýta
þá niðurstöðu því hann telur Lissa-
bon-sáttmálann um breytingar á
skipulagi Evrópusambandsins aðeins
til þess fallinn að draga úr lýðræði,
auka um of völd skriffinna í Brussel
og stærstu aðildarríkja sambandsins.
Aðdáandi Thatcher
Vaclav Klaus er 68 ára gamall,
mikill aðdáandi Margaret Thatcher,
fyrrverandi forsætisráðherra Bret-
lands, og hefur alltaf litið á það sem
helsta hlutverk sitt sem stjórnmála-
manns að standa vörð um frelsi ein-
staklingsins. Hann gaf nýlega út bók,
sem nefnist „Blá pláneta í grænum
fjötrum“, þar sem hann dregur í efa
loftslagsbreytingar af mannavöldum
og gagnrýnir „sefasýki“ umhverfis-
verndarsinna sem hann sakar um að
skerða frelsi einstaklingsins eins og
kommúnistar gerðu á valdatíma
þeirra í Austur-Evrópu.
Ófrávíkjanlegt skilyrði
Vaclav Klaus krefst þess að Tékklandi verði veitt undanþága frá Lissabon-sáttmál-
anum til að tryggja að Súdeta-Þjóðverjar geti ekki endurheimt eignir í landinu
Reuters
Andspyrna Klaus er síðasta fyrirstaða þess að sáttmáli ESB gangi í gildi.
Í HNOTSKURN
» Klaus var eitt sinn vinurJans Fischers, forsætis-
ráðherra Tékklands, en vin-
átta þeirra hefur kulnað. Fisc-
her komst til valda eftir að
bandamenn Klaus á þinginu
tóku þátt í því að fella stjórn
Mireks Topolaneks í mars.
» Topolanek tók við afKlaus sem leiðtogi hægri-
flokksins ODS en missti
stuðning hans þar sem Klaus
taldi hann of hallan undir
ESB.
NEPALINN Khagendra Thapa
Magar, sem er aðeins hálfur metri
á hæð, á afmæli í dag og eitt af
því sem hann óskar sér í afmælis-
gjöf er eiginkona í svipaðri hæð
og hann sjálfur. Hann á von á
mörgum bónorðum þegar Heims-
metabók Guinness staðfestir að
hann sé minnsti maður í heimi.
„Nú er ég orðinn 18 ára og vil
tvennt: að fá staðfestingu Heims-
metabókar Guinness og finna
konu sem er smávaxin eins og
ég,“ hefur breska dagblaðið The
Daily Telegraph eftir Khagendra.
„Þegar ég hef verið opinberlega
viðurkenndur sem minnsti maður
í heimi býst ég við mörgum bón-
orðum. Draumur minn er að eign-
ast fjögur börn.“ Þrátt fyrir að
hafa reynt að komast í Heims-
metabókina nokkrum sinnum á
síðustu árum hefur það ekki tek-
ist. Khagendra var sagt að hann
þyrfti að bíða þar til hann yrði
fullvaxta.
Reuters
Afmælisbarn Nepalski dvergurinn
Khagendra er 18 ára í dag.
Kveðst óska
sér konu í
afmælisgjöf
KÍNVERJAR og Rússar undirrituðu í gær um 40 viðskiptasamninga í
tengslum við Kínaferð Vladímírs Pútíns, forsætisráðherra Rússlands.
Samningarnir eru metnir á 3,5 milljarða dollara, jafnvirði nær 440 millj-
arða króna. T.a.m. undirritaði Gazprom samning um að selja Kínverjum
jarðgas. Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao tekur hér á móti Pútín.
Viðskipti landanna tveggja hafa meira en tvöfaldast á síðustu fjórum ár-
um, að sögn kínverska viðskiptaráðuneytisins.
VIÐSKIPTIN STÓRAUKIN
Reuters