Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ákvörðunumhverfis-ráðherra um að fella úr gildi ákvörðun Skipu- lagsstofnunar um Suðvesturlínur hef- ur vakið hörð viðbrögð. Í fyrra- kvöld var haldinn hitafundur um atvinnumál á Suðurnesjum þar sem fram kom eindreginn vilji fundarmanna um að stjórn- völd hættu að standa í vegi fyrir framkvæmdum á svæðinu. Á Suðurnesjum eru nú 1600 manns án atvinnu, sem sam- svarar yfir 12% atvinnuleysi, og skyldi því engan undra þótt lít- ill skilningur sé þar á ákvörðun umhverfisráðherra, sem getur tafið mannaflsfrekar fram- kvæmdir um allt að tvö ár. Ákvörðunin er ekki aðeins um- deild fyrir þá sök að spilla fyrir atvinnuuppbyggingu. Annað og ekki síður alvarlegt er að ákvörðunin kunni að vera lög- brot. Þetta hefur meðal annars komið fram hjá Helga Magnús- syni, formanni Samtaka iðn- aðarins. Samtök hans hafa bent á að kærur vegna úrskurðarins hafi borist ráðherra eftir að kærufrestur hafi verið liðinn, en engu að síður hafi úrskurður verið felldur í stað þess að vísa kærunum frá. Samtök iðnaðar- ins hafa einnig bent á að í lögum um umhverfismat sé settur frestur sem gildi um hve langan tíma ráðherra hafi til að úr- skurða um ákvörðun Skipulags- stofnunar. Sá frestur sé tveir mánuðir frá því hin kærða ákvörðun hafi verið tekin en umhverfisráðherra hafi farið rúma þrjá mánuði fram yfir frestinn áður en hann felldi úr- skurðinn úr gildi. Samtök iðnaðar- ins gagnrýna einn- ig að ekki sé hægt að reikna með sam- fellu og staðfestu í orðum og athöfnum stjórnvalda, stofn- ana og ráðherra. Samtökin benda á að þegar árið 2006 hafi Skipulagsstofnun komist að þeirri niðurstöðu að nýta ekki heimild til sameiginlegs um- hverfismats vegna fram- kvæmda við álverið í Helguvík. Í apríl 2008 hafi þáverandi um- hverfisráðherra komist að þeirri niðurstöðu að ekki væru forsendur til sameiginlegs mats. Rétt er að vekja athygli á því að sá ráðherra var frá Sam- fylkingunni sem enn á sæti í ríkisstjórn og því er stefnu- breytingin enn sérkennilegri en ella. Athugasemdir Samtaka iðn- aðarins eru afar skiljanlegar. Ísland gengur nú í gegnum mikla erfiðleika í atvinnulífinu og tækifæri til nýsköpunar eru ekki á hverju strái. Að ekki sé talað um nýsköpun af þeirri stærðargráðu sem um ræðir í Helguvík. Nýjar kröfur og kú- vendingar hjá stjórnvöldum ganga alls ekki við þessar að- stæður. Stjórnvöld verða að skapa þær aðstæður að fyrir- tækjum þyki eftirsóknarvert að hefja og auka við starfsemi sína hér á landi í stað þess að standa í vegi fyrir uppbyggingu. Þá er sérstaklega alvarlegt ef um- hverfisráðherra hefur gengið svo langt í að bregða fæti fyrir nýsköpun að hún hafi farið á svig við lögin. Ásökunum þess efnis þarf ráðherrann að svara með fullnægjandi rökum til að taka af öll tvímæli í málinu. Braut ráðherra lög í viðleitni til að hindra nýsköpun í atvinnulífinu? } Stjórnvöld standa gegn nýsköpun Samkeppnis-stofnun býr við nýjan vanda. Rík- isbankar hafa yfir- tekið fyrirtæki, stundum að hluta en stundum með því að láta fyrri eigendur sitja í sínu skjóli. Hvort tveggja getur orðið keppinaut- um á markaði mjög mótdrægt og jafnvel komið þeim í mikil vandræði. Þekkt er að ríkisbankinn beiti sér til að bæta rekstrar- umhverfi hins yfirtekna fyrir- tækis í þeim göfuga tilgangi að fá sjálfur meira upp í töpuð lán og þrýsti á að rekstrar- kostnaður sé lækkaður. Keppi- nauturinn, sem enn berst við að standa í skilum við sína lánveit- endur er þá kominn í óþægi- lega stöðu. Ekki er efast um vilja sam- keppnisyfirvalda til að skakka leik- inn. En stofnunin hefur margt á sinni könnu. Slík mál eru umfangsmikil og þeim fjölgar ört og þær reglur sem um hennar málatilbúnað gilda eru til þess fallnar að hægja á aðgerðum. Fyrirtækin, sem hallað er á, hafa ekki endilega langan tíma áður en skaði er skeður. Verstu dæmin eru þó þau, þegar bankar fyrir dug- leysi eða vegna gamalla tengsla halda fyrirtækjum gangandi og leyfa „eigend- unum“ að halda áfram að mis- nota þau til að skekkja enn frekar samkeppnisumhverfið. Því verður að linna. Hlífir Samkeppnis- eftirlitið ríkinu?}Nýtt samkeppnisvandamál E itt af því sem mér hefur tekist að læra í lífinu er að heimurinn er fullur af góðu fólki. Það er sama hvar þig ber niður á jörðinni, alls staðar muntu rekast á gott fólk. Þetta rann í fyrsta skipti upp fyrir mér þegar ég dvaldi í 5 vikur í Cambridge í Eng- landi í sumarskóla. Þá var ég 14 ára og hafði aldrei farið ein til útlanda áður, en þetta var fermingargjöfin mín frá ömmu og afa og reyndist hún mér lærdómsríkari en flest ann- að sem við kom fermingunni. Í skólanum voru nemendur alls staðar að úr heiminum, sem opnaði alveg nýja vídd fyrir mér, því fram til þessa hafði ég fyrst og fremst umgengist fólk með sama bakgrunn úr Mosfellsbænum. Úr þeim þrönga veruleika hafði ég ekki gert mér grein fyrir hvað ég ætti margt sameiginlegt með fólki frá framandi slóðum. Mér er sérstaklega minnisstæð rútuferð til London, þar sem ég sat með félögum mínum Ahmed, múslima frá olíuríkinu Quatar, og Yoav, gyðingi frá Tel Aviv í Ísrael. Við kjöftuðum og hlógum alla leiðina, m.a. að því að þeir ættu nú eiginlega ekki að sitja saman, því tæknilega séð væru þjóðir þeirra óvinir. Þarna lærðist mér í fyrsta skipti að vera þakklát fyrir að eiga enga meðfædda óvini og gladdist líka yfir að geta myndað vinabönd við fólk af svo ólíkum uppruna. Þegar ég kom aftur heim var ég mjög hugsi yfir þess- ari lífsreynslu og velti því fyrir mér hvort ég hefði eign- ast vini af því ég var á réttum stað á réttum tíma, eða hvort það væri sama hvert ég hefði farið, alls staðar væri vini að finna. Síðar hef ég sem betur fer orðið fullviss um hið síðarnefnda, því ég hef borið gæfu til að eignast kæra vini í öllum heimsálfum, sem allir hafa kennt mér eitthvað nýtt eða hjálpað mér að sjá hlutina í nýju samhengi. Nú síðast í sumar náði ég óvæntri tengingu við nýjan vin. Ég var á námskeiði í Þýska- landi og hitti þar sjónvarpsfréttamann frá ríkissjónvarpi Úzbekistan. Ég hafði aldrei áð- ur hitt neinn frá þessum Mið-Asíulöndum og við Bakhrom smullum ekki beinlínis við fyrstu kynni. Við höfðum mjög ólíka nálgun á hlutina og tókum snarpa rimmu. Hann fór óseigjanlega í taugarnar á mér en í hádeginu tókum við samt spjall og þá kom í ljós að við áttum meira sameiginlegt en mig hafði grun- að. Við höfðum bæði menntað okkur í málvísindum og bókmenntum og höfðum bæði hug á að sækja samskonar framhaldsnám í öðru fagi. Ekki nóg með það heldur höfð- um við bæði gælt í huganum við framhaldsnám í Ástralíu og skoðað sömu námsleiðir í sama háskólanum þar. Eftir þetta töluðum við lengi saman um sameiginlegt áhuga- mál; fjallgöngur og náttúruna í heimalöndum okkar. Bakhrom frá Úzbekistan varð því til þess að minna mig enn einu sinni á hversu mikið er alls staðar til af skemmtilegu fólki. Tengslin hafa nú rofnað við mörg þeirra sem ég hef kynnst í fjarlægum löndum, en ég veit af þeim þarna úti, hvert í sínum heimshluta, og það lætur mér líða vel. una@mbl.is Una Sig- hvatsdóttir Pistill Gott fólk STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Fjórir milljarðar kr. í ónýtta fjárfestingu FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is G REINT var frá því í vik- unni að fyrirtækið Míla ehf., sem rekur fjar- skiptanet allra lands- manna, hefði ákveðið að segja upp nítján starfsmönnum. Flestir voru tæknimenn sem unnið hafa við að leggja fjarskiptakerfi í ný hverfi. Lítið er um slíka vinnu um þessar mundir. Að sögn Páls Á. Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Mílu, hefur fyrirtækið unnið ötullega að því undanfarin ár að leggja í ný hverfi, bæði lagnir fyrir ljósleiðara og koparstrengi. Hann tel- ur að fjárfestingin nemi um tveimur milljörðum króna. „Þetta eru í raun og veru þriggja ára birgðir. Við erum að fjárfesta í þessum kerfum fyrir svona 750 milljónir króna á ári. Það voru auðvitað gífurlegar fjárfestingar í nýjum hverfum á þessum árum.“ Hefði tryggt miklar tekjur En þessi mikli samdráttur í bygg- ingariðnaði hefur ekki aðeins áhrif á Mílu. Gagnaveita Reykjavíkur rekur gagnaflutningskerfi á svæði sem nú nær frá Bifröst í Borgarfirði, suður og austur um höfuðborgarsvæðið allt út í Vestmannaeyjar. Gagnaveitan hefur einnig lagt mikið af lögnum sem ekki eru komnar í notkun. „Við höfum ekki tekið saman samanburð- artölur en ég hef enga ástæðu til að ætla að fjárfesting okkar sé nokkuð minni,“ segir Birgir Rafn Þráinsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitunnar. Birgir tekur hins vegar fram að mikil áhersla hafi verið lögð á það hjá fyrirtækinu að koma ljósleiðurum í gagnið í nýjum hverfum og eru með góða nýtingu. „Ný hverfi Mílu eru til- tölulega fá á meðan við erum í nýjum hverfum sem hafa verið að byggjast upp síðan 2005.“ Birgir tekur fram að hann á þar aðeins við um ljósleið- aralagnir. Hefði hin hraða uppbygging hverfa sem var á umliðnum árum haldið áfram – en ekki hrunið – fengju fyrirtækin umtalsverðar tekjur af lögnunum. Páll segir þær hlaupa á hundruðum milljóna króna á ársgrundvelli. Birgir Rafn tekur þó annan pól í hæðina og segir ekkert nýtt þó fjárfestingar þurfi að vera í jörðu nokkur ár áður en þær eru að öllu leyti nýttar. „Það er þekkt innan Orkuveitunnar að það tekur oft lang- an tíma fyrir ný hverfi að byggjast upp og samkvæmt greiningu tekur að meðaltali um átta ár að koma veit- um í fulla nýtingu.“ Ekki verður hróflað við lögnunum þó svo þær séu ónýttar að sinni og segir Birgir að þó því verði ekki neit- að að hraðari uppbygging hverfa væri óskandi sé um framtíðartekjur að ræða. Páll tekur undir og segist vona að betri tímar komi brátt. Áfram unnið í eldri hverfum Þó svo framkvæmdastjórarnir báðir óski betri tíðar er ekki að merkja svartsýni á þeim. Fyrirtækin vinna bæði að uppbyggingu há- hraðanets í gamalgrónum hverfum og hefur eftirspurnin eftir meiri gagnahraða aukist mikið á síðustu misserum og ekki síst eftir ljósleið- ara. Ekkert lát er að merkja á þess- ari uppbyggingu. Morgunblaðið/Ómar Línan lögð Ljósleiðaravæðing Íslands hefur staðið yfir í nokkur ár. Þar sem uppbygging í nýjum hverfum höfuðborgarsvæðisins hefur því sem næst stöðvast liggja gagnaveitukerfi svo gott sem ónotuð næstu árin, eða þar til eitthvað glæðist á ný. Fyrirtækin Míla og Gagnaveita Reykjavíkur leggja bæði lagnir fyrir ljósleiðara. Þau sjá um að tengja og veita aðgang að ljós- leiðaranum en tengdir húseig- endur kaupa í kjölfarið þjónustu óháðra þjónustuaðila um hann. Eins og gefur að skilja er mikil samkeppni meðal fyrirtækjanna. Gagnaveita Reykjavíkur er dótturfélag í 100% eigu Orku- veitu Reykjavíkur. Hún var stofn- uð sem einkahlutafélag 1. janúar 2007. Míla er í eigu Skipta og var stofnuð í apríl 2007, þegar rekst- ur fjarskiptakerfisins var skilinn frá öðrum rekstri Símans. LEIGJA LAGNIRNAR ››

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.