Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 18

Morgunblaðið - 14.10.2009, Page 18
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 UM ÞESSAR mund- ir, þegar umræða er uppi um hugsanlega að- ild Íslands að Evrópu- sambandinu, er mik- ilvægt að minnast annarrar alþjóðastofn- unar sem Ísland er aðili að, Evrópuráðsins (Co- uncil of Europe), sem á þessu ári fagnar 60 ára afmæli. Önnur tímamót í sögu ráðsins á þessu ári eru að 50 ár eru liðin síðan Mannréttindadómstóll Evrópu tók til starfa en dómstóllinn er mesti áhrifavaldur um framþróun mannréttinda í Evrópu. Eftir hörmungar seinni heims- styrjaldarinnar, þjóðarmorð og önn- ur víðtæk mannréttindabrot, sann- færðust þjóðir Vestur-Evrópu um nauðsyn alþjóðlegs samstarfs til að tengja ríki álfunnar betur saman á efnahagslegum og pólitískum grunni og jafnframt stuðla að efnahags- legum og félagslegum framförum. Til að ná því markmiði þyrfti að standa vörð um mannréttindi og grunnstoðir réttarríkisins ásamt því að styrkja lýðræðislega stjórnarhætti í aðild- arríkjunum. Evrópuráðið var fyrsta fjölþjóðlega stofnunin í Evrópu sem var sett á fót sérstaklega í þessum til- gangi og er hún staðsett í Strassborg í Frakklandi. Starfsemi Evr- ópuráðsins hefur vaxið stöðugt og aðild- arríkjum fjölgað úr 10 í 47. Með inngöngu nær allra ríkja Austur- Evrópu, eftir fall Berl- ínarmúrsins, meira en tvöfaldaðist fjöldi aðild- arríkja. Ísland varð aðili að ráðinu árið 1950. Það hefur tekið virkan þátt í starfi innan meg- instofnana þess, Ráð- herranefndarinnar (Committee of Ministers) og Ráðgjafarþingsins (Parliamentary Assembly), og fór m.a. með formennsku í ráðinu árið 1999. Nefndin hefur æðsta ákvörð- unarvald í málum ráðsins og í henni sitja utanríkisráðherrar allra aðild- arríkja. Á Ráðgjafarþinginu sitja fulltrúar þjóðþinga frá öllum aðild- arríkjum. Þingið mótar stefnu í mál- efnum ráðsins og samþykkir álykt- anir sem beint er til aðildarríkja. Yfir 200 alþjóðasamningar hafa verið gerðir á vettvangi Evrópuráðs- ins og tengjast langflestir mannrétt- indamálum og lýðræðisumbótum. Fjórar mikilvægar stoðir mannrétt- indastarfsins eru Mannréttinda- sáttmáli Evrópu frá 1950, Félags- málasáttmáli Evrópu frá 1961, Samningurinn um varnir gegn pynd- ingum frá 1987 og samningur um vernd minnihlutahópa frá 1995. Á síð- ustu árum hefur ráðið tekist á við ný og krefjandi verkefni, s.s. gerð samn- inga um tölvuglæpi, líftæknimálefni, umhverfismál, spillingarbrot, al- þjóðleg hryðjuverk og mansal svo nokkuð sé nefnt. Íslenska ríkið er að- ili að langflestum samningum ráðsins og hafa þeir haft víðtæk áhrif á laga- setningu hér á landi. Vegna nið- urskurðar í ríkisrekstri á þessu ári var fastanefnd Íslands í Strasbourg lokað, en hún sinnti þeim fjölmörgu verkefnum sem tengjast ráðherra- nefndinni og umfangsmiklu milli- ríkjasamstarfi á vettvangi ráðsins. Það er afar dapurlegt að sjá að Ísland er nú eitt 47 aðildarríkja ráðsins ekki með starfandi fastanefnd í Strass- borg og hlýtur að vekja spurningar um hvort rétt hafi verið forgangs- raðað í niðurskurði innan utanrík- isþjónustunnar. Mannréttinda- dómstóll Evrópu, sem starfar samkvæmt Mannréttindasáttmál- anum, hefur náð einstæðum árangri. Hann úrskurðar í kærumálum ein- staklinga um brot aðildarríkja á sátt- málanum og getur dæmt aðildarríki Stærsta framlagið til mann- réttinda og lýðræðis í Evrópu Eftir Björgu Thorarensen »Engin alþjóðastofn- un hefur lagt jafn mikið af mörkum til framþróunar mannrétt- inda og lýðræðisumbóta og Evrópuráðið. Björg Thorarensen EINS og ástandi efnahagsmála er hátt- að nú um stundir er mikil hætta á að stjórnvöld ráðist í van- hugsaðar „sparnaðar- ráðstafanir“ a.m.k. þegar litið er til lengri tíma. Í því skyni er gjarnan litið til rekst- urs stofnana á lands- byggðinni. Hætt er við að sparnaður verði ekki alltaf eins mikill og látið er í veðri vaka. Það er t.d. vandséð að um sparnað geti ver- ið að ræða ef halda á uppi óbreytt- um rekstri stofnana með þeirri einu breytingu að forstöðumenn þeirra fái starfsheitið „útibússtjóri“. Lík- legra er að leitað verði sparnaðar með því að draga úr viðkomandi starfsemi á landsbyggðinni og jafn- vel leggja hana að einhverju leyti niður. Að því er dómstólana varðar, en þar þekki ég best til, er rekstr- arkostnaður nánast eingöngu laun og húsnæðiskostnaður, eða yfir 90%, en annar kostnaðar er m.a. kostnaður af rekstri Dómstólaráðs, sem í upphafi var aðallega ætlað að taka yfir verkefni ráðuneyta. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir talsverðri lækkun fjárframlaga til dómstóla. Til að mæta lækkuninni segir í frumvarpinu að fækka eigi héraðs- dómstólunum úr átta í einn. Með því sé stefnt að því að vinnuálag verði jafnara en nú er og dómskerfið því betur í stakk búið til þess að taka við síauknum málafjölda. Þá segir að með breytingunni fækki bakvökt- um og dómstjórum. Einnig segir að með fækkun dómþingháa lækki ferðakostnaður. Varðandi fyrra at- riðið vil ég benda á að jöfnun álags á dómara er auðvelt að framkvæma með öðrum hætti en sameiningu allra dómstólanna, t.d. með því að senda mál á milli dómstóla. Varð- andi síðara atriðið vil ég benda á að launamunur dómara og dómstjóra á landsbyggðinni er mjög lítill og að gera má ráð fyrir að laun „útibús- stjóra“ verði einnig eitthvað hærri en dóm- ara. Sparnaður af þessu verður því óverulegur. Fallast má á að með fækkun dómþingháa megi lækka ferðakostn- að. Sömuleiðis mun nið- urfelling bakvakta leiða til nokkurs sparnaðar. Bæði þessi atriði eru óháð fjölda dómstól- anna og auðvelt að framkvæma í óbreyttu kerfi ef vilji er til þess. Rétt er að geta þess að bakvaktir dómara hafa verið taldar nauðsyn- legar til að auðvelda útköll þeirra utan vinnutíma til að kveða upp nauðsynlega úrskurði í sambandi við rannsókn sakamála (gæslu- varðhaldsúrskurði, húsleit- arúrskurði o.fl.). Með lögum um aðskilnað dóms- valds og umboðsvalds í héraði, sem tóku gildi 1. júlí 1992, voru stofnaðir 8 dómstólar, sem hver um sig hefur lögsögu á nánar tilgreindu svæði. Gildir sú skipting í megindráttum enn í dag. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel í öllum aðalatriðum. Í greinargerð með frumvarpi til framangreindra laga segir: „Með tilkomu héraðsdómstólanna má reikna með því að aukinn fjöldi dómsmála verði útkljáður utan Reykjavíkur, en nú eru allmörg mál, sem eiga uppruna sinn utan höf- uðborgarsvæðisins, dæmd fyrir dómstólum í Reykjavík, með sam- komulagi aðila um varnarþing hvað einkamál varðar, en samkvæmt ákvörðun ríkissaksóknara hvað op- inber mál varðar. Gera má ráð fyrir að lögmenn muni í auknum mæli finna sér starfsgrundvöll í nágrenni starfandi héraðsdómstóla og að auk- in þjónusta á sviði dómgæslu muni styrkja byggðina utan höfuðborg- arsvæðisins.“ Þessi ályktun höfunda téðra laga hefur í öllum aðalatriðum reynst rétt og á jafnt við í dag og þegar hún var sett fram. Með tilkomu dómstól- anna tók þjónusta við landsbyggðina á þessu sviði miklum framförum, bæði með markvissari þjónustu dómstólanna og stórauknum fjölda lögmanna, sem hafa séð sér hag í að starfa í námunda við dómstólana. Eins og að framan er rakið verður ekki sparað í rekstri dómstólanna nema með því að fækka starfsliði og draga úr húsnæðiskostnaði. Aug- ljóst er að ætlunin er að beina að- gerðum af þessu tagi að lands- byggðinni. Samkvæmt fyrirhuguðu frumvarpi um breytingu á dóm- stólalögum er ákvörðunarvald um þessi atriði færð í hendur Dómstóla- ráðs, sem auk þess eru færð enn ný verkefni og nú frá dómstólunum, m.a. að annast ráðningar alls annars starfsfólks við dómstólinn en skipun dómara. Hingað til hefur dóm- stjórum verið treyst til þessa verks. Að mínu mati er það ofrausn að halda uppi Dómstólaráði til að ann- ast öll hefðbundin stjórnunarstörf við einn dómstól, þrátt fyrir að gert er ráð fyrir að dómstjóri og vara- dómstjóri starfi við dómstólinn. Lík- legt er að Dómstólaráð muni stefna að því að færa dómara frá lands- byggðinni til Reykjavíkur, sem síð- an verði sendir út á landsbyggðina eftir þörfum til að annast mál þar. Ferðakostnaður dómara mun því til framtíðar litið stóraukast. Það er skoðun mín að verði téð frumvarp að lögum muni það leiða til minnkandi starfsemi dómstóla á landsbyggðinni. Úrlausn mála muni færast til Reykjavíkur með samn- ingum málsaðila eða ákvörðun rík- issaksóknara. Þar með verður ekki lengur hagkvæmt fyrir lögmenn að setjast að á landsbyggðinni. Allt mun þetta leiða til lakari lög- fræðiþjónustu á landsbyggðinni, en umfram allt mun það leiða til aukins kostnaðar fyrir íbúana. Hér er því stigið skref til veikingar byggða ut- an höfuðborgarsvæðisins. Einn héraðsdómstóll Eftir Frey Ófeigsson Freyr Ófeigsson »Með því að draga úr starfsemi héraðs- dómstólanna á lands- byggðinni veikjast byggðirnar. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrverandi dómstjóri. – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Meðal efnis verður: Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna. Góðir skór fyrir veturinn. Húfur, vettlingar, treflar, lopapeysur og fl. Snyrtivörur til að fyrirbyggja þurra húð. Flensuundirbúningur, lýsi, vítamín og fl. Ferðalög erlendis. Vetrarferðir innanlands. Bækur á köldum vetrardögum. Námskeið og tómstundir í vetur. Heitir pottar og sundlaugar góð afslöppun Bíllinn tekinn í gegn. Leikhús, tónleikar og ýmisleg afþreying. Útilýsingar – góð ljós í myrkrinu. Þjófavörn fyrir heimili og sumarbústaði. Mataruppskriftir. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16 mánudaginn 19. október. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað Vertu viðbúinn vetrinum föstudaginn 23. október. Vertu viðbúinn vetrinum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.