Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 17

Morgunblaðið - 14.10.2009, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 Harkaleg lending Skondin atvik geta komið upp í knattspyrnuleikjum. Hér fær Veigar Páll Gunnarsson byltu í landsleiknum í gærkvöldi, en hann skoraði eina mark leiksins. Kristinn NÚ ÞEGAR mikill niðurskurður ríkis- útgjalda er fram undan í flestum nágrannaríkj- um okkar takast mörg þeirra á við kreppuna með stórauknum verk- efnum á sviði rafrænn- ar stjórnsýslu. Þannig virðist fjárfestingum í upplýsingatækni ætlað að skila sér hratt og vel í ríkissjóði annarra ríkja og minnka útgjöld þeirra. Tímabært er að skoða þessa hluti í íslensku sam- hengi. Hlutverk rafrænnar stjórnsýslu Meginréttlæting rafrænnar stjórnsýslu eru efnahagsleg áhrif hennar. Það er almennt álitið að mörg verkefni opinbera geirans séu auðskráð og auðunnin í hugbún- aðarkerfum og að verulega mikið megi spara með nýtingu upplýs- ingatækni. Samkvæmt kenningum vísindamanna á notkun hennar að leiða til minnkaðrar hlutdeildar op- inberrar starfsemi í þjóðfélaginu og lækkunar skatta. Á þann hátt eykur hún möguleika aukinnar verðmæta- sköpunar og kaupmátt almennings. Almennt er talið að rafræn stjórn- sýsla auki samkeppnishæfni sam- félaga og beri með sér ýmsa lýðræð- islega ávinninga, svo sem gagnsæi. Tækniþróunin og íslenskar aðstæður Hraði upplýsingatækniþróun- arinnar er mjög mikill. Lögmál Moore’s er ennþá í gildi og raun- hraði samkvæmt mælingum er tvö- földun afkasta á 24 mánuðum, það er veldisvöxtur og er afkastaaukn- ingin um 1000-föld á 20 árum. Þetta þýðir að upplýsingatæknin getur gefið opinbera geiranum efnahags- legan ávinning með reglulegu ára- bili. Þessa ávinninga þarf að sækja með nýjum og nýjum verkefnum, sem eru sífellt stærri og þarf stækk- unin að vera í takt við afkastaaukn- ingu tækninnar. Gæti Ísland verið of fámennt til þess að nýta sér afköst upp- lýsingatækninnar? Ljóst er að ein tölva getur þjónað öllum íbúum landsins. Í milljónaþjóðfélögum kemur afkastaaukn- ingin að beinum not- um og er í takt við aukna notkun al- mennings og aukið umfang tölvutekinna verkefna. Þar sem Ís- lendingar eru fáir næst stærð- arhagkvæmni hér helst með auknu umfangi verkefna, sem þarf því að vaxa með veldisvexti ef ávinningur tækninnar á að skila sér til fulls. Margt hefur orðið til þess að vinna gegn stærðarhagkvæmni í rafrænni stjórnsýslu á Íslandi. Á miðjum níunda áratugnum komu einkatölvan og netið fram og með þeim hugmyndir um dreifða vinnslu, dreifða ábyrgð og dreift vald. Þá eru opinberar skipulagsein- ingar mjög smáar á Íslandi, sjálf- stæðar og litlar samvinnuhefðir milli stofnana. Þróunarstig rafrænnar stjórnsýslu Þekkt er að í upphafi rafrænnar stjórnsýslu eru verkefni á stofn- anastigi. Ávinningi hverrar stofn- unar eru takmörk sett. Næsta þró- unarstig er ríkisstig, sem felst í samvinnu og samþættingu og sam- ræmingu í rafrænni stjórnsýslu (m.a. stofnun málefnabundinna rík- isgagnagrunna). Samfélagslegur ábati af upplýsingatækninni vex mjög mikið frá stofnanastigi til rík- isstigs að því er fram kemur hjá fræðimönnum, það er enda leiðin til þess að magna umfang tölvutekinna verkefna vegna samlegðaráhrifa. Unnið hefur verið að uppbyggingu rafrænnar stjórnsýslu á ríkisstigi hjá nær öllum nágrannaríkjum okk- ar síðustu 5-10 árin, en lítið á Ís- landi, hér eru flest verkefni á stofn- anastigi. Fram undan er síðan alþjóðlegt stig þar sem stofnanir sem vinna á sama málefnasviði í ólíkum ríkjum sameinast um kerfi og skráningar. Alþjóðlegt stig gæti stóraukið hag- kvæmni rafrænnar stjórnsýslu ein- stakra stofnana. Leiðandi hlutverk ríkisins Nánast öll önnur ríki okkar heimshluta takast á við myndun innri gerðar á sviði upplýsingatækni og framkvæma samvinnu-, sam- þættingar- og samræmingarverk- efni á vegum ríkisvalds síns, eins og mikill samfélagslegur ábati stendur til. Í Bandaríkjunum, sem er þó helsti málsvari markaðslausna, hafa upplýsinga- og fjarskiptamál verið í höndum Hvíta hússins um árabil og málaflokknum er miðstýrt purk- unarlaust af æðstu stjórnvöldum meðal annars á vef Hvíta hússins og innri gerð er lögð til styrktar al- menningi og atvinnulífi í því stóra landi, eins og ekkert sé eðlilegra. Umskipti hljóta einnig að vera framundan hér á landi. Sú stefna einingaskiptinga og tölvuvæðingar á stofnanastigi sem fylgt hefur verið er fjárhagslega gjaldþrota. Að ná stærðarhagkvæmni Hagkvæmni í rafrænni stjórn- sýslu á Íslandi, sem minnt skal á að er örríki og svipað að stærð og út- hverfi stórborgar í norðanverðri Evrópu, felst því einkum í því að auka umfang verkefna með því:  að vinna verkefni á ríkisstigi,  að mynda nauðsynlega innri gerð fyrir samfélagið, með auk- inni samvinnu og samnýtingu stofnana og sveitarfélaga,  að stefna að því að rafræn þjónusta stofnana og sveitarfé- laga komist á alþjóðlegt stig í stað stofnanastigs. Það má spyrja sig þeirrar lykil- spurningar hvort æskilegt sé eða mögulegt t.d. af samkeppn- isástæðum, þegar til lengri tíma er litið, að skattgreiðendur á Íslandi greiði meira fyrir rafræna stjórn- sýslu en nágrannaþjóðirnar. Ríkið og stofnanir þess Hjá ríkinu veita margar stofn- anir sömu þjónustu, svo sem í mennta- og heilbrigðiskerfunum. Engin spurning er að slíkar stofn- anir eiga að sameinast um upplýs- ingakerfi og rekstur þeirra og kaupa sérhæfðan hugbúnað sam- eiginlega. Sú staða sem hér er uppi að einstakir aðilar í slíkum mál- efnabundnum heildum geti tekið einangraðar ákvarðanir sem ekki eru í samræmi við heildarhags- muni, vinnur gegn hagkvæmniá- hrifum upplýsingatækni og hindra framfarir. Sveitarstjórnarstigið Á sveitarstjórnarstiginu er að- staðan einföld, öll sveitarfélög vinna í aðalatriðum sömu verkefni og samvinna og samræming upp- lýsingatækniverkefna er sjálfsögð. Minnt er á að stærðarhagkvæmni byrjar að telja við 1.000 notenda markið. Tölvunotendur á skrif- stofum allra sveitarfélaganna eru væntanlega ekki fleiri en 900. Ekki verður annað séð en að eitt tölvu- kerfi geti þjónað öllum sveitar- félögum á Íslandi og nær stærð þess tæpast lágmarks stærðar- hagkvæmni. Net eru samvinnuverkfæri Minnt skal á að ljósleiðaranet eru samvinnuverkfæri hins opinbera í upplýsingatækninni nú og í framtíð- inni. Þetta hefur verið ljóst í ná- grannaríkjum okkar í áratugi og hafa hin Norðurlöndin lagt mikla áherslu á lagningu ljósleiðara. Stærðarhagkvæmni verður ekki náð með samvinnu og stækkun verkefna nema ljósleiðarar séu auðfengnir og ódýrir. Þeir þurfa að ná um allt land. Íslensk stjórnvöld hafa farið sér hægt og jafnvel ekki áttað sig á mik- ilvægi málsins. En hér er netlagn- ing opinberra aðila sett í samhengi við þann heildarsparnað sem ríki og sveitarfélög eiga að sækja til upp- lýsingatækninnar og fullyrt að hið opinbera fær mikið upp í kostnað við ljósleiðara, jafnvel mjög hratt. Niðurlag Flest bendir til þess að breyta þurfi um stefnu í grundvallar- atriðum í málefnum rafrænnar stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á Íslandi og stórauka kröfu um að heildarhagsmuna sé gætt. Ef Ísland ætlar að sækja sér hag- kvæmni til rafrænnar stjórnsýslu eru framundan stórfelld verkefni, í samvinnuformum, á ríkisstigi og við myndun nýrrar innri gerðar. Hluti af þeim verkefnum getur borgað með sér strax, þar sem offjárfest- ingar hafa verið hvað óhóflegastar. Eftir Hauk Arnþórsson » Flest bendir til þess að breyta þurfi um stefnu í grundvallar- atriðum í málefnum raf- rænnar stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á Ís- landi... Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu vinna milljarða? Samvinnuverkefni í upplýsingatækni og myndun nýrrar innri gerðar Ríki Sveitarfélög a) Myndun samræmdra og samþættra gagnagrunna ríkisins b) Stjórnsýslunet allra stjórnsýslustofnana c) Samvinna stofnana á sama starfssviði d) Sameiginleg innkaup og samningagerð e) Ljósleiðaranet um landið f) Ljósleiðari til útlanda g) Miðlæg auðkennastjórnun fyrir almenning h) Félagslegar aðgerðir til að styrkja notkun þeirra sem búa afskekkt a) Samvinna um gerð og notkun hugbúnaðar, open source b) Sveitarfélaganet, skrifstofa allra sveitarfélaga c) Sameiginleg innkaup og samningagerð d) Ljósleiðaralagning innan sveitarfélaga. e) Uppsetning staðbundinna þráðlausra stafrænna neta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.